Morgunblaðið - 13.11.1960, Page 20

Morgunblaðið - 13.11.1960, Page 20
20 MORClINfíL ifílÐ Sunnudagur 13. nóv. 1960 Eg var sem sagt aldrei við >ví búin, sem mamma gat fundið upp a. Heldur ekki vissi ég hvernig hún myndi snúast við tilraunum mínum til að eignast trúnað henn ar. Lengst af virtist hún óþolin- móð eða utan við sig, en svo gat svipurinn á hexmi orðið þannig, að mér hnykkti við. Það var ekki svo að skilja, að hún skipaði méT að segja sér neitt, heldur hitt, að hún var algjörlega áhugalaus. Henni leiddist. Og það var eins og eitthvað í mér dæi, ef ég hélt, að ég væri að gera henni leið- indi. Þrátt fyrir allt þetta var ég hreykin af mömmu — í laumi. Hún var svo falleg og vel gefin og fyndin. Einu sinni kom stelpa iil mín með úrklippu úr New York Times. — Er þetta ekki mammá þín? spurði hún. Eg las. MICHAEL STRANGE LEIK- UR í EIGIN VERKI. Þúsundþjalasmiðurinn í amerískum bókmenntum og leikritun, Míchael Strange -— þekkt í samkvæmislífinu sem frú Harrison Tweed — sannaði getu sína í gær með því að leika í Westchester- leikhúsinu, og það á glæsi- legan hátt, tvö aðalhlut- verkin í nýja leikritinu sínu um Byron . .. Það var eftir minnilegt leikafrek . . . Eg sagði nú mömmu aldrei frá stelpunni né úrklippunni, en ég geymdi miðann, þangað til hann var orðinn allur kruklaður. Harry Tweed, grannur ljós- hærður og jafnlyndur, tók þessu öllu eins og hverjum öðrum sjálf sögðum hlut. Hann hafði með höndum ýmisleg mikilvæg mála ferli, vissi ég — hann var lög- fræðingur Rockefeller-fyrirtækj anna — en engu að síður hafði hann alltaf tíma til að tala við mig. Heimilið var freklega bylt ingarkennt, bæði vegna æðis- kasta mömmu og rifrildis hennar við Harry (henni fannst klúbb- félagar hans leiðinlegir, en hann taldi hennar félaga drabbara). Svo voru sennumar við mig og þjónustufólkið. Eg heyrði hana öskra: — Harry, viltu segja þeim, að ég vilji ekki láta kalla mig frú Tweed. Eg veit, að þú ert mikill maður í Wall street, en ég ég vil eiga mitt eigið nafn fyrir því og ég heiti ungfrú Strange! Viltu koma þeim í skilning um það?). Svo voru reiðiköst Robins, þegar hann var heima, gagnvart hversdagsleik lífsins almennt og heimsku minni sérstaklega. Stimdum fannst mér sem það eina, sem væri óumbreytanlegt og visst væri morgunverður Harr ys, sem var það líka í þessi tólf ár, sem ég átti þama heima, og svo morgunkveðjan hans þegar ég kom niður til matar. — Jæja, við skulum rejma að gleyma því, telpa mín, sagði hann þegar hann kom heim úr skrifstofunni á daginn, og sá, að ég hafði lent í rifrildi við mömmu. Svo var hann vanur að kyssa mig á kinnina. — Segðu mér svo, hvernig þér gekk í skól anum í dag. Sannast sagna gekk mér ekki sem verst í skólanum um þessar mundir. Eg hafði áunnið mér nokkra frægð, vegna mömmu. En um leið og það barst allt í einu út, að ég væri dóttir Johns Barry more, hetjunnar úr Sjóskrímsl- inu, og elskara Gretu Garbo úr Grand Hotel, þaut frægðin upp úr öllu valdi. Eg vissi ekkert um þetta fyrr en tvær bekkjarsyst ur, sem höfðu umgengizt mig eins og ég væri ósýnileg, komu þjótandi til mín. Þær vildu fá skorið úr deilu. — Er ekki John Barrymore virkilega pabbi þinn? sagði önnur. — Eg sagði, að það gæti ekki verið satt, sagði hin, — þú heytir Blythe og þá getur hann ekki verið pabbi þinn. — Vitanlega er hann pabbi minn, sagði ég hreykin. — Blythe var ættamafn okkar einhvem- tíma í fyrndinni, það er allt og sumt. Hin lét ekki sannfærast. — Já, en hann er í Hollywood og þú sérð hann aldrei. Þetta gat ég ekki látið gott heita. Enginn mátti vita, að ég hefði aðeins einu sinni séð pabba minn, og þá ekki nema í nokkrar mínútur. — Já, en ég er alltaf að heimsækja hann. Það er ekki lengra síðan en í fyrrasumar, að ég heimsótti hann í Hollywood. Svona byrjaði það. Eg fór að búa til sögur og skreyta þær á allan hátt. Eg lýsti nákvæmlega 250 þús. dala skemmtiskútunni, Infanta, sem hann og Dolores Costello voru að sigla á til Suð- urAmeríku. Eg gat lesið mér til í blöðunum um allt, sem ég þurfti að vita. Eg lýsti ævintýrahúsinu hans við Turnvsg, sem var það glæsilegasta í Hollywood. Þar hafði ég hitt minn fræga frænda Lionel og Ethel frænku, og pabbi hafði farið með mig í heimsókn til Clark Gable og Joan Crawford og Ronald Colman. Eftir kvöld- matinn sat ég og fletti fram og aftur öllum kvikmyndaritum, sem ég gat náð í — og mamma sagði, að væri rusl — til þess að sjá, hverjir væru í Hollywood og hvaða myndum þeir væru að leika í. Eg krotaði svo nöfnin í stílabók og lærði þau síðan utan bókar. Aldrei hafði ég lesið skóla bók með jafnmikilli kostgæfni. Auðvitað sagði ég stelpunum, að pabbi skrifaði mér nýjustu kjafta sögurnar frá Hollywood. Á hverj um degi varð ég að standa undir skothríð af spurningum, og ein- hvemveginn tókst mér að svara þeim öllum. Gloria Caruso hafði verið hetjan í Hewittskólanum, hér var ég hetjan. Eg varð alveg töfruð af ættar sögunni minni. í bókasafninu gleypti ég í mig allt, sem ég gat fundið um Barrymoreættina. Eg las um það, hvernig pabbi pabba, Maurice Barrymore, „glæsilegur, fyndinn segulmagnaður“ léki með frú Modjesku Olgu Nether- sole og frú Fiske, og skildi eftir feril af sprungnum hj,örtum um landið þvert og endilangt. Eg dok aði lengi yfir lýsingunni á ömmu minni Georgie Drew Barrymore, sem dó 1893, þegar pabbi var bara ellefu ára. Leikdómendurn- ir skrifuðu um fyndni hennar og fjör og það, að „hún sagði alltaf allt sem henni datt í hug“. Kann ske líktist ég henni? Og ég las um langömmu mína, frú John Drew, einhverja mestu leikkonu á amerísku sviði. Það var hún ein, sem gerði Fíladelfíu að höfuð borg leiklistarinnar vestan hafs, fyrir næstum himdrað árum, þeg ar hún sjómaði hinu fræga Boga götu-leikhúsi. Og ég las um langa langaafa minn og ömmu, Thomas og Elísu Trenther Lane, sem höfðu ofan af fyrir sér sem leik arar á tímum Georgs III. Eg varð hrifin. Hvílík ætt, föð urættin þín líka! hugsaði ég. — Diana litla, hvíslaði ráðs- konan, Minnie Bell, að mér. — Frú Tweed — ég á auðvitað við, imgfrú Strange — vill finna þig strax. Og svo kinkaði hún kolli, með þýðingarmiklum svip, í átt- ina að dyrum mömmu. Eg þaut eftir ganginum og var að hugsa um, hvað nú gæti staðið tiL Mamma lá uppi í legubekk. — Setztu niður, sagði hún og tónninn var þannig, að harm þoldi engin mótmæli. — Eg var í kvöldboði með konunni hans Willie K. (Enda þótt mamma hefði einu sinni verið hrifin af William K. Vanderbilt, sem var helzta glæsimennið -í Newport, þegar hún var ung, talaði hún alltaf kuldalega um komma hans og kallaði hana aldrei annað en „komma hans Willie K!“). — Hún sagði við mig: „Michael, ekki vissi ég, að hún Diana hefði heimsótt hann pabba sinn í Holly wood í sumar. Hvemig gaztu sleppt henni þangað?“ Mamma leit á mig. — Eg varð auðvitað alveg að kvikindi. Hvar heldurðu nú, Diana, að hún hafi heyrt þessa kjaftasögu Eg vissi ekki hvemig ég átti að snúa mér, en reyndi að svara fullum hálsi. — Eg veit ekki, mamma. Líklega hefur hún lesið það í einhverjum af þessum slúð urdálkum. — Þú veizt það vfet vel. Reyndu ekki að bjarga lyginni með annarri lygi. Þú hefur verið að segja frá þessu í skólanum — eða það sagði Rosemary henni! Nú var mamma orðin vond og reiðin færðist í aukana eftir því, sem hún hugsaði ldngur um þetta. — Þú veizt hvað ég hata lygi! Þú ert alveg eins og hann pabbi þinn — fæddur lygari! Hann hefði ekki getað sagt satt þó líf hans hefði legið við, og eins ert þú. Ef hann fór út að ganga og ekk ert kom fyrir hann, gat hann samt sagt manni hárreisandi reyf ara . . . Hún renndi hendinni gegnum hárið á sér í æsingi. — Ó„ guð minn, á ég að heyra end uríekningar á því öllu saman hjá þér? Snáfaðu út! Eg flýtti mér að komast út, en svei því ef ég iðraðist. Eg dáðist að pabba í huganum fyrir að geta búið til reyfarasögu um ekki neitt. Mamma vissi aldrei, hve miklu ég laug. Nei, kannske var það ekki rétta orðið. Eg skáldaði. Á sama hátt og ég hafði forðum gert helgimyndimar lifandi, eins gerði ég nú húsið okkar að sér- stökum heimi, sem ég átti sjálf. Ein heil hæð í húsinu var óinn réttuð; heil röð af herbergjum með auðum ^kalkveggj um. Það hafði komið til mála að gera þar tennisvöll eða sundlaug, eða einhverskonar íþróttasvæði, en svo hafði kreppan tafið fyrir framkvæmdum. Hvað eftir ann að fór ég inn í þetta auðu svæði og veifaði sprotanum mínum. Þá var ég meistari í kappleik. Eg vann gullbikarinn, og hrósaði þá andstæðingnum fyrir drengileg- an leik — þótt árangurslaus væri! Svo fór ég inn í næstu stofu. Hún var danssalur með flannastórum speglum og glæsi legum búningum, öllum frá tím um Maríu Anttoniettú, aí því að mig rámaði ósjálfrátt í það þegar fóstra fór með mig í Salinn í Ver salahöllinni. Og ég var sjálf Mar ía Antonietta, hátignarleg og með mikinn yndisþokka, þegar ég hneigði mig fyrir fögrum konum og glæsilegum hirðmönnum, sem voru að hneigja sig fyrir mér, en urðu að líta undan um leið til þess að blindast ekki af Ijóman- um, sem af mér stafaði . . . — Jæja, svo þér eruð skattheimtumaður — gaman, gaman — ha, ha! aHUtvarpiö Sunnudagur 13. nóvember ' 8.30 Fjörleg músík í morgunsárið. 9.00 Fréttir. 9.10 Veðurfregnir. 9.20 Vikan framundan. 9.35 Morguntónleikar: a) Forleikur að „Töfraflautunni** eftir Mozart (Hljómsveitin Fílharmonía; Rafael Kubelik stj.). b) Píanókonsert fyrir vinstrl hönd eftir Ravel (Robert Casadesus og sinfóníuhljóm- sveitin í Fíladelfíu leika; Eug ene Ormandy stjómar.) c) Fiðlukonsert nr. 2 eftir Szym anovski (Eugenía Uminska og pólska útvarpshljómsv.; Fitel- berg stj.). d) Sinfónía nr. 4 í e-moll eftir Brahms (Hljómsv. Fílharm- onía; Herbert von Karajan stjórnar.) 11.00 Messa í Dómkirkjunni (Presturs Sr. Friðrik A. Friðriksson prót. á Húsavík. Organl.: Dr. Páll Is- ólfsson). 12.15 Hádegisútvarp. 13.10 Afmæliserindi útvarpsins um fs- lenzka náttúru; III: Hraun og eld- stöðvar (Dr. Sigurður Þórarins- son jarðfr.) 14.00 Miðdegistónleikar: Ný tónlist frá Norðurlöndunum fimm (hljóðr. kirkjutónl. í Stokkhólmi 10. sept 81.). a) Missa a eapella eftir Sulo Sal- onen. b) Sólhvarfahugleiðing fyrir sópr anrödd, knéfiðlu og orgel eft- ir Jan Mægaard. c) Panga Lingua fyrir bland. kór eftir Conrad Baden. d) Inonizationir f. orgel eftir Magnús Bl. Jóhannsson. e) Toccata concertante eftir Stig Gustav Schönberg. f) Þrjár mótettur f. bland. kór eftir Sven-Erik Báck. g) Konstellationer eftir Bengt Hambræus. 15.30 Endurtekið efni: „Örvæn.ting**. einleiksþáttur eftir Steingerði Guðmundsdóttur, fluttur af höf. 15.45 Kaffitíminn: Jósef Felzmann Rúdólfsson og félagar han* leika. — (16.00 Veðurfregnir). 16.15 A bókamarkaðinum (Vilhj. 1». Gíslason útvarpsstjóri). 17.30 Barnatími (Skeggi Asbjarnarson kennari): a) Framhaldssagan: „Ævintýri I sveitinni“ eftir Armann Kr. Einarsson; VIII. (Kristín Anna Þórarinsdóttir leikk.). b) Sólveig Guðmundsdóttir les síðari hluta sögunnar „Gullna snertingin“ eftir Hawthorne. c) Upplestur úr tveim nýjum bókum. 18.25 Veðurfregnir. 18.30 Þetta vil ég heyra: Anna Sig- ríður Björnsdóttir velur sér hljómplötur. 19.10Tilkynningar. 19.30 Fréttir og íþróttaspjall. 20.00 Musterin miklu í Angkor; IV: Hversdagssaga nútímans (Rann- veig Tómasdóttir). 20.30 Kórsöngur: Kvennakór Slysa- varnafélagsins og Karlakór Keflavíkur syngja. Söngstjóri: Herbert Hr^berschek. Einsöngv- arar: Snæbjörg Snæbjarnardótt- ir og Jón Sigurbjömsson. Píanó- leikari: Asgeir Beinteinsson. 21.00 A förnum vegi (Stefán Jónsson fréttamaður og Jón Sigurbjörns- son magnaravörður sjá um þátt- inn). 22.00 Fréttir og veðurfregnir. 22.05 Danslög: Heiðar Astvaldsson vel ur lögin. 23.30 Dagskrárlok. Mánudagur 14. nóvember 8.00—10.00 Morgunútvarp (Bæn. — 8.05 Morgunleikfimi. — 8.15 Tón- leikar. — 8.30 Fréttir. — 8.40 Tónleikar. — 9.10 Veðurfregnir* — 9.20 Tónleikar). 12.00 Hádegisútvarp. — (12.25 FréttiT og tilkynningar). 13.15 Búnaðarþáttur: Rödd úr sveit- inni (Þórarinn Helgason í Þykkvabæ). 13.30 „Við vinnuna*': Tónleikar. 15.00—16.30 Miðdegisútvarp. — (15.00 Fréttir. 16.00 Fréttir og veðurfr.) 18.00 Fyrir unga hlustendur: „Forspil** bernskuminningar listakonunn- ar Eileen Joyce; IV. (Rannveig Löve). 18.25 Veðurfregnir. 18.30 Þingfréttir. — Tónleikar. 18.50 Tilkynningar. 19.30 Fréttir. 20.00 Um daginn og veginn (Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur). 20.20 Einsöngur: Magnús Jónsson syngur ítalskar óperuaríur eftir Donizetti, Puccini og Leonca- vallo; Fritz Weisshappel leikur undir á píanó. 20.40 Ur heimi myndlistarinnar( Hjör leifur Sigurðsson listmálari). 21.00 Tónleikar: Sónata í A-dúr fyrir fiðlu og píanó eftir César Franck (David Oistrakh og Vladimir Jampolskij leika). 21.30 Utvarpssagan: „LæKnlrinn Lúk- as“ eftir Taylor Caldwell; VIII, lestur. (Ragnheiður Hafstein), 22.00 Fréttir og veðurfregnir. — Barkarbátur Evu er á hraSd en hún reynir í örvæntingu að ferð út í straumiðu Tjaldfossa, ná til hans. Brátt finnur hún þunga straumsins- — Hjálp! — Ég er að koma! .... Revndu að synda út úr straumiðunm! 22.10 Hljómplötusafnið (Gunnar Guð- mundsson). 23.00 Dagskrárlok.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.