Morgunblaðið - 26.02.1961, Qupperneq 15
Sunnudagur 26. feb'r. 1961 ^
MORGUNBLAÐIÐ
15
___________—-----X----------
Signý Böðvarsdóttir frá
Helgavatni — Minningarorð
ÞETTA á ekki að verða nein
æviminning Signýjar á Helga-
vatni, til þess brestur mig kunn-
ugleik. En þegar ég frétti lát
hennar á dögunum langaði mig til
að minnast góðrar konu og þakka
henni gamla vináttu og tryggð.
Fyrir mörgum árum gerðist
J>að æfintýri að ég fékk að fara
með föður mínum og glöðum vina
hóp landveg frá Reykjavík til
Akureyrar.. Ferðin gekk greitt
norður yfir fjöllin, því margir
góðhestar voru með í förinni. Var
riðið í einum áfanga frá Forna-
hvammi og norður að Þingeyr-
um, því 'þar var ákveðið að gista.
Ég hafði aldrei fyrr komið í
Húnavatnssýslu, svo ég gerði mig
ekki ánægðan með að fara svo
um héraðið að koma ekki við á
Helgavatni í Vatnsdal, þar sem
móðir mín var fædd og uppalin.
— Það var því lögð lykkja á leið-
ina og skroppið fram að Helga-
vatni. ’ Þegar þangað kom var
íólk á engjum. Gömul kona sat
á varpanum og börn léku sér þar
hjá henni. Hún tók okkur hlý-
lega, sagði að húsfreyja væri á
engjum, en ekki væri annar
vandi en breiða á, þá mundi hún
(koma heim. Svo var breitt á hól-
inn, og að vörmu spori sást til
ferða konunnar. En á meðan lit-
aðist ég um á hlaðinu og virti fyr-
ir mér fallegu tjörnina suður
við bæinn, þar sem svanirnir
hennar mömmu sálugu sugu svo
unaðslega. Sá lindina, sem aldrei
fraus, úr henni spratt bezta og
tærasta vatnið, sem mammá
hafði bragðað, en „Ponta“ var
horfin lautin þar sem systurnar
léku sér og áttu búið sitt. — En
nú var Signý að koma upp hól-
inn, mér varð strax starsýnt á
hana, hún var svo væn yfirlit-
um. Signý tók okkur hlýlega,
bauð okkur inn, þó hún hefði
adrei séð okkur áður, og erindið
væri ekki annað en að fá að sjá
gamlan torfbæ, æskuheimili móð
ur minnar. Mörgum hefði vafa-
laust þótt slíkt óþarfi að kalla
húsfreyju frá vinnu um hábjarg-
ræðistímann til þess að sýna ung-
lingsstúlku úr öðru byggðarlagi
gamlan torfbæ.
En Signý tók erindi minu vel.
Hún leiddi mig inn göngin til
baðstofu og svo fórum við í hvern
’krók og kima, ég vildi geta sagt
mömmu, þegar heim kom, hvern-
ig allt var umhorfs í gamla bæn-
um hennar. Og þarna var þá
igamla stofan, sem amma lét
byggja, svo að pabbi gæti lesið
utanskóla undir stúdentspróf (á
Helgavatni), þegar mikið lá við.
*— Bærinn hennar Signýjar var
ekki háreistur, en ég varð hrifin
af honum. Hvar sem komið var,
þá var mjög þrifalegt um að lit-
ast, og hver hlutur var á sínum
stað. Þessi fyrsta heimsókn mín
að Helgavatni er mér mjög minn-
isstæð, og mér varð strax hlýtt til
•konunnar, sem tók mér unglingn
um, eins og hún hefði þekkt mig
lengi. Líklega hefur það tengt
okkur saman, að okkur þótti
báðum vænt um bæinn og jörð-
ina, þar sem við stóðum.
Nokkrum árum síðar, er ég
futtist vestur í Húnavatnssýslu,
urðum við Signý sveitungar. Tók
hún mér þá eins og gömlum
kunningja og reyndist mér holl-
vinur.
Mér er ekki nægilega kunnug
saga Signýjar frá fyrstu bernsku,
en fædd var hún að Geithóli í
Hrútafirði 27. maí 1879. Voru for
eldrar hennar Elinborg Tómas-
dóttir og Böðvar Guðmundsson,
atorkusamt dugnaðarfólk. En
Signý missti föður smn snemma,
dó hann frá stórum barnahóp,
þegar elzta barnið var á 14. ári
og það yngsta kornbarn. Heim-
ilið tvístraðist og ólst Signý upp
hjá vandalausu fó'lki að Fjarð-
arhorni í Hrútafirði. Batt hún
tryggð við það heimili alla tíð. —
Þegar Signý var að alast upp, var
ekki mulið undir unglingana. Það
varð að duga eða drepast, því
engin miskunn var hjá Magnúsi.
Bændur höfðu þá ekki úr miklu
að moða, al'lir urðu að spara mat
og klæði, hvað þá annað. Það
var talið ómennska að sýna sér-
hlífni. Strax og börnin komust á
legg urðu þau að vinna hörðum
höndum, eins og þeir fullorðnu.
Ung brauzt Signý að heiman í
leit að menntun og frama. Geta
má nærri að malur hennar hefur
verið léttur, er hún lagði af stað
úr heimahúsum, en hún átti þann
heimanmund, er reyndist henni
drjúgur, heilsteypta skapgerð og
sterkan vilja til að verða að
manni.
Hún lagði leið sína austur í
sýslu og settist 1 kvennaskólann
á Blönduósi rúmlega tvítug.
Festi hún dvöl sína 1 austursýsl-
unni eftir það.
Árið 1908 giftist hún eftirlif-
andi manni sínum Eðvarði Hall-
grímssyni frá Hvammi í Vatns-
dal, mesta myndar- og merkis-
manni er reyndist henni traust-
ur förunautur. — Að Helgavatni
fluttust þau hjónin 1910 og
bjuggu þar sæmdarbúi í 37 ár,
en þá fluttu þau til Reykjavíkur,
því sonur þeirra Hallgrímur var
tekinn þar við búi.
Þegar ég kom að Blönduósskóla
haustið 1953 fannst mér ég sakna
svo margs úr sveitinni, og í skól-
anum var öllu snúið við, því þar
fór fram mikil viðgerð.
Gömlu bæirnir voru að hverfa,
eða voru horfnir og með þeim
aldagömul menning. Nýr svipur
var kominn á sveitina, sem ég
kannaðist ekki við. Til þess að
bæta mér þetta ögn upp og slitna
ekki alveg úr tengslum við gamla
tímann — fortíðina, langaði mig
ti að koma upp stofu í skólan-
um, sem minnti á forna tíð. Ég
kallaði hana baðstofu, þar ætlaði
ég að safna saman gömlum mun
um og halda til haga. Þóttist ég
fullviss, að slíkt gæti orðið ungu
námsmeyjunum ti þroskaauka.
Mér varð lítið ágengt, enda þótt
ég gerði ítrekaðar tilraunir ti'l að
fá gamla hluti í baðstofuna mína.
En þá kom einn góðan veður-
dag böggull til mín frá Signýju
á Helgavatni. Þetta var henni
líkt að kasta ekki á glæ gömlu
mununum sínum þótt flutt væri
í höfuðstaðinn. Hún skrifaði mér
hlýlegt bréf og sagðist hafa frétt
að ég væri að safna gömlum
gripum í ,,baðstofuna“ í skólan-
um. Vildi hún lofa mér að njóta
þessara gömlu muna sinna, taldi
að þeir væru bezt komnir í gömlu
átthögunum fyrir norðan. Ég
varð ósegjanlega glöð, þegar ég
tók gamla tínu, engjafötu og
margt fleira upp úr bögglinum,
en mest gladdist ég þó yfir þeim
skilningi og vináttu er Signý
blessuð sýndi mér, og að baki
stóð gjöf þessari.
Signý á Helgavatni var um
margt hamingjusöm kona. Hún
átti góðan mann, sá bú sitt bless-
ast og vann þann sigur að hopa
aldrei af hólmi.
Til hennar leituðu margir, er
þurftu hjálpar við og hygg ég,
að enginn hafi farið bónleiður
frá hennar búð. Störf hennar
fóru fram í kyrrþey eins og störf
húsmæðra yfirleitt. En hjá
henni var vakandi hugur yfir
velferð heimilisins. Þar voru
verkin unnin á réttri stundu og
ekki dregið til morguns það sem
gera átt í dag.
Þau hjón eignuðust 5 börn.
Fjögur eru á lífi, vel gift og
mesta myndarfólk, sonurinn
Albert dó á bezta skeiði, nýlega
kvæntur, vair það þung raun
að sjá honum á bak. En Signý
sýndi þá eins og áður hetjulund.
Hún lét sér mjög annt um upp-
eldi barna sinna, enda átti hún
barnaláni að fagna. Göggt vitni
þess er það, hvernig elzta dótt-
irin Stefanía hefur annazt móð-
ur sína í löngum og erfiðum veik-
indum. Slík umhyggja hefur
verið til fyrirmyndar. í félags-
málum okkar sveitakvenna var
Signý góður liðsmaður, vildi
rétta hjálparhönd, hvenær sem
færi gafst, og hún sá að þörf var
á liðveizlu.
Ég saknaði hjónanna frá Helga
vatni, þegar þau fluttu burtu úr
sveitinni okkar. Og þó að fund-
um okkar hafi ekki oft borið
saman í seinni tíð, þá hef ég
margoft hugsað hlýtt til þeirra
og fundið til með Signýju eftir
að heilsan þraut. Nú er þjáning-
unum lokið. Æðri heimur stend-
ur þér nú opinn Signý mín, er ég
þess fu'llviss, að þar munir þú
öðlast nýja lífssýn, nýja ham-
ingju.
H. Á. S.
LONDON, 24. febr. — Þjón-
usta Pan American-flugfélagsins
bandaríska á Lundúnaflugvelli
tók að færast í eðlilegt horf í
dag, en flugsamgöngur félagsins
höfðu legið niðri að mestu
nokkra daga, vegna verkfalls um
3000 bandarískra vélamanna.
Það Ieystist Ioks í gærkvöldi, eft-
ir að Kennedy forseti hafði lát-
ið málið til sín taka. — Er þetta
mesta verkfall flugliða, sem orð-
ið hefir í Bandaríkjunum.
Ath. Húsráðendur
Önnumst hreingerningar á íbúðum, skrifstofum og
verzlunum með hinni þægilegu og fljótvirku kem-
isku vélhreingerningu, sem er í alla staði til hag-
ræðis fyrir yður.
Þér þurfið ekki að óttast skemmdir á húsmunum
yðar.
Skapar yður á engan hátt erfiði. — Sérstakar
blöndur á allar tegundir málningar. — Kappkostum
að veita yður sem bezta þjónustu.
'EGGJAHREINSUNIN
\/
Sími 19715.
UTSflLA
á alls konar fatnaði fyrir börn og fullorðna
Manch. skyrtur frá kr. 60,—
Vinnubuxur khaki frk. 65,—
Vinnubuxur khaki kr. 65,—
Samfestingar khaki kr. 150,—
Vinnusloppar kr. 130,—
Ytrabyrði á kuldaúlpur kr. 395,—
Orlon peysur með V hálsmáli kr. 150,—
T-boIir kr. 17,—
og margt fleira á
%
'ótrúlega lágu verði
Barnasamfestingar kr. 120,—
Barnaúlpur frá kr. 210,—
Telpuúlpur frá kr. 180,—
Drengjabuxur frá kr. 110,—
Gallabuxur nr. 12 kr. 35,—
Drengjabuxur frá kr. 110,—
Kven-léreftssloppar hvítir kr. 90,-
Kven-kuldaúlpur kr. 750,—
Wl