Morgunblaðið - 23.02.1961, Page 19
Fimmtudagur 23. febrúar 1961
MORCV1SBLAÐ1Ð
19
rr
— Kongó
Framh. af bls. 1
Dayal, fulltrúi SÞ hefur enn
einu sinni farið fram á það við
Tshombe, að lík Lumumba og
félaga hans verði afhent ætt-
ingjum þeirra. Þá hefur Dayal
ritað Albert Kalonji, héraðs-
stjóra í Kasai, og beðið hann
um tæmandi lista yfir þá
pólitíska fanga, sem hafi verið
fluttir til Bakwanga frá Leo-
poldville frá upphafi þessa mán-
aðar.
• Jafngildi stríðsyfirlýsingu.
Joseph Ileo, sem Kasavubu hef
ur skipað forsætisráðherra, ræddi
við fréttamenn í Leopoldville 1
dag. Hann sagði, að hin síðasta
samþykkt Öryggisráðs SÞ jafn-
gillti stríðsyfirlýsingu og væri til-
raun til þess að koma öllu Kongó
ríki undir stjórn SÞ. Sagði Ileo,
að Kongómenn mundu verja full
veldi sitt og hætta til þess lífi
sínu, ef nauðsyn krefði. Skírskot-
aði hann til allra frjálsra þjóða að
styðja þá í þeirri baráttu.
Ileo kvartaði yfir því, að full
trúar SÞ hefðu ekki nægileg sam
xáð við yfirvöldin í Kongó og hélt
því fram, að Sameinuðu þjóðirn-
ar hefðu ekki hafzt neitt að til
íþess að hindra, að erlend aðstoð
bærist til vissra svæða landsins.
Ileo sagði, að stjórn hans væri
fús að reyna að komast að samn-
ingum við yfirvöldin í Stanley-
ville. Hann lét í ljósi reiði sína
yfir ýmsum hrottalegum atburð-
um, sem átt hefðu sér stað víðs
vegar í landinu, þar á meðal af-
lífun Lumumba og félaga hans.
Kvaðst hann mundu vinna að því
að hinum seku yrði refsað. Loks
ikvaðst Ileo vænta þess að þing
Konó kæmi saman innan tíðar og
tækju þá einnig sæti sín þeir
þingmenn, sem væru nú pólitískir
fangar.
• Engin samvinna nema . . .
Belgíska fréttastofan Belga
skýrði frá því í dag, að fregnir
frá Ruanda Urundi hermdu, að
forsætisráðherra Kivu-héraðsins
Anicet Kashamurha, stuðnings-
maður Lumumba, hefði í útvarps-
ávarpi lýst yfir því, að starfi
hans væri nú lokið og ný stjórn
tekin við völdum í Kivuhéraði
Segir Belga, að Kashamurah hafi
verið orðinn mjög slæmur á taug
um og hafi reynt að fyrirfara sér
síðastliðinn sunnudag, með því
að stökkva út um glugga á
fjórðu hæð í gistihúsi, sem hann
dvaldist í. Jafnframt segir, að
tiann hafi skipað þingforseta
Kivuhéraðsins, Ruker Ratabaro
yfirmann héraðsins. Allir stjórn-
armenn Kivu eru fylgismenn
Lumumba.
Þá hefur utanríkisráðherra
Eelgíu óskað eftir því að liðs
jnenn SÞ verndi belgíska her
inenn, sem stjórn Stanleyville
hafi tekið til fanga er þeir fóru
af misgáningi yfir landamærin
frá Ruanda Urundi.
í New York, hefur fulltrúi
Kongó hjá Sameinuðu Þjóðunum,
Evaristo Loliki, afhent og birt
©pinberlega bréf til forseta ör-
yggisráðsins, Sir Patricks Dean,
þar sem lýst er yfir því, að stjórn
Kongó mun ekki eiga samvinnu
við Sameinuðu Þjóðirnar um
framkvæmd samþykktar örygg-
isráðsins nema því aðeins, að
fyrst fari fram viðræður milli
fulltrúa Sameinuðu Þjóðanna og
stjórnar Kasavubus.
Því, sem ráðherrann hafði
gert, varð eigi hnekkt
Kópavogskaupstaður tapar máli
í Hœstarétti
— Orðn/r langeygir
Frh. af bls. 1
urstöðu fyrir lok þessa mánaðar
evo að unnt verði að hefja vor-
veiðarnar við ísland með fullum
ikrafti. Ef svo verður ekki óska
þeir eftir vernd flotans innan
tólf mílna markanna.
n
Loks segir í lok fréttaskeytis
frá NTB um sama mál, að fyrir
skömmu hafi verið tilkynnt opin
berlega, að brezka ríkisstjórnin
hafi enn á ný reynt að fá ís-
flendinga til þess að fallast á sam
Ikomulag, sem byggist á sömu
atriðum og samningur Norð-
manna og Breta.
LOKIÐ er í Hæstarétti máli út
af landi sem tveir aðilar gerðu
tilkall til suður í Kópavogi.
Annar þeirra Kópavogskaupstað
ur höfðaði málið gegn Helga
Lárussyni forstjóra hér í Reykja
vík. Hann hafði fengið loforð
fyrir hinu umdeilda landi, gegn
því að láta af hendi land sem
hann átti þar syðra. Bygginga-
samvinnufélag Kópavogs, sem
Hannes Jónsson félagsfræðing-
ur réði þá fyrir, vildi fá þetta
land fyrir fjölbýlishús er það
ætlaði að reisa þar. Þetta var í
ársbyrjun 1955. Þáverandi land
búnaðarmálaráðherra Steingrím-
ur Steinþórsson gekk í málið
fyrir Byggingasamvinnufélagið.
Það varð úr að Bergur lét af
hendi það land, sem samvinnu-
félagið taldi sig þurfa, gegn því
að honum yrði mæld spilda úr
landi Digraness sem hann þá
fengi í staðinn.
Um þessa spildu hófst deilumál
þetta. Kópvogskaupstaður keypti
land Digraness árið 1955 og
vildi ekki fallast á að ráðherra
hafi haft neitt leyfi til þess að
ráðstafa landspildu þessari, því
jörðin hafi verið ráðuneytinu
óviðkomandi, þá er landbúnaðar
ráðherra ráðstafaði spildunni til
Helga Lárussonar.
„Með yfirlýsingu Steingríms
Steinþórssonar, er landbúnaðar-
ráðherra var 1955, greinargerð
Sveinbjarnar Dagfinnssonar,
deildarstjóra í Landbúnaðarráðu
neytinu, og málflutningsyfirlýs-
ingum af hendi ráðuneytisins
fyrir héraðsdómi og fyrir Hæsta-
rétti er sannað, að Steingrímur
ráðherra lofaði gagnáfrýjanda
máls þessa að leysa land það,
sem í málinu greinir, að stærð
Bókmennta-
kynning í Kjós
Valdastöðum 13/2 61.
ÞANN 11. þ.e.m. var að tilhlutun,
Bræðrafélags Kjósarhrepps hald
inn bókmenntakynning á verk-
um Guðmundar G. Hagalín rit-
höfundar, að Félagsgarði. Hófst
hún með því, að form. félagsins
Oddur Andrésson, setti samkom-
una og bauð gesti velkomna og
kynnti dagskrá. Gat hann þess
að þetta væri þriðja kvöldvakan
sem fél. gengist fyrir. Því næst
flutti Helgi Sæmundsson formað
ur Menntamálaráðs, erindi um
rithöfundinn og skáldið Guð-
mund G. Hagalín, og verk hans.
Þar næst las Brynjólfur Jóhann-
esson leikari upp stutta skáld-
sögu eftir Guðm. G. Hagalín. Að
síðustu flutti svo skáldið ávarp,
og las kafla úr óprentaðri skáld-
sögu eftir sjálfan sig. Öll þessi
atriði, fengu ágætar undirtektir,
og voru þökkuð með verðugu
lófataki. Að síðustu hófst svo
Leiðrétting
í MINNINGARGREIN um Hall
grím Þorbergsson á Halldórsstöð
um 21. þ.m. er slæm prentvilla.
Þar segir að hann hafi látið af
búskap fyrir 20 árum, á að vera
fyrir 2 árum.
★
ÞAU mistök urðu í blaðinu í gær,
að sagt var í frétt um þá, sem
nýlokið hafa háskólaprófi, að
Árni Björnsson og Guðrún S.
Magnúsdóttir hefðu lokið kandí-
datsprófi í viðskiptafræðum.
Þetta er rangt. Þau luku prófi í
íslenzkum fræðum, og eru bæði
hér með beðin velvirðingar á þess
um mistökum.
Hins vegar lauk Magnús Ár-
mann prófi í viðskiptafræðum, en
nafn hans féll niður af vangá. Er
hann einnig beðinn afsökunar.
4,736 ha við Álfhólsveg austan
túns í Digranesi, úr erfðaleigu
þriðja aðilja og leigja gagnáfrýj-
anda það með þeim kjörum, sem
gagnáfrýjandi hafði haft á landi
á Digraneshálsi samkvæmt lóðar
leigusamningi 2. apríl 1947, er
breytt var með samningi 6. fe-
brúar 1948, gegn því, að gagn-
áfrýjandi afsalaði sér hluta af
síðamefndu landi til afnota
handa samvinnufélagi. Þá er
landbúnaðarráðherra 15. ágúst
afsalaði samkvæmt lögum nr.
32/1957 Kópavogskaupstað lend-
ur jarðanna Digraness og Kópa-
vogs, var í afsalinu tekið fram:
„Einstaklingar félög og stofnanir,
sem fengið hafa á leigu eða lof-
orð yrir lóðum eða landspildum
í Kópavogi halda rétti sínum sam
kvæmt þar að lútandi samning-
um eða skuldbindingum". Deild-
arstjóri í landbúnaðarráðuneyt-
inu, sem að sölunni starfaði, hef-
ur vottað að fyrirsvarsmönnum
aðaláfrýjanda hafi, áður en frá
kaupum var gengið, verið kynnt
loforð ráðherra til gagnáfrýj-
anda og „það ítrekað við kaup-
anda, að skyldan til að efna það
yfirfærðist á hann um leið og
hann fengi afsal fyrir landinu“.
Þáverandi fyrirsvarsmaður aðal-
áfrýjanda hefur viðurkennt, að
honum hafi verið kunnugt um
loforð ráðherra, en kveðst hafa
talið það ógilt.
Samkvæmt þessu og öðrum
gögnum málsins hvílir á aðal-
áfrýjanda skylda til að efna lof-
orð það, sem landbúnaðarráð-
herra Steingrímur Steinþórsson
veitti gagnáfrýjanda 1955 og
rakið var, og ber að dæma aðal-
áfrýjanda til éfnda, en þar sem
landið er nú í erfðaleigu þriðja
aðilja og eigi er víst um, hversu
greitt gengur að losa landið úr
þeirri leigu, verður efndaskyld-
an eigi lögð á aðaláfrýjanda við
viðlögðum dagsektum, heldur er
rétt að setja honum frest að full
nægja skyldunni, og þykir frest-
urinn hæfilega ákveðinn 5 mán-
uðir frá birtingu dóms þessa.
Eigi hefur verið höfð uppi í máli
þessu varakrafa um skaðabætur
á hendur aðaláfrýjanda, ef hann
hefur eigi efnt skyldu sína, er
fullnægjufrestur dómsins rennur
út.
Málskostnaður var lagður á
Kópavogskaupstað, alls 1500
krónur.
Tuttugu ungar
stúlkur létust
MADRID, 22. febr. (NTB —
Reuter) — Að minnsta kosti 23
létu lifið við sprengingu 1 plast
verksmiðju í nágrenni Madrid í
dag. Tuttugu þeirra sem létust
voru stúlkur á aldrinum 15—20
ára er unnu í verksmiðjunni.
— Norðurlandaráð
Framh. af bls. 1
ríki brýnast alþjóða-vandamála
um þessar mundir, svo sem sjá
mætti af atburðunum í Kongó síð
ustu vikur og mánuði.
Sænski ráðherrann Ulla Lind-
ström lagði til, að aðstoðin yrði
veitt fyrir milligöngu Sameinuðu
Þjóðanna eða annarra alþjóða-
samtaka.
Samræmdar reglur
Þá hefur Norðurlandaráð sam-
þykkt með 43 atkvæðum gegn 3
áskorun um að koma hið fyrsta
á samræmdum reglum um heim-
ild ferðafólks til þess að hafa með
ferðis tollfrjáls áfengi og tóbak.
Þrír Norðmenn greiddu atkvæði
gegn áskoruninni en einn Norð-
maður og einn Finni sátu hjá.
Loxveiðió leigð
iyiir 335 þús.
STABARBAKKA, Miðfirði,
20. febrúar. — Gerðir hafa
verið leigusamningar um
Miðfjarðará. — Eru það
Stangveiðifélög Borgarness
og Stykkishólms en þessir
sömu aðilar hafa haft
Miðfjarðará undanfarin ár.
Samkvæmt hinum nýja
leigusamningi verður árs-
leigan kr. 335,000,00 og
miðast við 7 stengur sam-
timis á vatnasvæðinu.
★
1 dag er hér éljaveður.
Annars hefur verið hér
einmuna tíð, oftast snjó-
laust og góðviðri. Á ein-
staka bæ hefur sauðfé
naumast verið sýnt hey,
það sem af er vetri og
hefur því verið gefinn fóð-
urbætir með beitinni.
★
Þorrablót hefur verið
haldið í flestum hreppum
og yfirleitt við góðan fagn
að og hefur fólk skemmt
sér ágætlega, á gamlan og
þjóðlegan hátt.
— Benedikt.
Hver sá, er ekið
var á konuna?
í FYRRAKVÖLD um klukkan 7
varð slys á Lækjartorgi. Rúm-
lega sjötug kona, sem var að íara
yfir Austurstrætið, á hinni af-
mörkuðu gangbraut við Lækjar-
torg, varð fyrir utanbæjarbíl.
Hlaut hún mikið höfuðhögg og
var í gærdag flutt af slysavarð-
stofunni í Landakotsspítala,
þungt haldin.
Bílstjórinn kveðst hafa ekið á
grænu ljósi er slysið varð. Vænt-
anlega hafa einhverjir sjónar-
vottar verið og óskar rannsókn-
arlögreglan eftir að hafa af þeim
tal.
Tvö innbrot
FYRIR nokkrum nóttum var
i brotizt inn í verzlun Fossberg að
j Vesturgötu 2. Vár stolið hagla-
| byssum og einum mjög vel út-
búnum riffli. Önnur byssan var
tvlhleypa en riffillinn var fimm
skota riffill með sjónaukasigti.
í fyrrinótt var brotizt inn í kjör
' búð að Grundarstíg 2. Stolið var
1130 pökkum af sígarettum, 100
kr. í skiptimynt og allverulegu
magni af sælgæti.
Þjófarnir náðust
Lögreglan sá til þjófanna á
Grundarstíg en missti af þeim í
eltingaleik í fyrrinótt. Þeir þekkt
ust af lýsingu og náðust í gær-
kvöldi.
• Moskva, 21. febr. (Reuter).
— Leonid Breznev forseti Sovét-
ríkjanna kom í dag heim til
Moskvu að lokinni heimsókn til
Guineu, Ghana og Marokkó. Á
heimleiðinni kom hann við í
Budapest.
Ekki tekin
ákvörðun
EINKASKEYTI til Mbl. frá
Kaupmannahöfn. — Viggo Kamp
mann, forsætisráðherra Dana
staðfesti í dag, að endanleg á-
kvörðun um útvíkkun dönsku
fiskveiðilandhelginnar yrði ekki
tekin fyrr en árangur væri sýnn
af viðræðum Breta og íslend-
inga. Sagði ráðherrann að æski
legt væri að samkomulag sem
næðist milli Breta og íslendinga
yrði samhljóða samkomulag,
milli Dana og Breta um fisk-
veiðilögsögu við Grænland og
Færeyjar.
• London, 21. febr. (Reuter).
— Strandivarius-fiðla var í dag
seld á uppboði í London. Var
hún slegin á 6.090 pund (kr.
650.000,00). Fiðluna smíðaði Ital-
inn Antonio Stradivari árið 1690.
— Dagsbrún
Frarnb. af bls. 3
hefði sagt í Vestmannaeyjum, að
Dagsbrún sæi ekki ástæðu til að
fara í samúðarverkfall, því að
sjálf ætlaði hún í verkfall i marz.
Eðvarð svaraði ræðu Jóhanns
og fór undan í flæmingi eða át
ofan í sig. Ekkert vildi hann gefa
ákveðið út á ummæli Hannibals,
en sagði þó að vonum, að væru
þau rétt eftir höfð, væru þau
ekki sögð í nafni félagsins.
Einnig töluðu á fundinum Gunn-
ar Erlendsson og Jón Hjálmars-
son, sem gagnrýndi þá skipan,
sem ríkt hefur síðan 1957, að
telja útistandandi árgjöld ekki
til tekna.
Öllum vinum og vandamönnum, sem glöddu mig á 80
ája afmæli mínu, færi ég mínar innilegustu hjartans
þakkir.
Þóranna Þorsteinsdóttir, Laugavegi 70
Lokað
vegna jarðarfarar frá kl. 3—5.
IHagnús Th. Blondahl hf.
Jarðarför bróður míns
ÞORSTEINS ÞORSTEINSSONAR
fyrrv. sýslumanns og alþingismanns Dalamanna
fer fram frá Dómkirkjunni, föstudaginn 24. þ.m. kl. 2
e.h. — Athöfninni verður útvarpað.
Davíð Þorsteinsson, Arnbjargarlæk
Við þökkum auðsýnda samúð við andlát og jarðarför,
KRISTÓFERS JÓNSSONAR
frá Galtarholti
Guðbjörg Jónsdóttir, börn og tengdasynir
Igite