Morgunblaðið - 13.11.1960, Síða 15

Morgunblaðið - 13.11.1960, Síða 15
Sunnudagur 13. nóv. 1960 M nttcriN BL ÁÐIÐ 15 Hvernig sem fer fyrir Lum- umba í Kongo, þá er hann bú- inn að fá nafn sem lifir. Eitt af stóru fyrirtækj- unum í París, sem framleiðir efni í tízkukjóla er búið að setja í markaðinn nýj an dökkbrúnan lit á kvöld- kjólaefni — og hefur skýrt hann Lumumba. — ★ Svissneskur úrsmiður er bú- inn að fá skemmtilegt viðfangs- efni. — Nasser hefur kallað hann til Egypta lands, til að gera þar við klukku. Þetta er Eræg klukka, eft irlíking stjörnu- klukkunnar í dómkirkjunni í Strassbourg. Ár- ið 1945 gaf Lúðvík Filipus Mhe- hemet Aly klukkuna og sá síð- arnefndi lét koma henni fyrir í höll sinni. Klukkan gekk eins og — ja, eins og klukka — í fjöldamörg ár. En daginn sem Farouk fór frá völdum, stanz- aði hún og enginn egypzkur úrsmiður hefur getað komið henni aftur af stað. Egyptar eru ekki síður hjátrúarfullir en aðrir og nú ganga þær sögur að klukkan fari ekki aftur í gang fyrr en Farouk sezt aftur að völdum. Þetta hvískur fer í taugarnar á Nasser, og hann er búinn að heita sjálfum sér —■ að hann skuli bara sýna þeim.------- Þetta er fólk, sem alltaf er í fréttunum og alltaf undir smá- sjá blaðaljósmyndaranna. Þau eru: Anna litla prinsessa, Elísa- bet Englandsdrottning, Elísabet drottningarmóðir og Charles litli prins. Það er ekki gaman að þurfa að sitja tímunum sam- an við einhverja hátíðlega at- höfn og eiga á hættu að misk- unnarlausar ljósmyndir festi allt sem aflaga fer á filmu. ★ Konur eru orðnar leiðar á bandaríska listanum yfir 10 bezt klæddu konur heimsins, árlega er út frá York. Nú forseti Fé [ags bandarískra tízkufrömuða sent frá sér lista yfir verst klæddu konur heims, svona til tilbreytingar. Á listanum eru þessar: Anna Magnani, Brigitte Bardot, Yv- onne de Carlo, Lucille Ball, Anita Ekberg, Shelley Winters, Carolyn Jones, Kim Novak og Anne Baxter. Ein af þessum konum tekur þessu áreiðanlega ekki þegjandi og það er „ís- í fréttunum fjallið glóandi", hún Anite Ek- berg. ★ Um leið og hinn nýi forseti Bandaríkjanna flytur inn í Hvíta húsið, þá missir james Hagerty, blaðafulltrúi Eisen- howers, atvinnu sína. Á und- anförnum árum hefur han» ekki komið svo lítið við sögu í heims málunum og ófáar yfirlýsingar verið eftir honum hafðar. En Hagerty þarf ekki að óttast at- vinnuleysi. Löngu fyrir kosn- ingarnar lágu þegar á skrifborð- inu hans tvö tilboð um afbragðs stöður hjá stærstu fyrirtækjum Bandaríkjanna — frá Kóka kóla og frá ABC-sjónvarpinu. ★ Elisabet Taylor, einhver hæst launaða kvikmyndaleikkona heimsins og er þá mikið sagt, er komin til London, ásamt manni sínum, Eddie Ficher, til að leika í kvikmyndinni Kleo- patra. Þetta á að verða gífur- lega íburðarmikil mynd, tekin með Todd-AO aðferðinni, en hana fann upp fyrri maður hennar, Mikael Todd sálugi. — Þegar fyrstu reynslumyndirnar voru teknar og Elisabet sá þær, kom bobb í bátinn. Hún reif þær í tætlur, því á tjaldinu líktist hún mest lítilli feitri buddu. Og nú mega allir leik- ararnir bíða og egypzku pappa- hallimar standa auðar, þangað til Elisabet er búin að hafa af sér þó nokkur kíló. Hún fór í strangan megrunarkúr í ein- hverju fínasta hótelinu í Lon- don. Og enn bættist á erfiðleika hennar þegar ein lítil tönn fór svo illa með hana að hún varð að fara í sjúkrahús. í GÆR OPIMAÐI VERZLLNIIM T í B Tíbrá býður stærsta og glæsilegasta úrval af snyrtivörum. Tíbrá býður beztu fáanlegar snyrtivörur. Tíbrá býður ekta skinnhanzka og slæður í tízkulitum. Tíbrá býður nýjustu tízkupeysur. Tíbrá LeggSð Verð og gæði við nllrn hæfi Að Laugavagi 19 Tíbrá býður nýjustu tízku í undirfatnaði. Tíbrá býður ameriska nylonsokka i tízkulitum. Tíbrá býður beztu fáanlegar lífstykkjavörur. Tíbrá býður aðeins vandaðar vörur. yður velkomin býður leið um Laugaveg og lítið við í Tíbrá Verzlunin TIBRA Laugavegi 19.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.