Morgunblaðið - 13.11.1960, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 13.11.1960, Qupperneq 6
6 MOKGUISBLAÐIÐ Sunnudagur 13. nóv. 1960 Larsdssamband verzSunar- * manna og A.8.I. VEGNA viðtals í í>jóðviljanum sl. föstudag við tvo forystumenn £ Alþýðusambandi íslands um inntökubeiðni Landssambands ísl. verzlunarmanna í ASÍ vill stjórn LÍV taka þetta fram: Stjóm LÍV vísar til þeirra raka, sem hún færði fram fyrir inntökubeiðni sinni og birtist í blöðum fyrir skemmstu. Þau veigamiklu rök standa öll óhögg uð og ekki gerð tilraun til að hrekja þau í fyrrgreindu viðtali. Orðræður forystumannanna um að samtök verzlunarfólks séu ekki þann veg skipuð að sambærilegt sé við önnur félög eða samtök innan ASÍ eru ó- sannindi og er stjórn LÍV reiðu- búin að ræða það mál á hvaða vettvangi sem er. Þetta eru mjög óviðfelldnar dylgjur af hálfu þessara forystumanna. Forystumennimir segja að meðan þannig sé ástatt fyrir LlV þá „getur það að sjálfsögðu' ekki orðið aðili að Alþýðusam- bandinu.“ Nú hefir inntöku- beiðni okkar legið fyrir mið- stjórn ASÍ í marga mánuði. — Hvers vegna hefir henni ekki verið vísað frá, fyrst að á skipu lagi LÍV eru slíkir annmarkar, að það geti „að sjálfsögðu ekki orðið aðili að Alþýðusamband- inu“? Það hefði verið eðlilegra, ef slíkir annmarkar eru á, að benda LÍV strax á þá, þannig að þeim hefði mátt kippa í lag. Það liggur í augum uppi, að LlV er engan veginn öðru vísi saman sett en hin einstöku félög þess, félög, sem eru og hafa ver- iS sum hver í ASÍ um árabil með góðu samþykki allra aðila. Og enn má taka fram, að í LlV er nákvæmlega’ sams konar fólk eins og í verzlunarmanna- samtökum á öðrum Norðurlönd- um, sem öll eru í alþýðusam- böndum viðkomandi landa. Það má af máli forystumann- anna skilja ,að þeir telji höfuð- atriði, að fyrirhugaðri skipulags- breytingu ASÍ verði að ráða til lykta áður en LÍV fær inn- göngu, þar sem LÍV geti haft úrslitaáhrif á gang þess máls. Ef þetta á að heita röksemd gegn inngöngu LÍV þá lýsir hún a. m. k. ekki lýðræðislegum hugsunarhætti. Að LÍV eigi að vera útilokað frá ASl af þeim sökum, að það geti haft áhrif og jafnvel úrslitaáhrif á gang mála innan ASÍ er röksemda- færsla sem engu tali tekur. Hitt er svo annað mál að til að forða árekstri í sambandi við afgreiðslu skipulagsmála ASÍ, þá mun stjórn LÍV beita sér fyrir því að gefin verði sú yfirlýsing af hálfu allra væntanlegra full- trúa LÍV á 27. þingi ASÍ, að þeir muni á engan hátt eiga hlut að afgreiðslu skipulagsmál- anna á þinginu. Þá geta forystumennirnir þess í viðtali sínu, að verzlunarfólk þurfi vissulega á stuðningi að halda í kjarabaráttunni, en þann stuðning sé hægt að veita sam- tökum verzlunarfólks, þótt þau standi utan við ASÍ. A að skilja þetta sem svo, að þessir for- ystumenn telji það engu máli skipta fyrir verkalýðsfélög hvort þau eru aðilar að ASÍ eða ekki? Undir slíkt vill stjóm LÍV ekki skrifa og er nær að halda, að slík „röksemdafærsla" sé fram sett meir af vilja en meiningu. Stjóm LÍV harmar, að um þetta mál skuli spinnast deilur. Hún hefði a.m.k. sjálf kosið að standa utan við þær, en fær ekki orða bundizt þegar svo augljóslega er hallað réttu máli -sem gert var í Þjóðviljanum af tveimur forystumönnum ASÍ. Stjórn Landssambands ísl. verzlunarmanna. Fjórðu nemendatón- leikar V. M. Dementz HINIR árlegu nemendatónleikar Dementz eru að verða fastur og ekki ómerkur þáttur í tónlistar- lífi höfuðstaðarins. Þeir síðustu og fjórðu í röðinni voru haldnir í Austurbæjarbíói 2. þ. m. og með töluverðum glæsibrag. Fyrst sungu fjórir einsöngvar- ar, en sá fimmti, sem talinn var á söngskrá, gat ekki mætt vegna lasleika. Þessir nemend- ur voru: Þórunn Olafsdóttir (sópran), Birgir Halldórsson (tenór), Erlingur Vigfússon (tenór), Hulda Viktorsdóttir (sópran). Allt þetta fólk sýndi dugnað og vaxandi kimnáttu. Þá söng kvennakór og kom þar fram sem einsöngvari hin ágæta sópransöngkona Snæ- björg Snæbjamar, sem söng aríu úr La favorita eftir Donizetti. Var söngur hennar mjög glæsi- legur, svo og íramkoma öll. Næst söng karlakór og með honum einsöngvararnir Hjálm- ar Kjartansson, Snæbjörg Snæ- bjarnar og Jón Sigurbjörnsson. Þeir Jón og Hjálmar eru löngu þekktir sem góðir bassasöngvar- * Um almennings- vagna Maður nokkur skrifar eft- irfarandi undir dulnefninu „Vitaljós": Nú að undanfömu hafa birzt í Þjóðviljanum heil- miklar ritsmíðar um rekstur SVR, sem út af fyrir sig væti ekki í frásógur færandi, þar sem þetta fyrirtæki er svo snar þáttur í daglegu lífi borg arbúa, ef þær byggðust ekki allar á frámunalegu þekking- arleysi, ásamt útblásnum hroka greinarhöfundar, svo vægt sé að orði komizt. Þar sem greinarhöfundur vill í þekkingarleysi sínu gerbylta öllu skipulagi SVR, sem byggt er upp samkvæmt margra ára reynslu þeirra sem strætis- vagnana reka, þá þykir mér rétt að koma á áframfæri eft- irfrandi klausu, sem tekin er orðrétt upp úr greininni, sem netnist „Atk. á bifreiðaum- ferð í Rvík, eftir Lawrence J. Hoffman, umferðarsérfræð ing I.C.A. ar. Rödd Hjálmars er mikil og óvenjufögur. Hann hefur tekið miklum framförum á síðustu ár- um og röddin vaxið bæði að gæðum og öryggi. Loks sameinaðist kvennakór- inn og karlakórinn í voldugan samkór. Skapaði það skemmti- legan lokaþátt þessara ágætu nemendatónleika eftir ágætan stíganda þeirra frá upphafi til enda. Hið ágæta starf Dementz við söngkennslu og raddþjálfun naut sín eigi síður í kórsöngnum en í afrekum einsöngvaranna og er íslenzku sönglífi mikill fengur að slíkum manni. Dementz á þó ekki einn allt lofið. Kórstjórn Hriberschek var nákvæm, örugg og full af túlkunargleði og und- irleikur Ásgeirs Beinteinssonar háttvís og smekklegur. Listafólkið fékk hinar ágæt- ustu viðtöökur og að verðleik- um. Húsið mátti heita fullsetið og sýnir það að bæjarbúar fylgj ast af áhuga með starfi þessara manna. Víkar. * Létta umferðina í miðbænum „Það er heppilegt fyrir Reykjavík að hafa eins vel þróað fólksflutningakerfi og SVR, sem flytur 60.0Ö0 far- þega á dag. Það mundi þurfa um 40.000 bifreiðir á dag, til að anna þessum fólksflutning- um í einkabifreiðum og myndi það bæta á göturnar, sem að miðbænum liggja 377 farartækjum á klukkustund, 13 stunda tímabil. Eins og er, Þolinmæði EINHVERJU sinni var Pitt, forsætisráðherra Eng- lands, spurður: „Hvaða dyggð er það, sem stjórnmálamaður ætti fyrst og fremst að vera gæddur? Er það viljaþrek? Er það skilningur?“ „Nei“, svaraði Pitt. „Það er þolinmæði“. Að sjálfsögðu nægir þolinmæðin ekki ein. Gáfur þurfa líka að vera. En gáfumaður, sem skorti þolin- mæði, kæmist ekki langt. Listamaður getur haft frá- bært hugmyndaflug; hann getur haft ágætan fegurð- arsmekk. En ef hann hefur enga þolinmæði til brunns að bera, þá framleiðir hann aldrei mikið l’staverk. Balzac og Tolstoi voru menn, sem skyndi- lega. eins og í snöggu leiftri, gátu séð fyrir sér efni skáldsögunnar. Samt var leiðin sem fara burfti, áð- ur en skáldsagan var fullgerð, mjög löng. Það tákn- aði, að skrifa þurfti tvöhundruð þúsund, stundum fimmhundruð þúsund orð. Það táknaði að lýsa þurfti tvö hundruð persónum. Það táknaði, að bókinni myndi þurfa að breyta tíu sinnum. Hugvitsmaður- inn verður að vera gæddur ótakmörkuðu vinnuþreki. Mikil vísindaleg uppgötvun er stundum gerð á nokkrum sekúndum, en það er alltaf vegna þess, að vísindamaðurinn hafði beðið eftir þessu blessaða augnabliki allt sitt líf. Reyndur málari eins og Pi- casso, getur málað á fáum klukkustundum mynd, sem myndi seljast á miög háu verði, en ef maður segði við hann: „Það tók þig ekki langan tíma að mála þessa mvnd“ Þá gæti hann sagt með fyllsta rétti, eins og Whistler gerði einu sinni: „Það tók mig fimmtán ár“. Þolinmæðin er jafnvel enn nauðsynlegri, þeffar verkið sem vinna þarf er samstarf. Leikritaskáldið er háð leikstjóranum, leikurunum, skreytinga- mönnum, leiktjaldamálurum. Það verður að taka tillit til hæfileikans og einnig til stygglyndis og við- kvænani hvers karls og hverrar konu. Kvikmynda- stjórinn verður að samrýma þörfina á tækni, fjár- munum og kunnáttu. Fljótt á litið virðist bað ófram- kvæmanlegt verk, en vegna kíaftaverka bolinmæð- innar tekst það og, ef allt gengur vel, getur árang- urinn af hinni löngu baráttu orðið listaverk. Jafnvel verstar eru þó aðstæður hins mikla at- hafnamanns, í stjórnmálum eða viðskiptum. Hann samdi áætlanir sínar mjög nákvæmlega, þaulhugs- aði hvert atriði. En þrátt fyrir aðgætni sína og ástundun, þá á hann allt sitt undir manni. sem skil- ur ekki fyrirskipanirnar, æði mannfjöldans, ótta hersins, jarðskjálfta eða óveðri. Maður sem hóf um- fangsmikla kaupsýslu og hafði ástæðu til að telja hana vel heppnaða, getur allt í einu fundið sjálfan sig gjaldþrota, vegna þess að verðið lækkaði. Þá er ekki um annað að ræða, en að byrja allt að nýju. Samningamaðurinn, sem sér dúk friðarins, sem hann hafði ofið með alúð og umhyggjusemi, rifinn sundur af andstæðum ofsa, hvað getur hann gert annað en tínt upp þræðina og byrjað að nýju? Þolinmæði er ekki aðeins dyggð; án hennar koma allar aðrar dyggðir að litlu haldi.... ■ 1 anna þessu 30 almenniags- vagnar, sem fara um 35 ferð- ir á klukkustund. Mikilsvert er, að fyrirtæki eins og SVR leyfist að hafa miðstöð í mið- bænum. Þótt þeir sem ekki ferðast með strætisvögnunum mundu sennilega ekki fallast á þetta, er velferð þeirra höíð í huga. A FERDINAIMR ☆ Gatnakerfi ReykjavíSur get ur ekki í fyrirsjáanlegri fxam tíð tekið fólksflutninga í einkabifreiðum. í Bandarikj- unum hefur oft reynzt óger- legt að flytja alla í einkabif- reiðum á miðsvæði borga vegna takmarkaðra afkasra þarliggjandi gatna og bifveiða stæði. Þess vegna er lagt til að miðstöð SVR verði áfram miðsvæðis við Lækjartorg og Kalkofnsveg". Mér finnst að þessi grein- argerð, sem gerð er 1959, taú sínu máli nægilega skýrt, og bæti ég því ekki við það að • Endist alla ævi yðar Úr því við erum að ræða umferðarmál, dettur mér í hug ágætt aðvörunarmerki til bifreiðarstjóra, sem sett var upp á bæjarmörkum banda- rísks smábæjar. Þar stóð: — Ef þér akið nægilega hratt, þá endist þessi bíll yður alla ævii

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.