Morgunblaðið - 13.11.1960, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 13.11.1960, Blaðsíða 17
Sunnudagur 13. nóv. 1960 M oncins TRT. AÐIÐ 17 - Fösiudagskvöld Framh. af bls. 3 — Já, ég kannast við hann. — Og voruð_ þið að koma úr Haf narf j arðarbíó? — Já, segir strákurinn — og roðnar. — Ertu með hljóðdúnk á hjólinu? — Já. — Settu hjólið í gang. — Já. — Hvað hefurðu gert við hljóðdúnkinn? — Hann er heima. — Jæja, góði, komdu með hjólið niður í eftirlit á mánu daginn, og vertu þá búinn að koma þessu í lag. — Já Síðan ók skellinöðrueigand- inn aftur niður á Hafnarfjarð arveg. Skömmu síðar ókum við fram á félagana, þar sem þeir gengu hlið við hlið eftir veginum með skellinöðruna á milli sín. Jóhannes stöðvaði bílinn andartak hjá þeim og spurði hinn drenginn um nafn og heimilisfang. — Þetta verður langur gang ur fyrir þig, sagði hann svo. — Nei, nei, sagði strákur- inn. — Ætlarðu með strætó? — Já. — Hefurðu peninga. — Já, já. — Það er betra að fara að þessum strákum, segir Jóhannes, þetta eru kannski efni í góða bílstjóra, það verð Magnús Daníejsson talar við fanga. ur bara að kenna þeim að hlýða umferðareglunum. Yfir leitt er betra að fara vel að öllum. Maður er alltaf að fást við sálir. Það er hægt að sjá hvort bíll er ljóslaus, en mað' ur veit ekki fyrir hvernig sál imar eru. Við erum aftur á leið í bæ inn. Þegar við komum á móts við Fossvogskirkjugarð, stöðv ar Jóhannes bifreiðina og fræðir okkur um störf vega- lögreglunnar. Hann á langa og drjúga reynslu að baki: — Umferðarmenning hefur stórum aukizt seinni árin með auknu eftirliti og umferðar- merkjum . . . Þarna kemur annar lögreglubíll. Hinn lögreglubillinn stað- Fegrun Hafnarfjarðar L.ögregluþjónarnir Björn Jónsson, Páll Eiríksson og Gylfi Jónsson eftir snörp átök. (Ljósm.: Sv. Þormóðss.) næmist hjá okkur. Bílstjórinn teygir höfuðið út um glugg- ann og segir: — Við erum að hugsa um að fara suður með sjó. — Hvað er um að vera þar? segir Jóhannes. — FlugvallarLögreglan er að leita að bláum picup-bíl, VL ..... sem ók með ofsa- hraða út um hliðið á Kefla- víkurflugvelii. Þeir segja að bílnum hafi auk þess verið stolið. Hann ók í áttina til Reykjavíkur. — Allt í lagi, segir Jóhann es, við skulum aka í veg fyrir hann. — Allt í lagi. — Þá byrjar spenningurinn, segir ljósmyndarinn. Við erum þegar komnir á 80 km. hraða. Það er bíll fyrir framan okkur og annar kem ur á móti og sinnir ekki rauða Ijósmerkinu, sem Jóhannes gef ur. Hann verður að draga úr ferðinni til að forða órekstri við bílinn, sem kemur á móti. -— Þessi á ýmislegt eftir ó- lært, segir Jóhannes, og eyk ur aftur ferðina 90 km. . . . . , , 100 km . . — Við förum nýja veginn, segir Jóhannes, og ég verð að aka hratt til þess að missa hann ekki hina leiðina — 110 km. . . . — Ég sé að þú ert öruggur bílstjóri, segir ljósmyndarinn, en blaðamaðurinn mælir ekki orð frá vörum. — Ég er orðinn vanur þessu, segir Jóhannes, svo var ég fimm mánuði á sérstökum öku skóla í Englandi. — Það bólar ekki á honum, segir Gunnar, kannsk;i hann hafi farið til Grindavíkur. — Við erum komnir lang- leiðina til Keflavíkur og flug vallarlögreglan kemur á móti okkur. Þeir höfðu ekki heldur séð til Kanans. — Jæja, við leitum betur á afleggjurunum, segja flug- vallarlögregluþjónamir. Við snúum aftur í bæinn og Jóhannes stöðvar bifreiðir nokkrum sinnum á leiðinni og Gunnar athugar ökumennina og farartæki þeirra. Það reyn ist ekki vera neitt alvarlegt. — Þetta er nauðsynlegt, seg ir Jóhannes, hins vegar má maður ekki fá það á tilfinning una að það sé eitthvaS að hjá hverjum bíl eða bílstjóra sem maður mætir. Þegar við komum niður á lögreglustöð aftur, er picup- bíllinn vel geymdur í porti lögreglustöðvarinnar. Síðar kom í ljós að Kaninn var kom inn í bæinn áður en við lögð um af stað frá Fossvogskirkju garði. Tilkynningin til Reykja víkurlögreglunnar um þennan ökuþór, hafði af einhverjum ástæðum verið of lengi á leið inni. Þetta var unglingslegur Kani, drukkinn og eymdarleg ur. Hann hafði ætlað að hitta unnustu sína í Reykjavík, en þegar til kom vildi hún ekk- ert með hann hafa. Hann var svo skjálfhentur að hann gat varla skrifað nafnið sitt sjálf ur í „gestabók" lögreglunnar. Svona getur ástin leikið menn grátt. — Þið eruð aldeilis búnir að missa af miklu, segir Guð- björn, um leið og við komum inn á stöðina. — Já, það hefur al.lt verið vitlaust, tekur Magnús undir, engu betra en á laugardags- kvöldi. Fangageymslan er orð in full fyrir löngu. — Haldið þið að það gerizt ekkert eftir þetta? spyr blaða maðurinn. Klukkan er orðin nærri tvö, segir Guðbjörn, en það' eru alltaf einhverjar eftirlegukind ur. Það reyndist orð að sönnu, því á einum klukkutíma urð um við vitni að hressilegum slagsmálum á tveimur stöðum í bænum og munnsöfnuði sem hver skútukarl hefði mátt telj ast fullsæmdur af. Gilti þetta bæði um konur og karla í öðru tilfellinu, nema hvað konurn ar höfðu meiri hömlur á hnef um sínum, en notuðu radd- böndin þeim mun kröftugleg ar. Þetta átti sér auðvitað stað fyrir utan dansstað — og mun ekki koma þeim á óvart, sem sækja slíka staði alsgáðir og fara jafn alsgáðir heim. Að lokum lentum við í því að hirða þjófa með Guðbirni, yfirvarðstjóra og Páli Eiríks- syni, lögregluþjóni og fleir- um, en það væri efni í heila grein, sem því miður er hvorki tími né rúm fyrir að þessu sinni. i. e. s. Siml 15300 Æglsgötu 4 Inni- og 'útidyra skrár Einnig lamir, fjölbreytt úrval Skápalæsingar og höldur Rör í fatahengi Saumur í flestum stærðum, einnig galvaniseraður FEGRUNARFÉLAG Hafnarfjarð ar hefir starfað í 10 ár, á næsta vori. Á þessu tímabili hefir fé- lagið stuðlað að fegrun í bæn- um, ýmist með örvun til bæjar- búa eða með því að ráðast sjálft framkvæmdir, með aðstoð góðra manna. Fegruð hafa verið opin svæði í bænum, með gras- sáningu, trjáa -og blómarækt og má þar nefna svæðið við Tungu, Thorsplanið, Sýslumannstúnið, Lækjargarðinn og ennfremur átti félagið þátt að fegrun Öldu- torgs. Tvö af þessum svæðum urðu þó ekki fullgerð á þessu hausti. Þá hefir félagið á hverju sumri, veitt heiðursverðlaun og viðurkenningar fyrir f egurstu garða í bænum, og um nokkur ár voru veittar viðurkenningar til fyrirtækja og stofnana, sem til fyrirmyndar þóttu um snyrti- legt og fagurt útlit og um- gengni. Ég held að segja megi að starfsemi félagsins hafi borið góðan árangur. Ein af aðalstoðum félagsins í hvers konar fegrunarmálum, var frú Margrét Auðunsdóttir, sem lézt á sl. vori. Hún gerði garð sinn að Hellis- götu 1 að fyrirmynd annara garða um blómarækt og aðra prýði, og voru henni veittar við- urkenningar ár eftir ár af Fegr unarfélaginu og einnig heiðurs- verðlaun fyrir fegursta garð Hafnarfjarðar. Hin síðari ár tók hún þátt í félagsmálum og var í stjórn Fegrunarfélagsins. Þar starfaði hún af einlægum áhuga og dugnaði og stendur Fegrun- arfélagið og bæjarfélagið í heild í þakkarskuld fyrir hin mörgu og góðu málefni sem hún átti drjúgan þátt í að koma áfram. Nú hefir eiginmaður frú Mar- grétar Oddur Hannesson raf- virkjameistari, og synir þeirra, ákveðið að stofna minningarsjóð um hana, og verður reglugerð sjóðsins birt við verðlaunaaf- hendingu Fegrunarfélagsins til garðeigenda, sem fram fer síðar í þessum mánuði. Tekjum sjóðsins er ætlað að verja til eflingar hins mikla áhugamáls frú Margrétar, það er til fegrunar Hafnarfjarðar og örvunar til bæjarbúa í þeim efn um. Sjóðnum er ætlað að fá tekj- um af gjöfum, svo og af sölu minningarspjalda, en þau verða seld í bókabúð Olivers Steins og í Rafveitubúðinni. Ég vil hér með vekja athygli á þessari sjóðsstofnun og vænti þess að Hafnfirðingar heiðri minningu frú Margrétar, og við- urkenni hennar fögru störf, með því að styrkja sjóðinn til fegr- unar Hafnarfjarðar. Valgarð Thoroddsen. Sérverzlun með raf- magnstœki og húsgögn BOLUNGARVlK, 12. nóv. — í morgun var opnuð hér ný verzl- un. Er það sérverzlun, sem r Alyktanir iðnnemaþings Blaðinu hafa borizt ályktanir frá síðasta þingi Iðnnemasam- bands Islands. Ályktanirnar fjalla allar nema ein um hags- munamál iðnema. Skorað er á al- þingi að stofna lána- og styrktar sjóð handa iðnnemum, talið að hraða beri stofnun lánasjóðs vél fræðinga, skorað á ráðherra að beita sér fyrir stofnun iðnfræði- skóla, skorað á Alþingi ,að standa fast á þeirri samþykkt (?), sem tók gildi 1. sept. 1958“ um land helgismál, talið að þörf sé rót- tækra aðgerða í eftirliti með verklegu námi iðnnema, talið að stórauka eigi verklega og fræði- lega kennslu við Iðnskólann, og að lokum er ályktun um kjara- mál. Segir þar, að iðnnemar hafi laun í hlutfalli við laun sveina og séu þau nú frá 30% — 50% á 1. til 4. árs, en kröfur þingsins eru þessar: 40% af kaupi sveina á 1. ári, 50% á 2. ári 60% á 3. ári og 70% á 4. ári. verzlar með rafmagnstæki og húsgögn og fyrsta verzlun af því tagi, sem hefur þessar vörur ein göngu á boðstólum. Virki h.f. rekur verzlunina, en fram- kvæmdastjóri hlutafélagsins og um leið verzlunarstjóri er Bernó dus Halldórsson. Samhliða verzluninni er rekið rafmagnsverkstæði, sem Guð- mundur Jónsson, rafvirkjameist- ari, veitir forstöðu. Eru verzl- unin og verkstæðið til húsa í nýju húsi við Hólatorg. Þetta verzlunarpláss er ákaflega skemmtilegt, innrétting smekk- leg og vönduð. í morgun hefur verið stöðugur straumur í búð- ina til að kaupa og skoða. Flytja fiskimjöl frá Bolungarvik Togarinn Guðmundur Péturs fór fyrir skömmu hlaðinn fiski- mjöli til Esbjerg og er nýkom- inn út. í ráði er að vélskipið Særún, sem er í flutningum milli Vestfjarða og Reykjavíkur, fari með fiskimjölsfarm til London. Hér hefur verið ákaflega góð tíð, en rysjótt tvo síðustu dag- ana. Snjór er í fjöllum niður í miðjar hlíðar. Enn er unnið að húsbygging- um af kappi, m. a. er nýja frystihúsið að komast undir þak. —• Fréttaritari. Húsbyggjendur, byggingameistarar Nokkrir trósmiðir geta tekið að sér nýbyggingar, innréttingar eða breytingar. — Uppl. í síma 22812 og 35087. 5-7 herbergja íbuð í nýju eða nýlegu húsi óskast til kaups. Má vera ófullferð. — Tilboð merkt: „íbúð — 1361“, sendist afgr. Mbl. fynr 15. þ.m.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.