Morgunblaðið - 05.01.1961, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 05.01.1961, Blaðsíða 20
Eiginkonan hjálpaði til. — Sjá bls. 8. 3. tbl. — Fimmtudagur 5. janúar 1961 Viðreisnin í Júgóslavíu. — Sjá bls. 6. Sextíu kindur fórust í eldsvoða í Auðsholti Bruinaf jónið um 100.000 kr. BÓNDINN í Auðsholti í Ölf- usi varð fyrir miklu tjóni af völdum elds sl. þriðjudags- kvöld og aðfaranótt miðviku- dags. Sonur bóndans varð þess óviljandi valdur, að eldur kom upp í heyi í fjár- húsbragga bóndans og missti hann yfir sextíu fjár í eldin- um eða af afleiðingum hans. Auk þessa eyðilagðist þak- járn á stórt hænsnahús, sem verið var að reisa í Auðs- holti, en járnið var geymt í sama bragga. Er það sízt minna fjárhagslegt tjón en missir kindanna, en hver fullorðin kind er verðlögð á Dróst með bíl yfir 200 m. eftir göfu Bólungarvik, 3. jan. 1 GÆRKVÖLDI gerðist það í götu hér í Bolungarvík, að maður var dreginn með bíl yfir 200 m eftir götunni og horfðu þeir sem í bílnum voru á hann út um glugg- ana án þess að stanza. Mað- urinn, sem heitir Sigurður Guðbjartsson, og er vélsmið- ur hér í Bolungarvík, er mik ið marinn og liggur rúmfast- ur. Er mesta mildi að ekki varð stórslys af þessu. , ÓKU HRATT AF STAÐ Tveir unglingspiltar frá ísa- firði voru að aka hér um göt- urnar og með þeim var stúlka héðan. Ætlaði Sigurður að ná taili af þeim og veifaði bíinum, sem stanzaði. En er Sigurður í hafði tekið í hiurðarhúnuui, var ekið hratt af stað og hélt annar pilturinn hurðinni aftur, sivo hún opnaðist ekki. Bíilinn fór strax é mikla ferð og Sigurður þorði •ekki að sleppa takinu af ótta við að lenda undir afturhjólinu, sem straukst tvisvar við hann. Horfði fólkið í bílnum á hann án þess að stanza, þar sem hann dróst eftir frosinni og ósléttri götunni. Er bíiilinn hafði dregið hann 205 m. vegalengd var hann orð- inn svo að fram kominn, að hann sleppti upp á von og óvon, en bíliinn herti enn ferðina og hvarf. Var Sigurður ailur skrám aður, en ekki meiddur að öðru leyti. Var svo mikill sandur og mold í sárunum að það tók lækninn klukkutíma að gera að þeim. Liggur hann nú rúm- fastur heima. í attan dag hafa verið réttar- höld vegna þessa máls í Bol- ungarvík og á ísafirði. Jón Helgason rit- stjóri við Tímann JÓN HELGASON hefur nýlega verið ráðinn ritstjóri við Tím- ann. Hann hefur undanfarin ár verið ritstjóri Frjálsrar þjóðar. Áður var hann blaðamaður og fréttaritstjóri Tímans. Aðrir rit- stjórar Tímans eru þeir Þórar- inn Þórarinsson og Andrés Kristjánsson. Enn spreng- ing Akranesi, 4. janúar. SIGURÐUR Jónsson trésmiður átti hálfa stáltunnu við kindakofa sina inni í Kalmansvík. Er hann kom inn eftir á nýársdagsmorg- un til að gefa fénu, var tunnan á bak og burt. Finnur hann loks tætlur og brot af henni inni á klettunum innan við víkina. Þótti honum sýnt að einhverjir ung- lingar hefðu komið fyrir sprengju í tunnunni og eyðilagt hana. Ekki urðu slys af völdum sprengingarinnar. — Oddur. Sjómanna- samningar I GÆRKVÖLDI er blaðið fór í prentun stóð samninga- fundur yfir milli sjómanna og útgerðarmanna um kjör- in á bátaflotanum, en sátta- semjari ríkisins hefur fengið málið til meðferðar. Fund- irnir eru haldnir í Alþingis- húsinu. sjö hundruð krónur. Um sex tíu hestar heys skemmdust einnig af eldi og vatni í brunanum. Blaðamaður og ljósmyndari frá Mbl. fóru austur í Ölfus um miðjan dag í gær og hittu heimafólk í Auðsholti að máli. Bóndinn heitir Gísli Hannesson, fyrrverandi kennari við barna- skóla Austurbsejar og Mela- skóla, bróðir sr. Jóhanns Hann- essonar og þeirra bræðra. Hann hefur búið um eins og hálfs árs skeið í Auðsholti og rekur þar myndarlegt bú: þúsund hænsni, nítján kýr og hest, en kindurnar voru sjötíu að tölu. Auk þess er mikil kartöflurækt í Auðsholti og laxveiði í Ölfus- árósi. Gísli sagði á þessa leið frá brunanum: Magnús, sonur minn, fór út í hús að gefa fénu uni klukkan hálfsjö á þriðjudagskvöld. Hon- um urðu þau mistök á, er hann kom í fjárhúsið, að kveikja á kertisstubb í stað þess að gefa fénu í myrkri eins og vanir sveitamenn gera, ef fjárhúsið er ekki raflýst. Hann er borg- arbarn og vanur ljósinu, þess vegna hefur hann ekki gætt þessa. Neisti leynist Um það bil, sem hann var bú- inn að gefa fénu, varð hann þess var að neisti frá kertisloganum komst í heyið. Hann taldi sig hafa slökkt neistann, áður en hann yfirgaf fjárhúsið, en hugsaði sér að fara aftur út seinna og að- gæta, hvort ekki væri allt með felldu, en af því varð ekki. Mestu místökin voru auðvitað að segja ekki mér eða móður sinni frá þessu, þá hefðum við óðara farið þangað út og ekki víst að svona ógæfusamlega hefði til tekizt. Það var ekki fyrr en klukkan hálf átta, að við vissum um eld- inn. Drengur af nálægum bæ, sem var að vinna hjá mér um daginn, varð hahs fyrstur var, þegar hann var á leið heim til sín á dráttarvél. Hann lét okkur strax vita, og konan mín hringdi óðara á slökkviliðið í Hveragerði en ég og sonur minn hlupum út að fjárhúsinu, sem er spottakorn frá bænum. Þegar við komum þangað var Frh. á bls. 19 Fjárhúsbragginn í Auðholti. Heygaltinn stéð við enda hans, áður cn honum var umstaflað. Hannes Gíslason, sonur bónd- ans, stendur við braggann. Tvær kindanna, sem lifðu af brunann. Kindin, sem er nær, var mjög illa haldin síðdcgis í gær. Froðan vall frá vitum hennar og korraði í henni við hvern andardrátt. Hin kindin var aftur á móti verr haldin fyrri hluta dagsins, en virtist vera að ná sér í gærkvöldi. (Ljósm.: Sveinn Þormóðsson) Góður afli í Sandgerði Fimm bátar réru þaðan í gær Fengu 8-10 lestir FIMM Sandgerðisbátar reru í gær og fengu góðan afla, eða svipað og í fyrradag. Er blaðið hafði þaðan síðast spurnir í gærkvöldi voru báfarnir ekki allir komnir að. Afli þeirra, sem komnir voru, var frá 8—10 lestir á bát. Þessir bátar munu halda áfram róðrum, • Búið að skrá á þrjá báta BOLUNGARVIK: — Hér er búið að skrá áhafnir á 3 báta, en þeir hafa ekki komizt í róður ennþá. Þessi skráning fór fram 2. janúar. A fjórða bátinn var ekki lokið skráningu vegna þess að vél- stjóri hafði ekki viijað láta skrá sig fyrr en samningar hefðu tek- izt. Alls munu róa héðan 6 bát- ar 1 vetur, en tveir eru ekki komnir heim og því ekki tilbúnir til róðra. © Róa til miðs janúar SUÐUREYRI: — Fimm bátar munu róa héðan í vetur, en ekki hefir gefið á sjó ennþá. Akveðið er að bátamir rói að minnsta kosti fram til miðs janúar þótt ekki hafi verið gengið frá samn- ingum. Engar samningaviðræð- ur fara hér fram og verður beðið eftir samningum annars staðar frá. Aflabrögð voru léleg fyrir ára- mótin, en hins vegar mikil vinna við frystihúsin í landi. Stafar það fyrst og fremst af manneklu. Ef afli glæðist er búist við að mikill skortur verði á vinnuafli, því ekki er gert ráð fyrir að fólk fáist að. • Ekki róið frá Keflavík I Keflavík voru róðrar ekki hafnir í gær en nokkrir hátar voru tilbúnir að fara á veiðar. Sömu sögu er að segja frá Grinda vík. Minkurinn I drukknaði Arnesi, 4 jan. MINKUR sá er áður um getur, er tók sér bólfestu í fjárhúsinu í Fagraneakoti í Aðaldal milli jóla og ný- árs, grandaði sér í vatns- tunnu í fyrrinótt. Hafði tunnunni verið komið fyr- ir í fjárhúsinu kvöldið áð- ur. Bóndinn í Fagraneskoti hafði gert margar tilraunir til þess að handsama mink- inn. Að síðustu hugkvæmd- honum að setja lifandi sdl- ung í tunnu með vatni í 7 fjárhúsið. Stóðst minkur- 1 inn ekki freistinguna, stakk I sér í vatnið og hugðist gæða sér á matnum, en það kostaði hann lífið, því í tunnunni drukknaði hann. Frétbaritari

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.