Morgunblaðið - 18.04.1961, Blaðsíða 11
Þriðjudagur 18. apríl 1961
MORCV1SBLAB1B
11
Góð aðsókn er að sýningum Sumarleikhússins í Austurbæjar-
bíói. Mikla kátinu vekur Arni Tryggvason sem Stórólfur leyni-
lögreglumaður, klæddur dulargervi hjúkrunarkonu. Hér er
viðureign hans við einn sjúklinginn (Steindór Hjörleifsson),
sem hann vill greiða höfuðhögg í því skyni að hjálpa upp
á munn hans.
— Noregsbréf
Framh. af bls. 6.
með öllu því sem fram fór, ekki
sízt þegar sagt var frá íslandi
og högum og háttum heima.
Hrífdælingar hlakka til sum-
arsins, því að þá verður efnt til
mikils fagnaðar í Hnífsdal. ís-
lendingar ætla að koma og færa
þeim að gjöf afsteypu af Ingólfs-
styttu Einars Jónssonar á Arn-
arhóli. Raunar mun Ingólfur
þegar kominn hingað til Noregs.
Afsteypan var gerð í Kaupmanna
höfn. Bergens Tidende birti
mynd af henni um daginn og
eagði, að þá og þegar væri von
á henni til bæjarins. En svo er
eftir að koma henni fyrir heima
í Hrifudal. Þar er staðurinn
ékveðinn. Á hæðardragi við
veginn út að Holmedal á Ingólf-
ur að standa og horfa yfir Dals
fjörðinn, sem hann sigldi út,
þegar hann kvaddi Noreg til að
gerast upphafsmaður nýrrar
þjóðar.
Kona gerist prestur.
>á hafa Norðmenn fengið sinn
fyrsta kvenprest, Schjelderup,
biskup á Hamri vígði Ingrid
Bjerkás, þ. 19. marz. Þeim, sem
eru fylgjandi því að konur ger-
ist prestar fannst það vita á gott,
eð þann sunnudag var Boðunar-
dagur Maríu. Vigslan fór fram í
Vangkirkju á Heiðmörk að við-
etöddum 12000 manns. Hér
eins og í fleiri löndum hefur
nokkuð verið um það deilt hvort
rétt sé að konur gerist prestar.
Sex af biskupunum hafa lýst
sig andvíga því, telja sig ekki
geta varið það fyrir samvisku
sinni, því Yatriði gegn skiln-
ingi sínufj á Guðs orði, bæði
anda þess og bókstaf. Hinir
biskupamir þrír eru fylgjandi
þjónustu kvenna í prestastétt.
Þeir eru — auk Schjelderups —
Alv Viik í N-Hálogalandi og hinn
nýi Niðaros biskup Th. Godal.
Þrátt fyrir þessar skiptu skoð-
anir kirkjuhöfðingjanna, hefur
þetta mál ekki valdið deilum
enn, sem komið er, og er satt að
segja ólíklegt að svo verði hér
frekar en í nágrannalöndunum.
Hinsvegar virðist enginn gera
eér eins bjartar vonir um starf
kvenprestanna hér eins og skáld
konan danska, sem sagðist vænta
þess að konurnar fylltu þær
kirkjur, sem karlmennirnir væru
búnir að tæma.
Söfnuðuriom
á móti sóknarnefndinni.
Enginn vafi virðist mér á þvi,
að meirihlutinn af áhugasömu
„kirkjufólki“ hér er á sömu skoð
un og biskuparnir sex. Hinsvegar
er almenningur þeirrar skoðunar,
að konur eigi að hafa jafnrétti
í þessu efni eins og á öðrum
eviðum. Þetta kom greinilega í
ljós í prestakalli norður á Há-
logalandi, sem frú Bjerkás sótti
um. Fjórir, af fimm, í sóknar-
nefndinni höfnuðu umsókn henn
ar og mæltu ekki með henni.
Var hún þó eini umsækjandinn.
Þessa afgreiðslu sætti söfnuður-
inn sig ekki við og krafðist al-
mennrar atkvgr. Kom þá í ljós,
að bara ca 20% fylgdu sjónar-
miði meirihlutans í sóknarnefnd
inni. — Svona mun þetta vera
víðar. Því er eðlilegt að ríkis-
valdið — þing og stjórn hafi
farið sínu fram í þessu máli
þrátt fyrir andstöðu kirkjunnar
manna. Þar sem kirkjan er rík-
iskirkja, verður hún að hlíta
forsjá þess eða þess meirihluta
sem ríkisvaldið styður sig við.
Enda þótt einhverjir hnökrar
séu á sambúð ríkis og kirkju
virðist enginn hafa áhuga fyrir
að slita hana úr tengslum við
rkisvaldið.
Þýzki biskupinn Otto Diebe-
lius var á ferð í Osló I vetur.
Sagði hann þá í blaðaviðtali, að
ríkiskirkjuformið ætti enga
framtíð. Öll skilyrði fyrir því
væru úr sögunni hér á Vestur-
löndum. Það gæti ekki þrifizt
þar sem trúfrelsi væri í heiðri
haft, og fólkið hlyti óhjákvæmi-
lega að skiptast í marga ólíka
trúflokka. Taldi hann daga ríkis-
kirkjunnar senn talda hér á Norð
urlöndum eins og annarsstaðar.
Ekki virðist þessi skoðun hafa
fengið neinn hljómgrunn hér í
landi, eða öðrum Norðurlöndum
— hvorki hjá fulltrúum ríkis
né kirkju. — Danski Verkamanna
flokkurinn hefur haft aðskilnað
ríkis og kirkju á stefnuskrá
sinni í 50 ár, en talið er líklegt
að því stefnuskráratriði verði
breytt á næsta flokksþingi. Slikt
ákvæði var líka í stefnuskrá
norska Verkamannafl., en búið
er að afnema það fyrir löngu.
Virðist yfir leitt gott samkomu-
lag milli hans og kiifkjunnar
þótt stöku sinnum kastist eitt-
hvað í kekki eins og áður er
getið. Ekki er forsætisráðherr-
ann meðlimur í neinu trúfélagi.
Er haft eftir honum að úrsögn
hans úr kirkjunni hafi verið á
misskilningi byggð, en það
mundi valda enn meiri misskiln-
ngi, ef hann færi nú að ganga í
hana aftur. — Þegar núv. Kirkju-
og kennslumálaráðherra Helge
Sivertsen tók við embætti, sagði
hann að kirkjan ætti að hafa
sömu aðstöðu og listin. „Við eig-
um ekki að reyna að hafa áhrif
á það sem listamennirnir skapa.
Við eigum bara b ' j þeim sem
bezt skilyrði. Og þessa sömu af-
stöðu á kirkjan að hafa hér hjá
okkur Norðmönnum," sagði ráð- !
herrann.
Dale í Surmfjord 8. apríl 1961.
Gisli Brynjólfsson.
Siml 15300 \
Æglsgötu 4
Hurðaþvingur
Altanlæsingar
Skothurðajárn
Rennibrautir
fyrir skápa
Við höfum „AUGA“ með íbúðamarkaðnum
Einbýlishús í Haínarf. til sölu
Nýtt 5 herb. einbýlishús á góðum stað í Hafnarfirði.
Ibúðin er öll á fyrstu hæð ásamt þvottahúsi, geymslu
og miðstöð. — Verð kr. 440 þúsund.
FYRIRGREIDSLU
SKRIF5TOFAN
fasteigna- og verðbréfasala
Austurstræti 14, simi 3-66-33
Fasteignaviðskipti: Jón B. Gunnlaugssón
Einbýlishús
Til sölu nýlegt og vandað 'járnklætt timburhús í
austurbænum. Húsið er 4 herb. eldhús og bað.
Nánari upplýsingar gefur.
Málflutningsstofa
INGI INGIMUNDABSON, hdl.,
Vonarstræti 4 n. hæð — Sími 24753.
F élagslíf
Framarar: 4. flokkur
Áríðandi æfing verður í kvöld,
þriðjudag kl. 6 e. h. — Þjálfari
Framarar: 3. flokkur.
Áríðandi ~ æfing verður á
fimmtudag kl. 8 e. h.
Þjálfari.
Cólfslípunin
BarmahUð 33. — Simi 13657.
AIRWICK
SILICOTE
Húsgognagljái
GLJAI
OMO
RINSO
VIM
LUX-SPÆNIR
SUNLIGHT- SÁPA
LUX-SÁPULÖGUR
SILICOTE-bflagljái
Fyrirliggjandi
ÖL? i Gíslason & Cohi
Sími 18370
Bílasala Cuðmundar
Bergþórugötu 3.
Selur effirtalda
úrvalsbila
Opel Rekord ’57.
Opel Kapitan ’57.
Voikswagen sendife -ða ’57.
Volkswagen ’56.
Moskwitch Station ’59.
Moskwitch fólksbifreið ’59.
Willy^ jeppi ’53.
Volga ’58.
Fiat 1100 ’59.
Volvo ’55.
Benz 180 '55.
Bílasala Cuðmundar
Bergþórugötu 3
Sími 19032 og 36870
Hafnarfjörður
Hefi jafnan til sölu
ýmsar gerðir
einbýlishúsa og íbúðarhæða.
Skipti oft möguleg.
Guðjón Steingrimsson, hdl.
Simar 50960 og 50783.