Morgunblaðið - 07.06.1961, Page 1
20 síður
48. árgangur
124. tbl. — Miðvikudagur 7. júní 1961
Prentsmiðja Morgunblaðsins
ráðabirgðaiög tryggja millilandaflug
Reksírargrundvelli og
iíi flugfélaganna var
stefnt í voða
SAMKVÆMT tillögu ríkisstjórnarinnar gaf forseti íslands
í gær út bráðabirgðalög um bann gegn stöðvun eða hindrun
millilandaflugs íslenzkra flugvéla. Kveða lögin svo á, að
óheimilt sé að stöðva eða hindra á nokkurn hátt afgreiðslu
eldsneytis til þeirra flugvéla íslenzku flugfélaganna, sem
eru í áætlunar- eða leiguflugi milli landa. Þá er einnig
ólieimilt að stöðva eða torvelda aðra starfsemi viðkomandi
millilandaflugi, á íslenzkum flugvöllum eða á annan hátt.
1 athugasemdum við bráðabirgðalögin kemur fram, að
þau eru sett til þess að afstýra því, að rekstrargrundvelli
félaganna verði stefnt í voða, auk þess óbætanlega álits-
hnekkis, sem af langvarandi stöðvun hlytist fyrir flugfé-
lögin. —
Lögin sjálf og athugasemdirnar við þau birtast hér á
eftir:
FORSETI ÍSEANDS
gjörir kunnugt: Ríkisstjórnin
hefur tjáð naér, að komið hafi
til stöðvunar á starfsemi þeirra
tveggja íslenzku flugfélaga, sem
halda uppi reglubundnu áætlun
arflugi á erlendum flugleiðum,
vegna stöðvunar á benzínaf-
greiðslu og annarri vinnu hjá
félögum þessum, sakir verk-
falla þeirra, sem nú eru hafin.
Verði framhald á þessu og
flugfélögin þannig neydd til að
íella niður alla starfsemi sína,
jafnvel um langan tíma, myndi
það valda þeim stórkostlegu
tjóni og væri rekstrargrundvelli
þeirra stefnt í beinan voða og
framtíðarstarfsemi þeirra teflt
í mikla tvísýnu.
Stöðvun á millilandaflugi
hinna íslenzku flugfélaga, sem
halda uppi umfangsmiklum
flutningum farþega á erlendum
flugleiðum, myndi nú er þús-
undum erlendra ferðamanna
hefur verið heitið fari með
flugvélum félaga þessara, verða
félögunum óbætanlegur álits-
hnekkir og íslenzku þjóðinni
allri til vansæmdar og myndi
taka langan tíma að endur-
heimta traust það á alþjóða-
vettvangi, sem íslenzk flugfé-
lög hafa aflað sér, með löngu
og happadrjúgu starfi.
Því telur ríkisstjórnin, að
brýna nauðsyn beri til að koma
í veg fyrir stöðvun áætlunar-
flugs í millilandaflugi á vegum
íslenzku flugfélaganna, með því
að tryggja flugvélum, sem í
slíkum ferðum eru, hindrunar-
lausa umferð og afgreiðslu á
flugvöllum hér á landi.
Fyrir því eru hér með sett
bráðabirgðalög, samkvæmt 28.
gr. stjórnarskrárinnar, á þessa
leið:
1. gr.
Óheimilt skal að stöðva eða
hindra á nokkurn hátt af-
greiðslu eldsneytis til þeirra
flugvéla íslenzku flugfélaganna,
sem eru í áætlunar- eða leigu-
flugi milli landa, svo skal og
óheimilt að stöðva eða torvelda
aðra starfsemi viðkomandi milli
landaflugi, á íslenzkum flugvöll
um eða á annan hátt.
2. gr.
Fara skal með mál út af hrot
um gegn lögum þessum að
hætti opinberra mála og varða
brot sektum, enda liggi ekki
þyngri refsing við, samkvæmt
öðrum lögum.
3. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Gjört á Akureyri, 6. júní 1961.
Ásg. Ásgeirsson
(L. S.)
Furtseva, Gylfi 1». Gíslason og kona hans leggja af stað til Reykjavíkur.
Furtseva kom í gærkveldi
Ingólfur Jónsson.
FLUGVÉL Furtsevu, mennta
málaráðherra Sovétríkjanna,
kom upp að Flugvallarhótel-
inu á Keflavíkurflugvelli kl.
7:30 í gærkvöldi. Þá voru þar
fyrir til að taka á móti
henni Gylfi Þ. Gíslason,
menntamálaráðherra og kona
hans, auk Alexandrovs sendi
herra Sovétríkjanna og
konu hans og annarra starfs-
manna sendiráðsins, ráðu-
neytisstjóra í menntamála-
ráðuneytinu, lögreglustjóra
Keflavíkurflugvallar o. fl.
Frjálsleg í fasi
Jafnskjótt og rússneska þotan
hafði stöðvazt fyrir framan
Flugvallarhótelið, gekk Furt-
seva út úr flugvélinni ásamt
dóttur sinni og, að því er sagt
var, Lunkov, yfirmanni Norður- i konu hans og heilsaði þeim. —
landadeildar rússneska utan- Hún var mjög glaðleg í fasi og
ríkisráðuneytisins. — Furtseva virtist leika á als oddi, en átti
gekk þegar til Gylfa Þ. Gísla- fullt í fangi með að hemja
sonar ,menntamálaráðherra, og | Frh. á bls. 2
„Við vitum nú
hvar við stöndum"
segir Keimedy Bandaríkjaforseti eftir
viðræðurnar við Krúsjeff
Washington, 6. júní.
(NTB-Reuter)
KENNEDY, Bandaríkjaforseti,
hélt í kvöld hálfrar klukku-
stundar ræðu, sem var sjón-
varpað og útvarpað um Banda-
ríkin. Þar gerði hann grein
' fyrir viðræðum sínum við Krús-
Af hverju lækkar SÍS ekki vöruverð?
Hafa ldn a 7°]o voxtum
FULLLJÓST er nú orðið,
að tilgangur Framsóknar-
leiðtoganna í SÍS með 2ja
mánaða „samkomulaginu“
á Húsavík og 4ra mánaða
„samningnum“ á Akur-
eyri, er sá að reyna að
koma af stað nýrri verð-
bólguskriðu, svo að skulda
súpu Sambandsins verði
og Keimta auk þess
velt yfir á almenning. —
1 ritstjórnargrein, sem
Tíminn birti í gær um
„samninga“ á Akureyri
viðurkennir blaðið þetta
raunar með kröfu til ríkis
stjórnarinnar um vaxta-
lækkun vegna kauphækk-
ananna. Þar segir:
„Það er brýn skylda
t»W
verðbólguhagnað
ríkisstjórnarinnar, sem val
ið hefur kauphækkunar-
leiðina, að gera nú ráð-
stafanir, sem létta at-
vinnuvegunum þær byrð-
ar, sem henni fylgja.
Þetta getur ríkisstjórnin
gert með lækkun vaxta,
rýmkun lánsfjárhafta og
öðrum hliðstæðum aðgerð
um“.
Athyglisvert er, að
blaðið reynir að kenna
ríkisstjórninni um að hafa
valið kauphækkunarleið-
ina. Vita þó allir, að ríkis-
stjórnin hefur lagt megin-
kapp á að halda jafn-
vægi í efnahagslífinu og
hefur Tímanum venjulega
Frh. á bls. 19
jeff, forsætisráðherra, de Gaulle,
Frakklandsforseta, og Macmill-
an, forsætisráðherra Bretlands.
Kennedy kvað viðræður sínar
við Krúsjeff hafa Ieitt skýrt í
Ijós, að þeir hefðu gjörólíkan
skilning á því, hvar heimurinn
stæði nú og á hverri leið hann
væri. — En við vitum nú hvar
við stöndum, sagði Kennedy.
Kennedy sagði, að ekki hefði
verið lögð nein brú milli skoð-
ana þeirra Krúsjeffs, en hættan
á misskilningi þeirra í milU
ætti að vera minni eftir en áð-
ur. Hann kvaðst hafa óskað eft-
ir að fullvissa sjálfan sig um,
að Krúsjeff væri ljós' styrkur
og staðfastur vilji Bandaríkj-
anna til að verja frelsið. Hann
sagði, að sýna yrði varkárni í
framtíðinni svo að hagsmunir
Bandaríkjanna og Sovétríkj-
anna rækjust ekki svo harka-
lega á, að styrjöld leiddi af. —
Jafnframt komu þeir leiðtog-
arnir sér s§man um, að ástæðu-
laust væri að kenna hvor öðrum
allar ófarir sem yrðu á hinum
ýmsu stöðum heimsins.
Kennedy kvaðst vona, að ein-
Frh. á bls. 19