Morgunblaðið - 26.02.1961, Síða 22
22
MORGVNBLAÐIÐ
Sunnudagur 26. febr. 1961
!
AÐALORUSTAN
ER GEGN SVISS
'
Á MIÐVIKUDAGINN hegst
úrslitakeppni um heimsmeist-
aratitilinn í bandknattleik.
Undanfarna mánuði hefur
staðið yfir undankeppni og
hafa nú tólf lönd ýmist tryggt
sér rétt til úrslitakeppninnar
með sigrum, eða þau hafa
vegna sérstakrar aðstöðu kom
izt í úrslitin.
fsland fær að taka þátt í úr-
slitakeppninni og er í fyrsta
riðli ásamt Danmörku og
Sviss. Sigur Dana í þessum
riðli má tela öruggan. íslend-
ingar keppá því fyrst og
fremst við Svisslendinga um
annað sætið og er þeirrar
keppni beðið með talsverðri
eftirvæntingu meðal hand-
knattleiksmanna bæði á ís-
landi og í Sviss, vegna þess
líka, að tvö lið úr hverjum
riðli halda áfram til loka-
keppninnar.
Mbl. hefur borizt samtal við
þjálfara svissneska liðsins um
útlit og horfur í keppninni, og
fer það hér á eftir:
— Þjálfari svissneska hand-
knattleiksliðsins heitir Karl
Schmid. Hann var áður
Evrópumeistari í róðri og er
kunnur íþróttamaður, nú kom
inn á miðjan aldur.
Hann er ekki bjartsýnn á
að Sviss komist í gegnum und
ankeppnina.
Allt er undir því komið,
segir hann, hvort okkur tekst
að sigra íslendinga í undan-
keppninni. Ef við sigrum, þá
komumst við í lokakeppnina,
ef við töpum, þá getum við
strax stigið upp í járnbrautar
lestina heim. Þetti vita íslend-
ingar líka. Við gerum okkur
engar vonir um að geta unnið
Dani, sem eru meðal hinna
fjögurra stóru í keppninni. Við
ætlum þó ekki að leggja upp
laupana í keppninni við Dani.
Nei, við munum berjast unz
yfir lýkur.
Hvernig gekk ykkur að kom
ast upp i úrslitakeppnina?
— Okkur tókst að vinna
Austurríki en það þurfti lán
og lagni til þess. Við uniium
annan leikinn, sem haldinn
var í Vínarborg, en töpuðum
hinum leiknum gegn þeim, er
hann var haldinn í Basel.
Þannig stóð sigur gegn sigri,
en við höfðum tvö mörk yfir í
samanlagðri markatölu, og það
fieytti okkur upp í úrslita-
keppnina.
— Það ætlaði annars að
ganga illa í Vínarborg. Við
komust að því á síðustu
stundu, að gólfið í salnum var
hált eins og ís. Leikmennirn-
ir féllu unnvörpum um koll.
Brugðum við'nú skjótt við og
spöruðum ekkert til að fá nýja
skó handa liðinu, sem verkuðu
eins og snjódekk, svo að okkar
menn stóðu líkt og þeir væru
jarðfastir klettar út allan leik
inn, og duttu ekki hvað sem
á bjátaði.
' -K
Næst sigruðum við lið Saar-
búa og loks unnum við
franska liðið með 13 mörkum
gegn 11. Teljum við að þessir
leikir hafi orðið okkur mjög
góð æfing. Við leggjum ríka
áherzlu á það að fá tækifæri
til að keppa við sterk lið,
öðru vísi teljum við litla von
Yngsti leikmaður Svisslendinga, Hansrudei Diirrenberger sýnir
kast í falli.
að geta haldið leikhæfninni
við.
og Ungverjalandi. Við vitum
það einnig, að íslendingarnir
unnu Rúmena örugglega og
hinir áttu fullt í fangi með að
vinna þá. í Wiesbaden er ekki
um neina miskunn að ræða
hjá Magnúsi. Þar leggja bæði
liðin allt í veð. Nú er aðeins
að sjá, hver úrslitin verða. Við
erum ekki bjartsýnir, — en
heldur ekki vonlausir.
Hér sjást nokkrir svissnesku leikmannanna í féiagakeppni: Vinstramegin er Christian Kiihn-
er og hægra megin við þann sem heldytf á boltanum Niggi Fricker.
— Já, það er mikil örlaga-
stund fyrir hanknattleiks-
íþróttina í Svisslandi, þegar
við mætum íslenzka liðinu í
Rínar-Main höllinni í Wies-
baden 2. marz n.k. Við söfn-
um öllum okkar krafti og vilja
þreki saman á þeirri stundu.
Við vitum að vísu ekki mikið
um ísland. Þó vitum við það,
að þetta litla fsland barðist í
síðustu heimsmeistarakeppni
gegn svo sterkum löndum
sem Tékkóslóvakíu, Rúmeníu
Tveir svissnesku markmenn
irnir: Kurt Wettstein og
Fritz Karli fyrir aftan hann.