Morgunblaðið - 09.08.1961, Blaðsíða 2
2
MOnCVTSBLAÐÍÐ
Miðvilíudagur 9. ágúst 1961
Framsókn - bandingi kommúnista
1 NA /5 hnuiar [ / SV 50 hnútar ¥: Snjó/como f OSi *** \7 Skúrír K Þrumur mss Kutdoskil HiUskit H Hai 1 L* La9» |
Frá héraðsmófum Sjálfstæðismanna
um siðustu helgi
fé safnazt í margfalt staerri stíl
«n þekkzt hefði áður, en spari-
fjármyndun væri undirstaða eðli
legs lánsfjárkerfis í landinu. í
fjórða lagi, atvinna hefði verið
næg og allar hrakspár stjórnar-
andstæðinga um atvinnuleysi
hefðu reynzt algjörlega rangar.
í fimmta lagi hefði ríkissjóður
reynzt hallalaus, gagnstætt von-
um stjórnarandstæðinga. f>vert
á móti hefði greiðsluafgangur
reynzt um 11 millj. kr. og út-
gjöld undir áætlun. Síðan
ræddi fjármálaráðherra um fram
kvæmdaáætlun ríkisstjórnarinn-
ar og alla þá möguleika, sem
íslenzka þjóðin ætti til bættra
lífskjara 1 stórum stíl með skyn
samlegri hagnýtingu auðlinda
sinna til lands og sjávar.
ic Samstaða nauðsynleg.
Síðara héraðsmótið á Norður-
landi var haldið að Laugarbakka
í V-Húnavatnssýslu sl. sunnu-
dagskvöld. Þar fluttu ræður þeir
Gunnar Thoroddsen fjármálaráð
herra og sr. Gunnar Gíslason al-
þingismaður.
Sr. Gunnar rakti í snjöllu máli
Framhald á bls. 23.
UM hádegið í gær var veður
kyrrt og þurrt um allt land,
þar sem til fréttist. Víða var
sólskin með köflum og hiti
10—13 st. Við S-Grænland var
lítils háttar regnsvæði, sem
mjakaðist austur eftir. Vestan
við Grænland var annað lægð-
arsvæði, en hæðarhryggur
íslandi og austanverðu Græn-
landshafi.
Veðurspáin kl. 10 í gær-
kvöldi:
SV-land og miðin: NV gola,
léttskýjað með köflum.
Faxaflói til Vestfjarða og
miðin: Norðan og NA gola,
skýjað.
Norðurland og miðin: Norð-
an gola, skýjað vestan til,
norðan kaldi og dálítil rigning
austan til.
NA-land og miðin: NV
kaidi, rigning öðru hverju
norðan til.
Austfirðir, SA-land og mið-
in: Hægviðri, víðast úrkomu-
laust.
Krusjeff talar i Moskvu:
Vill viðræður — hófar enn
sérsamningi við A-Þjóðverja
Ræðan þykir heldur spor i rétta átt
Moskvu og London, 8. ágúst. (Reuter)
KRÚSJEFF, forsætisráðherra Sovétveldisins, hélt útvarps-
og sjónvarpsræðu í Moskvu í gærkvöldi. Var ræðan eins-
konar samhland aðvarana og tilboða um að setjast að samn-
ingaborði með Vesturveldunum. Mikil hrifning er sögð
vera af ræðunni í Sovétríkjunum. Á vesturlöndum þykir
hún að ýmsu leyti vera skref í rétta átt, en Home lávarður
minnir á það, að fram til þessa hafi sovézkir ráðamenn ein-
ungis verið fúsir til viðræðna, að svo miklu leyti sem þær
hafi getað leitt til skerðingar á rétti Vesturveldanna í
Berlín. Nú sé eftir að sannreyna, hvort raunhæfur við-
ræðugrundvöllur sé fyrir hendi af þeirra hálfu.
FJÖGUR héraðsmót Sjálfstæðis-
manna voru haldin um síðustu
helgi. Voru tvö þeirra á Vest-
fjörðum og tvö á Norðurlandi.
Fyrra Vestfjarðarmótið var
haldið á Suðureyri í Vestur-lsa
fjarðarsýslu á laugardagskvöldið
og hófst það kl. 9. Þorvaldur
Garðar Kristjánsson fram-
kvæmdarstjóri Sjálfstæðisflokks
ins setti mótið með stuttu ávarpi
en síðan fluttu ræður þeir
Bjarni Benediktsson dómsmála-
ráðherra er ræddi stjómmálavið
horfið í landinu um þessar
mundir og Sigurður Bjarnason
ritstjóri er ræddi aðallega hags-
munamál Vestfirðinga og stjórn-
málabaráttuna vestra.
Verða að kunna
að bregðast við vandanum.
Bjarni Benediktsson kvað
mests um vert að stjórnmálaflokk
ar og leiðtogar þeirra kynnu að
bregðast við þeim vanda, sem
steðjaði að þjóð þeirra á hverj-
um tíma, og hefðu kjark og mann
dóm til þess að gera það, sem
gera þyrfti. Þeir yrðu að gera
sér grein fyrir vandamálunum
og segja þjóðinni sannleikann
um þau, og úrræðin til þess að
ráða fram úr þeim.
Þetta hefði núverandi rí'kis-
stjórn gert. Hún hefði komið
fram af raunsæi og ábyrgðartil-
finningu, gagnstætt því, sem
vinstri stjórnin gerði. En það
hefði orðið vinstri stjórninni að
falli, að hún var í stöðugum felu
leik með sannleikann og var aúk
þess sjálfri sér sundurþykk.
Sigurður Bjarnason ræddi m.a.
þróunina í atvinnumálum Vest-
firðinga. Hann kvað framleiðsl-
una hafa aukizt þar hröðum
skrefum þrátt fyrir verulega
fólksfækkun á síðustu áratug-
um. Engir ættu meira undir því
ANGANTÝR Guðjónsson, fyrr-
verandi alþingismaður, lézt að-
faranótt sunnudags 6. ágúst í Vest
mannaeyjum, þar sem hann var
í heimsókn hjá dóttur sinni. Bana
mein hans var heilablóðfall.
Angantýr var fæddur í Reykja-
vík 22. maí 1917. Hann hóf störf
hjá Reykjavíkurbæ árið 1940 og
var verkstjóri þar frá 1944. Ang-
antýr tók snemma að hafa af-
skipti af stjórnmálum og vann
mikil störf fyrir Sjálfstæðisflokk
inn. Formaður Óðins var hann
um skeið og í stjórn þess félags
um langt árabil. Þá starfaði hann
einnig í Verði, fulltrúaráðinu
o. s. frv. Hann sat á þingi fyrir
Reykjavík 1958.
Angantýr lætur eftir sig eigin-
konu, Dóru Halldórsdóttur og
fimm uppkomin börn.
komið en Vestfirðingar, að fram
leiðslan væri rekin á heilbrigð-
um grundvelli, þar sem hver
vinnufær hönd á Vestfjörðum
starfaði að framleiðslu til lands
og sjávar.
Hann minntist á ýmis verk-
efni, sem framundan væru, m.a.
hafnarbætur, bættar samgöngu-r
á landi og í lofti, betri skilyrði
til félagslegs samstarfs og aukna
hagnýtingu fossaafls til sköpunar
fjclbreyttari bjargræðisvega.
Óskar Kristjánsson útgerðar-
maður á Suðureyri stjórnaði hér
aðsmótinu. Var þar einnig flutt
óperan La Serva Padrona eftir
Pergolesi. Að lokum var dansað.
Fólk víðsvegar að úr Vestur-ísa
fjarðarsýslu og frá Djúpi sótti
héraðsmótið, sem fór hið bezta
fram. .
f Reykjanesi.
Héraðsmót Sjálfstæðismanna í
Norður-ísafjarðarsýslu hófst í
Reykjanesi kl. rúmlega þrjú á
sunnudag. Sigurður Bjarnason
setti það með stuttu ávarpi en
síðan fluttu ræður þeir Kjartan
Jóhannsson alþingismaður og
Bjarni Renediktsson dómsmála-
ráðherra.
Kjartan Jóhannsson ræddi að-
allega héraðsmál, m.a. samgöngu
mál ísfirðinga í kaupstað og sýsl
um.
Bjarni Benediktsson ræddi
stjórnmálaviðhorfið og minntist
m.a. á það fyrirheit vinstri stjórn
arinnar að setja Sjálfstæðisflokk
inn, nær helming þjóðarinnar al
gerlega til hliðar og gera hann
áhrifalausan. Niðurstaðan hefði
hinsvegar orðið sú, að vinstri
stjórnin hefði gefizt upp á miðju
kjörtímabili og Framsóknarflokk
urinn væri nú orðinn .bandingi
kommúnista. Dómsmálaráðherra
minntist einnig nokkuð á hinar
nauðsynlegu viðreisnarráðstafan
ir, sem núverandi ríkisstjórn
hefði orðið að gera.
Síðan var flutt óperan La
Serva Padrona eftir Pergolesi.
Önnuðust listamennirnir Sigur-
veig Hjaltested, Kristinn Halls-
son og Þorgils Axelsson flutning
hennar en Ásgeir Beinteinsson
var við hljóðfærið.
Bæði ræðumönnum og lista-
fólki var ágætlega tekið á báðum
mótunum. Baldur Bjarnason
bóndi í Vigur, formaður félags
ungra Sjálfstæðismanna við ísa
fjarðardjúp stjórnaði mótinu í
Reykjanesi, sem lauk með dansi
kl. 11 um kvöldið. Var mótið að
vanda fjölsótt.
ÍC Ábyrgðarlaus framkoma.
Fyrra mótið á Norðurlandi
var haldið í félagsheimilinu Bif
röst á Sauðárkróki á laugardags
kvöldið. Þar fluttu ræður þeir
Gunnar Thoroddsen fjármálaráð
herra og Einar Ingimundarson al
þingismaður.
Flutti Einar Ingimundarson á-
gæta ræðu, þar sem hann ræddi
stjornmálaþróunina undanfarið
ár og rakti feril Framsóknar-
flokksins í ýmsum meginmálum.
Gagnrýndi Einar harðlega hina
ábyrgðarlausu framkomu Fram-
sóknarflokksins í efnahags- og
fjármálum þjóðarinnar.
ic Árangur viðreisnarinnar.
Síðan flutti Gunnar Thorodd-
sen fjármálaráðherra ýtarlega
ræðu, þar sem hann rakti megin
þættina í viðreisnarstefnu ríkis-
stjórnarinnar. Gerði hann fyrst
grein fyrir því meginverkefni að
ná jöfnuði í gjaldeyrisviðskipt-
unum og jafna þann halla, sem
verið hefur undanfarin ár um
200 millj. kr. að meðaltali á ári.
Þetta hefði tekizt og væri nú
byrjað að safna gjaldeyrisvara-
sjóði. í öðru lagi hefði verið á-
kveðið eitt gengi í stað marg-
falds gengis- og uppbótakerfis.
Gjaldeyrisbrask væri að mestu
úr sögunni, svartur markaður
horfinn. í þriðja lagi hefði spari
Ekki hvikað.
í ræðu sinni sagði Krúsjeff
„Bandarikin ógna með styrjöld",
en hvatti jafnframt Vesturveldin
til að „setjast í einlægni að samn
ingaborði" og „hreinsa andrúms
loftið“.
Ekki hvikaði forsætisráð-
herrann frá fyrri yfirlýsing-
um um ajð Sovétveldið mundi
gera sérfriðarsamning við
Austur-Þýzkaland í lok þessa
árs, ef allsherjarsamkomulag
hefði ekki náðst fyrir þann
tíma.
Þá komst Krúsjeff svo að orði,
að ekki kæmi til mála að hindra
samgöngur við Vestur-Berlín
eðá einangra borgina. En af hálfu
Vesturveldanna hefur verið ótt-
azt, að slíkt yrði reynt, ef Krús-
jeff léti austur-þýzku kommún-
istastjórninni eftir umsjón með
samgíinguleiðunum.
Á skynsamlegum grundvelli.
Ræða Krúsjeffs virtist, að á-
liti stjórnmálafréttaritara, vera
skref í áttina að nýjum viðræð
upm austurs og vesturs um þessi
erfiðu vandamál.
Síldar-
vísa
Hér er svar frá siglfirzka lög-
regluþjóninum til þess, sem
sendi honum kveðju frá Raufar-
höfn:
Góða siðu seint þú lærir
samt þó reiðst’ ei yfir því,
þó að eitt sinn inn þú færir
eftir hörkufyllirL >
Á fundi sínum í París um helg
ina lýstu utahríkisráðherrar
Vesturveldanna yfir, ao þeir
væru reiðubúnir til samningavið
ræéina við fulltrúa Sovétveldis-
ins, ef þeir væru fáanlegir til
slíks á skynsamlegum grund-
velli. Eftir ræðu Krúsjeffs sagði
Dean Rusk, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna; við fréttamenn,
að hann þættist viss um, að við-
ræður yrðu teknar upp um þessi
vandamál, fyrr eða síðar.
Krúsjeff hvassyrtur.
Krúsjeff var í ræðu sinn all-
hvassyrtur á köflum. Hann
sagði, að Kennedy forseti hefði
sett Sovétríkjunum „einskonar
úrslitakosti" vegna áforma sov-
ézku stjómarinnar um sérstakan
Skákin
s V A R T :
Síldarverksmiðja ríkisins
Raufarhöfn
ABCLEFGH
abcdefgh
H V í T T :
Síldarverksmiðja ríkisins
Siglufirði
Leikur Raufarhafnar B f8 — d6.
friðarsamning við Austur-Þýzka
land. Og hann bætti því við, að
Frarnh. a bls. 8
Buchman látinn
FREUDENSTADT, (Vestur-
Þýzkalandi), 8. ágúst
(Reuter). —
DR. Frank Buchman, stofn-
andi Siðvæðingarhreyfingarinnar
(Moral Rearmament), andaðist
hér í nótt 83 ára að aldri. Sam-
kvæmt upplýsingum dr. Morris
Martin, brezks meðlims siðvæð-
ingarhreyfingarinnar, lézt Buch-
mann úr hjartaslagi eftir stutta
sjúkdómslegu.
Það var einmitt á þessum stað,
sem hinn látni sagðist hafa feng-
ið köllun sína árið 1938, en þá hóf
hann baráttu fyrir bættum sið-
um, sem beztu leiðinni til að
tryggja frið í heiminum. Breidd-
ist hreyfing Buchmans út víða
um lönd og telur hún í sínum
röðum marga heimskunna stjórn-
málaleiðtoga. Aðaláherzla hefur
verið lögð á að vinna bug á út-
breiðslu kommúnismans og draga
úr stéttarhatri. — Síðustu orð
Buchmans voru: „Megi heimin-
um verða stjórnað af mönnum,
sem njóta handleiðslu Guðs“.
Buchman kom fyrir hálfum
mánuði til Freudenstadt ásamt fá
mennum hópi fylgismanna sinna
frá Caux í Sviss, þar sem eru
aðalstöðvar Siðvæðingarhreyfing
arinnar.