Morgunblaðið - 05.01.1961, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 05.01.1961, Blaðsíða 18
18 MORGVNBLAÐIÐ Fimmtudagur 5. janúar 1961 Danir græddu 2,7 millj. kr. á landsleikum — v/ð töp- uðum 50 þús. kr. EINS og lesendur síðunnar munu minnast var frá því skýrt að tekjuafgangur af landsleik okkar í knatt- spyrnu gegn Þjóðverjum, sem háður var í Reykjavík, hefði enginn orðið, heldur 49 þús. kr. tap. Það er því ekki ófróðlegt að sjá hver aðstöðumunur knattspyrnu- hreyfingar okkar er og hreyf ingarinnar í Danmörku. ★ 2,7 millj. króna ágóði Danir háðu á liðnu ári 1960) 10 landsleiki. Fjórir þeirra fóru fram á heimavelli, — þ.e.a.s. í Kaupmannahöfn. Ijiggur nú fyrir endanlegt upp gjör vegna leika þessara og sýnir það að ágóði hefur orð- ið 500 þús. d. kr. eða um 2,75 milljónir isl. króna. ★ Leikir Dana. Danir léku á heimavelli gegn Ungverjum, Norðmönnum, Finn- um og Grikkjum. Mest varð að- sóknin að leiknum við Ungverja, nær 50 þús. manns. Um 40 þús. manns sóttu leikinn við Norð- menn og álíka margir leikinn við Grikki. 35 þús. manns sáu leik- inn við Finna. Samanlögð áhorf- endatala er nálægt 170 þúsund manns á 4 leiki og eru forráða- menn danskrar knattspyrnu mjög ánægðir með það. Mjög varð aukin aðsókn að leikum danskra knattspyrnumanna vegna frammistöðu þeirra á Ol- ympíuleikunum. — Að meðaltali höfum við í ágóða 3 kr. danskar) af hverj um seldum aðgöngumiða að landsleik, segir Erik Hyld- strup í viðtali við eitt Kaup mannahafnarblaðanna. Það þýðir að ágóði danska knatt- spyrnusambandsins af þessum fjórum landsleikjum er nm hálf milljón danskra króna ★ Vona það bezta. r Á nýbyrjuðu ári munu Danir aftur leika 6 landsleiki — sem er hinn venjulegi landsleikafjöldi þeirra (heima og að heiman). — Danskir knattspyrnuleiðtogar vonast að sjálfsögðu eftir því að jafngóður árangur verði af þeim fjárhagslega og var á liðnu ári. Jon Þ. Olaísson var „maður mótsins“ Jólamót iR fór hið bezta fram og þátttakendur voru fjölmargir eða 18, frá 4 félögum og sam- böndum. Keppni var tvísýn og skemmtileg. í kúluvarpi skipt- ust þeir um forustuna frá byrj- un þeir Björgvin Hólm og Vil- hjálmur Einarsson og sigraði Vilhjálmur að lokum. Einnig var keppni tvísýn í þrístökki án atrennu en þar sigraði Jón Ólafsson eftir harða keppni við Daníel Halldórsson. Hástökk með atrennu: 1. Jón Þ. Ólafsson, ÍR .. 2. Karl Hólm, lR ......... 3. Sig. Ingólfs, Á ....... 4. Garðar Jóhannesson, ÍA (Akranes met). Hástökk án atrennu: 1. Jón Þ. Ólafsson, ÍR .. (1,62 í aukastökki) 2. Björgvin Hólm, ÍR .... Aðrir keppendur felldu byrjunarhæðir sínar. Langstökk án atrennu: 1. Jón Þ. Ólafsson, ÍR .. 3,11 1,91 1,67 1,61 1,57 1,60 1,60 KRAKKAR! KRAKKAR Silfurtunglið Síðasta jólaballið verður 6. janúar þrettándanum) kl. 3. (á Kertasníkir kemur í heimsókn í Tvær litlar söngstjörnur syngja Nokkrir miðar óseidir — Miðapantanir í síma 19611 litvegsmannafélag Reykjavíkur Boðar til fundar í Tjarnarcafé, uppi, kl. 9 í kvöld. Fundarefni: Kjarasamningar, fiskverð o.fl. Mætið stundvíslega. Stjórnin 2. Björgvin Hólm, ÍR 3. Valbjörn Þorlákss., 4. Ólafur Unnsteinsson 5. Kristjón Kolbeins . Þrístökk án atrennu: 1. Jón Þ. Ólafsson, ÍR 2. Daníel Halldórsson, 3. Kristján Eyjólfsson, Kúluvarp: 1. Vilhj. Einarsson, ÍR . 2. Björgvin Hólm, ÍR .. 3. Ólafur Þórðarson, lA (Akranessmet) ÍR ÍR ÍR 3,07 2,96 2,95 2,94 9,19 9,14 8,88 13,43 12,98 12,02 Málverk Ásgrims: 1 Húsafellsskógi. Ásgrímssafn SENN er að ljúka sýningu á myndum þeim í Ásgrímssafni, sem sýndar hafa verið þar síðan safnið var opnað 5. nóv. sl. Flestar af myndunum hafa ekki komið fyrir almenningssjón ir áður, og eru þær frá ýmsum tímabilum og stöðum á landinu. Meðal þeirra eru elztu myndirn- ar í safninu, málaðar um alda- rriótin. Einnig eru á þessari sýn- ingu nokkrar andlitsmyndir. Sýningunni lýkur sunnudaginn 15. janúar, en þá verður skipt um myndir. Næst verða sýndar í safninu þjóðsagnateikningar og vatnslitamyndir, eingöngu. Safnið verður lokað í vikutima meðan verið er að koma fyrir nýrri sýningu, og verður hún opnuð sunnudaginn 22. janúar. Ásgrímssafn, Bergstaðastræti 74, er opið alla sunnudaga, þriðju daga og fimmtudaga frá kl. 13,30 til 16 e.h. Ef skólar eða ferðamannahóp- ar óska að skoða safnið utan opn unartíma þess, er hægt að hringja í síma 13644 eða 14090. Mikill fjöldi gesta hefur lagt leið sína í Ásgrímshús síðan það var opnað. Og áberandi, hve margir af þeim gestum hafa ver- ið utan af landi á ferð hér. Einn- ig hafa skoðað safnið nemenda- hópar í fylgd með kennurum sín- um. Valur heldur fimmtujsafmæíi styrkari en oftast áður AÐALFUNDUR Knattspyrnufé- lagsins Vals var haldinn 16. nóv. sl. að heimili félagsins á Hlíðar- enda. Fundarstjóri var Frímann Helgason en fundarritari Valgeir Arsælsson. Fundarsókn var mjög góð, mikil og almennur áhugi ríkjandi um hag og gengi félags- ins. Aður en gengið var til dags- skrár, minntist formaðurinn Sveinn Zoega, Ólafs Sigurðsson- ar formanns fulltrúaráðs Vals, en hann lézt að heimili sínu hér í bæ hinn 27. ágúst sl. Olafur var víðkunnur fyrir afskipti sín af málefnum iþróttanna. Auk þess sem hann var einn af beztu starfs kröftum Vals um árabil, lét hann til sín taka íþróttaleg málefni aimennt, var m. a. formaður ÍBR um skeið. Olafur Sigurðsson átti meginþáttinn að Hlíðarendakaup unum fyrir Val, en þar er nú að rísa upp ein ágætasta íþróttamið stöð hérlendis, með fullkomnu íþróttahúsi og gras- og malar- völlum til knattspyrnu og hand- knattleiksvöllum í náinni fram- tíð. Staðurinn er sérlega vel stað- settur í bænum. Að minningarræðu formanns lokinni, var gengið til dagskrár. Skýrsla stjórnarinnar var lögð fyrir fundinn fjölrituð. Fylgdi formaður henni úr hlaði með nokkrum orðum. Þá las Baldur Steingrímsson reikninga félags- ins og skýrði þá. Að því búnu hófust umræður og var þátttaka í þeim almenn. A aðalfundinum 1959 var sam- þykkt sú breyting á skipulags- háttum félagsins, að því skyldi skipt í deildir. Þannig, að fyrst um sinn yrðu starfandi knatt- spyrnudeild, handknattleiksdeild og skíðadeild Samkvæmt skýrslu handknatt leiksdeildarinnar, en formaður hennar var Jón Kristjánsson, var tekið þátt í nær tveim tugum móta með á annað hundrað þátt- takendum af Vals hálfu. II. fl. kvenna sigraði í Reykjavíkur- mótinu innanhúss. í landsliði Islands í handknatt leik átti Valur einn leikmann, Sigríði Sigurðardóttur. Formaður deildarinnar nú, er Þórður Þorkelsson, en Jón Kristjánsson baðst eindregið und an endurkjöri. Starf skíðadeildarinnar var lít- ið á tímabilinu vegna þess að skilyrði voru nær engin til skíða iðkana vegna snjóleysis. Haldið var áfram að vinna að viðbótarbyggingu íþróttahússins. Jafnframt því sá íþróttahúsnefnd in, en formaður hennar er Ulfar Þórðarsson, læknir, um rekstur hússins, en það hefur verið mik- ið sótt á starfsárinu. Þá er í undirbúningi breyting á félagsheimilinu sem mun bæta mjög alla aðstöðu til félags- starfsemi. Valsblaðið kom út á árinu svo sem ráð hafði verið fyrir gert. Meðal tillagna, sem samþykkt- ar voru, var að unnið væri að því af hálfu stjórnar Vals, að fá mótatímanum breytt, þannig að mótin hæfust ekki fyrr en eftir tími til æfinga fyrir leikmenn- inga, sem með núverandi fyrir- komulagi væri ekki fyrir hendi. A næsta ári verður Valur 50 ára. Rætt var um hátiðahöld af því tilefni, en stjórnin hefir þeg- ar hafið undirbúning í því sam- bandi. Eftirtaldir félagar voru kosnir i stjórn fyrir næsta ár: Sveinn Zoega formaður, Gunnar Vagns- son, Einar Björnsson, Valgeir Arsælsson og Páll Guðnason. Baldur Steingrímsson, sem verið hefir 20 ár samfleytt í stjórn fé- lagsins eða frá 1940, og alltaf gengt gjaldkerastörfum baðst ein dregið undan endurkosningu. I ávarpi sem formaðurinn flutti Baldri þakkaði hann honum heillarík störf um tveggja ára- tuga skeið fyrir félagið og færði honum silfurbikar að gjöf frá því, sem lítinn þakklætis- og við- urkenningarvott. Að því búnu var Baldur h-ylltur af fundar- mönnum. En hann þakkaði með stuttri ræðu, og árnaði Val alira 20. maí þá ynnist nauðsynlegur heilla í framtíðinni. Enska knattspyrnan 25. UMFERÐ ensku deildarkeppninnar fór fram á gamlársdag og urðu úrslit leikanna þessi: 1. deild Aston Villa — Blackpool ....... 2:2 Bolton — West Ham ............. 3:1 Burnley — Newcastle ........... 5:3 Fulham — W.B.A................. 1:2 Leicester — Everton............. 4:1 Manchester U. — Manchester City 5:1 N. Forest — Arsenal ........... 3:5 Preston — Cardiff ............. 1:1 Sheffield W. — Birmingham ..... 2:0 Tottenham — Blackburn ......... 5:2 Wolverhampton — Chelsea ....... 6:1 2. deild Bristol Rovers — Brighton ..... 0:1 Charlton — Sheffield U......... 2:3 Derby — Ipswich ........... frestað Huddersfield — Lincoln ........ 4:1 Leyton Orient — Scunthorpe .... 2:1 Liverpool — Middlesbrough ..... 3:4 Norwich — Stoke ............... 1:0 Plymouth — Swansea ............ 1:0 Portsmouth — Southampton ...... 1:1 Rotherham — Leeds ............. 1:3 Sunderland — Luton ............ 7:1 Staðan er nú þessi: 1. deild (efstu og neðstu liðin)! Tottenham 25 22 2 1 81:28 49 Wolverhampton 25 16 4 5 66:48 36 Burnley 24 16 1 7 72:45 33 Sheffield W 24 13 7 4 43:28 33 Everton 25 14 4 7 59:44 32 Bolton 24 7 4 13 35:48 18 W.B.A 25 7 4 14 38:50 18 Blackpool 24 6 4 14 42:51 16 Preston 24 5 5 14 22:42 15 2. deild (efstu og neðstu liðin): Sheffield U 26 16 3 7 47:30 35 Ipswich 24 14 3 6 59:31 33 Liverpool 24 13 5 6 51:33 31 Southampton .... 24 13 4 7 60:45 30 L. Orient 22 5 7 10 32:46 18 Huddersfield .... 24 6 6 12 35:44 18 Swansea 24 5 7 12 34:46 17 Lincoln 25 6 5 14 33:52 17

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.