Morgunblaðið - 05.01.1961, Side 1

Morgunblaðið - 05.01.1961, Side 1
20 siður 48. árgangur 3. tbl. — Fimmtudagur 5. janúar 1961 Prentsmiðja Morgur:blaðsins E intóm ímyndun SAMEINUÐU þjóðunum, 4. jan. — Öryggisráð Sameinuðu þjúðanna fjallaði í dag um kæru Kúbu á hendur Banda- ríkjamönnum. Fulltrúi Kúbu, Raoul Roa, krafðist þess að Bandaríkin yrðu talinn árásar- aðili, þar sem þau undirbyggju innrás á Kúbu og væri hin síð- asta ráðstöfun til undirbúnings þeirri innrás, að slíta stjórn- málasambandi við Kúbu. Aðalfulltrúi Bandaríkjanna, James Wadsworth, svaraði Roa og sagði, að sl. sex mánuði hefði ríkisstjóm Kúbu emjað um inn- rás, svo sem drengurinn er sífellt sagði „úlfur, úlfur“, þar sem eng Inn var úlfurinn. Svo væri með Innrásarhugmynd Kúbumanna, hún væri tóm ímyndun. Wads- worth kvað stjórn Bandaríkjanna ekkert hafa á móti því að kæra Kúbu væri rædd á vettfangi SÞ, hún hefði engu að leyna í þessu máli. Það væri uppspuni frá rót- um. 35 jbtís. kr. ávítur Khöfn, 4. jan. (Reuter) LOKIÐ er máli Grænlendings nokkurs, er unnið hafði sér til sakar, að gera sér heldur dælt við konur í afskekktum byggð arlögum í Grænlandi. Danskur liðþjálfi, Erik Christensen hefur ferðast þrjú þúsund og fimm hundruð kíló metra — meðal annars á hundasleðum — til þess að leita uppi Grænlending þenn- an. Er náðist til mannsins fékk hann þungar ávítur, en ekki er unnt að handtaka hann þvi að í Austur Græn- landi eru engin viðurlög við óhóflegri ástleitni. Kostnaðurinn við eltingar- leik þennan nam allt að 35 þúsund króna (ísL) auk launa liðþjálfans. ÞESSA mynd tók ljósm. Mbl.: Ól. K. M. af vertíðarundirbún- ingnum hér í Reykjavíkurhöfn. Skipin eru óðum að verða tilbú- in á veiðar. I Sandgerði hafa þau þegar byrjað róðra og afla vel. Umsetnir Elísabethville, 4. janúar. (Reuter) TTM það bil 120 írskir her- menn úr liði Sameinuðu Skipting belgíska- ríkisins yfirvofandi þjóðanna voru sendir í skyndi héðan í dag, Nígeríu mönnum SÞ til hjálpar, en þeir eru sagðir umsetnir af Balubamönnum rúma 30 km vestur af Albertville. Óttast er að Balubamenn- irnir geri árás á Nígeríu- mennina, en engar nánari fregnir hafa borizt. Brussel, 4. jan. (Reuter-NTBJ JAFNAÐARMENN lýsa því nú yfir, hver af öðrum, að fari svo fram sem horfir um ástandið í Belgíu, sé yfirvof- andi alger aðskilnaður milli Flæmingja í norðurhluta landsins, þar sem fylgi stjórnarinnar er sterkast, og Vallona í suðurhlutanum, þar sem jafnaðarmenn eiga mestu fylgi að fagna. Telja margir, að nú hljóti verkfallsmenn að taka að linast í aðgerðum sínum, enda þótt atburðir í dag hafi ekki beinlínis styrkt þá skoðun. Talsmaður stjórnar- innar sagði hinsvegar í dag, að sífellt færu fleiri til vinnu þrátt fyrir ill orð og hótanir verkfallsvarða. Bandaríkin slíta stjórn- málasamban di við Kúbu WASHINGTON, Havana, Lon- don, Manilla, 4. jan. —• (Reuter- NTB-AFP) — Bandaríkjamenn Samþykkur stefnu Norstads Washington, 4. janúar. (NTB-Reuter) HAFT er eftir áreiðanlegum heimildum, að hinn kjörni for- seti Bandaríkjanna, John F. Kennedy, kjósi gjarna, að Lauris Norstad verði áfram yfirmaður NATO herjanna í Evirópu og munj Kennedy vera samþykkur fyrirætlunum Norstads um að gera NATO að atómveldi. hafa slitið stjómmálasambandi við Kúbu. Ákvörðun þess efnis tók ríkisstjórnin í gærkvöldi er henni höfðu borizt tilmæli Kúbu stjórnar um að starfsmenn bandaríska sendiráðsins á Kúbu yrðu ekki fleiri en starfsmenn kúbanska sendiráðsins í Banda- ríkjunum — eða 11 alls. Eisenhower segir, að með þessari ráðstöfun, sem miði að því að lama alla starfsemi sendi ráðsins, hafi Fidel Castro geng- ið einu skrefi of langt. Þolin- mæði Bandaríkjamanna sé þrot in, þeir geti ekki látið bjóða sér meira af ertingum Castros og rakalausum svívirðingum hans og félaga hans, sem dunið hafi á Bandaríkjunum síðustu mánuðina. Eisenhower hvað ráðstöfun þessa ekki hafa nein áhrif á vináttu Bandaríkja- manna í garð íbúa Kúbu, og síðar í dag var tilkynnt, að áfram yrði haldið að veita fyr- irgreiðslu þeim kúbönsku mönn um, er hælis leituðu í Banda- ríkjunum. —•_ Eisenhower sagði einnig, að hann hefði tilkynnt Kennedy ákvörðun sína áður en hún var gerð opinber. Hefur Kennedy neitað að láta í ljós álit sitt við fréttamenh. Þá var tilkynnt opinberlega í dag, að sambandslitin myndu engin áhrif hafa á samninginn um flotastöð Bandaríkjamanna á Guantanamo —• þeim samn- ingi yrði ekki riftað nema með samþykki Bandaríkjastjórnar. — Jafnframt var sagt, að þeir myndu halda alla aðra gerða alþjóðasamninga. Vinir í öllum heimsálfum Málgögn stjómarinnar á Kúbu hafa hælzt mjög um vegna þessarar ráðagerðar Bandaríkjastjórnar, í Kína var sagt, að þessi ráðstöfim Banda- ríkjamanna væri enn einn liður í fjandsamlegri afstöðu Banda- ríkjamanna til Kúbu og jafn- framt liður í undirbúningi frek- ari árása á stjórn landsins. Rússneska fréttastofan Tass sagði í dag, að Kúbumenn stæðu ekki einir í þessarj eldraun, þeir ættu vini í öllum heimsálfum. Sagði Tass, að atburður þessi hefði aukið mjög á viðsjár á svæð Framh. á bls. 19. 9 Næsta skrefið ráðgert I dag héldu jafnaðarmenn og fulltrúar verkfallsmanna fundi, sameiginlega og hvorir í sínu lagi, til þess að leggja á ráðin um næsta skref í verkfallsmál- inu, en stjórnarandstaðan tap- aði málinu á þinginu í gær með Framhald á bls. 19. Níu lótust í sprengingu Dortmund, V-Þýzkal. 4. jan. — (Reuter). AÐ minnsta kosti níu manns munu hafa látið lífið í spreng- ingu er í dag varð í súrefnis- geymslu Westphalia stáliðju- ver.tins í Dortmund. I iðjmverinu vinna að jafnaði nokkur þúsund verkamenn. Þrír menn, er voru að vinnu í súrefnisgeymslunni sjálfri þeyttust út á götu við spreng inguna og rúður brotnuðu í nærliggjandi húsum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.