Morgunblaðið - 05.01.1961, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 5. jánúar 1961
MORCTJIVTiT AÐ1Ð
5
Nei, ég ver3 ekkert hrædd-
ur þó pabbi gleypi eld. Eld-
urinn fer bara niður í hann
og svo út úr honum aftur.
Það er Remy Vemy David,
fjögurra ára þeldökkur snáði,
sem lýsir þannig aðförum
pabba sins, Sammy Wilds,
sem dansar ásamt tveimur
konum í Lido svokallaðan
shako, trúarlegan dans frá
Ghana í Afríku og gleypir að
endingu eld, eins og tilheyrir.
Þegar blaðamaður Mbl. sá
hann, iét hann ísl. lækni einn
kveikja sér í sígarettu á log-
unum í munni sér, til að sýna
að ekki væri um sjónhverf-
ingu að ræða.
— Hefur þú nokkurn tíma
reynt að borða eld? spyrjum
við snáðann.
— Já, en það brenndi mi'g
i munninn og af mér augna-
hárin, sagði Remy Vemy
skömmustulegur.
— Ef við förum heim til
Ghana á næsta ári, þá byrja
ég að kenna honum, greip
faðir hans fram í. Þannig
lærði ég þetta, af föður mín-
um, sem er það sem þið hér
norðurfrá kallið töfralækni.
Hann er aðaltöfralæknirinn í
Accra og heitir Akonjanboli-
ologu. Sjáið þér ( hann benti
á sex stór ör á kinnum sín-
um), þetta er fjölskyldu-
merkið okkar. Allir sem sjá
mig á götu í Ghana vita
hverrar ættar ég er. Þar heiti
ég Ogurami. Þannig gen-gur
þetta alltaf í okkar ætt.
Faðir kennir syni. Allir geta
lært þetta, það er trúaratriði,
það sem fólk á Vesturlöndum
kallar sjálfsdáleiðslu. Ef
maður trúir nógu mikið á
eitthvað, þá getur maður það.
Þó ég brenni mig i hvert
skipti svolítið á vörunum og
í munni, þá finn ég það ekki
(t munnvikum hans eru ný
brunasár og ör á andlitinu).
En ég finn heldur ekki bragð
af neinum mat, ekki pipar
eða saltbragð og ekki hvort
maturinn er heitur eða kald-
ur. Ég hefi þó ekki ennþá
sömu þjálfun og pabbi.
Heima er stundum haldin há-
tíð með brennu, alveg eins og
hér á gamlárskvöld. Þá er
pabbi settur í köstinn, kveikt
í og trumbur barðar alla nótt
ina. Hann kemur úr bálinu dá
lítið brunninn, enda hefur
hann ör um allan líkamann,
en hann finnur það ekki.
Hann hefur líka kraft tii að
kalla á regn á einum klukku-
tíma, en því trúið þið ekki.
Blaðamaðurinn fullvissar
hann um að hér þurfi engan
töfralækni til að kalla á regn,
og biðUr hann blessaðan um
að fara ekki að leika svo-
leiðis listir í Lídó. Það væri
ekki víst að Reykvíkingar
yrðu svo hrifnir.
— Auðvitað er þannig sjálfvirk-
ur einkaritari tæknileg fram-
för . . . en þó . . . .
— Ertu að fiska?
— Nei, ég er að drekkja orm-
um.
★
Dómarinn: — Þér fáið 4 daga
eða 100 krónur.
Ákærður: — Eg vil heldur 100
krónur, þakk.
★
— Þér megið víst til með að
taka yður matarkúr um tíma.
Hvað gerið þér annars?
— Eg er sverðagleypir í sirkus.
— Þá verðið þér að láta yður
nægja hnífa og gaffla fyrst um
sinn. i
Loftleiðir h.f.: — Leifur Eiríksson er
væntanlegur frá N.Y. kl. 03:30, fer til
Glasgow og London kl 10:00. — Edda
er væntanleg frá Hamb., Kaupmh.,
Gautaborg og Stavanger kl. 20:00, fer
til N.Y. kl. 21:30.
Eimskipafélag íslands h.f.: — Brúar-
foss fór frá ísafirði í gær til Flateyr-
ar. — Dettifoss er á leið til Rvíkur frá
Ventspils. — Fjallfoss er á leið til
Rvíkur frá Leningrad. — Goðafoss fór
frá Súgandafirði í gær til ísafjarðar.
— Gullfoss fór frá Kaupmannahöfn í
gær til Leith. — Lagarfoss fór frá
Akranesi í gær til Vestniannaeyja. —
Reykjafoss er í Hamborg. — Selfoss
fer frá N.Y. á morgun til Rvíkur. —
Tröllafoss er í Rvík. — Tungufoss fór
frá Ólafsfirði2. til Seyðisfjarðar, Norð-
fjarðar, Eskifjarðar, Reyðarf jarðar,
Fáskrúðsfjarðar, Ólafsfjarðar og þaðan
til Ósló.
Eimskipafélag Reykjavíkur h.f.: —
Katla er í Ventspils. — Askja lestar á
Norðurlandshöfnum.
H.f. Jöklar: — Langjökull er á leið
til Rvfkur frá Gautaborg. — Vatna-
jökull fer í dag frá Grimsby áleiðis
til London.
Skipaútgerð ríkisins: — Hekla er
á Akureyri. — Esja er á Vestfjörðum.
— Herjólfur fer frá Vestmannaeyjum
kl. 22 í kvöld til Rvíkur. — Þyrill er
á leið til Karlshamn. — Skjaldbreið
fer frá Rvík kl. 17 í dag vestur um
til Akureyrar. — Herðubreið fór frá
Rvík í gær austur um til Kópaskers.
Skipadeild SÍS: — Hvassafell er í
Aabo — Arnarfell er í Rvík. — Jökul-
fell er á leið til Ventspils. — Dísarfell
lestar á Austfjarðahöfnum. — Litlafell
er í olíuflutningum í Faxaflóa. —
Helgafell er í Riga. — Hamrafell er á
leið til Gautaborgar frá Tuapse.
Hafskip h.f. — Laxá er á leið til
Kúbu.
STÖKUR OG BROT
.... EFTIR SIGURÐ BREIÐFJÖRÐ ....
Sunna háa höfin á
hvítum stráir dreglum,
veröld má sinn vænleik sjá
í vatna bláum speglum.
I»ví vil kvaka þannig ég
þanka vakinn, glaður,
mig til baka í duftið dreg,
dauðans sakamaður . . .
Bílar til sölu
Nýs.tandsettur Kaiser ’52
og Ford sendiferðabíll ’38
í góðu lagi. Seljast mjög ó
dýrt. Uppl. í símum 1763Ö
og 19241.
Rösk og ábyggileg
óskast nú þegar.
Vogaver
Gnoðavog 44 - Sími 35390
25—35 tonna
og 80—90 tonna útilegubát
ur með eða án áhafnar og
útgerðar óskast. Tilb. send
ist Mbl. merkt. „10 mánuð
ir — 1394“.
Enska
Kenni ensku. Áherzla á
talæfingar sé þess óskað.
Uppl. í síma 24568 kl. 4—6
e.h.
Eiisabet Brand
Matsveinn
Vanur matsveinn óskar
eftir plássi á góðum bát,
helzt útilegubát. — Sími
18059 næstu dag.
Vil kaupa bát
Árabát eða með vél, sem
væri heppilegur til hrogn
kelsaveiða. Tilb. sendist
Mbl. merkt: „Bátur 1409“
Hárgreiðslukona
Dönsk hárgreiðslukona ósk
ar eftir atvinnu í Reykja-
vík (miðbænum).
Hanne Petersen
Hvedevej 22, Bronshöj,
Köbenhavn, Danmark.
Keflavík
3ja—4ra herb. íbúð óskast
1. febr. Uppl. á símstöð-
inni, Keflavíkurflugvelli.
2ja—3ja herb. íbúð
róleg kona óskar eftir íbúð
í gömlu eða nýju húsi í bæn
um. Barnlaus. Uppl. í síma
50494 eftir kl. 7 á kvöldin.
Ljósmyndastækkari
Mig vantar stækkara, má
vera notaður, þarf helzt
að taka 35 mm og 6x6 cm.
Simi 18610 fyrir hádegi
fimmtudag og föstudag.
Myndatökur
í heimahúsum. Sími 14002.
Sævar Halldórsson
Ljósmyndari
2ja—3ja herb. íbúð
óskast til leigu, sem fyrst..
Helzt í nágrenni Lands-
spítalans. — Uppl. í síma
3-63-54 milli kl. 4 og 6
í dag.
A T H U G I Ð
að borið saman við útbreiðslu
er langtum ódýrara að auglýsa
í Morgunblaðinu, en öðrum
blöðum. —
Þegar óhryygur heimi fri
héðan Siggi gengur,
fjöllin skyggja ekki á
alvalds hygging lengur.
í kvöld munu nýjir
skemmtikraftar koma fram í
Storkklúbbnum. Eru það ít-
alskir fimmmenningar, Gabr-
ielo Orizi og félagar. Þeir
komu hingað í fyrrakvöld frá
Kaupmannahöfn, þar sem
þeir hafa skemmt í sumar
við mjög mikla hrifningu,
meðal annars á Adlon.
Fimmmenningar þessir
Ieika á fjölda hljóðfæra og
syngja allir með, einnig leika
þeir lög þar sem einn þeirra
syngur einsöng og heitir
hann Aldo Rincicotti.
Félagarnir leika -ðallega
ítölsk og suður-amerísk Iög,
mikið cha-cha-cha. Þeir
munu dvelja hér á landi í
hálfan mánuð og skemmta
gestum Storkklúbbsins.
Sendisveinn
Röskur og ábyggilegur sendisveinn
óskast strax.
Uppl. á verkfræðideild Rafmagnsveitunn-
ar, Hafnarhúsinu 4. hæð.
Rafmagnsveita Reykjavíkur
Breyting á viitalstíma
Nú um áramótin hætti ég störfum sem heimilislæknir
hjá sjúkrasamlagi Akraness, en mun sem sérfræð-
ingur (í handlækningum) hafa opna lækningastofu
á mánud. og fimmtud. kl. 2—4.
PÁLL GfSLASON
sjúkrahúslæknir, Akranesi.
Keflavík
Vantar múrara til að múra einbýlishús að innan.
Tilboð kemur til greina. Uppl. í síma 1881 kl. 7—8
á kvöldin.
Verzlunarst/óri
Óskum að ráða röggsaman mann til sölu og verzl-
unarstörf í stóra sérverzlun hér í bænum, nú þegar
eða eftir samkomulagi. Umsóknir sendist Morgun-
blaðinu fyrir föstudagskvöld, er tilgreini aldur,
fyrri störf ásamt kaupkröfu, merkt: „Verzlunar-
stjóri — 1405“. Fullkominni þagmælsku heitið.