Morgunblaðið - 28.06.1961, Qupperneq 19
Miðvikudagur 28. júní 1961
MORGVNBLAÐ1Ð
19
Flugvélin
benzín í
INNANLANDSFLUG Flugfélags
íslands hófst í gær. Flaug Dougl-
asvél frá Akureyri, um Egilsstaði
tH Keflavíkur og síðan var flog-
ið sömu leið til baka. Var áætlað
að flugvélin yrði á Akureyri síð-
astliðna nótt. Mun hún væntan-
lega halda áfram flugi í dag.
Engin áætlun hefur verið gerð,
heldur flogið þangað sem þörfm
er mest. Flugvélin tekur benzín
á Egilsstöðum og Sauðárkróki,
þar sem félagið á benzíngeyma.
Á Akureyri og á Hornafirði á
það einnig benzíngeyma en þeir
eru tómir.
Fréttaritari Mbl. á Keflavíkur-
flugvelli símaði í gær frásögn
af því er Dakotaflugvélin kom tU
flugvallarins .
Gljáfaxi lenti hér kl. 5,45 í dag.
Hafði Verkalýðs- og sjómanna-
Brœla og
tíðar nóta-
bilanir
SIGLUFIRÐI, 27. júní. í dag er
veiði síldveiðiskipanna talin
svipuð Og í gær. Öll fer síldin nú
til bræðslu vegna þess hve mis-
jöfn hún er og má heita að við
Stöðulaus löndun sé við síldar-
verksmdðj urnar.
í gær og í dag hefur veðrið
heldur óhagstætt veiðiveður. Þó
hafa bátar búnir kraftblökk get
að kastað. Nokkuð hefur síldin
grynnkað á sér og eru flest skip
in í svonefndu Misdýpi upp af
Hornbanka.
Vegna brælunnar hefur verið
mikið um bilanir á nótum og er
uríhið að nótaviðgerðum nótt og
dag á flestum bryggjum í bæn-
um. — Guðjón.
Erindi um nátt-
úruvernd
NÁTTÚRUVERNDARRÁÐ fs-
lands og Hið íslenzka' náttúru-
fræðifélag boða til fundar í há-
tíðasal Háskólans fimmtudaginn
29. júní kl. 20,30.
Þar mun hinn bandaríski nátt-
úruverndarfrömuður Mr. Riohard
H. Pough flytja erindi um nátt-
úruvernd í Bandaríkjunum og
sýna litskuggamyndir. Erindið
verður flutt á ensku.
Aðgangur er ókeypis og öllum
heimill.
Heklu
U M næstu helgi efna Farfuglar
til gönguferðar á Heklu. Verð-
ur lagt af stað á laugardaginn
og ekið austur að Næfurholti
©g tjaldað þar. Um kvöldið verð
ur gengið niður í Hraunteig. Á
sunnudaginn verður svo ekið inn
Hjalla og gengið þaðan á Heklu.
Sumarleyfisferð í Arnarfell
15. júlí hefst 9 daga sumar-
leyfisferð í Arnarfell. Verður
ekið austan Þjórsár og komið
á öðrum degi í Eyvindarkofaver.
Þriðja daginn verður fólk og
farangur ferjað yfir Þjórsá, því
ráðgert er að dvelja í tjöldum
á vesturbakka árinnar, og það-
an verða farnar gönguferðir um
nágrennið, t.d. Arnarfell, Hofs-
jökul, Nauthaga og um Verin.
Farfuglar leggja til fæði í
ferðina og tjöld ef óskað er.
Upplýsingar um ferðirnar eru
veittar á skrifstofunni að Lind-
argötu 50, á miðviku-, fimmtu-
og föstudagskvöld kL 8,30—10,
aími 15937.
fékk ekki
Keflavík
félag Kefflavíkur bannað benzín-
afgreiðslumönnum Esso og flug-
þjónustumönnum flugmálastjórn
arinncir að afgreiða flugvélina.
Gat Gljáfaxi því ekki tekið neitt
benzín hér. Svo mikið var þó á
geymum flugvélarinnar að nægði
til flugs austur á Egilsstaði. Með
flugvélinni komu sex farþegar
Hún fór fullskipuð austur og
norður. Starfsmenn Flugfélags-
ins aðstoðuðu flugfarþega. Engir
verkfallsverðir komu og voru
starfsmennirnir látnir afskipta-
lausir við að aðstoða farþega.
MORGUNBLAÐINU barst í gær
svohljóðandi athugasemd frá
skrifstofu Jupiters h.f.:
„Út af staðlausri frásögn um
löndun togarans „Júpiters" í
— Skotar
á togveiðum
Frh. af bls. 20.
en um borð í því starfar vís-
indamaður, dr. Love með
þremur aðstoðarmönnum.
Dr. Love átti tal við ís-
lenzka blaðamenn í gær,
vegna þess að í frásögur þótti
færandi að brezkt skip hefði
verið að veiðum ihni á Faxa-
flóa með fullkomnu leyfi. —
Hann kvaðst vera þakklátur
íslenzkum yfirvöldum fyrir
að gefa leyfið. Skýrði hann
frá því að hér hefðu ekki
farið fram neinar veiðirann-
sóknir, heldur væri aðeins
fiskvinnslurannsóknir að
ræða.
Viðfangsefnið núna, sagði
Mr. Love var það vandamál,
hvort óheppilegt væri að
frysta fiskinn strax og hann
kemur upp úr sjónum. Sagði
Dr. Love, að þetta vandamál
hefði komið upp á verk-
smiðjutogurunum. Það hefði
ekki reynzt vel að taka fisk-
inn alveg glænýjan og flaka
hann og frysta. Sagði hann
að þeir gerðu nú tilraunir
með þetta á fiski af ýmsum
miðum. Hefðu þeir þurft
fimmtíu fiska úr Faxaflóan-
um. Hann sagði að það hefði
þó ætlað að ganga treglega
að fá þessa fimmtíu fiska.
í fyrsta halinu sem var um
10 mílur norðvestur af Rvík,
fengu þeir engan afla. Þá
fluttu þeir sig suður á Svið,
en fengu þar aðeins nokkra
steinbíta, sem þeir skiluðu
sjónum aftur. Loks toguðu
þeir í Garðsjó og fengu 55
þorska í vörpuna.
Sá Red Cmsader sigla inn
Dr. Love sýndi biaðamönn-
um m. a. rannsóknarstofu sem
harín hefur um borð í togar-
anum og ræddi þar um ýms-
ar vísindalegar aðferðir til að
rannsaka gæði frysts fisks.
Hann sagði að allmikið væri
af brezkum og öðrum tog-
urum í kringum Island núna.
Hann var spurður um Red
Crusader-málið. Taldi hann
að blöðin hefðu gert of mik-
ið úr því. Hafði hann verið
í Aberdeen þegar togarinn
sigldi inn og kvað það mjög
of mælt að togaraskipstjóran-
um hefði verið fagnað sem
einhverri þjóðhetju. Menn
hefðu þvert á móti talað
almennt um það, að nauðsyn
legt væri að gera sér raun-
verulega grein fyrir því,
hvort togarinn hefði ekki
brotið landhelgisreglur Fær-
eyja.
— Akureyri
Framhald af bls. 1.
eyrar gengi þá tafalaust til samn
inga við verkamenn á Akureyri.
Þegar tillagan um aukaútsvar-
ið kom fram í bæjarráði var hún
samþykkt með öllum greiddum
atkvæðum bæjarráðsmanna. Full
trúi kommúnista hafði þó skrifað
undir með fyrirvara.
Á bæjarstjórnarfundinum í dag
greiddu atkvæði með aukaút-
svarsálagningunni fulltrúar Sjálf
stæðisflokksins 4, aðalforvigis-
maður Framsóknarflokksins í
bæjarmálefnum, Jakob Frímans-
son, forstjóri KEA, og fulltrúi A1
þýðuflokksins Bragi Sigurjóns-
son. Á móti voru tveir fulltrúar
kommúnista, tveir Framsóknar-
menn og Gísli Jónsson fulltrúi
Sjálfstæðisflokksins, er gerði
grein fyrir atkvæði sínu á þá
leið að hann vildi láta ákvörðun
bíða. —St. E. Sig.
„Þjóðviljanum" í gær skal þetta
tekið fram.
Togarinn „Júpiter" landaði í
Grimsby 20. þ.m. árekstrarlaust
að öllu leyti. Skipið var útbúið
með salt og ís frá Reykjavík.
Sala í Bretlandi ákveðin frá byrj
un. Þessi aðferð var ekkert frá-
brugðin ráðstöfunum annara
skipa, sem oft hafa verið á salti
og ís og selt erlendis.
Að skipið hafi í þessari ferð íar
ið til Hull til þess að smeygja
sér frá verkfalli og mætt þar ó-
þægindum, er hvorttveggja xil-
búningur.
— íþróttir
Framh. af bls. 18.
inu. Karl markvörður hafði næg-
an tíma til að athafna sig. En í
stað þess að slá yfir sló hann
knöttinn inn í markið.
• Liðin
Hafnarfjarðarliðið skortir neist
ann til sameiginlegs átaks. Fram-
herjarnir ráða sjaldnast við ætl-
unarverk sitt og missa knöttinn
mjög oft af þeim sökum. Fram-
verðirnir Sigurjón og Einar eru
máttarstólpar liðsins ásamt Karli
í markinu, sem er snöggur Og efni
legur. Vörnin er heldur ekki
nógu ákveðin og skapar oft mestu
hættuna sjálf með kæruleysisleg-
um leik við eigin mark — jafn-
vel sendingum til mótherja.
Framliðið var á löngum köfl-
um jafn slappt og svo Oft áður.
Þar skortir líka mikið á að hníf-
urinn bíti sem skyldi. Ráðleysi
og skipulagsleysi er Oft ráðandi
í framlínunni og vörnin er held-
ur engan veginn þétt. Það tókst
að ná í þessi stig, en sókn að öðr-
um getur orðið erfið ef ekki
eykst samtakamátturinn. — A.St.
— Úr ýmsum áttum
Framh. af bls. 10.
ítölsku kvikmyndastjörnurn-
ar yfirleitt stunda. Hún kýs
heldur að eyða frístundum
sínum til þess að lesa heim-
speki, hlusta á sígilda hljóm-
list eða dunda við pensla,
liti og léreft, en hún þykir
dágóður málari. — Og Ital-
irnir eru í senn undrandi og
fullir aðdáunar — þeir hafa
ekki hingað til haft mikið
að segja af „kynbombum",
sem jafnframt hafa „eitt-
hvað í kollinum“.
— Asdiztækin
Framh. af bls. 6.
að nota þessi tæki við veiðarnar,
því án þeirra fengist svo til eng-
in síld. Það er eik’ki aðeins að
asdictækin finni síld sem ekki
veður, og stuðli þannig að veiði
hennar, þau hafa einnig aiukið
skilning okkar á því hversu lítdð
við raunverulega vitum um lifn-
aðarhætti þessa silfurs hafsins.
Kristján Júlíusson,
loftskeytam.
Júpiter londoði í Bretlondi
Hjartanlega þakka ég þeim, sem sýndu mér vinarhug
með heimsóknum, heillaóskum og gjöfum á sextugs-
afmæli mínu.
Ingveldur Jónsdóttir Bjólu
Hjartanlega þakka ég öllum þeim, sem glöddu mig á
70 ára afmælisdegi mínum 19. þ.m.
Guðrún Jónsdóttir, Bræðraparti
Lokað
í dag frá kl. 1—4 e.h. vegna jarðarfarar
frú Stefaníu Gísladóttur
Bakari A. Bridde
Lokað
frá kl. 12—4 e.h. vegna jarðarfarar
Verzlun Halla Þóraríns Hvtrfisgiitu 39
Lokað
í dag frá kl. 12—4 vegna jarðarfarar
frú Steíaníu Gísladóttur, kaupkonu.
Kjötbúðin
Langholtsvegi 17
Systir mín
GUÐRÚN ÁGtJSTA JÓNSDÓTTIR
frá Hróarsholti
andaðist 24. júní — Jarðarförin fer fram fimmtudaginn
29. júní kl. 2 e.h. frá Hafnarfjarðarkirkju.
Arnfríður Jónsdóttir
Móðir okkar .___-
GUÐRÚN ÞÓRÐARDÓTTIR
Sólmundarhöfða, Akranesi,
andaðist á sjúkrahúsi Akraness 26. þ.m.
Synir hinnar látnu
Móðir mín
SVANHILDUR G. JÓNSDÓTTIR
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 29.
júní kl. 2 e.h.
Fyrir hönd vandamanna.
£dda Ófeigsdóttir
Konan mín
INGUNN ARNÓRSDÓTTIR
húsfreyja í Eyvindartungu
verður jarðsungin frá Miðdalskirkju, fimmtudaginn 29.
júní kl. 2 e.h. — Húskveðja fer fram á heimili hinnar
látnu kl. 1.
Jón Teitsson
Móðir okkar
SESSELJA LOFTSDÓTTIR
Lækjarbrekku
sem lézt 18. þ.m. verður jarðsungin frá Stóra Núpi, laug-
ardaginn 1. júlí. Húskveðja hefst frá heimili hennar kl.
1. Ferð frá Bifreiðastöð Islands kl. 9 f.h.
Börnin
Hugheilar þakkir sendi ég þeim er sýndu mér samúð
við andlát og jarðarför konunnar minnar
GUÐRÚNAR ÞÓRARINSDÓTTUR
Guð blessi ykkur öll.
Ólafur Árnason
Hugheilar þakkir sendum við öllum þeim, sem vott-
uðu okkur viná,ttu og samúð við andlát og jarðarför
SIGRÍÐAR HULDU ÁGÚSTSDÓTTUR
Jóna G. Jónsdóttir, Ágúst H. Kristjánsson