Morgunblaðið - 27.05.1961, Síða 1
24 síður með Oarnalesbók
,48. árgangnr
115. tbl. — Laugardagur 27. maí 1961
Her S-Kóreu aftur
undir stjórn SÞ.
Bandaríkjamenn leggja áherzlu á að
borgaraleg stjórn taki völd hið fyrsta
Seoul, Suður-Kóreu 26. maí
(Reuter)
HERFORINGJARÁÐIÐ í S-
Kóreu, sem steypti stjórn
John Changs frá völdum 16.
maíi sl., hefur nú fallizt á,
að nær allar hersveitir S-
Kóreu skuli aftur falla und-
ir stjórn Sameinuðu þjóð-
anna og B. Macgruders, hins
bandaríska hershöfðingja sam
takanna.
' Tilkynnt var opinberlega í
Seoul í dag, að viðræður milli
Macgruders og forystumanna byl
ingarinnar hefðu borið þann ár-
angurs, að Macgruder tæki nú
aftur við stjórn næstum alls hers
ins, með þeim skilmálum þó, að
Enginn
skugga-
baldur meði
París, 26. maí.
HRAÐLESTIN fræga —
Oriental Express — sem gekk
á sínum tima milli París og
Istambul, fór í dag sína síð-
ustu ferð til Austur-Evrópu.
Það eru þegar liðin nokkur ár
síðan endastöðin í Istanbul
var lögð niður og hefur lestin
síðan gengið til Búkarest. Nú
hefur hinsvegar farþegum
þangað fækkað svo mjög, að
ákveðið var að framvegis
skyldi hún aðeins ganga til
Vínarborgar.
Það eru áttatíu ár síðan
Oriental Express hóf áætlun-
arferðir og er lestin margkunn
af ýmsum leynilögreglusögum
og reyfurum, þar sem margt
misjafnt hefur verið látið ger-
ast í lestinni og farþegar henn
ar verið skuggalegir.
Brezka útvarpið sagði svo
frá síðustu ferðinni í dag, að
eimreiðin hefði dregið tvo
vagna, annan hlaðinn far-
angri en hinn farþegum, sem
voru langt frá því að vera
nokkuð skuggalegir.
hann beitti þeim ekki gagnvart
öðrum en kommúnískri árás.
Sagði í tilkynningunni, að ætl-
unin með þessu væri m. a. sú,
að koma í veg fyrir að þeir her-
foringjar sem ekki tóku þátt í
byltingunni fái óréttláta með-
ferð. Þrír hershöfðingjar voru þó
enn í dag í haldi hjá herforingja-
Frh. á bls. 2
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Kennedy forsetí fer fram á við Bandarík]aþing
Sjö milljarða dala að-
stoð við erlend ríki
ÞETTA glæsilega hús, sem
stendur á hafnarbakkanum
skammt frá hinni gömlu
Loftsbryggju, á næsta haust
að leysa af hólmi verka-
mannaskýlið við höfnina. 1
þessu húsi verða veitingastof-
ur fyrir verkamenn, sem við
• höfnina starfa. Þar verður
setustofa og í því fær sjó-
mannaheimilið inni. Verða
gistiherbergi fyrir 25—30
gesti. Nú er lögð aðaláherzla
á að ljúka við veitingasal, sem
rúmar yfir 130 manns, svo og
setustofu og böð. Myndin var
tekin af hinni nýju byggingu
í gær. — Ljósm. Mbl.
Washington, 26. maí.
JOHN F. Kennedv, forseti
Bandaríkjanna, fór í dag
fram á það við Bandaríkja-
þing, að veittir yrðu rúm-
lega sjö milljarðar dala til
efnahagsaðstoðar við erlend
ríki á næstu fimm árum.
Kennedy lagði fram áætlun
fyrir þingið þar sem sagði, að
aðstoð við erlend ríki gæti ekki
lengur komið að fullu gagni, ef
hún væri veitt í tiltölulega smá-
um upphæðum árlega eins og
verið hefði.
Þess vegna kvaðst forsetinn
fara þess á leit við þingið, að það
veitti rúmlega sjö milljarða dala
til aðstoðar við erlend ríki á
næstu fimm árum og skyldi sú
aðstoð verða til langs tíma. Hann
kvaðst í þessu sambandi leggja
til að komið yrði á fót sérstakri
stofnun, sem hefði þessi mál með
höndum og kölluð yrði „The
Agency for International Deve-
lopment“.
í áætluninni er gert ráð fyrir,
að þær landbúnaðarafurðir, sem
ætlaðar eru til að senda þeim
þjóðum, er matarskortur hrjáir,
verði þá væntanlega sendar og
þeim úthlutað á vegum þessarar
stofnunar. Ennfremur segir þar
að heppilegt sé að hin nýja frið-
arfylking ungmenna Og banda-
rískir tækniráðunautar með er-
lendum þjóðum vinni í nánu sam
bandi við stofnunina.
Loks segir Kennedy í áætlun-
inni, að hann telji hernaðarað-
stoð við erlend ríki nú fullnægj-
andi — í þeim efnum óski hann
ekki frekari breytinga, en hann
hafði þegar skýrt frá.
Frönsk flugvél skotín niður
Algeirsborg, 26. maí
(Reuter-NTB).
ALSÍRSKIR uppreisnarmenn
skutu í dag niður franska her-
flugvél í austurhluta Alsír. Lét-
ust tveir menn, flugmaðurinn og
annar er fylgdist með atburðin-
um af jörðu niðri, að því er tals-
maður frönsku yfirvaldanna til-
kynnti hér í dag. Flugvélin var
skotin niður yfir svæði þar sem
áttust við franskir hermenn og
uppreisnarmenn. Særðust fjórir
franskir menn í þeirri viðureign.
í Oran voru tuttugu manns
handteknir eftir fjöldafund
manna andstæðra stefnu de
Gaulle í Alsír. Nokkrar óeirðir
urðu á fundinum og varð lög-
reglan að beita táragasi. Nokkr-
ar verzlanir Serkja voru eyði-
lagðar og gluggarúður brotnar.
New York —
3 klst. 20 mínútum
París, 26. maí.
(NTB/Reuter)
BANDARÍSK sprengju-
flugvél af gerðinni B-58
flaug í dag frá New York
til Parísar án viðstöðu á
mettíma — 3 klst. og 20
mín. — Er það í fyrsta
sinn, sem flogið er yfir
Atlantshafið hraðar en
hljóðið. Meðalhraði flugvél
arinnar var 1000 mílur á
klst.
Flug þetta var farið í
sambandi við hina miklu
flugvélasýningu, sem opn-
uð var í París í morgun,
en þar eru sýndar meira
en eitt hundrað flugvélar
frá ýmsum löndum. Var
með flugi þessu sérstak-
lega verið að minnast
flugs Lindbergs fyrir 34
árum, en hann flaug sömu
leið á 33 klst.
A sýningunni í París
hefur vakið hvað mesta at-
hygli hylkið, sem banda-
ríski geimfarinn Alan
Shepard fór í út í geim-
inn. Er í hylkinu brúða í
sams konar klæðum og
Shepard var í meðan á
ferðinni stóð.
Ennfremur er á sýningu
þessari líkan af Caravelle-
þotu, sem Frakkar hyggj-
ast hafa tilbúna til not-
kunar eftir sex ár. — Á
þota þessi að taka um
hundrað farþega og fara
hraðar en hljóðið.
Vanmat á þætti
Dana
Einkaskeyti til Mbl. frá Kaup-
mannahöfn, 26. maí. Herluf Niel
sen, cand mag skrifar í Kriste-
ligt Dagblad í dag lianga grein uim
vísindastörf, sem unnin hafi ver-
ið á grundvelli íslenzku handrit-
anna, á síðustu hundrað árum.
Nielsen segir, að í umræðum
um handritin hafi af og til komiS
fram vanmat á hinium mikla
þærtti, er Danir hefðu átt í vís-
indastarfinu og netfnir hann til
dæmi. Hann segir, að síðan 1939
hafi komizt fast form á vísinda-
starfið og mundi samþykkt frum-
varp ríkisstjómarinnar um af-
hendingu handritanna gera nær
þýðingarlausar allar rannsóknir
á norrænni málfræði.
Tala fallinna í Angola
áætluð 20-35 þús.
London, Lissabon, 26. maí
(Reuter)
BREZK stjórnmálavikurit birta
í dag áætlaðar tölur um fallna
innfædda Angólabúa, eftir að her
ferð portúgölsku stjórnarinnar
gegn uppreisnarmönnum í Ang-
óla hófst.
Vinstrisinnaða blaðið telur að
35 þúsund varnarlausir Afríku-
menn hafi fallið fyrir vélbyssum
og sprengjum en hið óháða blað
„Spectator" segir að sennilegasta
tala sé 20 þúsund.
Frá Angóla berast þær fregn-
ir um Lissabon, að 45 íbúar þorps
eins þar í landi, þar af sex kon-
ur og fimmtán lögreglumenn,
hafi rekið af höndum sér „nokk-
ur þúsund" uppreisnarmenn eft-
ir 13 klst. bardaga.
>