Morgunblaðið - 26.02.1961, Page 2
2
MORCUNBLAÐ1Ð
Sunnudagur 26. febr. 1961
Upplýst að
E llisifjar-myndin
var óþekkt í Noregi
ÞAÐ er nú komið í Ijós við
eftirgrennslan í Noregi, að
myndin af Ellisif, drottningu
Haralds harðráða, sem fannst
i Sofíukirkju í Kænugarði
fyrir meir en 20 árum, hefur
ekki verið þekkt meðal
norskra fræðimanna fyrr en
nú nýlega.
Þó eru nærri 10 ár síðan
myndin birtist í Heims-
kringluútgáfu Bjarna Aðal-
bjarnarsonar og yfir 20 ár
síðan Halldór Kiljan Lax-
ness skrifaði um það í
Gerzka ævintýrinu, að verið
væri að hreinsa íkónaklíning
ofan af myndinni af Ellisif.
I>egar fregnirnar af hinni
norsku „uppgötvun" birtust fyr
ir nokkru hér í Mbl. töldu menn
Blökkumaður *
sendiherra
WASHINGTON. — Hinn 20.
þessa mánaðar skipaði Kennedy
Bandaríkjaforseti blökkumann
inn Clifton R. Wharton sendi-
herra landsins í Noregi. Er
Whaæton eini blökkumaðurinn,
sem hefir unnið sig upp í svo
háa stöðu í utanríkisþjónustu
Bandaríkjanna, en þeir aðrir af
kynflokki hans, sem gegnt hafa
sendiherrastöðum, hafa verið
stjórnmálamenn.
Wharton hafði starfað 34 ár í
utanríkisþjónustunni, þegar
hann var skipaður sendifulltrúi
Bandaríkjanna í Rúmeníu fyrir
þrem árum. Áður hafði hann
gegnt ýmsum störfum á vegum
utanríkisráðuneytisins víðs veg-
ar um heim. Og nú, 61 árs að
aldri, hefir þessi duglegi blökku
maður verið skipaður sendi-
herra, sem fyrr segir.
að norskir fræðimenn .hlytu aS
hafa vitað lengj um þessa mynd
og var talið að hér væri um að
ræða misskilning einhvers blaða
manns hjá Aftenposten.
En í grein sem birtist fyrir
nokkrum dögum í Aftenposten
eftir Henrik Haugstol kemur
það í Ijós svo ekki verður um
villzt, að norskir sagnfræðíngar
og listfræðingar hafa ekki vitað
um þessa mynd fyrr en nú að
Knut Berg skýrði frá „uppgötv
un“ sinni. Að vísu er þess getið,
að Norðmaður einn Ivar DigT-
ens hafi fyrir þremur árum
skýrt Oslóar-blaðinu Dagbladet
frá myndum 1 Sofíakirkju, en
þar hafði hann verið á ferða-
lagi. Frásögn hans í blaðinu hef
ur þó farið fyrir ofan garð og
neðan hjá norskum fræðimönn-
um.
Fundur myndarinnar hefur
vakið verðskuldaða athygli í
Noregi og rifjast það nú upp
fyrir mönnum, að Haraldur harð
ráði lagði grundvöllinn að borg
ini Osló, sem nú er höfuðborg
Noregs. Er mynd hans á hlið
ráðhússins í Osló. Nú tala menn
um það, að rétt væri að setja
eftirlíkingu af mynd Ellisifjar á
aðra hlið ráðhússins.
Forðast þarf
verðbólguna
BLAÐINU barst í gær eftirfar-
andi bréf frá Alþýðusambandinu,
sem Bandalag starfsmanna ríkis
og bæja hafði sent því.
Stjórn bandalagsins hefur mót
tekið bréf yðar, dags. 7. þ.m., og
í tilefni af því gert svofellda á-
lyktun á fundi sínum 24. þ.m.:
Þing B.S.R.B. hafa markað þá
meginstefnu í launa- og kjara-
málum:
Kanadiskur píanóleikari
leikur í Austurbœjarbíói
HINGAÐ er kominn á vegumf*
Tónlistarfélagsins kanadiski pí.
anóleikarinn Ross Fratt og ætl-
ar að halda tónleika í Austur-
bæjarbíói, n.k. mánudags- og
þriðjudagskvöld kl. 7 fyrir
styíktarfélaga TónlistarfélagB-
ins.
Á efnisskránni sem er mjög
fjölbreytt eru þessi verk: són-
ata í F-dúr eftir Haydn, Syn-
fóniskar etýður eftir Schumann
Barkarollo, Noktúrna í cis-moll
og Seherzo í E-dúr eftir Chopin,
Bruyéres og General Lavine-
eccentric eftir Debussy og loks
Menuet og Toccata (úr „Le Tom
beau de Coupcrin") eftir Ravel.
Frú Inger Larsen safn-
ar sjónvarpsefni hér
Kaupmannahöfn, 24. febr.
Einkaskeyti til Mbl. —
FRÚ Inger Larsen (kona Martins
Larsens, fyrrum sendikennara
við Háskóla íslands) fer flugleið
is til íslands nk. sunnudag til þess
að viða þar að sér sjónvarpsefni,
en 14. marz n.k. halda þeir Poul
Hansen, sjónvarps-ljósmyndari,
og Peetz-Chou, hljóðupptökumað
ur til Reykjavíkur til þess að
taka upp efnið.
Um næstu helgí verður þorri
Reykjuvíkurbútu byrjuður
AFLI Reykjavíkurbáta, sem
byrjaðir eru á línu, hefur yfir-
leitt verið tregur, enda virðist
fiskgengdin hér við suðvestan-
vert landið enn sem komið er
lítil. Ýsan er horfin af grunn-
slóðinni Bátar, sem verið hafa
á ýsuveiðum með nót og gengið
ágætlega, komu í fyrrakvöld
fisklausir og höfðu hvergi orðið
varir við ýsu á mælitæki.
Línubátamir hafa sótt alla
leið vestur í Jökuldjúp. Bjöm
Jónsson var að landa í gær. Það
var fyrsti róðurinn og var afl-
inn um 15 lestir af slægðum
fiski úr þrem lögnum.
Auður og Hafþór eru fyrstu
Reykjavíkurbátarnir, sem byrj-
aðir eru á netum Þeir sækja
vestur undir Jökul. Byrjuðu
þessir bátar hinn 18. þ. m. Er
Hafþór búinn að vitja um fjór-
um sinnum á þessu tímabili og
er með um 30 lestir af óslægð-
um fiski. Auður er á sama tíma
með um 12 lestir af slægðum
fiski. Heldur hefur aflinn farið
vaxandL
Þegar útilegúbáturinn Helga,
landaði síðast, í byrjun vikunn-
ar er leið, var aflinn um 15
lestir af slægðum fiski. Síðan
Helga hóf róðra undir lok janú-
ar, hefur hún alls landað um
126 lestum og er um helmingur
aflans þorskur.
Pétur Sigurðsson, sem er á
útilegu, hefur í þrem sjóferð-
um, landað um 82 lestum.
Búizt er við að allur þorri
'SmiShnihr S V 50 hnúhr H Snjifomo • oamet ú, Shirír K Þrumur WZS, KuUaokH Hihski! HiHali LWLaiai
Reykjavíkurbáta, sem þátt taka
í vetrarvertíðinni, verði komnir
á sjó um næstu helgi.
Fyrsta verk frúarinnar verður
í sambandi við sjónvarpssending-
ar í tilefni hins svonefnda ,nor-
ræna dags“, hinn 12. apríl n.k.,
þar sem hinir norrænu þjóðhöfð
ingjeu munu flytja ávörp. Auk
þess mun hún safna efni til eins
eða tveggja langra sjónvarps-
þátta og nokkurra styttrL
★ "**
Frúin mun leggja áherzlu S að
lýsa aðstæðum á íslandi hins
nýja tíma. Ef veðurskilyrði leyfa,
mun hún og lýsa náttúru öræf-
anna, hinum heitu lindum, fisk-
veiðum landsmanna o.s.frv. —
Fyrirhuguð er heimsókn til Nó-
belsverðlaunaskáldsins, Laxness.
— Frú Inger Larsen er vel kunn
ug á íslandi, því að hún var bú-
sett þar um sex ára skeið, er mað-
ur hennar stundaði kennslu við
Háskóla íslands.
DJUP lægð er á kortinu um Veðurspáin í gærdag:
1000 km. SV af íslandi. Hún SV-mið: Austan gola og síð-
veldur þar hvassviðri og ar stinningskaldi, skúrir SV-
stormi á stóru svæði. land til Vestfjarða, Faxaflóa-
Klukkan 8 var togarinn Maí mið og Breiðafj.mið: Austan
um 450 km. SA af Hvarfi i 50 gola og síðar kaldi, skýjað en
hnúta vindi af norðvestri, en
það eru 10 vindstig eða rok.
Og á kortinu sem er frá kl.
5 er fárviðri í Kristjánssundi
við Hvarf, þ.e. 12 vindstig, 65
hnútar.
Lægðin þokast hægt NA,
svo að útlit er fyrir SA- eða
A- átt og frostlausu veðri í
dag.
úrkomulítið.
Vestfjarðamið: NA stinn-
ingskaldi, dálítil rigning eða
slydda.
Norðurland, NA-land og
miðin: SA gola eða kaldi, bjart
veður.
Austfirðir, SA-land og mið-
in: SA kaldi, skúrir.
Myndabrengl
MINNINGARGREIN um Sigur-
veigu Runólfsdóttur sem birtist í
blaðinu í gær, fylgdi skökk mynd.
Var myndin af Signýju Böðvars
dóttur, en minningarorð um
hana birtast í blaðinu í dag. —
Myndin af Sigurveigu sem fylgja
átti minningargreininni í gær,
birtist nú hér.
Allir hlutaðelgandi eru beðnir
velvirðingar á þessum leiðu mis-
tökum.
að forðast beri hvers konar að-
gerðir, sem óhjákvæmilega
leiða til verðbólgu; þannig að
launabætur tapist jafnharðan
aftur,
að engin laun mega vera svo lág
að ekki verði af þeim lifað,
að launþegum ber jafnan hlut-
deild í auknum þjóðartekjum.
Bandalagsstjórn skorar því ein
dregið á stjórnarvöld landsins að
leita nú þegar samráðs við laun-
þegasamtökin um raunhæfar
ráðstafanir til kjarabóta, er
verða mættu til þess að leysa
vinnudeilur þær, sem nú standa
yfir, og koma í veg fyrir nýjar.
Hins vegar er ástandið nú þann-
ig, að í Vestmannaeyjum er hóð
langvinn kaupdeila og lítur
bandalagsstjórn svo á, — enda
í samræmi við fyrri stefnu B.S.
R.B., — að skylt sé að bægja
neyð frá dyrum þess fólks, er
stendur 1 slíkum deilum. /
Fyrir því skorar bandalags-
stjóm á stjórnir félaganna a9
hefjast þegar handa um fjársÖfn
un til styrktar því fólki í Vest-
mannaeyjum, sem býr við fjár-
hagsörðugleika vegna verkfalls-
ins þar.
Jafnframt ákveður stjórnin að
lcgfija fram úr sjóði bandalags-
ins kr. 7.000.—. /
Hefur stjórnum bandalagsfé-
laganna verið tilkynnt um álykt
un þessa og þær hvattar til a3
bregðast skjótt við um fjársöfn-
unina.
Teitur Þorleifsson, kennari,
var kjörinn til þess að hafa yfir
umsjón með fjársöfnuninni, á-
samt þeim Einari Ólafssyni, út-
sölustjóra, og Haraldi Steihþórs-
syni, kennara.
Með stéttarkveðju
F.h. B.S.R.B.
Kristján Thorlacius (sign)
RÓMABORG, 24. febr. — Hinn
28. maí nk. verður opnuð með
mikilli viðhöfn járnbrautarleið
milli Rómar og Moskvu, að þvl
er ítalska samgöngumálaráðu-
neytið upplýsti í dag. — Ferðin
milli hinna tveggja höfuðborga
mun taka 62 klukkustundir.
Yfir 20 milljónir komn
í Búnaðarbyggínguna
Skýrsla búnaðarmálastjóra á búnaðaþingi
1 GÆR var haldinn annar fund-
ur Búnaðarþings og voru þá
kjömir varaforsetar. Hlutu kosn-
ingu þeir Pétur Ottesen og Gunn
ar Þórðarson. Ritarar voru kosn
ir Jóhannes Davíðsson og
Sveinn Jónsson. Skrifstofustjóri
þingsins er Ásgeir L. Jónsson.
Þá var kosið í nefndir og síðan
vísað til þeirra 28 málum, sem
þegar hafa verið lögð fyrir þing
ið. Þeirra á meðal eru reikning-
ar B. í., en niðurstöðutölur
þeirra eru 4,85 milljónir.
Handknaftleikur
íslandsmótið £ handknattleik
heldur áfram í dag. Leikimir kl.
2 e.h. fara fram í KR húsinu en
kvöldleikirnir verða að Háloga-
landL
Þá flutti Steingrímur Stein-
þórsson búnaðarmálastj. skýrslu
um gang mála er siðasta Búnað-
arþing afgreiddi. Þá ræddi hann
og mannaskipti hjá B. í. og út-
gáfustarfsemi þess. Einnig sagði
hann nokkuð frá því hvernig
liði framkvæmdum við búnaðar-
bygginguna, en í hana hefir nú
þegar verið varið yfir 20 milljón
um króna. Loks lét búnaðar-
málastjóri þess getið að allmörg
erindi myndu verða flutt á
fundum þingsins að þessu sinnL
Nokkrar umræður urðu um
skýrslu búnaðarmálastjóra. —
Gerði Sveinn Jónsson fyrirspum
um afdrif tryggingarmála, er af-
greidd voru á síðasta þingL
Urðu búnaðarmálastjóíTÍ og
Gunnax Þórðarson fyrir svörum.
Næsti fundur búnaðarþings er
boðaður á mánudag og hefst kL
9.30 Lh. Verða þá flutt erindL
Kosnúigoskrifstofo B-Iistnns
KOSNINGASKRIFSTOFA lýðræðissinna í Trésmiðafélagi
Reykjavíkur er að Bergstaðastræti 61. — Simar 10650 ©g
18566. —
Trésmiðir! Hafið samband við kosningaskrifstofuna og
veitið aðstoð í kosningunum.