Morgunblaðið - 22.06.1961, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 22.06.1961, Qupperneq 10
10 MORGVTSBLAÐÍÐ Fimmtudagur 22. júní 1961 Pltrgiuiilbíalíili atg.: H.f. Arvakur Reykjavík. Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson. Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.) Sigurður Bjarnason frá Vigur. Matthías Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Lesbók: Arni Óla, sími 33045. Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson. Ritstjórn: Aðalotræti 6. Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480. Askriftargjald kr. 45.00 á mánuði innanlands. 1 lausasölu kr. 3.00 eintakiff. RÖDD VERKAMANNS HEYRIST GEGNUM MOLDVIÐRIÐ jlfORGUNBLAÐIÐ birti í 1T1 gær mjög athygilsverða grein eftir verkamann, Björn frá Mannskaðahóli, umvinnu deilurnar. Stingur grein sú mjög í stúf við blekkinga- moldviðri það, sem komm- únistar hafa þyrlað upp í þeim tilgangi að fá verka- menn til að sætta sig við lægri laun en þeim eru boðin. Björn ræðir fyrst umskríls læti þau, sem skipulagður hópur kommúnista heldur uppi á Dagsbrúnarfundum, hindrar málfrelsi og öskrar óprenthæf stóryrði. Síðan segir hann: „Ekki kannast ég við þá, er mest hafa sig fram í slík- um skrílslátum, sem reyk- víska verkamenn. Ég er bú- inn að vinna hér í Reykjavík í 30 ár, lengst af sem verka- maður og með mörgum verka mönnum, en sem betur fer hef ég ekki kynnzt slíkum skríl meðal verkamanna.“ Auðvitað vita allir, að það er hvorki vilji né menning- arstig verkamanna almennt, sem birtist á æsingafundum kommúnista. Hitt er svo ann að mál, að það verður aldrei talið forystumönnum félags- ins til sæmdar að skipuleggja skrílslæti og gefa út í frá þá mynd af félaginu, sem sízt er til þess fallin að vekja samúð eða skilning á þörfum verkamanna. Þá sögn verður líka að segja, eins og hún er, að það er nánast frekleg móðgun við verkamenn að ætla að halda úti verkfalli vikum saman til að knýja fram lægri laun en þeir eru boðin. Baráttan fyr- ir því að 1% renni ekki til verkamanna heldur til ákveð ins sjóðs félagsins er rök- stutt með því, að þannig sé bezt tryggður hagur þeirra, sem við erfiðastar aðstæður búa. Þess vegna eigiaðknýja það fram, að vinnuveitendur greiði beint í þennan sjóð. Nú liggur það fyrir, að verkamenn geta að sjálfsögðu gert samþykkt í félagi sínu um það að greiða þennan hluta launanna sjálfviljugir í þennan sjóð og þó haldið eft- ir 1% greiðslu á eftir- og næturvinnu. Það, sem stjórn- endur Dagsbrúnar því í raun inni segja, þegar þeir hafna þeirri leið en krefjast þess að vinnuveitendur greiði í sjóðinn, er í stuttu máli á þessa leið: Verkamenn eru ekki nægilega þroskaðir til að skilja að þeir þarfnast slíks sjóðs. Þeir hafa ekki þá samúð hver með öðrum, að þeir vilji fórna sem bet- ur mega sín fyrir hina sem hjálpar þurfa. Þess vegna treystum við því ekki að þeir vilji greiða í sjóðinn og vilj- um þess vegna neyða vinnu- veitendur til að greiða hluta launa þeirra þangað. Morgunblaðið telur, að verkamönnum sé lítill greiði gerður með því að lýsa þeim á þennan veg. AUKIN SKRIF- FINNSKA F1 N U M það má vissulega deila, hvort verkamönn- um sé það hagkvæmara að leggja 1% í styrktarsjóð en að fá þessa upphæð greidda sjálfir. Og þegar við bætist að þeim býðst þessi viðbótar greiðsla einnig á eftirvinnu- og næturvinnukaup, þá fer auðvitað ekki milli mála að það tilboð er hagkvæmara en krafa Dagsbrúnar. Um þetta 1% segir Björn frá Mann- skaðahóli: „Okkur verkamönnum þyk ir nóg um skriffinnsku • og milliliðastarfsemi í landi okk ar þó við séum ekki að berj- ast fyrir því að sérhvert verkalýðsfélag reki eigin tryggingarstarfsemi. Verður þá ekki næsta skrefið að þau stofni sérstaka sparisjóði og banka? Er ekki hætt við að það verði fleiri afætur á þess um sjóðum öllum heldur en væri, ef þessi starfsemi félli inn í almanna tryggingarn- ar?“ Þarna er réttilega vakin á því athygli, að heppilegast er að tryggingarstarfsemi sé sem einföldust og nóg sé um skriffinnskuna fyrir í okkar þjóðfélagi. En kommúnistar ætla sé auðvitað að hafa „góða“ skriffinna á launum hjá styrktarsjóðnum. Við efnahagsráðstafanirnar í fyrra voru fjölskyldubætur svo stórauknar, að það sem ef til vill fengist greitt úr styrktarsjóði eins og þeim, sem nú er rætt um, er auð- vitað aðeins örlítið brot af því, sem verkamenn fávegna fjölskyldubóta í almanna- tryggingum. Um fjölskyldu- bæturnar er hins vegar mjög hljótt í Þjóðviljanum, svo að menn gætu helzt haldið að kommúnistar vildu afnema þær, borið saman við þá geysi-áherzlu, sem þeir leggja á hinn svonefnda styrktar- sjóð. Heíllavænleg þróun í Kongó - En Krús]eff gebjast ekki að sliku og býst til að hindra, að SÞ geti * stuðlað að svipaðri þróun annars staðar FÁIR hefðu sennilega gerzt til að spá því fyrir nokkrum mánuðum, að hið unga Kongó ríki — sem þekktast hefir orðið vegna upplausnar þeirr ar og óróa, er þar hefir ríkt — gæti haldið upp á eins árs afmæli sjálfstæðis síns, hinn 30. júní nk. „í ró og næði“ — að mestu laust undan oki hinna blóðugu innanlands- óeirða. Eigi að síður horfir nú svo, að Kongóbúar geti gengið til hátíðar fyrrgreind- an dag með þá þægilegu vissu, að hið versta sé nú afstaðið og að upp af rústum muni rísa sambandsríki und- ir leiðsögn stjórnmálamanna, ÓHÆF OFSTÆK- ISSKRIF IVOMMÚNISTAR eru aug- sjáanlega mjög skelkaðir yfir því að halda nú úti verk falli til að knýja fram lægri laun en boðin eru. Brýzt ótti þeirra út í skefjalausu of- stæki. Þannig er í gær per- sónulega ráð-izt að formanni Vinnuveitendasambands ís- lands og raunar fleiri mönn- um og sagt m. a.: „Þeir krefjast þess að fá að níðast á öldruðum, sjúk- um og slösuðum verkamönn- um.“ Slíkt glórulaust ofstæki dæmir sig auðvitað sjálft og er sízt til þess fallið að bæta hag verkamanna. Vinnuveit- endasambandið hefur auðvit- að nákvæmlega sömu skyld- ur við félaga sína og verka- lýðesamtökin við sína með- limi. Því ber að reyna að tryggja hag atvinnuveganna og það er auðvitað alls ekki þess hlutverk að styrkja sjóði verkalýðsfélaganna, frekar en að það er hlutverk verka- lýðsfélaganna að greiða fjár- muni til Vinnuveitendasam- bandsins. En ofstækisskrifin eiga aug sýnilega að< þjóna því hlut- verki að girða fyrir það sam- starf milli launþega og vinnu veitenda, sem nauðsynlegt er til að raunhæfar kjarabætur fáist. Það mega kommúnist- ar ekki heyra nefnt, því að þá væri verkfallastefna þeirra dæmd úr leik. sem loks hafa viðurkennt, að þeir verða að vinna saman — að hin ýmsu fylki landsins verða að starfa saman, enda þótt þau vilji hafa nokkra sjálfsstjórn. — ★ — Það hefir tekið sinn tíma að viðurkenna þessar staðreyndir — og þó hefir það orðið skjót- ar en margir hefðu þorað að vona fyrir nokkrum mánuðum. Það kostaði mörg mannslíf og ótaldar milljónir 'franka. En eins og fyrr segir verður nú ekki annað séð en „unglingur- inn“ Kongó • sé að komast af versta gelgjuskeiðinu. Það mun a.m.k. valda vonbrigðum, ef annað verður uppi á teningnum á þjóðhátíðardaginn eftir rúma viku. Rétt og rangt — hvað er hvað? Það var svo að segja sam- dóma álit allra, sem á sínum tima skrifuðu blaðagreinar um hið fyrirlitlega morð Patrice Lumumha, fyrsta forsætisráð- herra Kongó, að það níðings- verk myndi enn auka viðsjár og glundroða í ríkinu. En allur gangur mála síðan hefir af- sannað þessa skoðun — hvarf hins reikula og æsingagjarna Lumumba af hinu pólitíska sviði virðist hafa haft jákvæð áhrif á þróunina í Kongó. Arftaki Lumumba, Antoine Gisenga, for sætisráðherra í Orientalfylki, hefir ekki fetað í fótspor hans að neinu verulegu leyti — hvort sem þar um ræður getuleysi, eða það, að Gizenga hafi hreint ekki fýst að gerast annar Lum- umba. Um það skal ekki dæmt. Þá virðist augljósf, að hand- taka Moise Tsjombes, forsætis- ráðherra Katanga-fylkis, hafi emnig stuðlað að því, að æ meiri ró hefur komizt á í Kongó að undanförnu. Auðvitað getur það varla talizt til fyrirmyndar að kveða andstæðing í kútinn með því að handtaka hann með ofbeldi og setja undir lás og slá. En þetta virðist þó vera dæmi um það, að ekki liggur ævinlega ljóst fyrir, hvað er rétt og heillavænlegt fyrir fram tíðarþróunina, og hvað ekki. -Ar Aðstoð Sameinuðu þjóðanna Hér hefir verið bent á tvö atvik — bæði heldur skuggaleg — sem ætla má, að stuðlað hafi að bættu innanlandsástandi í Kongó. — Það er þó varla þetta, sem úrslitum hefir ráðið, held- ur fyrst og fremst hið mikla og víðtæka starf, sem unnið hefir verið í Kongó á vegum Sam- einuðu þjóðanna. Enda ' þótt samtökin hafi verið sökuð um mörg mistök í aðgerðum sínum í Kongó, og sú gagnrýni kunni að vera á rökum reist að ein- hverju leyti, þá getur varla ver- ,ið mikill ágreiningur um það, Krúsjeff — lítið hrifinn af starfi SÞ í Kongó að Kongó væri sennilega enn f hinni sömu úlfakreppu bræðra- víga og sundrungar og fyrr, ef aðgerðir Sameinuðu þjóðanna á mörgum sviðum hefðu ekki komið til. Og SÞ halda áfram aðstoff sinni. Liðssveitir samtakanna hafa stöðugt auga með her hinna ýmsu fylkja í Kongó, og marg- vísleg fjárhagsaðstoð og tækni- hjálp á vegum SÞ er í fullum gangi — og verður haldið á- fram. k Skugginn austræni Yfir þessari heillavænlegu þróun hvílir skuggi, sem varpað er úr austurátt. Ef Krúsjeff, forsætisráðherra Sovétríkjanna, tækist að" koma fram kröfum sínum um breytingar á stjórn Sameinuðu þjóðanna væri senni lega búið með slíkar björgunar- aðgerðir samtakanna, sem nú virðast vera að leiða Kongó á rétta braut. — Vínarfundur þeirra Kennedys og Krúsjeffs og eftirmálar hans hafa leitt í ljós, svo að ekki verður um villzt, að Krúsjeff heldur fast við fyrri kröfur sínar, að Dag Hammar- skjöld verið vikið úr starfi fram kvæmdastjóra SÞ og í staðinn verði komið á þrístjórn — þ. e., að þrír menn, einn frá vestur- veldunum, einn frá kommúnista ríkjunum og einn fulltrúi hlut- lausra ríkja, færi með fram- kvæmdastjórn samtakanna. Hver þessara fulltrúa um sig skal hafa neitunarvald, samkvæmt hinum rússnesku tillögum. Þarf enginn að fara í grafgötur um það, að ef slík þrístjórn hefði verið kom in á, þegar vandræðin í Kongó hófust, hefði ekkert orðið úr að- gerðúm SÞ þar. Þá hefði rúss- neski fulltrúinn vissulega beitt neitunarvaldi sínu, það er deg- inum ljósara. Ef svo fer, sem nú virðist horfa í Kongó, að endir verði á togstreitunni innanlands og rík- ið komist á örugga þróunar- braut, eru það vissulega hin sterkustu rök gegn þristjórnar- brölti Krúsjeffs — en slíkt skipu lag virðist hann nú vilja inn- leiða sem víðast á alþjóðavett- vangi. Það væri þó sjálfsagt barnalegt að ætia, að sovézki einræðjsherrann gefi þessar hug myndir sínar upp á bátinn, þótt hann „missi af strætisvagnin- um“ í Kongó. Er ekkl ólíklegt, að honum sé það nú einmitt efst í huga, að koma í veg fyr- ir, að Sameinuðu þjóðirnar geti víðar hrifsað frá honum líklega bráð.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.