Morgunblaðið - 12.03.1961, Qupperneq 1
24 síður og LesboK
18. árgangur
59. tbl. — Sunnudagur 12. marz 1961
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Formleg staðfesling samkomulagsins við Breta í gærr
Deilumálunum lokið
Sakaruppgjöf vegaia
lausnar deilunnar í sam-
ræmi við fyrri upp>-
gjöf saka
UM kl. 11 í gærmorgun af-
henti Guðmundur í. Guð-
mundsson, utanríkisráðherra,
Mr. Andrew C. Stewart,
sendiherra Breta, orðsending
una um lausn fiskveiðideil-
unnar. Sendiherrann afhenti
utanríkisráðherra um leið
orðsendingu Bretastjórnar,
J>ar sem fallizt er á lausn
deilunnar á grundvelli álykt
unar Alþingis. Hefur sam-
komulagið því öðlazt form-
legt gildi.
í gær gaf sjávarútvegs-
málaráðuneytið síðan út
nýja reglugerð á grundvelli
laganna um vísindalega
verndun fiskimiða land-
grunnsins frá 1948, þar sem
grunnlínur eru færðar út í
samræmi við samkomulag-
ið og eldri reglugerð frá
1958 er felld úr gildi. — í
hinni nýju reglugerð er tek-
ið fram, að framkvæmd
hennar skuli vera í samræmi
við milliríkjasamninga eins
©g þeir eru á hverjum tíma.
I í gær ákvað dómsmála-
ráðuneytið einnig að veita
sakaruppgjöf þcim brezkum
togaraskipstjórum, sem brot-
legir hafa gerzt síðan upp-
gjöf saka var veitt í fyrra.
Er þetta gert í framhaldi af
og í samræmi við fyrri sak-
aruppgjöf vegna hinnar hag-
kvæmu lausnar, sem náðst
hefur.
Með þessum aðgerðum á
deilumálum Breta og íslend-
inga, sem staðið hafa í hálft
þriðja ár, að vera endan-
lega lokið. Fréttatilkynning
utanríkisráðuneytisins fer
hér á eftir:
Utanríkisráðherra hefur í dag
afhent sendiherra Breta í Reykja-
vík, Mr. Andrew C. Stewart,
orðsendingu samkvæmt ályktun
Alþingis frá 9. þ. m. um lausn
fiskveiðideilunnar við Breta.
Sendiherra Breta afhenti um
leið utanríkisráðherra íslands
orðsendingu ríkisstjórnar sinnar,
þar sem fallizt er á þá lausn
fiskveiðideilunnar sem í ályktun
Alþingis greinir.
Lítill snjór
við Djúp
ÞÚFUM, 11. marz 19<51. — Þrátt
fyrir snjókomu víða á landinu hef
ir lítið fennt við Djúp. Fagranesið
heldur uppi ferðum truflunar-
laust og vegir allir á landi góðir
og greiðfærir.
Islendingar sigruðu mesta
fiotaveldi heims
segir bandaríska vikublaðið Time
BANDARÍSKA vikuritið
Time minnist í síðasta tölu-
blaði á lausn fiskveiðideilu
Breta og íslendinga. Blaðið
segir skýrum stöfum, að ís-
lendingar hafi sigrað' mesta
flotaveldi heims, Stóra-
Bretland.
Time kemst m. a. svo að orði:
Islendingar nútímans eru komn-
ir af hinum gömlu norrænu
víkingum. Þeir trúa því að sma-
þjóð þeirra geti staðið jafnfætis
stórveldunum og það þó hún lifi
nær eingöngu á fiski. í síðustu
viku sönnuðu íslendingar þetta
með því að vinna sigur í ein-
kennilegu sjóstríði við hreykn-
asta og mesta flotaveldi heims:
Stóra Bretland.
Blaðið rekur síðan deiluna í
mjög stuttu máli og segir frá
árekstrum íslenzkra varðskipa
og brezkra verndarskipa. Skoturn
var hleypt af en flest skotin voru
aðeins púðurskot.
f síðustu viku birtust tilkynn-
ingar bæði frá London og Reykja
vík, heldur Time áfram, um að
þessari 2 ¥2 árs deilu væri lokið.
Niðurstaðan er að íslendingar
halda sínum tólf mílna fiskveiði-
svæði, en Bretar fá þriggja ára
umbóttunartíma, þegar þeir mega
veiða fisk á takmörkuðum svæð-
um og takmörkuðum tíma upp að
sex mílna mörkum. Ef íslending-
ar veiða fiskinn sem Bretar hafa
veitt á undanförnum árum þýð-
ir það tekjuaukningu fyrir þá
sem nemur 28 milljónum dollur-
um á ári, segir Time að lokum.
Utanríkisráðherra, Guðm. I. \
Guðmundsson, og sendiherra |
Breta í Reykjavík, Mr. And-1
rew C. Stewart, skiptast á
orðsendingum um lausn fisk-
veiðideilunnar.
Beiðni Helanders
Stokkhólm.ur, 11. marz.
SÆNSKI saksóknarinn E. Wal
berg synjaði í dag málaleitun
Dick Helanders fyrrverandi
bisktups um að mál hans yrði
að nýju tekið upp fyrir sænsk
um dómstóli.
Mál Helanders biskups vakti
mikla athygli fyrir nokkrum
álrum. Hann var sakaður um
að hafa dreift ærumeiðandi
bréfi um keppinaut sinn í bisk
upskosningum.
Saksóknarinn byggir synjun
sína á því, að Helander biskup
hafi ekki komið með nein ný
gögn í málinu sem máli skipti.
Sæsíminn lagð-
ur í október
N ÝI sæsímastrengurinn milli
Skotlands og íslands verður að
öllum líkindum lagður í októ-
ber í haust. — Framleiðslu
strengsins er nú komin vel á
veg og ekki mun sú hlið máls-
ins verða því til fyrirstöðu að
verkið gangi samkvæmt áætl-
un. — Póst- og símamálastjóri
tjáði Mbl. í gær, að í sumar
yrði lagður jarðstrengur frá
símstöðinni í Eyjum að fjör-
unni þar sem sæsímastrengur-
inn verður tekinn í land. Þetta
er um 5 km vegalengd.
Brezka símaskipið Ariel byrj-
aði um helgina að leggja bein-
an streng milli Skotlands og
Kanada. Næsta verkefni skips-
ins verður að leggja strenginn
til íslands.
Kúbanska byltingin étur
bðrnin sín
Bandarískur vopnabróðir Castros
dæmdur til dauda
Havana, 11. mars. (Reuter)
BANDARÍSKUR hermaður,
sem var einn helzti ráðgjafi
og vinur Fidel Castros í
kúbönsku byltingunni, var í
nótt dæmdur til dauða af
kúbönskum herrétti.
Hann heitir William Morg-
an og er 33 ára. Hann barð-
ist með Castro í frumskóga-
fjallendi Kúbua-eyjar. Eftir
sigur byltingarinnar verð-
launaði Castro hann á ýms-
an hátt, sæmdi hann heið-
ursheitinu frelsishetja, gerði
hann að setuliðsstjóra á
suðurströnd eyjarinnar, og
gaf honum til eignar stóran
búgarð í Las Villas-fylki. —
Morgan gerðist kúbanskur
ríkisborgari. Hann var mjög
áberandi persóna á Kúbu
fyrst eftir valdatöku Castros,
stór og glæsilegur maður að
vallarsýn, enda gamall glímu
kappi og vanur allskyns þrek
raunum.
• Reiðubúinn að mæta
aftökusveitum
Á sínum tíma skýrði hann
frá því að • hann hefði
ákveðið að gerast liðsmað-
ur Castros ,er hann varð áhorf-
andi að því, að Batista lögregl-
an skaut bezta vin hans til
bana.
Morgan var fyrir nokkru dreg-
inn fyrir herrétt ásmt níu kúfo-
önskum félögum sínum. Þeir voru
sakaðir um gagnbyltingarstarf-
semi. Réttarhöldin hafa vakið
mikla athygli á Kúbu, enda hef-
ur þáttum úr þeim verið sjón-
varpað. í gærkvöldi flutti Morg-
Framh. á bls. 23