Morgunblaðið - 26.04.1961, Side 5
'Miðvikudagur 26. aprfl 1961
MORGVNBLAÐIÐ
5
Þetta dýr, sem þiS sjáið hér
á myndinni er hreysiköttur
eða hermelin, en skinn þess
voru mjög eftirsótt fyrr á tím
um, því með þeim voru skikkj
ur komunga bryddaðar. Svarti
díllinn á rófunni myndaði
deplana, sem alltaf voru á
slíkum bryddingum.
Þessi hreysiköttur er græn-
lenzkur og er um þessar mund
ir í vörzlu áttúrugripasafns
ins, en þangað var hann send
ur frá Meistaravík á Græn-
landi og hefur Kristján Geir
mundsson stoppað hann upp.
Hreysikötturinn mun verða
sendur aftur til Meistaravík
ur, því hann er í eigu manna
þar. Við fengum að skoða
dýrið og spurðum Kristján
hvort safnið hefði ekki reynt
að verða sér út um hreysikött.
— Jú, þegar við fórum í
vísindaleiðangur tii Græn-
lands vorið 1955, gerðum við
okkur vonir um að ná í hreysi
kött. Það brást, því að við sá
um ekki einn einasta. Aðeins
einu sinni sáum við hreysikatt
arslóð í snjónum. Á því svæði,
sem við vorum eða í Meistara
vík og nágrenni er ekki mikið
um hreysiketti og þetta ár var
einnig lægð í læmingjastofn-
inum, en læmingjar eru aðal
fæða hreysikattarins. Fjalla-
kjóarnir, sem einnig lifa mest
á læmingjum flugu eirðarlaus
ir um í leit að æti og sumt af
þeim fáu læmingjum er við
náðum tók ég úr maganum á
kjóum, sem við veiddum og
hafa þeir þá verið nýbúnir að
gleypa læmingjana, því að
þeir voru alveg óskemmdir.
— Viltu ekki segja okkur
nánar frá hreysikettinum?
— Hann er af marðarættinni
og á stærð við litla rottu, þó
mun mjórri. — Grænlenzki
hreysikötturinn er lítið frá-
brugðinn frændum sínum á
Norðurlöndum. Helzti munur
inn er sá, að vetrarhár græn-
lenzka hreysikattarans er þétt
ara og lengra og brúni sum-
arbúningurinn aðeins ljósari.
En hreysikötturinn tekur lita-
skiptum og á sumrin er hann
brúnn á baki og hliðum, en
hvítur að neðan.
Á veturna er hreysiköttuir
inn neyddur til að halda sig
í grjóturðum og göngum, sem
hann grefur undir snjónum,
annars frysi hann í hel. Þeir
hreysikettir, sem eru svo ó-
heppnir að lenda í kassagildr
um grænlenzku veiðimann-
anna, frjósa í hel á einni
nóttu.
Hreýsikötturinn er fremur
sjaldséðuir á Grænlandi, en
heldur sig helzt þar sem mest
er af læmingjum. Á veturna
leitar hann uppi göng læm-
ingjanna undir snjónum og
þar á hann auðvelt með að ná
í bráð, en jarðholur læmingj
anna eru of þröngar fyrir
hann. Á sumrin getur hann
náð læmingjunum úr holum
þeirra með því að troða hausn
um eins langt og hann getur
inn í þær. Læminginn er oft <
ast nálægt holuopinu og af
meðfæddri eðlishvöt snýst .
hann til varnar í stað þess að
Ieggja á flótta inn í örugga
holuna. Hreysikötturinn dreg 1
ur hann þá út úr holunni og
þar með eru dagar hans tald '
ir. Bezti veiðitími hreysikatt
arins er á næturnar, því þá
eru læmingjarnir helzt á ferli
fyrir utan holur sínar.
Á sumrin Ieitar hreysikött
urinn uppi hreiður fugla og
étur bæði egg og unga. Og oft 1
finnast við greni hans hræ af
fullvöxnum smáfuglum.
Þegar lítið er um læmingja
á hreysikötturinn mjög erfitt
uppdráttar, sérlega á vetrum, '
lendir hann þá oft í refagildr
um, er hann reynir að ná agn
inu úr þeim. í þannig árferði
er viðkoma hreysikattarins ,
mjög lítil, og oft étur hann
unga sína, því að hann á nógu ,
erfitt með að sjá sjááfum sér
farboða.
Á sumardaginn fyrsta opinber
uðu trúlofun sína, Sigrún Guð
rnundsdióttir bankaritari, Þórs-
götu 10 og Magnús M. Brynjólfs-
' HINN frægl enskl skólamað
, ur, rektorinn við Westminster1
, skólann, dr. Bichard Busby
i (1605—’95), sem í elli sinni
1 gat nefnt 16 af biskupum Eng
lands, sem höfðu fengið að
kenna á hrisvendi hans, var
ekki stór maður.
Dag nokkurn sat hann á
kaffihúsi, þar sem plássið var
af heldur skornum skammti.
Feitur og stór landeigandi kom
þar inn og sagði:
— Má ég komast fram hjá
yður, þér risi?
Busby svaraði: — Sjálfsagt,
þér dvergur.
Landeigandinn sagði afsak-
andi: — Ég höfðaði til gáfna
yðar.
— Ég líka, svaraði Busby.
son, verzlunarmaður, Reynimel
29.
Sigurveig Vigfúsdóttir, Óðins-
götu 17A, er 80 ára í dag.
Söfnm
Ustasafn íslands er opiS sunnudaga,
þriSjudaga, fimmtudaga og laugardaga
kl. 1,30—4 e.h.
Asgrimssafn, Bergstaðastræti 74 er
opið þriðjud., fimmtud. og sunnudaga
frá kl. 1,30—4 e.h.
Þjóðminjasafnið er opið sunnud.,
þriðjud., fimmtud. og laugard. frá kl.
1,30—4 eh.
Minjasafn Reykjavíkurhæjar, Skúla
túni 2, opið daglega frá kl. 2—4 e.h.
nema mánudaga.
Bókasafn Dagsbrúnar, Freyjugötu
27, opið föstud. S—10 e.h., laugard. og
sunnud. 4—7 eh.
Bæjarbókasafn Reykjavfkur sími:
12308 — Aðaisafnið, Þingholtsstræti 29a
Útlán: Opið 2—10. nema laugard. 2—7
og sunnud. 5—7 Lesstofa: Opin 10—10
nema laugard. 10—7 og sunnud. 2—7.
Útibúið Hólmgarði 34: Opið alla
virka daga 5—7.
Útibúið Hafsvallagötu 16: Opið alla
virka daga frá 17.30—19.30.
Tæknibókasafn IMSÍ í Iðnskólahús-
inu Skólavörðutorgi er opið virka
daga frá kl. 13—19, nema laugardaga
3—5.
Fer að þyngjast fótur minn,
förlar snilld að ganga.
Mætti ég yngjast annað sinn,
á þér skyldi ég hanga.
Margt kemur upp á langri leið.
Lífið eltir bana.
Þreytir suma þetta skeið,
þó ei hug má vana.
Sigurður Breiðfjörð:
Fer að þyngjast fótur.
Þau ætluðu að gifta sig, en
hún heimtaði að hann færi í
læknisskoðun fyrst.
— En ég er alveg stálsleginn,
smámeinsend- í maganum.
— Það er nefnilega það, sagði
hún, vegna mömmu þinnar vil
ég fá það skriflegt að þú hafir
verið orðinn slæmur í magan
um áður en við giftumst.
— Eg ætla að skilja.
— Hvers vegna?
— Konan mín heimtar, að ég
þvoi upp, ryksugi og skúri gólf
in og það get ég alveg þolað.
En þegar hún skipaði mér að
fara í leikfimi fyrir húsmæður
fannst mér of langt gengið.
Ágætur bílskúr
(fyrir lítinn bíl), nálægt
Elliheimilinu, til leigu 1.
maí. Uppl. í síma 13002,
kl. 7—8.
íbúð óskast
Stýrimaður hjá Landhelg-
isgæzlunni óskar eftir 2ja
—3já herb. íbúð sem fyrst
eða fyrir 1. júní Uppl. í
síma 35730.
íbúð óskast
Barnlaus hjón vantar 2ja—
3ja herb. íbúð til leigu. —
Fyrirframgreiðsla. Tilb.
sendist afgr. Mbl. merkt
„Ibúð — 1175“
3ja herbergja íbúð
til sölu á Akranesi Uppl. í
síma 64.
Trillubátur
Til sölu er 5% tonna trillu
bátur ásamt miklu af veið-
arfærum. Uppl. á kvöldin
í síma 34939.
Ódýrt mjög vandað
amerískt segulbandstæki
til sýnis og sölu að Reyni-
mel 22. Sími 16435.
Tvær stúlkur
óska eftir sveitaplássi í
sumar, helzt á sama bæ. —
Uppl. i síma 34764.
íbúð — Athugið
4ra herb íbúð óskast fyrir
14. maí. Uppl. í sima 32830
Skóviðgerðir
afgreiddar með mjög. stutt-
um fyrirvara.
Skóvinnustofan
Þórsgötu 23.
Dömur
Nýkomið fjölbreytt úrval
af kápu- og dragtarefnum
Saumastofa
Guðnýjar Indriðadóttur
Selvogsgrunni 24 —
Sími 35170.
íbúð
óskast til leigu 2—3 herb.
strax. Uppl. í síma 16051.
Til sölu
Ðodge ‘40 fólksbílahásing.
,• Uppl. í síma 13781. Milli lá
8—10 í kvöld og næstu 2
kvöld.
Stúlka
vön 1. flokks herrajakka-
saumi, óskar iftir heima-
vinnu. Tilb. merkt „Heima
vinna — 1914“ sendist
blaðinu fyrir föstudagskv.
Chevrolet Bel Air 1955
(einkabíll) í góðu ástandi
til sölu.
Bifreiðasala
Stefáns Grettisgötu 46
Sími 12640.
Gott orgel
I
óskast til kaups. — Sími
14920.
3 herbergi og eldhús
óskast til leigu fyrir 14.
maí. Tiib. merkt „Reglu-
semi — 1174“ sendist Mbl.
fyrir föstudagskvöld.
Píanó
til sölu mjög hljómfagurt
og sterkbyggt, á Gunnars-
braut 28 uppi.
Tilboð óskast
í að múrhúða að utan hús-
eigninu Sólheimar 10. Nán-
ari uppl. á staðnum.
Liðleg skekta
óskast til kaups. Uppl í
síma 19704.
Dönsk stúlka
22 ára óskar eftir vinnu
júlí mánuð, margt kemur
til greina.— Uppí. í síma
32601 eða tilb. merkt ,1177“
íslenzk frímerki
ásamt póstinnsiglaðri kíló-
vöru óskast. Hátt verð.
Verðtilboð óskast sent til
Jens Gregersen, Lyshój
allé 2, Kbh. Valby, Dan-
mark.
3ja herb. íbúð
með húsgögnum og síma til
leigu í nokkra mánuði. —
Tilboð merkt „Reglusemi
1082“ sendist blaðinu fyrir
28 apríl.
-Frá Tónlistaskólanum
Inntökupróf í Tónlistarskólann í Reykjavík fyrir
skólaárið 1961—’62 verður laugardaginn 29. aprfl.
kl. 5 síðdegis að Laufásvegi 7. — Tekin verður upp
kennsla á fagott og horn og lánar skólinn hljóðfæri.
Væntanlegir nemendur, sem áhuga hafa á að læra á
þessi hljóðfæri komi i skólann á fyrrgreindum tíma.
Skólastjóri
Hef kaupanda að
iðna&arhúsnœði
eða lóð til byggingar iðnaðarhúss á a.m.k. 1000 ferm.
,eiga kæmi einnig til greina.
ÁRNI GUÐJÖNSSON hæstaréttarlögmaður
Garðastræti 17 — Sími 12831