Morgunblaðið - 01.08.1961, Page 2
2
MORGVNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 1. agöst 1961
ft Hr.*Sey e
HH<4
wisawfv i
ii.i iy
4,4
«Vc».tir~« pÍ>r*hSP~j
llMÍ tv—w'
\ SiaióÚör^vr r
\ t*<» *$■» Cuw»r
\ SMx.-in -»*
S«i«5»»sT»?ÖNO
^j88Xw»w»jr
4.&3fe >%íi
EINS og sést á korlinu, er síldin
nú aðallega á svæðinu norðan-
hallt við Gerpisgrunn, á Norð-
fjarðardjúpi, Hundsvíkurál, Horn
fláka og norður undir Gullkistu.
Blaðið áttj í gærdag tal við dr.
Jakob Jakobsson á Ægi, og sagði
hann nokkuð góðar veiðihorfur
á öllu veiðisvæðinu undan Aust-
f jörðum. Átan er enn í góðu lagi,
en sildin virðist færast eitthvað
suður á bóginn. Ekki er vist að
veiðin haldist mikið fram yfir
miðjan ágústmánuð.
Verr horfir fyrir norðan land.
Síldin er þar, en stygg og dreifð,
enda mun átan of lítil til þess að
halda hennj þjappaðri saman.
Vart hefur orðið við talsvert
magn, en ekki veiðilegt. Víðir n.
kastaði í gær á torfu út af Eyja-
firði, en síldamar hlupu þá eins
og stökkvandi kvikindi út um all
an sjó, svo að illt var við að eiga.
Víðir náði alls 250 tunnum og fór
með þær inn til Ólafsfjarðar.
Nærri 30
árekstrum
Síldin veiðist enn
UM KL. 4 í fyrrinótt fóru síld-'
arskipin aftur að kasta á svipuð-
um slóðum og áður á.austwrsvæð-
inu, en þá hafði verið tæplega
sólarhrings bræla á miklum hluta
síldarmiðanna. Og seinni hluta
dags í gær og í gærkvöldi voru
skipin farin að halda inn með
aflann.
Geymar og mjölgeymslur eru
nú að fyllast á Austfjörðum og
Raufarhöfn, og er ekkert tekið
á móti á Raufarhöfn nú í 2—3
sólarhringa, meðan verið er að
rýma þar og byggja bráðabirgða-
mjölgeymslu. f gærkvöldi voru
skipin því að halda inn á Aust-
firðina og lögðu af stað norður
fyrír til Siglufjarðar.
farartæki í
um helgina
B e r 1 í n
Leiðrétting
í GREIN um gang Berlínar-máls
ins frá lokum heimsstyrjaldarinn
ar, sem birtist í Mþl. síðasliðinn
föstudag, varð — vegna slæmrar
prentvillu — ógreinileg frásögn-
in af úrslitakostum Krúsjeffs
varðandi Berlín, er hann setti
fram síðla árs 1958; hún átti að
vera á þessa leið: „Ekki yrði stjak
að við rétti Vesturveldanna
næstu 6 mánuðina (þ.e. fram til
27. maí 1959), en ef sá tímj yrði
ekki notaður til þess aö „ná við
eigandi samkomulagi“ myndu
Sovétríkin láta af hemámsstjórn
í Austur-Berlín með samkomu-
lagi við austur-þýzku stjórnina
— og þar með gefið í skyn, að
Vesturveldin yrðu undir hana að
sækja rétt til samgangna við Ber
lín.“
Ingi R. sigraði
Varð Nbrðurlandameistari í skák
NORí)URLANDAMEISTARA«----------
MÓTinu í skák lauk í gærkvöldi,
nema hvað nokkrar biðiskákir eru
ótefldar. Fyrir síðustu umferð
var Ingi R. Jóhannsson efstur
með 6% vinning úr 7 skákum, en
næstir honum voru þeir Jón Þor
steinsson með 5% og Jón Pálss-
son með 5 vinninga. Axel Niels-
sen frá Danmörku var fjórði með
3% vinning.
í gærkvöldi tefldu svo saman
í eíðustu umferð þeir Ingi og
Nielssen og Jónarnir og voru það
úrslitaskákir mótsins, a.m.k. um
þrjú efstu sætin.
f gærkvöldi vann svo Ingi R.
Axel Nielsen í 39. leik. Skákin
var opin og tvisýn. Ingi tefldi
byrjunina ónákvæmt, en sótti
síðan í sig veðrið. Eftir 32
leiki áttu báðir 15 mín. eftir
en Iagi betri stöðu og tvö
samstæð frípeð. Jónarnir
sömdu jafntefli í 29. letk.
Skák Brynhammar og Ljung-
dahls fór í bið.
Ingi R. hefur hlotið ’iVi vinn
ing, Jón Þorsteinsson er næst
ur með 6 vinninga og Jón
Pálsson 3. með 5V6 vinning.
í unglingaflokki uxðu efstir og
jafnir Bragi Kristjánsson og Arne
Zwaig, Noregi, með 7% vinning
hvor. Þriðji Jóhann Þ. Jónsson
5% v. og 4. Guðmundur Þórðar-
son með 5 v.
í fyrsta flokki varð Tryggvi
Arason sigurvegari með 7 vinn-
inga og Gylfi Baldursson annar
með 6% vinning.
1 meistaraflokki A urðu efstir
og jafnir Jónas Þorvaldsson og
Bragi Björnsson með 6 vinninga
hvor. í meistaraflokki B sigraði
Sigurður Jónsson með 6 vinninga
og Gísli Pétursson annar með 5 Vz
vinning.
— GreidslujÖfnudur
Framhald af bls. 1. *!
því, að heildartekjur ríkissjóðs
á árinu hefðu verið áætlaðar i
fjárlögum 1501.2 millj. kr., en orð
ið samkvæmt ríkisreikningum
1487.7 millj. kr., eða 13% millj.
kr. undir áætlun.
Nokkrir teknaliðir urðu hærri
en áætlað var, t. d. tekju- og
eignaskattur, sem varð 96.8 millj.
kr. (áætlað 72 millj. kr.). Auka-
tekjur urðu 23.8 millj. (áætlaðar
22.3) , stimpilgjöld urðu 38 millj*
(áætlað 34), vaxtatekjur ríkis-
sjóðs urðu 5.6 millj. (áætlaðar
2.3) , óvissar tekjur urðu 22.2
millj. (áætlaðar 13.7) o. fl.
Tekjur af þrem tegimdum að-
flutningsgjalda, verðtolls, 7%
innflutningsskatts og innflutn-
ingsgjalds, urðu 38.5 millj. kr.
lægri en áætlað var í fjárlög-
um. „Þetta stafar ekki af því,
að innflutningur í heild yrði
minni en ráðgert var“, sagði
fjármálaráðherra, og gerði svo
fellda grein fyrir þessum mis-
mun: „Orsökin er sú, að sam-
setningur innflutningsins hefur
breytzt. Meira hefur dregið úr
innflutningi vara, sem hæstu
tollar eru af en öðrum toll-
lægri vörum. Hver króna inn-
fluttra vara gefur því minni
tolltekjur í ríkissjóð en áður“,
Útgjöld 51.3 millj.
undir áætlun
Niðurstaða hinna 13 greina
rekstrarreikningsins varð þessi:
Á 7 greinum urðu útgjöldin
undir áætlun um samtals 69.9
millj. Á 6 greinum fóru útgjöld
Stolið hákarli
og hárnálum
ÞAÐ var mikið að gera hjá
umferðardeild rannsóknarlög
reglunnar í gær. Um helgina
lentu upp undir 30 farartæki
í árekstri í bænum. Sem het-
ur fór urðu engin slys á
fólki, en sumir híleigendanna
hafa orðið fyrir tilfinnanlegu
tjóni. — Er þetta geysihá
árekstrartala yfir eina helgi,
ekki sízt þar sem sumar-
leyfistíminn stendur sem
hæst og bæjarbílar dreifðir
út um land.
Fyrst á bíl, svo á hús
Á sunnudagskvöldið kl. lið-
lega 10 óku tvær fólksbifreiðir
saman á horni Freyjugötu og
Njarðargötu. Kom önnur akandi
suður Freyjugötu, en hin á
ofsahraða upp Njarðargötu. —
Rákust þær saman. Njarðargötu
bifreiðin hélt áfram upp á gang
stéttina hægra megin á Freyju-
götunni og rann síðan út á göt-
una aftur og skáhallt yfir hana
og lenti á húsinu nr. 27 A hin-
um megin við Freyjugötuna. —
S V A R T :
Síldarverksmiðja ríkisins
Raufarhöfn
ABCDEFGH
ABCDEFGH
H V í T T :
Síldarverksmiðja ríkisins
Siglufirði
Siglfirðingar leika a2—a4
Brotnaði gluggakarmur og
rúða þar sem bíllinn lenti á
húsinu og eitthvað mun hafa
skemmzt af húsgögnum af gler-
brotunum, sem hrundu inn.
Enginn var í íbúðinni því að
fólkið var ekki heima. Og bif-
reiðastjórana í bílunum sakaði
ekki. Bifreiðarnar eru báðar
talsvert skemmdar.
Bíllinn eyðilagðist
daginn fyrir sölu
Um kl. 11,30 á laugardags-
kvöld lenti fólksbifreið á stagi
er lá í land frá togaranum Gylfa
ofarlega á Ægisgarði Gekk stag
ið inn í bílinn að framan og
skemmdi hann mikið.
Rigning var er þetta gerðist
og komið rökkur. Fimm manns
var í bifreiðinni, en sakaði ekki.
Þess má geta að eigandi bíls-
ins var að selja hann norður á
Akureyri, átti að ganga frá sölu
samningnum í gær, er hinn nýi
eigandi kæmi að sækja hann.
Of langt mál yrði að telja upp
alla árekstrana, sem urðu og
það tjón sem af því varð.
íf GÆRMORGUN var rannsókn-
arlögreglunni tilkynnt um nokk-
ur innbrot. Hafði nýlega verið
brotizt inní hjall suður í Skerja-
firði og stolið miklu magni af full
verkuðum hákarli. Og í fyrrinótt
brotizt inn á fjórum stöðum í
bænum, án þess að þjófarnir
hefðu mikið upp úr því utan hár-
nálar, notaðar greiður og þess
háttar.
Hákarlinum hefur verið stolið
einhvern tíma sl. 3 vikur. Eigandi
hjallsins, sem er við Baugsveginn
í Skerjafirði, er úti á sjó og hafði
kona hans ekkert litið í hjallinn.
Krakkarnir veittu því svo at-
hygli í fyrradag að búið var að
brjóta upp hjallinn og hirða all-
an hákarlinn sem í honum var.
Var hjallurinn fullur af nærri
fullverkuðum hákarli og er það
l mjög mikils virði, því kg. af há-
karlinuim er dýrt.
Geymir ekki sígarettur
í fyrrinótt var brotizt inn í
Steindórsprenthúsið í Tjarnar-
götu og leitað bæði á skrifstofu
Steindórsprents og Happdrættis
Háskólans, en engu stolið. Einnig
var brotizt inn í Storkklúbbinn,
leitað um allt, eitthvað skemmt,
en engu stolið..
Á þriðja staðnum fannst held-
ur ekkert. Það var í Selásbúðinni,
sem alltaf er verið að brjótast
inn í. Hafði sýnilega verið gerð
leit að sígarettum, en eigandi
verzlunarinnar er löngu hættur
að hætta á að hafa þar nokkrar
sígarettubirgðir handa þjófum.
Ætlar að stunda hárgreiðslu?
Sá sem brauzt inn í hárgreiðslu
stofuna á Hverfisgötu 119 hefur
haft heppnina með sér, þ. e. a. s.
ef hann ætlar að setja upp hár-
greiðslustofu. Því hann hafði á
brott með sér heilmikið af hár-
klemmum Og hárná1”m, 3 ösku-
bakka, 2 stoppklukkur, hárbursta
og hárgreiður.
Síldar-
visur
Hér er ein síldarvísa frá Rauf-
arhöfn:
Síldin er komin á sérhvert plan,
og söltun hafin að nýju.
Þeir ætla að selja eitthvert gran,
til ytri Mongolíu.
in fram úr áætlun um samtals
18.6 millj. Heildarútkoman á
rekstrarreikningi varð því þessi:
Útgjöldin voru áætluð 1383.7
millj. _ urðu 1332.4 millj. —
eða 51.3 millj. undir áætlun.
í yfirliti f jármálaráðherra um
útgjöldin kom það m.a. fram,
að rektrarhalli Skipaútgerðar
ríkisins varð 18% millj. kr. á
árinu, eða 3% millj. meiri en
áætlað hafði verið. Þá urðu nið-
urgreiðslur 43 millj. lægri en
gert hafði verið ráð fyrir,
Áfallnar ríkisábyrgðir 14.9
millj. umfram áætlun
Á 20. gr. fjárlaga — elgna-
hreyfingum — voru innborgan-
ir áætlaðar 600 þús., en urðu
3.9 millj. Útborganir voru áætl-
aðar 117.5 millj., en þeir liðir
rejmdust 132 millj., eða 14%
millj. umfram áætlun. Umfram-
greiðslunni veldu 1 liður, greiðsl-
ur vegna ríkisábyrgða, er féllu
á ríkissjóð. Þær voru áætlaðar 35
millj, en urðu 14.9 millj. umfram
áætlun.
í lok yfirlits síns gerði fjár-
málaráðherra grein fyrir greiðslu
jöfnuði ríkissjóðs, og sagðj m. a.:
Sé greiðslujöfnuður ríkissjóðs
reiknaður á sama hátt og ríkis-
bókhaldið hefur gert undanfar-
in ár, varð hann hagstæður um
10.7 millj. kr. Sé greiðslujöfnuð-
urinn hins vegar reiknaður sam.
kvæmt reglum Seðlabankans,
eins og fram kemur í tímariti
bankans, Fjármálatíðindum, er
greiðslujöfnuðurinn hagstæður
um 35.4 millj.
Fjármálaráðuneytið er nú að
láta endurskoða gildandi lög um
ríkisbókhald og endurskoðun. Er
gert ráð fyrir því, að lögfestar
verði reglur um það, hvernig
reikna skuli greiðslujöfnuð rík
issjóðs, svo að samræmi og festa
komist þar á. Meðan slikar regl-
ur hafa ekki verið lögfestar,
þykir ráðuneytinu rétt að miða
við fyrri venjur ríkisbókhalds-
ins. Samkvæmt því telst greiðslu
afgangur rikissjóð árið 1960 vera
10 millj. og 700 þús. krónur". ,
LÆGÐIN sem olli rigning- og gott veður um allan suð-
unni, um síðustu helgi, er nú urhluta landsins. Ný lægð er
yfir austanverðu landinu. — komin í ljósmál yfir Labra-
Veldur hún nú víðast hvar dorhafi, en hún mun varla
norðlægri átt, og fylgir henni gera vart við sig hér fyrr en
bræla norðan lands, en bjart á fimmtudag.