Morgunblaðið - 03.01.1961, Síða 5
Þriðjudagur 3. janöar 1961
MORGVJSBLAÐIÐ
5
,
MENN 06
= MALEFNt=
ENN er sama óvissan um það,
hvernig Alsírvandamálið verð
ur leyst, en eitt er þó víst:
De Gaulle ætlar hvorki að
láta öfgamenn úr flokki
Serkja né ofstækismenn úr
hópi franskra Alsírbúa neyða
sig til þess að taka mið af skoð
unum þeirra. Serkir og Már-
ar eru í miklum meirihluta
meðal íbúanna, en einn af
hverjum níu er þó franskrar
ættar. Frakkar hófu þegar að
flytjast til landsins upp úr
1830, svo að hinir frönsku
íbúar, sem márgir geta rakið
ættir sínar til hinna fyrstu
landnema, líta á Alsír sem hið
eina föðurland sitt. Talið er,
að meirihluti bæði franskætt-
aðra og serkneskra íbúa lands-
ins myndi geta sætt sig við
sanngjarnar málamiðlunartil-
lögur, eins og búizt er við, að
de Gaulle muni setja fram, en
báðir eru hræddir við ofstæk-
is- og öfgasinnana í eigin hópi,
sem hrópa ýmist: „Alsír er
franskt!“, eða „Alsír er ar-
abískt!“
De Gaulle hefur getið sér
orð fyrir hugrekki áður, og
þegar hann heimsótti Alsír nú
fyrir nokkru, kom í ljós, að
hann er ekki dauður úr öll-
um æðum. Hérna er hann í
hafnarbænum Cherchel, um
100 km fyrir vestan Alsírborg.
Þar lá við uppþoti á aðal-
torginu, þegar ungir menn af
frönskum ættum hófu söng og
köll um að de Gaulle væri að
svíkja landið í hendur Serkja.
Þá vildu Serkir líka láta til
sín taka, og um stund leit út
fyrir, að allt færi í bál og
brand, og de Gaulle fengi ekki
hljóð til þess að halda fyrir-
hugaða raððu. Þá gekk hann
sjálfur út í mannþyrpinguna
og tók að ræða við hina æst-
ustu. Tókst honum að sefa þá,
enda hefur maðurinn eitthvað
við sig, sem veldur því, að
aðrir bera ósjálfrátt virðingu
fyrir honum. Innan skamms
var allt fallið í ljúfa löð, menn
af báðum kynflokkum farnir
að hrópa húrra fyrir honum,
og að lokum fékk hann næði
til að flytja ræðu sína. —
Þetta er náttúrlega gott og
blessað í sjálfu sér og hefur
vakið mikla athygli víða um
heim eins og önnur sams kon-
ar atvik, sem urðu í þessari
Afríkuför forsetans. En eng-
inn skyldi verða bjartsýnni á
ástandið fyrir það. Svona at-
vik eru skemmtileg, en ein-
göngu bundin við eina á-
kveðna persónu. Vandinn er
enn sem áður jafn illleysan-
legur, þótt e. t. v. hafi eitt-
hvað áunnizt að því leyti, að
báðir aðilar bera meira traust
til de Gaulle en áður.
— Stutt í hnakkanum, takk!
— Hvað þú lítur ræfilslega út,
barn. Þú hefur auðvitað vakað
eina nóttina enn, við að lesa
skáldsögu?
— Já, mamma, sagan var svo
agalega spennandi, og þau gift-
ust ekki fyrr en kl. 4 í nótt.
★
— Hernig stóð á því, að þú
hættir að syngja í kirkjukórn-
um?
— Það stendur þannig á því,
að ég varð lasinn einn sunnudag
og þrír menn skrifuðu söngstjór-
anum og sögðu ,að það gleddi
þá, að búið væri að gera við
orgelið.
★
— Hefurðu heyrt nýjustu Skota
söguna?
— Nei.
— Hann var svo nízkur, að
hann tók orð sín aftur.
• Gengið •
Sölugengl
1 Sterlingspund ..... kr. 106,94
1 Bandaríkjadollar ..____— 38,10
1 Kanadadollar ;.........— 38.98
100 Sænskar krónur ______.. — 736,85
100 Danskar krónur ______ 552,75
100 Norskar krónur ........ — 534,10
100 Finnsk mörk .......... — 11,92
100 Austurrískir shillingar — 147,30
100 Svissneskir frankar — 884,95
100 Franskir frankar — 776.15
100 Gyllini ..............._ — 1009,03’'
100 Tékkneskar krónur _— — 528.45
100 Vestur-þýzk mörk _____ — 913.65
100 Pesetar — 63.50
1000 Llrur ________________ — 61.39
Ég verð aldrei eins reiður og þegar
ég hugleiði, hvað heimskir menn
hafa eyðilagt ævi margra skynsamra
kvenna.
— Fielding.
Konunni er gefin þögnin, til þess að
hún eigi betra með að tjá hugsanir
sínar.
Louis Denoyers.
L.oftleiðir h.f.: — Leifur Eiríksson er
▼æntanlegur frá Hamb., Kaupmh.,
Gautab. og Ósló kl. 21.30, fer til N.Y.
kl. 23,00.
Eimskipafélag íslands h.f.: — Brúar-
foss fer frá Siglufirði í kvöld til ísafj.
— Dettifoss er á leið til Rvíkur. —
Fjallfoss er á leið til Rvíkur. — Goða-
foss fór frá Rvík í gær til Stykkis-
hólms. — Gullfoss fór frá Hamb. í gær
til Kaupmh. — Lagarfoss fór frá Hafn-
*rfirði kl. 5 I morgun til Akraness. —
Reykjafoss er á leið til Hamb. — Sel-
foss er í N.Y. — Tröllafoss er í Rvík.
— Tungufoss er á Ólafsfirði, fer það-
•n til Seyðisfjarðar.
Skipadeild SÍS: — Hvassafell er í
Aabo. — Arnarfell er í Þorlákshöfn. —
Jökulfell er á leið til Swinemiinde. —
Dísarfell er á Húsavfk. — Litlafell er
i olíuflutningum í Faxaflóa. — Helga-
fell er í Riga. — Hamrafell er á leið
til Gautaborgar.
Skipaútgerð ríkisins: — Hekla er á
Austfjörðum. — Esja er á Vestfjörð-
um. —' Herjólfur fer frá Vestmanna-
eyjum kl. 22 í kvöld til Rvíkur. —
Þyrill er á leið til Karlshamn. —
S-kjaldbreið og Herðubreið eru í Rvík.
Eimskipafélag Reykjavíkur h.f.: —
Katla er á leið til Ventspils. — Askja
lestar á Vesturlandshöfnum.
II.f. Jöklar: — Langjökull er í Gauta
borg. — Vatnajökull er í Grimsby. ,
Læknar fjarveiandi
(Staðgenglar í svigum)
Kristjana S. Hclgadóttir til 15. jan.
Ólafur Jónsson, Hverfisg. 106A, sími
18535).
Uaraldur Guðjónsson óákv. tíma Karl
Jónasson).
Sigurður S. Magnússon óákv. tíma —
(Tryggvi Þorsteinsson).
Oddur Ólafsson til 10. jan. (Jón
Hj altalín Gunnlaugsson).
Ólafur Þorsteinsson til 20. ianúar.
(Stefán Ólafsson).
Morgunblaðinu bárust nýlega
þessar stökur:
Ekki skal ég undan láta
oft þó hafi storm í fangL
Ekki skal ég upphátt gráta
eitthvað þó að móti gangi.
Þó að dagsins skúrir skyggi
skal ei láta bresta þorið.
Leika skærst á lófa siggi
ljósgeislar og blessað vorið.
Þó að blási kalt f kaunin
kvika í sandi skemmi brotið
ef til væri engin rauniu
enginn gæti sigurs notið.
Eflum bræður andans þorið
ekki er feitt að bíta á hryggjum,
lengjast dagar, ljósið, vorið
lífsmagn veitir, ef við þiggjum.
Skeggi Skeggjason.
Laghent stúlka
óskast við iðnað. —
Sími 10690.
Þýzkukennsla
mín byrjar aftur á morgun
Edith Daudistel
Laugavegi 55 Simi 14448
virka daga milli kl. 6—7.
Vön vélritunarstúlka
óskast. Tilb. merkt: „Vél-
ritun — 1381“ sendist afgr.
Mbl. fyrir 9. þ.m.
2ja herb. íbúð til leigu
nálægt Landsspitalanum.
Tilb. óskast send Mbl., —
merkt: „Sólrík — 1385“
Volkswagen ’58—’60
Vantar 2 bíla vel með
farna. Verðtilb., greiðsliu-
skilmálar, litur og aðrar
uppl. óskast sendar Mbl.
fyrir fimmtud. merkt. „’58
—’60 — 1379“
V élri tunarnámsk eið
Sigríður Þórðardóttir
Sími 33292
Vön afgreiðslustúlka
óskast strax í vefnaðar-
vörubúð.
Þorsteinsbúð
Snorrabraut 61.
Gítarkennsla
Get bætt við nemendum.
Asta Sveinsdóttir
Bárugötu 10 - Sími 15306
A T H U G I Ð
að borið saman við útbreiðslu
er langtum ódýrara að auglýsa
í Morgunblaðinu, en öðrum
blöðum. —
Málaskólinn
MÍMIR
M iðsvetrarnámskeiðin
Innritun er hafin, og stendur hún yfir til 13. janúar.
Er skrifstofan opin allan daginn. Kennslan á kvöld-
námskeiðum hefst mánudaginn 16. janúar.
Skólinn hefur nú úrvalskennurum á að skiþa. Sam-
tölin fara fram á því máli, sem nemendur eru að læra,
og venjast þeir því frá upphafi að TALA tungumálin
og hlusta á þau í sinni réttu mynd. Við slíkt nám öðlast
nemendur þjálfun, sem að jafnaði fæst aðeins við dvöl
í sjálfu landinu, þar sem hið erlenda tungumál er talað.
Enskukennsla tyrir börn
Brautryðjendastarf M.ájaskólans Mímis á þessu sviði
gengur vel. Hafa verið ráðnir sérstakir kennarar frá Eng-
landi til að veita starfinu forstöðu, og er aðstaða skól-
ans því mjög bætt frá því í fyrra. öll börn, sem voru
í skólanum í haust og hyggjast halda áfram námi eru
beðin um að mæta miðvikudag 4. janúar til niðurröð-
unar og flokkaskipunar. Sjálf kennslan hefst mánu-
daginn 9. janúar.
Nýir nemendnr verða innritaðir t!1 7. janúar.
M íilasVóiin fVI Hf I R
Hafnarstræti 15 (Sími 22865).