Morgunblaðið - 04.06.1961, Side 20
20
MORCVNBLAÐIÐ
Sunnudagur 4. júní 1961
Mary Howard:
Lygahúsið
->16
(Skdldsaga)
— Eg held, að allt sé nú tilbú-
ið sagði Stephanie. — Manstu
eftir nokk.ru, sem er ógert?
— Nei, ég býst ekki við J>ví.
Hefur Claude Fauré nokkuð
nefnt við þig, hvort hann ætlar
að koma í kvöld?
— Ég spurði hann nú ekkert
um það, en venjulega kemur
hann. Stephanie varð hugsað til
Sally og bætti við í einhverju
hugsunarleysi: — Ég vona að
hann komi. Ég þarf að tala við
hann.
Karólína leit við og brosti sínu
sætasta brosi.
— Til hvers þarftu þess? Ertu
ástfangin af honum?
— Nei svaraði Stepha^íe, —
en stúlka, sem ég þekki er það.
Karólína rak upp háðslega
hláturhviðu. — Nú, það er einn
sigurinn hjá honum í viðbót!
Ætlar hún kannske að hlaupast
r — Eg hef verið í Evrópu, og
áður en ég lagði af stað sam-
þykkti ég að hefja auglýsingaher
ferð . . . En ég samþykkti aldrei
á brott með honum? Hún horfði
fast á Stevie og skelfingarsvipur
inn, sem á hana kom_ varð til
þess, að hún gerði sér ofurlítinn
hroll. — Góða mín, þetta gera
þær allar. Claude er gamall í
hettunni á þessu sviði. Hann ger
ir stúlkunni áreiðanlega engin
vonbrigði.
Karólína horfði á fagra, grann
vaxna stúlkuna, með athygli. Svo
að Claude var þá góður við hana..
Claude, sem hafði verið þræll
hennar sjálfrax allan þenna
langa tíma.
—Jæja, sagði Stephanie, —
ef þú mannst ekki eftir neinu,
sem er ógert held ég að ég verði
að fara niður.
Hún gekk svo niður og gegn
um allar blómskreyttu stofurn-
ar, og aðgætti vandlega hvert
smáatriði, til þess að sannfærast
um, að allt væri í lagi.
Mínútumar drögnuðust áfram,
að koma auglýsingunu.m fyrir í
fallegu landslagi. Eg hef lesið
greinar yðar og skoðað Ijósmynd
irnar. Ef lýsingar yðar eru réttar
en loks kom að því, að heyrðist í
fyrsta bílnum úti fyrir, svo heyrð
ist skvaldrið í gestunum, og hin-
ir fyrstu þeirra komu inn um
dyrnar, skrautbúnar konur og
karlar.. og þá var einmitt stund-
in komin fyrir Karólínu að birt-
ast í allri sinni dýrð, og taka
móti gestum sínum.
Stephanie greip andann á lofti.
Svona glæsilega hafði hún aldrei
séð frænku sína fyrr. I>ar hjálp-
aðist allt að sjálfrátt sem ósjáíf-
rátt. Hún stanzaði í skugganum
af hurðinni í garðdyrunum og
horfði á Karólínu ganga um með
al gestanna. og meðan hún var
að horfa, kom Bill inn.
Karólína leit yfir til hans; það
var langt og brosandi augnatillit,
líkast því sem þau ættu eitt-
hvert leyndarmál saman. Hún yf
irgaf manninn, sem hún hafði
verið að tala við og gekk til
Bills, eins og hún drægist til
hans á einhverjum ósýnilegum
þræði. Það mátti vera augljóst
öllum. sem þarna voru saman-
komnir að hann var eini maður-
inn þarna, sem skipti hana
nokkru máli. Hún stakk hendinni
undir arm hans og dró hann með
sér áfram, og kynnti hann síðan
hverjum gestinum af öðrum, bros
andi og sigrihrósandi.
Maður sem stóð skammt frá
Stephanie, veik sér að öðrum er
stóð hjá honum og sagði: — Nú
þarna er sá nýjasti hjá Karólínu!
Stephanie sneri sér undan eins
og £ blindni og gekk innan um
gestahópinn með sviplaust kurt-
eisisbros á andlitinu.
Bill,- sem var hávaxinn og sól-
brenndur, var eini maðurinn
þarna, sem ekki 'var í samkvæmis
fötum. Karólína sagði við hann:
— Ég gleymdi alveg að segja þér
að búa þig uppá, en hann svar-
aði með letilegu brosi: — Það
hefði engu breytt. Ég flyt ekki
nein spariföt með mér á mótor-
hjóli.
— Vitanlega. En hvað ég gat
verið vitlaus, svaraði hún hlæj-
andi, og sleppti ekki hendinni af
armi hans, en hjartað barðist á-
kaft. Það var langt síðan hún
hafði alið nokkrar þessu líkar til
finningar gagnvart nokkrum karl
manni. En hann var bara svo ó-
líkur öllum öðrum, sem hún hafði
kynnzt.
Hún fann. að vöðvinn undir
hendi hennar harðnaði. Bill hafði
komið auga á Stephanie. Hann
horfði á hana, granna og hvít-
klædda og Stephanie leit til hans
og augu þeirra mættust sem
snöggvast og hún brosti til hans,
eins og í laumi.
—Við skulum fara út fyrir,
flýtti Karólína sér að segja. —
Það er svo heitt hérna inni. Um
leið og þau fóru fram hjá Step-
hanie kallaði hún til hennar glað
lega. — Æ, góða Stevie, reyndu
að koma dansinum af stað. . hann
Emil hérna þráir það heitast að
fá að dansa við þig.. er það ekki
Emil? Hún sneri sér að ungum
gljástroknum manni, sem svar-
aði augnatilliti hennar játandi.
Markús, þá er þetta hræðilegt. En
mig langar til að sjá þetta með
eigin augum. Gætuð þér komið
mér á einhvern auglýsingastað
— Ég æski mér einskis fremur,
sagði.hann og tók arm Stephanie.
Karólína hálfdró Bill út á garð
þrepið. Bertram bar þeim vín og
Bill sat þögull hjá henni og sneri
glasinu milli fingranna, en augu
hans fylgdust með hverri hreyf-
ingu Stephanie.
— Þú ert bjáni að vera að
hugsa um hana, sagði Karólína
snögglega. — Veiztu það ekki
að hún er alveg snarvitlaus í hon
um Fauré. Hún hækkaði röddina.
— Viltu ekki líta á hana núna?
Fauré var rétt í þessu að koma
inn. Hann stóð þarna hár, vel-
sældarlegur og laglegur. Bill sá,
að lifnaði yfir andliti Stephanie,
eins og hún yrði fegin komu hans
er hún heilsaði honum yfir öxl-
ina á dansherranum sínum. Og
letisvipurinn hvarf af andliti
Faurés. Hann varð svo einkenni
lega góðmannlegur, allt í einu.
Hann brosti, snerti bera öxlina á
henni með fingrinum. e'n um leið
kom hann auga á Karólínu og
gekk áleiðis til hennar.
— Claude, sagði Karólína og
rétti honum höndina. — Það var
gott, að þú skyldir koma. Stevie
var svo hrædd um, að þú ætlaðir
að bregðast okkur. ...
— Nú var hún það. Fauré
skildi samstundis, hvað undir
þessu bjó hjá Karólínu. — Því
trúi ég varla. Líklega er ég sein-
asti maðurinn, sem Stephanie
myndi gera sér rellu út af.
—Þekkirðu Bill Powell?
Mennirnir kinnkuðu kolli stutt
lega, hvor til annars.
— Þú verður að afsaka mig,
Karó, að ég kem bara til þess að
láta þig vita, að ég get ekki stanz
að neitt. Ég ætla upp í fjall yfir
helgina.
Karólína hló. — Nú, þú ætlar
í þenna fræga veiðikofa þinn
uppi í fjaíli. Ég mætti víst ekki
vera svo nærgöngul að spyrja
hvort þú ætlir þangað einn þíns
liðs?
— Og ég yrði aldrei svo nær-
göngull að segja þér það, svaraði
hann brosandi. — Segðu Stevie,
að við tölum saman seinna.
Um leið og hann hvarf
smeygði Stephanie sér gegn um
mannþröngina á dansgólfinu.
Hún sá Bill og Karólínu sitja
þarna saman, hikaði þá ofurlítið
við en gekk síðan til þeirra.
—Er Claude farinn? spurði
hún.
— Þú rétt misstir af honum,
flýtti Karólína sér að segja. — En
hann gekk gegn um garðinn, svo
að þú gætir ef til vill náð í hann
ennþá.
Stephanie flýtti sér út að þrep-
unum niður í garðinn, en heyrði
í sama vetfangi drunurnar í bíl
Faurés, sem hún kannaðist svo
vel við. — Hann er farinn. Og ég
sem þurfti endilega að tala við
hann, sagði hún, en forðaðist að
líta á Bill.
Hún fann í öllum taugum sín-
um hönd Karólínu á armi hans.
En svo stóð hann allt í einu upp
og gekk til hennar.
— Stevie, ég verð að tala við
þig. Hún leit á hann, eins og í
einhverri óvissu. og hann hrærð-
ist er hann sá eymdarsvipinn á
andliti hennar. —Hvað er að,
Stevie? Hann leit kring um sig
óþolinmóðlega og varð var við,
að augu Karólínu hvíldu á þeim.
Allt í einu var þolinmæðinni
lokið hjá Stevie. Þetta eiganda-
augnaráð Karólínu og það, hve
fúslega Bill hafði farið með
hér í nágrenninu?
— Með ánægju frú Woodall . .
Við getum faria í dag ef þér
viljið!
henni.. já, hún hafði réttilega
vantreyst sínum eigin tilfinning
um.
— Við töluðum saman í gær-
kvöldi, sagði hún.
anlltvarpiö.
Sunnuðagur 4. júnf.
8:30 „Ræs": Lífleg sjómannalög leik
in og sungin.
9:00 Fréttir.
9:10 Morguntónleikar: — (10:10 Ve5
urfregnir).
a) „Ládautt haf og leiði gott'*
(Meeresstille und gluckliche
Fahrt), forleikur op. 27 eftir
Mendelssohn (Fílharmoníu-
sveit Berlínar leikur; Fritz
Lehmann stjórnar).
b) Þrjár rapsódíur eftir Brahms
(Victor Schiöler leikur á
píanó).
c) Gianni Poggi syngur ítölslc
lög.
d) Píanókonsert nr. 5 f Es-dúr
op. 73 (Keisarakonsertinn)
eftir Beethoven (Vladimir
Horowitz og RCA-Victof
hljómsveitin leika: Fritz Hein
er stjórnar).
11:00 Messa í Neskirkju ÍPrestur: Sr.
Jón Thorarensen. Organleikari:
Jón Isleifsson).
12:15 Hádegisútvarp.
14:00 Frá útisamkomu sjómannr dags*
ins við Austurvöll:
a) Minnzt drukknaðra sjómanna
Biskup íslands, herra Sigur-
bjöm Einarsson, talar; Guð
mundur Jónsson syngur).
b) Ávörp (Emil Jónsson sjávar
útvegamála Vðherra, SverrrMT
Júlíusson formaður LlTJ, full
trúi útgerðarmanna, og Karl
Magnússon skipstjóri, full-
trúi sjómanna).
c) Afhending verðlauna og heið
ursmerkja (Einar Thoroddsen
formaður sjómannadagsráðs).
Lúðrasveit Reykjavíkur leik-
ur.
15:30 Sunnudagslögin. — (16:30 Veður
fregnir).
17:30 Barnatími (Skeggi Asbjarnarson
kennari):
a) „Velkominn Gullfoss, gnoðin
unga“: Þórun Elfa Magnús-
dóttir flytur frásöguþátt með
Ijóðum og söngvum.
b) Eyjólfur Hannesson úr Borg
arfirði, eystra segir sögur frá
löngu liðnum árum.
18:30 Miðaftantónleikar: '
Létt sjómannalög, innlend og er«
lend.
18:55 Tilkynningar — 19:20 Veðurfr,
19:30 Fréttir.
20:00 Sjómannavaka: Dagskrá tekin
saman af Jónasi Guðmundssyni
sjóliðsforingja.
a) Hrafnista: Einar Thoroddsen
formaður sjómannadagsráðs
segir frá heimilinu og fram-*
tfðarhorfum.
b) Sjómannskona segir frá: Við
tal við Önnu Pálsdóttur frá
Ananaustum.
c) Sigling fornmanna: Sigurður
Guðjónsson skipstjóri segir
frá.
d) Sitt af hverju um sjó-
mennsku: Gils Guðmundsson
flytur viðtal við Árna Gunn
laugsson skipstjóra.
e) Tekið í blökkina: Jónas Arna
son les frásöguþátt.
f) Frá liðinni tíð: Viðtal við
Eirík Kristófersson skipherra.
g) Frásöguþáttur frá skútuöld:
Viðtal við vistmann á Hrafn
istu.
h) „Sjórnarróður á Hakanum",
gamanþáttur í flutningi Karls
Guðmundssonar.
22:00 Fréttir og veðurfregnir. ’T
22:05 Danslög og kveðjulög skipshafna,
þ.á.m. leikur hljómsveit Svavars
Gests sjómannalög. Söngvarar;
Hagnar Bjarnason og Sigurður
Ölafsson. — Kristín Anna Þórar-
insdóttir stjórnar danslagaflutn
ingnum.
01:00 Dagskrárlok.
Mánudagur 5. júni.
08:00 Morgunútvarp (Bæn: Séra Jón
Þorvarðsson. — 8:05 Tónleikar.
— 8:30 Fréttir .— 8:35 Tónleikar
30:10 Veðurfregnir).
12:00 Hádegisútvarp (Tónleikar. -•
12:25 Fréttir og tilk.).
12:55 „Við vinnuna**: Tónleikar.
15:00 Miðdegisútvarp (Fréttir. — 15:05
Tónleikar. — 16:00 Fréttir og tilk
16:05 Tónleikar. — 16:30 Veður
fregnir).
18:30 Tónleikar: Lög ut* kvikmyndum,
18:55 Tilkynningar. — 19:20 Veðurfr.
19:30 Fréttir.
20:00 Um daginn og veginn (Guðnl
Arnason húsasmíðameistari).
20 :20 Einsöngur: María Markan syngm
ur.
20:40 Frásaga: Björstjerne Bjömson og
íslenzki sveitapilturinn (Sigur*
veig Guðmundsdóttir).
21:05 Frá tónlistarhátíðinni 1 Búda«
pest 1960:
Fiðlukonsert op. posth. eftir
Béla Bartók (Endre Gertler og
Ríkissinfóníuhljómsveitin í Búda
pest leika; András Korodi stj.),
21:30 Útvarpssagan: „Vítahringur'* eft
ir Sigurd Hoel; VIII. (Arnheið-
ur Sigurðardóttir).
22:00 Fréttir og veðurfregnir.
22:10 Búnaðarþáttur: Sóknarleiðin —•
(Kristófer Grímsson ráðunaut-
ur).
22:20 Kammertónlist:
Oktett 1 F-dúr op. 166 eftip
Schubert (Vínarokt«»+iinn
23:10 Dagskrárlok.
m
Ke0
l***v*»**»*.**V»V/"»**V
— Allar vinkonur þínar eru bæði griftar og búnar að
skilja — og þú ert ekki einu sinni trúlofuð. .jy
VVE BEEN W
EUBOPE, AND I APPROVED
THIS CAMPAIGN BEFORE l
UEFT...BUT I DIDN'T AGREE
TO PUTTING BILUBOARDS
IN BEAUTY SPOTS/
a
r
á;
ú
6
6LAD TO, MRS.
WOODALL.-WE'LL
OOTODAY. IF
YOU LIKE/