Morgunblaðið - 30.03.1961, Page 14
14
MORCVNBL AÐ1Ð
Fimmtudagur 30. marz 1961 v
Úr Austur-Skagafiröi
BÆ, Höfðaströnd, 24. man: —
En þá er að mestu snjólaust og
gott bílfæri um allar jarðir, en
úti í Fljótum er þó mikil hálka
á vegum. Er óvanalegt að þar
skuli vera bilfært hvert sem fara
skal. Veldur þar raunar nokkru
að versti kaflinn, sem áður hefir
verið frá Reykjarhóli að Haga-
nesvík er nú orðinn vel vegaður
Félagslíf er þar með
mesta móti, Ungmennafélag sem
lítið hefir starfað að undanförnu
er nú risið upp og setur sinn
svip á allt félagslíf sveitarinnar,
enda veitir ekki af þar sem alltaf
fæíkkar fólkinu. Fyrir 3 árum
mun hafa verið þar búsett um
200 manns, en nú mun vera þar
178 og enn þá mun fækka, þar
sem búizt er við að m. k. ein
fjölskylda flytji burtu á næsta
vorL
• Skeiðafossvirkjun
Skeiðafossvirkjun gefur Sigl-
firðingum og Fljótamönnum ljós
og hvers konar afl til heimilis-
nota. I>að er ekki lítið atriði að
þessar aflstöðvar geti svarað
þeim kröftum, sem tii þeirra eru
gerðar.
Undanfarið hafa þeir á Slkeiðs
fossi átt við mikla örðugleika að
stríða vegna vatnsskorts. Hafa
Ríkisverksmiðjurnar á Siglufirði
hvað eftir annað þurft að hlaupa
þar undir bagga, þegar orka hef
ir ekki reynzt nægileg frá Skeiðs
fossi. Nú undnfarið hafa þeir allt
af verið að vonast eftir svo
miklum hlákum að vatnið hsekk
aði í Stífluvatni, en það hefur
lækkað um 8 cxn á sólarhring nú
undanfarið.
• Lítið róið
Eins og vanalegt er, er ekkert
róið til fiskjar frá Haganesvík á
þessum tíma og það má raunar
eins segja um Hofsós að þar er
efckert litið til sjávar niú nema
lítillega átt við rauðmagaveiði,
sem er stopul vegna sífelldra um-
hleypinga, sem nú eru hér. Flest
ir sjómenn eru líka á vertíð fyr
ir sunnan, en þeir, sem heima
eru, vinna að undirbúningi vor
og sumarvertíðar, grásleppu-
veiði, þorskanetaveiði, línuveiði,
og skak. Fer nú vonandi eitthvað
af þessum bjargráðum sjómann-
anna hér að byrja.
• Læknisleysi veldur áhyggjum
Aðalumræðuefni og áhyggju-
efni fólksins er læknisleysið.
Fyrrverandi héraðslæknir okkar
fór fyrirvaralaust héðan og sett
ist að sem héraðslæknir á Stykk
ishólmi. Erum við því læknis-
laus nema ef leitað er til læknis
á Sauðárkróki. Virðist það hálf
ömurlegt á þessari framfaraöld
að hafa aðeins einn héraðslækni
í svona stóru héraði. En þessa
sögu hafa víst fleiri að segja
hér á landi þar sem mörg héruð
eru víst læknislaus, en ósjálfrátt
vekur það óhug hjá fólki, þegar
dauðsfall vill til rétt eftir að
læknirinn er farinn liéðan, en
sem ef til vill hefði verið hægt
að afstýra, ef til hns hefði náðst
strax. Heilsufar er annars nokk-
uð kvillasamt.
• Nægar heybirgðir
Það sem til er vitað er heilsu-
far búpenings með bezta móti.
Skoðun búpenings og heyja síðla
vetrar eins og venja er, hefir
enn ekki farið fram en eftir
ásetningi í haust má búast við að
heybirgðir séu á traustum
grunni nú. Þó að sjálfsagt eigi
eftir að koma hríðarskot þá
verður þessi vetur talinn með
ágætum góður og vonandj verð
ur þetta áframhaldandi góðæri
mönnum og málleysingjum til
blessunar. — B.
Árni Guð jónsson
hæstaréttarlögmaður
Garðastræti 17
EGGERT CLAESSEN og
GÚSTAV A. SVEINSSON
hæs tar éttarlögm en/j.
Þórshamrj við Templarasund.
Sigurgeir Sigurjónsson
hæstaréttarlögmaður
Málflutningsskrifstofa.
Austurstræti 10 A — Sími 11043
Á annan í páskum verður íslenzki gamanleikurinn Allra meina
urbæjarbíói. Hefst sýningin kl. 23,30. Meðfylgjandi mynd er af
fram. —
bót sýndur í þriðja sinn í Aust-
leikurunum, sem þarna koma
Áttræður á föstudag:
Guðni Einarsson
Landakoti á Vatnsleysuströnd
HINN 31. þ.m. er Guðni Einars-1
son, Landakoti á Vatnsleysu-
strönd, 80 ára. Guðni er Rang-
æingur að ætt og uppruna og
vandist snemma við öll störf til
sjávar og sveita, eins og þau
voru á þeim árum, sjósókn á
opnum áraskipum í útverum í
erfiðum lendingum og ferðalög
um vegleysur og óbrúaðar ár.
En við þessar aðstæður varð
fólkið þrautseigt og duglegt og
sigraðist ótrúlega á ýmsum erf-
iðleikum. Guðni er einn þeirra
sem það hafa gert í orði og
verki. Guðni hóf búskap í Haga
í Holtum og kvæntist þá Guð-
finnu Loftsdóttur, myndar- og l
dugnaðarkonu og höfðu þau all
stórt bú. Þau eignuðust fjögur
böm, Eyrúnu, Guðmundu, Lilju
og Jón, sem öll eru búsett í
Reykjavík. Guðfinna kona
Guðna var heilsulítil og það
mun hafa flýtt fyrir því að þau
fluttu til Reykjavíkur og þar
missti Guðni sína ágætu konu
og voru börnin þá enn á æsku-
skeiði. Ekki mun Guðna hafa
líkað allskostar vel í Reykja-
vík, því þá kaupir hann jörð
suður á Vatnsleysuströnd, Landa
kot og flytur þangað árið 1927
og hóf búskap til sjós og lands.
Nokkru síðar kvæntist Guðni
Guðríði Andrésdóttur, fósturdótt
FÉLAGSGARÐUR
K.K.-sextettinn leikur í Félagsgarði í Kjós á annan páskadag frá kl. 9.
Söngvarar með hljómsveitinni
DÍANA MAGNÚSDÓTTIR Og HARALD G. HARALDS.
Sætaferðir frá B.S.Í. og Þ.Þ.Þ. á á Akranesi kl. 9.
ir þeirra merku Þórustaða-
hjóna Steinunnar Helgadóttur
og Eyjólfs Jónssonar og fór,
hjónavígslan fram á gullbrúð-
kaupsdegi Steinunnar og Eyj-
ólfs. Guðríður er góð kona og
mikilhæf, þau eiga tvö börn,
Margréti, lækni, er vinnur við
tilrauna- og rannsóknastofuna ái
Keldum, og Eyjólf bónda I
Landakoti, sem kvæntur er
Helgu Magnúsdóttur.
Guðni var um mörg ár hrepp-
stjóri Vatnsleysustrandarhrepps
og hafði einnig póstafgreiðslu o@
organisti var hann við Kálfa-
tjarnarkirkju um nokkur ár.
Öll störf hefur Guðni af
hendi leyst með vandvirkni og
trúmennsku. Mjög eru þau hjóni
Guðríður og Guðni, gestrisin
og góð heim að sækja, vinsæl og
hjálpsöm. Guðni er starfsmaður
mikill, bæði til sjávar og land-
verka og vinnur ennþá svo, sem
orka leyfir, en af búskap hafa
þau hjón látið og sonur og
tengdadóttir tekið við.
Ég þakka Guðna fyrir langt
og gott ssamstarf í þágu sveitar
og sóknar og góðs nágranna. Ég
óska honum til hamingju með
afmælið og bið honum, konu
hans og börnum allrar bless-
unar.
Erlendur Magnússon,
Kálfatjörn.
• •
Ollu velt um í
stjórn Rúmeníu
VÍNARBORG, 21. marz. (Reut-
er). — Útvarpið í Búkarest til-
kynnir að í dag gangi skyndi-
lega í gildi veigámiklar breyt-
ingar á æðstu stjórn landsins.
Eru að bæði stjómskipulegar
breytingar og tilfærslur á mönni
um í æðstu valdastöðum. Breyt
ingamar virðast þýða aukin
völd fyrir Gheorghe Cheorghiu
Dej, sem verið hefur fram-
kvæmdastjóri kommúnistaflokks
landsins, — og virðist það
verða á kostnað helzta keppi-
nautar hans Chivu Stoica.
Stjómlagabreytingarnar eru
aðallega fólgnar í því að myncl
að er nýtt ríkisráð með forseta,
þremur varaforsetum og 13 meS
limum öðrum. Ráðið virðist
hafa alræðisvöld. Það getur t. d,
sagt öðrum ríkjum stríð á hend-
ur.
Gheorghiu Dej var kosinn for
seti ráðsins og mun þar með
teljast þjóðhöfðingi, en jafn-
framt vera valdamesti maður
Rúmeníu.