Morgunblaðið - 11.02.1961, Blaðsíða 23
Laugarðagur 11. febrúar 1961
MORCVNBLAÐ1Ð
23
„Lönd og leiðir"
— ný fer&askrifstofa
NÝ ftrðaskrifstofa er að taka
til starfa hér í bæ. Nefnist hún
Lönd og leiðir hf., og hafa for-
ráðamenn hennar skýrt blaða-
mönnum nokkuð frá fyrirhug-
aðri starfsemi. Kváðu þeir fyr-
irtækið hafa verið stofnað í
nóvember sl., en í dag, laugar-
dag, myndi starfsemin hefjast
með opnun skrifstofu í Austur-
stræti 8 (2. hæð), sem fyrst um
sinn verður opin tvo tíma á
dag. Hefst þar þegar öll fyrir-
greiðsla ferðamanna, jafnt utan-
lands sem innan. — Hinn 1. maí
nk. verður svo opnuð afgreiðsla
á götuhæð sama húss (í húsa-
kynnum Tómstundabúðarinnar).
★
Valgeir Gestsson, sem mun
hafa með höndum daglegan
rekstur ferðaskrifstofunnar fyrst
— Frakkar harma
Framh. af bls. 1
venja Frakka að senda orustu-
flugvélar til móts við erlendar
flugvélar, sem koma inn á
þetta hættusvæði. Venjuiega
'hafa orustuflugvél og hin brot-
lega flugvél þá radíósamband sín
é milli. Frakkar segja, að stjórn-
andi rússnesku flugvélarinnar
hafi ekkert radíósamband vilj-
að hafa við orustuflugvélina og
var þá fylgt þeim reglum, sem
áður hafa verið notaðar, að var
úðarskotum var hleypt af fram
an við hina brotlegu flugvél.
* Ræningja-aðferö.
Einn af ferþegunum í rúss-
nesk blöð hafa í dag gert mjög
mikð úr þessari árás á forseta
landsins. Rússar sagja, að hér
sé um algerar ræningjaaðferðir
að ræða. Þeir bera til baka full
yrðingar Frakka um að flug-
vélin hafi ekki fylgt fyrirfram
ákveðinni flugleið. Þá segja þeir
að rússneski flugmaðurinn hafi
verið í sambandi við talstöð
í Algeirsborg.
Lýsing sjónarvotts.
Einn af farþegunum í rúss-
nesku flugvélinni var sendi-
herra Marokku í Moskvu Bachir
Bel Abbes. Hann hefur lýst
árás frönsku flugvélarinnar svo:
— Eg gat einmitt séð strönd
Alsír li fjarska, þegar orustu-
þota köm skyndilega upp að flug
vél okkar og var svo nálægt okk
ur, að ég gat lesið skrásetningar
númer hennar. — Eg sá, að hún
dýfði vængbroddinum, eins og
flugmaðurinn væri að senda
Okkur kveðju, en síðan sá ég
byssukúlurnar fara framhjá,
þær voru af þeirri tegund, sem
skilur eftir sig reykjarrák. Kúl
urnar fóru fyrir framan flugvél
ina. Síðan hvarf hin franska or-
Ustuþota.
Gott áróðursvopn.
Frönsk blöð eru yfiríleitt á
einu máli um, að leitt sé að þessi
atburður hafi komið fyrir og
henda þau m.a. á það, að atvik
þetta telji Rússar gott vopn í
áróðrinum gegn Frökkum. En
iblöðin benda einnig á það, að
Rússar eigi einnig nokkra sök
á því að atvikið kom fyrir, þar
®em flugvélin hafi ekki hlýtt
settum reglum og enginn hafi
vitað að sjálfur'forseti Rússlands
hafi þarna verið á ferð. Sé það
óeðlilegt, að slíkir menn séu á
laumuferðalagi milli landa og
að þeim sé stofnað í hættu eiiis
og hér var gert.
Breshnev forseti ætlar
Bð dveljast tvo daga í Marokko.
Hann hefur boðið krónprinsi
Marokko, Moulay Hassan að
heimsækja Moskvu. Næst fer
Breshnev forseti tii Gítreu á
Vesturströnd Afríku. Hann er
Valdamesti maður Rússa, sem
heimsótt hefur svertingjaríki í
Afríku,
um sinn, skýrði svo frá, að
Lönd og leiðir vildu gera ís-
lenzku ferðafólki kleift „að
ferðast sem víðast og sjá sem
mest, á sem ódýrastan hátt“. Þá
myndi ferðaskrifstofan stuðla að
kynnum Islands erlendis eftir
megni og vinna að því að fyrir-
greiðsla erlendra ferðamanna á
íslandi verði gefin frjáls, enda
telji forráðamenn fyrirtækisins
það „dæmalaust sjónarmið og
úrelt“ að slík fyrirgreiðsla sé
aðeins falin einum aðilr
★
Lönd og leiðir hafa þegar
skipulagt og undirbúið 6 þriggja
vikna sumarleyfisferðir um
Mið- og Suður-Evrópu, og fara
tveir fyrstu hóparnir utan um
20. júní. í þessum ferðum verð-
ur farið flugleiðis, bæði að
heiman og heim, þannig að sem
beztur tími gefist til ferðalaga
á meginlandinu, — og áherzla
verður lögð á að hafa dagleiðir
sem stytztar. Munu allt að 30
manns komast í hvern hóp þess
ara ferða. — Ferðakostnaður
verður kr. 11,500,00 til 13 þús.
krónur fyrir manninn, og er þá
miðað við að gisting, fæði og
allur annar kostnaður sé inni-
falinn. Hópar frá félögum eða,
stofnunum verða látnir sitja
fyrir um ferðir þessar, en ein-
staklingum er að sjálfsögðu
einnig veitt öll fyrirgreiðsla 1
þessum efnum.
★
Til þess að auðvelda starfsemi
sína, mun „L & L“ hafa um-
boðsmenn á eftirtöldum stöðum
utan Reykjavíkur: Akranesi, Isa
firði, Akureyri, Húsavík, Eiðum,
Vestmannaeyjum, Keflavík, Hafn
arfirði og Selfossi.
Stjórn ferðaskrifstofunnar
Lönd og leiðir skipa þeir Ing-
ólfur Blöndal, Valgeir Gestsson
og Haraldur Jóhannsson. Ingólf-
ur er nú á ferðalagi um Ev-
rópu í erindum skrifstofunnar
og mun síðan verða búsettur í
Þýzkalandi í sumar og reka þar
ýmsa þjónustu fyrir fyrirtækið.
— Kongó
Framh. af bls. 1
Joseph Okito. Þeir höfðu bund-
ið tvo gæzlumenn, sem áttu að
gæta þeirra, stolið nokkrum
rifflum og tekið bifreið, sem
einn gæzlumannanna átti. — Á
bifreið þessari var fremur lítið
benzín og bjóst ráðherrann ekki
við, að það myndi endast meira
en 60 mílur.
HÁ VERÐLAUN
Fjöldi herflugvéla sveimar nú
yfir þjóðvegum og brautum á
þessu svæði og strangur lög-
regluvörður hefur verið settur
við innkeyrsluleiðir allar til
borganna Kolwesi, Jadotville,
Kamina og Elisabethville. —
Stjórn Katanga hefur heitið
verðlaunum, sem nema 219 þús.
krónum, hverjum þeim sem get-
ur gefið upplýsingar er leiði til
handtöku Lumumba og sem
nema 30 þús. kr. fyrir hand-
töku hvors aðstoðarmanna hans.
í gærkvöldi bar Moise Tsj-
ombe, forsætisráðherra Katanga,
til baka fregnir þær sem komið
höfðu upp um að Lumumba
hefði verið drepinn í fangelsi.
Tsjombe sagði þá að Lumumba
væri á lífi og heill heilsu.
BÍLLINN SÉST
Seinna í dag skýrði upp-
lýsingamálaráðherra Katanga
stjórnar frá því, að sennilegt
væri, að bifreið sú, sem Lum
umba komst undan með,
hefði sézt þá um daginn úr
flugvél á þjóðveginum um
200 mílur norðvestur af
Elisabethville. Sé það rétt,
virðist Lumumba stefna í átt
ina til stuðningsmanna sinna
í Kasai-héraði,
Nýr sjóliðsfor-
ingi hjá Land-
helgisgæzlunni
NÝLEGA hefur Landhelgisgæzl-
unni bætzt nýr starfsmaður, Guð-
jón Ármann Eyjólfsson, sjóliðs-
foringi, en hann er Vestmanna-
eyingur að ætt og uppruna. Byrj-
aði hann að starfa hjá Landhelgis
gæzlunni um síðustu áramót. Er
hann þriðji sérmenntaði sjóliðs-
foringinn sem við stofnunina
starfar.
Guðjón Ármann er 25 ára að
aldri. Vorið 1955 varð hann stúd-
ent við Menntaskólann í Reykja-
vík. Næsta ár fór hann utan og
fyrir milligöngu Landhelgisgæzl-
unnar hóf hann nám við danska
sjóliðsforingjaskólann. Þaðan
lauk hann lokaprófi í desember-
mánuði sl., með hinum prýðileg-
asta vitnisburði.
Forstjóri Landhelgisgæzlunnar,
Pétur Sigurðsson, var einnig á
danska sjóliðsforingjaskólanum
og Gunnar Bergsteinsson, sem oft
hefur veitt Landhelgisgæzlunni
forstöðu í fjarveru Péturs Sigurðs
sonar, hlaut sína sjóliðsforingja
menntun í norska sjóliðsforingja-
skólanum.
— Eimskip
Framh. aí bls. 24.
nýttur til fulls, nema þá að flutn
ingsmagn frystivara aukist til
mikilla muna frá því sem nú er.
Það er kunnugt að allmiklir
flutningar á frystum vörum eiga
sér jafnan stað frá Ameríku til
Evrópu, hefur Eimskipafélagið
því leitað upplýsinga um mögu-
leika á því að geta orðið þátt-
takandi í þessum vöruflutningum
til Evrópu og hagnýtt þannig
frystirúm skipa sinna betur en
unnt er, þegar einungis eru flutt-
ar frystar vörur aðra leiðina, þ.
e. frá íslandi. Til þess að koma
þessu í kring þykir heppilegra
að hafa skipin í föstum áætlun-
arferðum og verða þá í hverri
ferð fluttar almennar stykkjavör-
ur frá New York til fslands, og
auk þess frystar vörur í frysti-
rúmi til Evrópu, eftir því sem
þær eru fáanlegar hverju sinni.
Stykkjavörurnar eru svo affermd
ar hér, og síðan ferma skipin út-
flutningsafurðir til Evrópuhafna,
og frystivörur eftir því sem rúm
Ieyfir. Að lokinni affermingu
þeirra, ferma skipin aftur vörur
frá Evrópuhöfnum til íslands, og
þegar þau hafa affermt þær hér,
ferma þau frystan fisk og aðrar
útflutningsvörur til New York
eftir því sem þessar afurðir eru
fyrir hendi.
Væntir Eimskipafélagið þess að
þetta fyrirkomulag reynist hag-
kvæmt bæði fyrir innflytjendur
og útflytjendur jafnframt því,
sem skiprúmið nýtist betur, en á
því er hin mesta þörf til þess að
rekstur skipanna verði viðun-
andi.
Þess verður að sjálfsögðu gætt,
að jafnan verði nægur skipakost-
ur fyrir hendi til að annast flutn-
inga á útflutningsvörum fslend-
inga og aðkevQtu^ vörum til
landsins.
— Bolungarvik
Frh. af bls. 1
að síðamefndi báturinn jnyndi
hafa fengið eitthvað í skrúf-
una, því að hann gæti lítið
hreyft hana og einnig myndi
hann hafa fengið brotsjó á
sig. Kvaðst Gunnvör ekki
hafa draglínu til að draga bát-
inn til hafnar.
Kom Óðinn þá skjótlega á
vettvang. Var þá svartabylur
en þó tókst fljótlega að finna
bátinn og var hann dreginn
inn til ísafjarðar.
Ekki vissu varðskipsmenn-
irnir þá að svo hörmulegt slys
hafði orðið um borð í Krist-
jáni Hálfdáns, sem sagt var
frá í blaðinu í gær, en tvo
unga og myndarlega menn
hafði tekið út af bátnum um
morguninn, þogar straum-
hnútur skall yfir bátinn.
— Gervihnötturinn
Framh. af bls. 1
inda- eða rannsóknatæki. Tungl-
inu hefði eingöngu verið skotið
á loft til að reyna, hvernig
gengi að koma svo þungum
hlut á sporbraut kringum jörð-
ina. —
Undarlegur dráttur
Vísindamönnum á Vesturlönd-
um finnst imdarlegt, hve Rúss-
ar hafa dregið það að tilkynna,
að enginn maður sé um borð í
gervitungli þessu. Því var skot-
ið á loft sL laugardag og allt
frá því fyrsta hefur orðrómur-
inn gengið, að lifandi menn
væru um borð i gervitunglinu.
Þessum orðrómi gátu rússneskir
vísindamenn hnekkt mjög skjót-
lega, en þeir gera það ekki fyrr
en sýnt er að gervitunglið er að
eyðast upp til agna.
Hjartanlegustu þakkir til allra ættingja og vina, sem
glöddu mig með heimsóknum, gjöfum og heillaskeytum
á 70 ára afmæli mínu 5. febrúar sl.
Guð blessi ykkur öll.
Njáll Jónasson frá Siglufirði
Kærar kveðjur og þakkir, sendi ég öllum, sem glöddu
mig og heiðruðu á áttræðisafmæli mínu 2. febrúar.
Guðrún Hansdóttir, Vesturgötu 50 O
Faðir okkar og tengdafaðir,
GRlMUR KR. JÓSEFSSON
andaðist 10. þ.m. að Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund.
Börn og tengdaböm
Konan mín
ÞÓRDlS M. JÓNSDÓTTIR
Borgarnesi,
andaðist miðvikudaginn 8. þ.m
Jón Eyjólfsson
Maðurinn minn og faðir okkar,
GUÐMUNDUR DALBERG ARASON
Gnoðarvogi 38
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju, mánudaginn 13.
febrúar kl. 3 e.h. — Blóm afbeðin.
Guðbjörg Ólafsdóttir og böm
Móðir mín, fósturmóðir, tengdamóðir og amma,
ÞÓREY JÓNSDÓTTIR
andaðist 10 .þ.m. að elli og hjúkrunarheimilinu Grund.
Guðrún H. Vilhjálmsdóttir, Kjartan Magnússon,
Hjörleifur Jónsson, Margrét Ingimundardóttir,
Elísabeth Vilhjálmsdóttir og barnabörn.
Hjartkær eiginmaður minn og faðir okkar,
VALTÝR BERGMANN BENEDIKTSSON
Vélstjóri, Sunnubraut 16, Akranesi
andaðist að sjúkrahúsi Akraness fimmtudaginn 9. þ.m
Jarðarför auglýst síðar.
Fyrir mína hönd og barna minna.
Bára Pálsdóttir
Konan mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma,
SIGNÝ BÖÐVARSDÓTTIR
frá Helgavatni, Miklubraut 5
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju, þriðjudaginn 14.
þ.m. kl. 10,30 f.h. — Athöfninni verður útvarpað. —
Blóm afbeðin, en þeim sem vildu minnast hennar er bent
á líknarstofnanir.
Eðvarð Hallgrílmsson, börn, tengdabörn og barnabörn
Innilegar þakkir til allra, er sýndu okkur samúð og
vinarhug við andlát og útför mannsins míns, föður okkar,
tengdaföður og afa
ÖFEIGS JÖNSSONAR
Valgerður Guðmundsdóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn