Morgunblaðið - 09.11.1960, Blaðsíða 5
Miðvikudagur 9. nóv. 1960
MORCUiyBLAmv
5
Læknar fjarveiandi
(Staðgenglar í svigum)
Erlingur Þorsteinsson til áramóta —
(Guðmundur Eyjólísson, Túng. 5).
Ezra Pétursson til 17. des. (Halldór
Arinbjarnar).
Baraldur Guðjónsson óákv. tíma Karl
Jónasson).
Sigurður S. Magnússön óákv. tíma —
(Tryggvi Þorsteinsson).
• Gengið •
Sölugengl
1 Sterlingspund ........ Kr. 107,23
1 Bandaríkjadollar ..... — 38,10
1 Kanadadollar ......... — 39,20
100 Danskar krónur ....... — 553,85
100 Norskar krónur ....... — 535,20
100 Sænskar krónur ....... — 738,60
100 Finnsk mörk .......... — 11,92
100 Austurrískir shillingar — 147,30
100 Belgiskir frankar .... — 76,70
100 Svissneskir frankar — 884,95
100 Franskir frankar ..... — 776,15
100 Gyllinl .............- — 1010,10
100 Tékkneskar krónur ........ — 528.45
100 Vestur-þýzk mörk ______— 913.65
1000 Lirur ................ — 61,39
100 Pesetar -............. — 63.50
Flugfélag íslands h.f.: — Millilanda-
flug: Hrímfaxi fer til Glasgow og
Kaupmh. kl. 08:30 .væntanlegur aftur
kl. 16:20 á morgun. — Innanlandsflug
i dag: Til Akureyrar .Húsavíkur, Isa-
fjaröar og Vestmannaeyja. — A morg-
un: Til Akureyrar (2 ferðir), Egils-
staða, Kópaskers, Patreksfjarðar, Vest
mannaeyja og Þórshafnar.
Loftleiðir h.f.: — Leifur Eiríksson er
væntanlegur frá New York kl. 08:30,
fer til Stafangurs, Gautab., Kaupmh.
og Hamborgar kl. 10:00.
Eimskipafélag íslands h.f.: — Detti-
foss er á leið til Rvíkur. — Fjallfoss
fór frá Grimsby 7. til Great Yar-
mouth, — Goðafoss er á leið til Rvík.
— Gullfoss fór frá Hamborg í gær til
Kaupmannahafnar. — Lagarfoss fer
frá Reykjavík í kvöld til Faxaflóa-
hafna. — Reykjafoss er á leið til Es-
bjerg. — Selfoss er á leið til New
York. — Tröllafoss og Tungufoss eru
í Reykjavík.
Eimskipafélag Reykjavíkur h.f. —
Katla er á leið til Englands. — Askja
er í Reykjavík.
Hafskip h.f.: — Laxá kemur vænt-
anlega á morgun til Napoli.
HARALDUR krónprins Nor-1
egs, stundar um þessar mund-
ir nám við háskólann í Ox-
ford. Hann er meðlimur í hin
um fræga róðrarklúbb há-
skólans og hér á myndánni
sést hann (í miðjunni í fremri
röð) við æfingar á Themsá.
H.f. Jöklar: — Langjökull er á leið
til Leningrad. Vatnajökull er í Ham-
borg.
Skipaútgerð ríkisins: — Hekla er á
Austfjörðum. — Esja kemu rtil Rvíkur
í dag. — Herðubreið er á Húnaflóa. —
Þyrill er í Hafnarfirði. — Herjólfur
fer frá Rvík í kvöld til Vestmannae.
Skipadeild SÍS: — Hvassafell er í
Helsingfors. — Arnarfell er í Gdansk.
— Jökulfell er á leið til Hull. — Dís-
arfell lestar á Austfjarðarhöfnum. —
Litlafell fer frá Hornafirði 1 dag til
Rvíkur. — Helgafell er í Riga. —
Hamrafell er á leið til Aruba.
O .t P •
Sotnin
Ásgrímssafn, Bergstaðastræti 74, er
opið alla daga nema miðvikudaga frá
kl. 1:30—6 e.h.
Sýninganalur náttúrugripasafnsins
er lokaður.
Kjólar og kápur Nr. 14—16 til sölu ódýrt. — Uppl. í síma 24595 frá kl. 1 í dag og á morgun. Konur Voghverfi. Kjólar sniðnir og mátaðir, fljót afgreiðsla Uppl. í síma 33311.
Húsbyggjendur 6 stk. Ijósar mahognyhurðir í samskonar körmum, með skrám og lömum til sölu mjög ódýrt. Uppl. að Ljós- heimum 6 1. hæð t.v. Herbergi Reglusamur maður óskar eftir herbergi. — Nýleg prjónavél til sölu á sama stað. Uppl. í síma 23117.
Skellinaðra til sölu og sýnis að Þor- finnsgötu 12 eftir kl. 7 á kvöldin. Kvenreiðhjól til sölu. Uppl. eftir kl. 7 á kvöldin. Bjargarstíg 2, efstu hæð.
1—3 herb. og eldhús óskast sem allra fyrst, fyrirframgreiðsla ef óskað er. Uppl. í síma 15986 íbúð óskast 2ja til 4ra herb. íbúð ósk- ast strax. 15 þús. fyrirfram greiðsla. Uppl. í síma 32383
íbúð óskast óskum eftir íbúð, helzt í Kópavogi. — Uppl. í síma 35298. Stúlka með vélritunar og bókfærslukunnáttu ósk ar eftir atvinnu strax. Tilb. sendist Mbl. fyrir 12. þ.m. merkt: „Bílprófshafi 1886“
Frá Sjálfsbjorg Reykjavík
Félagsvisí verður í Sjómannaskólanum í kvöld, mið-
vikudagskvöld kl. 8,30.
Félagar f jölmennið og takið með ykkur gesti.
Skemmtineíndin.
Hárgreiðslustofa til leigu
í fullum gengi á bezta stað í bænum. Sanngjöm
leiga. Tilboð merkt: „Laugavegur — 1159“ sendist
Mbl. fyrix- laugardagskvöld.
— Það er óþarfi aJS kynna okkur
— við höfum hitzt áður . . ,
— Jæja, svo þér eruð að skilja
við manninn yðar. Þér hafið sjálf
sagt náð í lögfræðing?
,— Nei, það er nú heildsali!
— Veiztu hvers vegna Adam
©g Eva voru rekin úr paradís?
— Ja, ætli það hafi ekki verið
vegna þess að þau borguðu ekki
húsaleiguna.
—o—-
— Jæjia, hvernig líður gull-
fiskinum yðar, sem var veikur,
frú Sigríður?
— Þakk fyrir, hann er að kom
ast á fætur aftur!
Hjá mannætum:
Dóttirin: — Má ég taka unga
manninn með heim í miðdegis-
mat?
Móðirin: — Já, góða mín, en
blessuð hafðu hann ekki seigan.
—O—-
— Eru allar dætur yðar giftar,
herra stórkaupmaður?
— Nei, ég á enn nokkur stykki
á „lager“.
Ákærði :— Ég kalla himin og
jörð til vitnis um, að ég er sak-
laus.
Dómarinn: — Gott. Látið vitn-
in koma inn.
— Nafn frænda míns er þekkt
um allt land.
— Nú, og hvað heitir frændi
þinn?
— Jón.
Minjasafn Reykjavíkurbæjar, Skúla
úni 2. Opið daglega kl. 2—4 e.h. nema
nánudaga.
Bæjarbókasafn Reykjavíkur sími 12308
Aðalsafnið, Þingholtsstræti 29 A.
tlán: Opið 2—10, nema laugardaga
2—7 og sunnudaga 5—7. Lesstofa:
Opin 10—10, nema laugardaga 10—7
og sunnudaga 2—7.
Útibúið Hólmgarði 34:
Opið alla virka daga 5—7..
Útibúið Hofsvallagötu 16:
Opið alla virka daga 17.30—19.30.
Listasafn Einars Jónssonar er opið
frá kl. 1,30—3,30 miðvikudaga og sunnu
daga.
Listasafn ríkisins er opið þriðjudaga,
fimmtudaga og laugardaga kl. 1-3,
Þjóðminjasafnið: — Opið sunnudaga
kl. 1—4. þriðjudaga, fimmtudaga og
laugardaga kl. 1—3
AHEIT og GJAFIR
Hallgrímskirkja í Saurbæ, aih. Mbl.
Frá Villa 500 krónur.
SóUieimadrengurinn, afh. Mbl.: —
GX 25 krónur, Kona á Akranesi 25,
NN 25, Erl. 100, OR 150, Kona 50, IP
100, NN 100, Þakklát móðir 25.
Áheit og gjafir á Strandakirkju, afh.
Mbl.: — HS 50 kr„ SJ 15, AM 400,
Klara 300, VG, Akranesi 100, NN 10,
EG 20, Onefndur 200, NN 50, JS. Laug
arvatni 100, VSR 300, NN 500, MS 90,
SO 45, NN 10, g. áh. ÞEG 50, KGJ 100,
MP 500, ÞM 100, NN 10, ER 50, AG
10, X 50, Guðbjörg 50, Rúna 35, JJ
200, HS 50, SS 50, EA 50. áh. í bréfi 35,
NN 215, áh. í bréfi 100, Gulla 500, KE
30, GF 200, ESK 100, 3>órdís Jóhannes-
dóttir 10, GK 50, HA 25, GG 100, Frá
13 100, S og O 50, GJ 160, GEJ 25,
HP 100, E 20, Onefndur 150, GKG 200,
JBH 100, HB 200, Osk 100, Í>Þ 100,
AS 100, NO 50, SI 250, NS 50. HU
100, HE 100, Gregory 10, áh. í bréfi
110, Þakklát móðir 25.
Sólheimadrengurinn: Onefnd kona
kr. 100.00.
Vélráður maður kveikir illdeilur og
rógberinn veldur vinaskilnaði.
Illmennið gefur gaum að fláræðis-
vörum; Iygin hlýðir á glæpa-tungu.
Falsvottur sleppur ekki óhengdur og
sá sem fer með lygar, kemst ekki
undan.
Orðskviðirnir.
Mafreiðslumaður
spænskur óskar eftir atvinnu við mat-
reiðslu eða önnur störf. Upplýsingar
gefur ræðismannsskrifstofa Spánar,
Bræðraborgarstíg 7. Sími 22160.
Ungur og ábyggilegur
sölumaður
getur fengið atvinnu strax.
Uppl. i síma 10485.
Hef opnoð hdrgreiðslustofn
að Brautarholti 22.
undir nafninu
Hárgreiðslustofa Austurbæjar
Marý Guðmundsdóttir (áður í Lorelei).
Nauðungaruppboð
eftir kröfu bæjarsjóðs Kópavogs og að undangengnu
lögtaki veiður Bifreiðin R-3605 seld á opinberu upp-
boði, sem frar.i íer við skrifstofu mína Álfhólsvegi 32
föstud. Í8. nóv. 1960 kl. 15.
Greiðsla við hamarshögg.
Bæjarfógetinn í Kópavogi.