Morgunblaðið - 27.05.1961, Síða 24
Vettvangur
Sjá bls 13.
ÍÞRÓTTIR
Sjá bls. 22.
115. tbl. — Laugardagur 27. maí 1961
Síökkvilidid treystir
á þegnskap manna
UNDANFARNA daga hefiur nokk
uð borið á því að bílaeigendur
hafi keypt benziín á tunnur og
önnur ílát, af ótta við verkfall.
f gærdag átti Mbl. stutt símtal
við Jón Sigurðsson slökkviliðs-
stjóra. Hann kvaðst hafa birt
bæjarbúum tilkynningu þess efn-
is, að með öllu sé óheimilt að
geyma benzín í bænum. —
Slökkviliðið treystir á þegnskap
manna í þessu efni. — Við höf-
um gert það fyrr undir svipuð-
um eða sömu kringumstæðum
og það hefur ekki brugðizt. Menn
hafa yfirleitt geymt slíkar benzín
birgðir utan við bæinn, þar sem
ekki stafar hætta af og slikt
verður að sjállfsögðu að tryggja.
Ef við verðum varir við að menn
geymi benzíntunnur heima við
hús sín eða í þeim munnim við
grípa til gagnráðstafana. Benzín-
afgreiðslumenn hjá olíufélögun-
um hafa bent mönnum á bann-
ákvæðin varðandi geymslu á
benzíni.
Árásarmaður dæmd
ur í 4 ára fangelsi
í GÆR var kveðinn upp í saka-
dómi Reykjavíkur af Þórði
Björnssyni dómur í máli, sem
ákænuvaldið hefir höfðað gegn
Eiríki Gíslasyni, bifreiðarstjóra,
Laugarnesvegi 100, hér í bæ, fyr-
ir skírlífisbrot samkvæmt XXII.
í Griiidavík
Vexfir í Danmörku
hækkaðir í kjölfar
verkfallanna
ÁRSHÁTÍÐ Sjálfstæðisfélags
Grindavíkur verður í kvöld kl.
9. Ræðu flytur Matthías Á.
Mathiesen alþm. Gunnar Eyjólfs
son og Bessi Bjarnason skemmta
og dansinum stjómar Árni
Norðfjörð.
Allt Sjálfstæðisfólk er hvatt
til að fjölmenna og taka með
sér gesti.
Þessi mynd var tekin á miðv.dagskv. af hreiðrinu er getið var
í blaðinu á fimmtud., og fór i ferðalag innan í vírrúllu á bíl-
palli frá Gróðrarstöð Skógræktarfél. Reykjavíkur í Fossvogi
niður á BSÍ. í gær hafðist móðirin vel við hjá ungunum í
rúllunni. Ungarnir eru að verða fleygir, svo heimilisins verð-
ur brátt ekki þörf lengur. Hér sjáum við bílstjórann, sem ók
heimili þrastanna, Jónas Ólafsson, en í rúllunni til hægri er
hreiðrið. (Ljósm. Mbl.: Ól. K. M.)
kafla almennra hegningarlaga
nr. 19, 1940.
Sakadómur taldi upplýst að
aðfaranótt sunnudagsins 9. októ-
ber sl. réðist ákærði á konu, sem
var á gangi á Njálsgötu, hér f
bænum. Greiddi hann konunni
tvívegis höfuðhögg, fleygði henni
inn á húsalóð og tók þar fyrir
kverkar henni með þeim afleið-
ingum að hún missti meðvitund.
Hann hafði ennfremur flett hana
klæðum þegar komið var að
þeim.
Ósannað þótti að ákærði hefði
nauðgað konunni og var hann
því sýknaður af slíkri ákæru en
hins vegar var hann fundinn
sekur um nauðgunartilraun.
Við ákvörðun refsingar hans
var bæði tekið tillit til hinnar
hættulegu likamsárásar og fyrri
hegningarlagabrota hans.
Hann var dæmdur í fangelsi í
4 ár, en gæzluvárðhaldsvist
hans frá 9. október til 5. nóvem-
ber sl. kemur til frádráttar refs-
ingunni.
Ennfremur var honum gert að
greiða konunni, sem hann réðst
á, samtals kr. 63.259,00 í bætur
svo og greiða allan kostnað sak-
arinnar, þar á meðal málflutnings
laun skipaðs sækjanda og verj-
anda í málinu.
HINN 20. maí sl. hækkaði
danski þjóðbankinn forvexti
sína um 1%, úr 5%% í 6Mt%.
Almennir bankaforvextir, sem
hafa verið 7%%, munu því
hækka í allt að 8Vfe%.
Þjóðbankinn gaf þær skýring-
ar á hækkuninni, að gjaldeyr-
isstaða landsins hefði farið
versnandi að undanförnu og að
V. R. ræðir kjara-
samninga í dag
VERZLUNAR- og skrifstofufólk
í Verzlunarmannafélagi Reykja-
vikur, heldur almennan fund í
dag kl. 2 í Iðnó. Verða þar tekn-
ir til umræðu kjarasamningar fé-
lagsmanna. Stjórn félagsins og
samninganefnd hafa haft þessi
mál með höndum undanfarið og
mun á fundinum i dag verða gerð
ítarleg grein fyrir tiliögum
stjórnar og samninganefndar
varðandi tillögu að nýjum samn-
ingum fyrir íélaga i VR.
hún myndi versna enn vegna
þeirra launahækkana, sem verk-
föllin höfðu í för með sér. —
Mætti búast við enn frekari
þenslu á vinnumarkaðnum, en
verið hefði, og væri vaxta-
hækkuninni ætlað að draga úr
slíkri þróun, sem gæti haft al-
varlegar afleiðingar.
I dönskum blöðum hefur ver-
ið bent á, að þrátt fyrir hækk-
unina munu bankarnir ekki
þurfa að liggja með fé. Bank-
arnir hafi í rauninni haldið
uppi lánsfjárskömmtun og henni
muni áreiðanlega þurfa að halda
áfram, þó að eitthvað dragi úr
ásókninni í lán.
Talið er að vaxtahækkunin
muni hafa einna mest áhrif í
byggingariðnaðinum, en þar
sem byggingarframkvæmdir
hafa að undanförnu takmarkazt
vegna skorts á vinnuafli, er
talið að ekki dragi neitt að
ráði úr slíkum framkvæmdum.
En vaxtahækkunin hefur ekki
aðeins þau áhrif að draga úr
þenslunni með því að hækka
kostnaðinn við lántökur, heldur
munu innlánsvextir einnig
hækka, og er því gert ráð fyrir
auknum sparnaði. Með því dreg
ur úr almennri eyðslu og meira
fé verður fyrir hendi til nauð-
synlegra útlána.
11 sendiherrar koma frá
Osló er kóngurinn kemur
f SAMBANDI við komu Olavs
Noregskonungs, munu sendiherr
ar fjölmargra ríkja á íslandi, sem
aðsetur hafa í Osló, koma hingað
til lands. Þeir búa allir á Hótel
Borg, sem nú er nánast sem nýtt
hótel, því allt hefur það verið
lagfært og málað, hátt og lágt.
Segja má að allt hótelið sé full
skipað gestum er koma í sam-
Fundur
sfóð yfir
LAUST fyrir miðnætti stóð yf-
ir sáttafundur í deilu verka-
mannafélaganna hér í Reykja-
vik og Hafnarfirði við vinnu-
veitendur. Ekki hafði þá dregið
til neinna tíðinda á fundinum,
en búizt var við að sáttasemj-
ari í deilunni mundi halda fundi
áfram eitthvað fram yfir mið-
nættið.
bandi við heimsókn hins norska
þjóðhöfðingja. Hið sérstaka föru
neyti konungs, sem kemur með
honum á konungssnekkjunni,
Norge, býr á Hótel Borg, meðan á
heimsókninni stendur. í því
verða Grönvol, sem er konung-
legur marskálkur, þá er yfir-
aðjutant Lundesgard, sem er of-
ursti að tign og loks er Arne
Haugh sem er aðjutant konungs,
en hann er majór að tign.
Sendiherrar þeir sem hingað
koma frá Osló í sambandi við
konungskomuna verða eigi færri
en 11 og verða það sendiherrar
Portugal, sendiherra Finnlands,
sendiherra Belgíu, sendiherra
Argentínu, kanadiski sendiherr-
an, sendiherra Sviss Og Spánar,
svo og sendiherra Brazilíu og
sendiráðunautur Ítalíu Og sendi-
herra Tyrklands. Þá verður hinn
nýskipaði sendiherra Tékkósló-
vakíu hér, um kyrrt fram yfir
konungsheimsóknina.
Það er langt síðan að okkur
bárust herbergispantanir í sam-
bandi við konungsheimsóknina,
sagði Jón Magnússon skrifstofu-
stjóri Hótel Borgar, og það má
heita að hér sé lokið öilum nauð-
synlegum undirbúningi að komu
gestanna og annars er að Hótel
Borg snýr varðandi konungs-
komuna.
— Og matseðilinn er ákveðinn
í veizlunni miklu fyrir Noregs-
konung?
— Já sagði Jón. En honum
verður að sjálfsögðu að halda
leyndum, unz veizlan verður
haldin.
Miklar annir
MIKLAR annir hafa verið í hrað-
frystihúsi ísbjarnarins undan-
farna daga. Hefur verið unnið
þar frá því eldsnemma á morgn-
anna og fram undir miðnætti.
Hefur verkafólkið unnið úr afla
togara, sem verið hafa á heima-
miðum og komið með mjög góð-
an þorsk, upsa og karfa fyrir
Ameríku og Evrópumarkað. Und
anfarið hafa verið í vinnu hjá
ísbirninum um 170 manns.