Morgunblaðið - 03.01.1961, Side 6
6
MORGUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 3. janúar 1961
Þegnskapurinn er meginör-
yggi þjdöskipulagsins
Góðir Islandingar, nær og
íjær!
Eg ávarpa yður enn héðan frá
Bessastöðum fyrir hönd okkar
hjónanna með innlegri nýjárs-
(kveðju og þökk fyrir gamla árið.
Mér er þá fyrst Ijúft Og skylt að
flytja yður hjartanlegar þakkir
í tilefni af endurkjóri á hinu
liðna ári, og bið þess af heilum
hug, að okkur megi auðnast að
standa svo í þessari stöðu sem
traust yðar og þjóðarheill heimt-
ar. Guð gefi, að þetta nýbyrjaða
ár verði gott og farsælt fyrir land
og lýði. Vér öll í sameiningu
kveðjum einnig gamla árið með
þakklátum hug til forsjónarinn
ar fyrir mildan vetur, gott vor
og sólríkt sumar. Þá er ekki hægt
að gera til hæfis, ef ekki liggur
vel á mönnum og skepnum í slíku
árferði. Náttúran hefir stundum
sýnt annan svip í voru norðlæga
landi, þó engir miðaldra menn
muni nú orðið neitt líkt því, sem
kalla mætti hallæri í eldri merk-
ingu.
Oáran hefir birzt í ýmsum
myndum: eldgos, jarðskjálftar,
hafís, grasleysi, aflabrestur — og
getur líka átt sér stað í sjálfu
mannfólkinu. Aflabresturinn
einn dregur nú nokkuð úr að
allt leiki í lyndi. Um stjórnarfar
ræði ég ekki, enda minnist ég
þess ekki, að allir hafi nokkru
sinni lokið upp einum munni um
þá hluti, hvorki til lofs né lasts
En þó er ekki úr vegi að minna á,
að slíkt liggur að nokkru leyti í
sjálfu stjórnskipulaginu. Af lýð-
ræði og þingræði leiðir flokka-
skipting og flokkadráttur, hvort
sem mönnum líkar betur eða verr.
Og þegar sumir veita ríkisstjórn
brautargengi en aðrir mótspyrnu,
þá er auðskilið, að dómarnir
Vterða ærið misjafnir.
Eg bið menn að skUja þetta
ekki svo, að ég sé að finna að
sjálfu stjórnskipulaginu. Ég full-
yrði, að vér Islendingar búum
við það stjórnskipulag í megin-
dráttum, sem oss bezt hentar, og
sem á djúpar rætur í sögu þjóð-
arinnar, alla leið aftur til land-
námsaldar. Eg fullyrði einnig, að
ekkert það skipulag sé til né
hugsanlegt, sem geri þegn eða
þjóðhöfðingja óskeikulan eða af-
mái mannlegan veikleika né
breyzkleika. Og þó hygg ég að
vitsmunir, réttvísi og náungans
kærleikur njóti sín bezt við
frjálst lýðræðisskipufag hjá þeim
þjóðum, sem til þess hafa þroska
og sögulega þróun.
1 sögunni verður það talið eitt
meginatriði’ hins liðna árs, hve
margar nýlenduþjóðir hlutu þá
frelsi og fullveldi, en eins og vér
heyrum í daglegum fréttum þá
gengur ærið misjafnlega að taka
á móti frjálsræðinu. Það er því
ástæða til, að vér Islendingar
stingum hendinni í eigin barm,
og rifjum upp fyrir oss, hvað því
veldur, að þróun vestræns lýð-
ræðis og fullveldistakan hefir
gengið svo hljóða- og snurðalítið
með vorri þjóð, sem raun er á,
og hvaða skilyrði séu fyrir því, að
oss farist sjálfstjórnin framvegis
vel úr hendi. Það er ekkert stjórn
skipulag svo gott, að ekki þurfi
að halda vel á, og þeirri skoðun
jafnvel haldið fram af sumum,
að manneðlið sé svo rysjótt, að
það hljóti að ganga hverju skipu
lagi til húðar á tilteknum tíma.
í frönsku byltingunni skiptist á
þingstjórn, fárra manna veldi og
einræði á fám árum með miklum
•
□----------------□
>
Aramótaávarp
Ásgeirs Ásgeirs-
sonar forseta
*
Islands
□----------------□
hörmungum, svo aðeins sé nefnt
eitt dæmi.
Eg hygg, að vér Islendingar höf
um nokkuð einstæða sögu að
segja. Hingað komu allir land-
námsmenn með sveit sína á skip-
um, og vísast að þær skipshafnir
séu frumdrög vors stjórnarfars.
Orðið „sveit“ fær merkinguna
hérað, og hrepparnir sem enn eru
við líði, eru hin fyrsta félags-
einnig. Hreppsstjórn helzt óslit-
ið til vorra tíma, þrátt fyrir er-
lend yfirráð, og enn eru haldnir
hreppsfundir allra kosninga-
bærra manna, þegar svo ber und-
• Stórmerk erindi
Það kemur ekki til af því
að í ár er Ríkisútvarpið af-
mælisbarn, að ég finn hvöt hjá
mér til að hrósa útvarpsdag-
skránni. En undanfarið þefi ég
satt að segja fundið þar meira
við mitt hæfi en oftast áður,
og einnig saknað þess að
missa af fjölmörgu, sem ég
hefði viljað heyra.
Það gladdi mig t. d. mikið,
þegar ég hjó eftir því í af-
mælisræðu útvarpsstjóra, að
erindin um náttúru Islands,
sem flutt hafa verið eftir há-
degi á sunnudögum verði gef
in út. Þetta er stórmerkilegur
og skemmtilegur erindaflokk-
ur. Þar fær maður yfirlit yfir
hvernig ísland er byggt upp
ir. Stofnun Allsherjarþings á
Þingvöllum í lok landnámsaldar
er vort þjóðarstolt, og þeir eru ó-
taldir rneðal erlendra þjóða, sem
vita það eitt um Island, að þar
sé enn við líði elzta þing sögimn-
ar — nema þeir kunni einnig að
nefna Heklu eða Geysi. Með slíka
forsögu að baki var leið endur-
reisnarinnar mörkuð, endur-
heimt Alþingis og fullveldis þjóð
arinnar. Hinar beztu endurminn-
ingar vorar eru tengdar þjóðveld
inu forna, og framtíðarvonirnar
þingræði og fullveldi. Sagan hef-
ir gefið þjóðinni þor, og trú á
þegn og þing. En sagan skapar
þeim líka mikla ábyrgð, sem á
málum halda fyrir þessa og kom-
andi kynslóðir. A því veltur einn
ig virðing vor meðal annarra
þjóða, hvernig oss tekzt sjálf-
stjórnin með svo dýran arf að
bakhjarli.
Pýramíði eða svo ég tali ís-
lenzku, Keilir lýðræðisins stend-
ur hér á fornum og breiðum
grunni. Er það traustara en að
hann standi á toppinum. Heima-
stjórn héraða um aldir er grund-
völlurinn. A annað þúsund ár eru
liðin frá stofnun allsherjarþings.
Stjórnskipunin var svo sjálfsögð,
að hún hafði ekkert sérstakt heiti
fyrr en nú á síðari tímum, er vér
tölum um þjóðveldi, þingræði og
lýðveldi. Hún byggist á erfðum
og þeim tíðaranda, sem komið
hefir til hjálpar, og ríkt hefir á
síðari tímum í nágrenni voru.
Stjórnskipulagið hefir vaxið og
þróazt samfellt um aldir. Þróun
lýðræðisins fram á þennan dag
hefir reynzt auðvelt að fella sam»
an við hinn forna arf, og barátta
frá grunni og lýsingar á hin-
um ýmsu þáttum þess á yfir-
borðinu, flutt af mönnum
með sérþekkingu á því sviði
sem um er fjallað. Þó ég hafi
alltaf ætlað að hlusta, hefur
ýmislegt glapið mig frá eins
og gengur, og ég hefi einnig
heyrt aðra hafa orð á því
sama. Því er ánægjulegt að
eiga von á erindum þessum
á prenti.
• Úrval góðra leikrita
Annar dagskrárliður er það,
sem mér finnst sérstaklega
hafa verið vandað til nú í vet-
ur, og það eru leikritin. Anna
Karenina, flutt vikulega, vek-
ur að vonum mikla athygli og
fólk vill ekki af neinum þætti
Herra Ásgeir Ásgeirsson
margra ágætra forustumanna ber
stjórnmálaþroska þjóðarinnar
góða sögu. Og að síðustu, en ekki
sízt, byggist öryggi þjóðarinnar
á þroska hins einstaka þegns.
Það eru í flestum málum sér-
stök orð, sem slá birtu á hugsun-
arhátt þjóðanna. Eitt af þessum
orðum í íslenzku máli er: „góð-
ur þegn“. Þau orð hafa enn sinn
Ijúfa hljóm, og þegnskapurinn er
hin bezta stoð lýðræðisins. Það er
ekki meðal allra þjóða þorað eða
jafnvel þoranlegt að treysta hin-
um „sauðsvarta almúga". En því
get ég notað þetta orðatiltæki
hér, að ef það hefir nokkurntíma
haft pólitíska merkingu, þá er
missa enda vandað til flutn-
ings. 1 nóvember var ráðizt
í að flytja leikritaflokk Eug-
ene O’Neills „Eigi má sköp-
um renna“ í þrjá laugardaga,
svo að fólk kom ekki í laug-
ardagsboðin þá vikuna fyrr en
eftir kl. 10 sökum áhuga á að
fylgjast með þessu magnaða
leikriti, sem byggt er á gamla
gríska harmleiknum, þar sem
vr
FERDIIMANn
hún fyrir löngu úr sögunni. Þegn-
unum er treyst til að vera grund-
völlur skipulagsins, enda eru þeir
samarfar sögunnar eigi síður en
þeir, sem taldir eru til forustu-
manna. 1 hvaða þjóðfélagi sem
er, þarf forustu, þó með misjöfn-
um hætti sé. En þar sem almenn-
ur kosningaréttur er ríkjandi, þá
þarf hinn góði þegn a$ geta dæmt
um menn og málefni. Eftir mál-
efnum og hagsmunum velja flest-
ir sér flokk, en hver fulltrúi, sem
er kosinn þarf jafnan að taka
ákvarðanir út frá nýjum við-
horfum, og um atriði, sem eru
ókunn eða ófyrirsjáanleg við
kosningar. Hinn góði þegn þarf
því að kjósa sér fulltrúa, sem er
dórnbær og líklegur til forustu.
An slíks aðhalds er ekki víst að
flokkar vandi ætíð svo til fram-
boðs, sem skyldi.
A hinum almenna kjósanda
hvílir ábyrgð og honum er vandi
á höndum. Hann dæmir um
hvemig þingmenn og ríkisstjórn-
ir hafi reynzt undanfarið, hann
verður að mynda sér skoðun á á-
litsgerðum sérfræðinga í flóknum
þjóðmálum, og standast þungan
áróður úr mörgum áttum.
I lýðræðisþjóðfélagi er jafnan
ágreiningur. An ágreinings má
segja, að kosninga þyrfti ekki
með. Agreiningur stafar af eðli-
legum orsökum, mismunandi lífs
skoðun, ólíkum hagsmunum eða
hreinni valdastreitu. En það eru
takmörk fyrir því, hve langt
ágreiningur má ganga og hvaða
bardagaaðferðum er beitt, svo að
lýðræðinu sé ekki hætta búin. A
sama hátt eru takmörk fyrir því
hvernig beita megi meirihluta-
valdi, þó sumt sé raunar bundið
í stjórnskipunarlögum. Það stend
ur enn í gildi hið fornkveðna:
Með lögum skal land byggja. En
lög ná aldrei út yfir allt mann-
legt líf. Til framkvæmdanna þarf
jafnan menn, — dómsvald og
framkvæmdavald.
Það væri of langt mál að ræða
ítarlega þær skorður, sem stjórn
skipulag getur sett við misbeit-
ingu valds og áróðurs. En á sama
hátt og góður þegn, þegnskap-
ur, er meginöryggi stjórnskipu-
lagsins, á sama hátt er og verður
hinn góði drengur, drengskapur-
Framhald á bls. 19.
örlagatrúin er svo rík, eins og
í mörgum Islendingasögum
okkar. Ymsir höfðu orð á því
að leikritið væri ekki við
barna hæfi, enda ekki flutt í
barnatíma. Og varla er hægt
að miða kvölddagskrá útvarps
ins við börn og útvarpa að-
eins barnaefni. Næsta laugar-
dag var svo leikritið Maður
og kona eftir Emil Thoroddsen
og á þriðja í jólum Jón Ara-
son eftir Matthías Jochums-
son. Fleiri leikrit mætti vafa-
laust nefna, en þetta eru þau
sem ég hefi meira og minna
af tilviljun heyrt.
Ymislegt fleira er líka ágætt
í dagskránni, þó mér detti sér
staklega í hug þessir tveir
liðir. Og eitt má nefna: mánuð
um saman hefur mér ekki bor
izt eitt einasta bréf, þar sem
kvartað er undan útvarpinu,
sem alltaf er undir smásjá
hlustenda, af skiljanlegum
ástæðum.
^JEkkiáréttumtíma
Og þá: Faðir einn hafði orð
á því að jólaóperan eftir Men-
otti „Amahl og næturgestur-
inn‘ hefði ekki verið flutt á
réttum tíma kvölds. Þessi und
urfagra ópera hefur verið
flutt áður og höfðu ungir
drengir ákaflega gaman af að
hlusta, þar sem efnið er við
bama hæfi ekki síður en full.
orðinna og drengur syngur
aðalhlutverkið. Með skýring-
um Baldurs Pálmasonar höfðu
þeir full not af að blusta þá.
Nú var ekki hægt að láta þá
bíða til kl. að ganga 11, til að
hlusta á þetta verk. Þótti föð-
urnum það slæmt, þar sem
þetta verk er hreinasta. af-
bragð til að þjálfa börn til að
hlusta á góða tónlist.