Morgunblaðið - 27.05.1961, Qupperneq 5
Laugardagur 27. maí 1961
MORGVNBLAÐIÐ
5
MENN 06
= MALEFN!=
Frú Ekaterina A. Furtseva
faeddist árið 1906 í borginni
Vyshi Volochok í Kalinin-hér
aði, og var faðir hennar vef-
ari. Að skólagöngiu lokinni
gerðist hún vefari. Árið 1924
gekk hún í bandalag ung-
kommúnista (Komsomol) og
árið 1930 í kommúnistaflokk
Sovétríkjanna. Hafði hún þá
um langt skeið haft á hendi
ábyrgðarstöður innan ung-
kommúnistahreyfingarinnar,
verið héraðsritari og meðlim
ur flokksstjórna í borg og hér
aði. Hún lauk háskólanámi í
flugmálum og starfaði að því
loknu sem forstöðumaður póli
tísku deildarinnar í flugtækni
skóla hjá Aeroflot, fhigfélagi
Sovétríkjanna. Frá 1937 til
1942 stundaði hún nám í
tiemonosov-stofnuninni í
Moskva, en þar er lögð stund
á æðri efnafræði og efna-
tækni. 1942—1950 gegndi hún
starfi flokksritara kommún-
istaflokks Sovétríkjanna í
Frun enski-héraðinu og síðar
starfi flokksritara í Moskvu
borg. Á 20. þingi kommún-
istaflokks Sovétríkjanna 1956
var hún kjörin í miðstjórn
flokksins og tók við starfi
flokksritara. Árið 1957 var
hún kjörin meðlimur forsætis
miðstjórnar og í maí 1960
skipuð menntamálaráðherra
Sovétríkjanna af forsæti
æðstaráðsins.
Frú Furtseva er meðlimur
æðstaráðs Sovétríkjanna og
æðstaráðs rússneska sam-
bandsríkisins. Hún hefur hlot
ið Lenínorðuna, orðu Raiuða
fánans og ýmis heiðursmerki
Sovétríkjanna fyrir framúr-
skarandi störf í þáigu lands
síns.
(Frá menntamálaráðu-
neytinu).
í dag verða gefin saman 1
hjónaband af séra Ingólfi Ást-
marssyni ungfrú Lilja Jónsdójt
ir, Karfavogi 52 og Hákon Orms-
son frá Kletti, Geirdal. Heimili
þeirra verður að Skriðnisenni í
Strandasýslu.
Á hvítasunnudag opinberuðu
trúlofun sína ungfrú Hanna
Pálmadóttir, Álfaskeiði 30, Hafn
arfirði og Sigurður Þorsteinsson
sjómaður Hólabraut 7, Hafnar-
firði.
Laugardaginn 20. maí opinber
uðu trúlofun sína ungfrú Ragn
hildur Alfreðsdóttir, Barmahlíð
2 og Gunnar Ólafsson, Flókag. 33
Nýlega voru gefin saman í
hjónaband af séra Kristni Ste-
fánssyni ungfrú Guðrún Vigfús
dóttir frá Hafnarfirði og Hjalti
Þörvarðarson, vélstjóri, Súðavík.
Nýlega opinberuðu trúlofun
sína ungfrú Guðrún Ólafsdóttir,
Hólsgötu 20, Hafnarfirði og Ás-
björn Vigfússon, Fögrukinn 22,
Hafnarfirði.
í dag verða gefin saman í
hjónaband af séra Jóni Thoraren
sen, ungfrú Karólína Thoraren-
sen Vesturgötu 69 og Guðbjörn
Tómasson, Laugateig 30. Heim
HJÁLMÁR skáld:
KRYDDLJÓÐ no. 0011
sjókindur &
landhveli co inc
e/s klettafugl
kemur e t v gangandi
meö hf 100%
í hálsbandi
svo koma
S. + $ =
þánggresi mararbárunnar
avi : aví : :
hr. rakarameistari
a m k 30 fob
do etc
frá sólarljðöi himinkúlunnar
berast stakir molltónar
kríuúngans
vor
Þ e
skv tilboöi yðar
sendi ég
t d
þ • a m r r t ?
? r
o fl o s frv..............
ili brúðhjónanna verður á Lauga-
teig 30.
Nýlega hafa opinberað trúlof
un sína ungfrú Iðunn Steins-
dóttir stud. philol. frá Seyðis-
firði og Björn Friðfinnsson, stud
jur., Snekkjuvogi 21.
Nýlega voru gefin saman í
hjónaband af Árelíusi Nielssyni
Katrín Arndís Magnúsdóttir og
Jackie Sublett, Reynihvammi 23,
Hrafnhildur Auður Ágústsdóttir
og Hjalti Skaptason, Sogavegi
200, Birna Fr. Björnsdóttir og
Ííuðm. Þorsteinsson, Brekkug. 41
Akureyri, Aldís Ólöf Guðmunds
dóttir og Hilmar SvavarssOn,
Sólheimum 44, Kristín Grímsd.
og Ottó Sv. Victorsson, Bústaða
vegi 3, Sjöf Friðriksdóttir, kenn
ari og Skúli J. Sigurðsson, stud.
phil. Vífilsgötu 23. Hulda Frið-
riksd., kennari og Sigurbjarni
Guðnason, húsasm. Vífilsgötu 23
Ennfremur nýlega Svandís Guð
jónsdóttir og Rafn Kr. Viggósson
bólstrari Laugavegi 50B, Jó-
hanna Þórisdóttir og Ingiberg
Guðbjartsson, blikksm. Lauga-
vegi 5. í dag (laugardag) verða
gefin saman í Laugarneskirkju
af Árelíusi Níelssyni Svala Svan
fjörð og Jóhann L. Gunnarsson
sjómaður Framnesvegi 46.
í dag verða gefin saman í
hjónaband í Árbæjarkirkju, ung
frú Hanna Sveinsdóttir Zoegá
Skólavörðustíg 2 og Guðmundur
Ágúst Jónsson framreiðslumað-
ur Grindavík. Heimili ungu hjón
anna verður að Austurbrún 4.
f dag verða gefin saman í
hjónaband frk. Selma Gunnars
dóttir píanókennari og Sigvaldi
Ragnarsson hárskeri.
Þann 2S. íiiorz voru gefin sam
an í Köpings-kirkju í Svíþjóð
Ingunn Benediktsdóttir farm.
kand. Reykjavík og Gunnar
Franzén, verkfræðingur. Heimili
þeirra er Arbetarvatan 27. Stock
holm.
- í
hjónauanu í Hallgrímskirkju,
ungfrú Margrét Bryndís Árna-
dóttir og Emil Adolfsson. Heim-
'ria er á Freyjugötu 25c.
Iðiiaðarmann
vantar húsnæði (1 herb. og
eldhús) nú þegar eða um
næstu mánaðamót. Helzt í
Vesturbænum. Uppl. í síma
13609.
Skrúðgarðaeigendur
Úðun trjár.na er að hefjast.
Pantið í sima 35077. S avar
F. Kjærnested.
Ný 5 herb. íbúð
til leigu í Hafnarfirði, leigð
með hita, fyrirframgreiðsla
æskileg. Tilb. sendist blað
inu fyrir mánudagskvöld
merkt „Einbýli — lc.86“
íbúð til leigu
3ja herb. í 3—4 mán. Uppl.
að Fögrukinn 20. Hafnar-
firði eftir kl. 7 1 .cvöld.
Sniðkennsla
Pláss laus á dagnámskeið
sem tekur aðeins 8 daga
(40 kennslustundir) Sigrú i
Á. Sigurðardóttir Drápu-
hlíð 48. Sími 19178.
Sumarbústaður til sölu
í strætisvagnaleið. Raf-
magn og miðstöð. Uppl. í
síma 16828.
Garðeigendur
Tek að mér lóðarstandsetn
ingar svo sem girðingar,
gangstéttir, grasfleti, bíla-
stæðib.fl. Leitið tilboða^ —
Sími 22639.
tbúð óskast
Reglusöm hjón með 1 barn
óska eftir 2—3 herb. íbúð
strax. Sími 18907.
Hestamannafél. Hörður
rekur tamningastöð í sum-
ar ef næ.g þátttaka fæst. —
Lysthafendur tali við
stjórnina strax.
Vantar tvo vana menn
á bát sem er á handfæra-
veiðum. Uppl. í síma 34234
frá 12—1 hádegi.
Bararúm til sölu
Stórt barnarúm til sölu,
með dýnu á Gunnarsbraut
32, efri hæð.
Hafnarfjörður
Rúmgott herb. óskast til
leigu strax. Uppl. í síma
50362 í dag.
Rauðamöl
Seljum mjög góða rauða-
möl. Ennfremur vikurgjall,
gróft og fínt. Sími 50447.
Ógangfært
No:man mótorhjól módel
1946 til s&lu mjög ódýrt að
Bergstaðastræti 56 kl. 5—
7 í dag.
Maðkur
1. fl. maðkur er til sölu á
Álfaskeiði 57, Hafnarfirði,
sími 50427.
Vauxhall eigendur
pumpa (vinstramegin) og
kistulok óskast til kaups.
Uppl. í síma 1699 Keflavík.
A T H U G I Ð
að borið saman '5 útbreiðslu
er langtum ódýrara að auglýsa
í Morgunblaðinu, en öðrum
blöðum. —
Keflavík
Sel smurt brauð og snittur.
Tekið á móti pöntunum í
síma 1461. Erla Sigurjóns-
dóttir.
Þjóðdansafélag Reykjavíkur
heldur skemmtifund í Fram-
sóknarhúsinu (efri sal) laug-
ardaginn 27. maí kl. 8,30.
Allir sem æft hafa hjá félag-
inu s.l. ár og styrktarmeð-
limir eru velkomnir.
NEFNDIN.
Skrifsfofur vorar
«* *
eru fluttar að Skúlatúni 2-
Vatnsveita Reykjavíkur
Til leigu
Neðarlega við Laugaveg Iagerpláss og skrifstofuher-
bergi ca. 150 ferm. Tilboð leggist inn til blaðsins
fyrir 29/5 merkt: „L /48 — 104“.
Skrifsfofustúlka
Óskum að ráða nú þegar stúlku til símavörzlu og
almennra skrifstofustarfa. Verzlunarskólamenntun
æskileg. Tilboð er greini aldur og menntun sendist
Mbl. fyrir þriðjudagskvöld merkt: „Ábyggileg —
1970“.