Morgunblaðið - 09.08.1961, Qupperneq 5
Miðvik'udagur 9. ágúst 1961
MORGVTSBLÁÐIÐ
5
•
— MÉR finnst alveg dásam-
legt á íslandi, ég er mjög
ánægð með að hafa verið send
hingað. í»að er svo skemmti-
legt að koma til lands sem eng
inn annar hefur áður verið
sendur til.
Þetta sagði bandarísk stúlka,
Susan A. Henderson frá Menlo
Park í Californíu, er frétta-
maðtar blaðsins hitti hana að
máli fyrir skömmu.
Susan Henderson er hér á
vegum The American Field
Service (AFS) ag er hún
fyrsti unglingurinn, sem hing-
að kemur á vegum þess félags
skapar. Héðan frá íslandi
hafa„ eins og kunnugt er,
margir unglingar farið til árs-
dvalar í Bandaríkjunum á veg
um félagsskaparins. Er nauð-
synlegt fyrir fslendinga, ef
þeir ætla að halda áfram að
senda unglinga til Bandaríkj-
anna á vegum AFS að taka
á móti unglingum þaðan í
staðinn a. m. k. til dvalar yfir
sumarmánuðina.
Starfsemi AFS byggist á því
að unglingar frá öllum lönd-
um heims koma til Bandaríkj-
anna á vegum félagsskaparins
og dvelja þar á heimilum
bandarískra unglinga og
stunda skólanám.
Þau lönd, sem senda ung-
lingana taka svo aftur við
bandarískum unglingum ann-
að hvort til sumardvalar á
heimilum unglinga, eða þá til
ársdvalar.
Ekki er miðað við það, að
fjölskyldurnar skiptist beinlín
is á þ. e. a. s., að fjölskyldur,
sem eiga börn, sem farið hafa
til Bandaríkjanna taki aftur
i við börnum þaðan. Heldur að
fjölskyldur annarra þjóða taki
fyrst við unglingum frá Banda
ríkjanna. Er þetta gert til
þess að félagsskapurinn AFS
verði sem útbreiddastur. —
Markmið AFS er að koma á
sem nánustum kynnum milli
ungs fólks frá öllum löndum
heims, auka skilning þess á
sjónarmiðum hvors annars og
stuðla með því að friði í heirrv
inum.
— ♦ —
Susan Henderson er eins og
I áður er sagt fyrsti unglingur-
inn, sem hingað kemur á veg-
um AFS. Hún dvelur héf 2
mánuði á heimili Agnars Ko-
foed Hansen, flugmálastjóra.
Við spyrjum Susan hvenær
hún hafi fyrst fengið áhuga á
starfsemi AFS.
— Þegar ég var 10 ára, seg-
ir hún, las ég í tímariti grein,
sem skýrði frá starfsemi fé-
lagsskaparins og þá strax fékk
ég áhuga. Síðan jókst hann til
muna, þegar finnsk stúlka,
sem dvaldi í heimaborg minni
á vegum AFS kom í barna-
skólann, þar sem ég var þá
nemandi og sagði okkur frá
landi sínu og starfsemi AFS.
Þá ákvað ég, að þegar ég yrði
eldri skildi ég sækja um að
komast erlendis á vegum fé-
lagsskaparins.
— Valdir þú fsland?
— Nei, nei, þegar við sækj-
um um vitum við ekkert hvert
við verðum send. Við getum
aðeins ráðið því hvort við
viljum fara til landa á norður-
éða suðurhveli jarðar. Einnig
segjum við hvort við getum
fremur farið að sumar- eða
vetrarlagi. í minni umsókn
setti ég engin skilyrði, mér
var alveg sama.
— Hvernig þótti þér að eiga
að fara til íslands?
— Mér þótti það ágætt. Eg
var satt að segja orðin úrkula
vonar um að umsókn minni
yrði sinnt, því að það er ekki
venjulegt að tveir nemendur
úr sama skóla séu sendir ut-
an, og ein stúlka hafði þegar
fengið tilkynningu um, að hún
mundi fá að fara til Noregs.
Mér kom þetta því mjög á
óvart og það olli mér mikillar
ánægju.
— Nafn íslands hlýtur þó
að hljóma kuldalega í eyrum
yltkar, sem búið í hinni sól-
ríku Kaliforníu?
— Já, en ég las talsvert um
ísland og af því varð ég full-
viss um að hér væri ekki svo
kalt, að minnsta kosti ekki á
sumrin.
— Og hvernig finnst þér
svo?
— Eg finn ekki til kulda,
mér finnst hitinn hér óskö.p
þægilegur, hann er svipaður
og hitinn í Kaliforníu á vet-
urna. Þegar ég fór að heim-
an var hitinn aftur á móti um
40 gráður á celsíus.
— Hefur þú ferðast eitthvað
um ísland?
— Já, ég hef komið til fsa-
fjarðar, á Þingvelli, til Hvera
gerðis og Vestmannaeyja. Mér
finnst landslagið hér alveg dá-
samlegt og þó að sjórinn við
strendur Kaliforníu geti orðið
blár, þá verður hann aldrei
eins blár og sjórinn við strend
ur íslands í góðu veðri.
— Heldurðu að þú ferðist
meira þann tíma, sem þú átt
eftir að dvelja hér?
— Já, ég geri ráð fyrir að
ég fái að fara norður til Ak-
ureyrar og jafnvel að Mý-
vatni. Einnig austur að Gull-
fossi og Geysi.
— Hefur þú alltaf búið í
Kaliforníu?
— Nei, faðir minn var í sjó-
liernum og á meðan vorum
við alltaf að flytja, bjuggum
1% ár á hverjum stað, en
í Kalifomíu hef ég nú átt
heima 7 ár.
—Hvað heitir skólinn, sem
þú stundar nám við?
— Hann heitir Woodside
High Soool, í honum eru 1500
nemendur á aldrinum 12—18
ára. Bekkirnir eru 4 og óg var
í 3ja bekk sl. vetur. Val á
námsgreinum hjá okkur er
mjög frjálst og þannig er það
yfirleitt í bandarískum skól- 1
um. Við þurfum að læra ensku l
í 2 ár, stærðfræði í 2 ár, leik- |
fimi öll árin, þjóðfélagsfræði \
öll árin, 2 ár eithvert annað
tungumál en ensku og eina
raunvísindagrein. Við þurfum
ekki að taka nema fimm náms
.greinar á ári, en flestir taka
sex og erum við einn tíma í
hverri daglega. Flestir nem-
endur skólans eiga heima tals-
vert langt frá skólanum, svo
við borðum hádegisverð okk-
ar þar. í matartímanum halda
svo hinir ýmsu tómstunda-
klúbbar, sem starfræktir eru
innan skólans fundi sína. —
Klúbbarnir eru alls 20.
— Hvaða fög hefur þú valið
þér?
— Eg er nú búin að læra
stærðfræði í 3 ár, ensku í 3 ár,
spænsku í 3 ár, rússnesku í
2 ár, þjóðfélagsfræði í 3 ár,
1 ár líffræði og leikfimi 3 ár.
— Er ekki erfitt að læra
rússnesku?
— Eg held að íslenzkan sé
erfiðari að minnsta kosti fyr-
ir enskumælandi þjóðir. Rúss
neski framburðurinn er ekki
rnjög erfiður fyrir okkur, því
að hljóðin eru öll þau sömu og
í enskunni. Aftur á móti eru
hljóðin í íslenzkunni mörg
mjög ólík.
— Langar þig til að læra i
íslenzku? I
— Já, satt að segja langar
mig til þess. Eg hef yfirleitt
mjög mikinn áhuga á tungtu-
málum. Mig langar mjög mik-
ið til að koma aftur til íslands
Og fara þá í háskólann hérna.
— Ert þú meðlimur í ein-
hverjum tómstundaklúbb?
— Já, ég er meðlimur espe-
ranto-klúbbsins, við lærum
esperanto utan skólans og svo
skrifumst við á við unglinga
í Búlgaríu á esperanto. Einnig
er ég í ljósmyndaklúbbnum,
skemmtinefnd og í vetur ætl-
um við að stofna AFS klúlbb.
— Hafa margir frá þínutm
skóla farið utan á vegum
AFS?
— Þegar ég er meðtalin er-
um við fjögur. Til okkar hafa
nú komið tveir, einn frá Sví-
þjóð og einn frá Hollandi. —
Næsta vetur eigum við svo
von á stúlku frá Japan.
Nýlega hafa opinberað trúlof-
un sína ungfrú Hafdís H. Mold-
©ff, Laugavegi 65 og Björn Jó-
hannsson, Skjilagötu 70.
Um sl. helgi voru gefin saman
f hjónaband af séra Árelíusi Níels
eyni, ungfrú Sigríður Sigurðar-
dóttir og Eyjólfur Jónsson. Heim-
ili þeirra er að Laufásvegi 38. —
Ennfremur ungfrú Svanhvít Guð-
mundsdóttir og Sigurður A.
Andrésson, skipsmaður, Sólheim-
um 32. —. Ennfremur ungfrú
ÍHrafnhildur Óskarsdóttir og Þor-
geir Árnason, verzlunarmaður.
Heimili þeirra er að Valhöll, Hell
issandi. Þau dvelja nú að Lang-
holtsvegi 174.
Laugardaginn 5. ágúst voru
gefin saman í hjónaband af séra
Árelíusi Níelssyni, ungfrú Rut
Sigurðardóttir og Einar Lúthers-
son, rafvirkjanemi, bæði frá
Siglufirði. Heimili þeirra er að
Laugavegi 40.
í gær voru gefin saman í hjóna
band af séra Þorsteini Björns-
syni„ ungfrú Ágústa Snorradótt-
ir, Kársnesbraut 16 og Leifur
Guðjónsson, Birkimel 8. — Heim
ili þeirra verður á Birkimel 8.
Brúðhjónin fara utan í dag.
Þórarinn Guðmundsson, vél-
smíðameistari, verkstjóri hjá Vél
smiðju Njarðvíkur, átti 65 ára af
mæli s.l. mánudag 7. ágúst.
ÁHEIT 09 GJAFIR
Til Keldnakirkju: — BB Voðmúla-
stöðum kr. 200 áh.; HS Grettisgötu 17
200; HB listmálari, Hveragerði 500 áh.;
ST á Rangárvöllum 5000 áh.; Hrepps-
nefnd Rangárvalla 1000; G. Sk. 100 áh.;
GÖ Hólum 50 áh. — Kærar þakkir
fyíir hönd kirkjunnar. — Keldum, 20.
júlí 1961, Guðmundur Skúlason.
Sólheimadrengurinn, afh. Mbl.: —
NN kr. 500; SG 50; IH 100.
Fjölskyldan á Sauðárkróki, afh. Mbl.
— Onefnd 200 kr.; O 225; BJ HK 200;
SS 50.
tíLÖÐ OG TÍMARIT
Síðasti Gangleri, vor 1961, 1. hefti,
sem er rit Guðspekifélagsins, hefir nú
breytt um búning. I formála segir rit-
stjórinn, Grétar Fells, m.a. „Gangleri
kemur nú til lesenda sinna í nýjum
búningi. Hann er „endurholdgaður".
Við honum blasir ný jarðvist, og hann
ætlar sér að gera mikið 1 þeirri jarð-
vist. Hyggst hann flytja lesendum sín
um nokkru fjölbreyttara efni en áður
og léttara, án þess þó að afneita meiri
undirstöðufæðu, sálarfæðu, er svo
mætti nefna".
Af efni þessa rits má nefna: Dul-
speki og dómvísi. — Frá Indlandi eftir
Gunnar Dal — Hugræn reglusemi efítr
Sigvalda Hjálmarsson — Nútíma sál-
fræði og dulræn fyrirbrigði eftir Er
lend Haraldsson o.fl.o.fl. — Ritið ílyt
ur ýmislegt annað efni um guðspeki.
Tresmíði Vinn allskonai- innanhúss trésmíði í húsum og á verk stæði. Hef vélar á vinnu- stað. Get útvegað efni. — Sanngjörn viðskipti. Sími 16805. Ljósmyndafyrirsæta óskast. Tilb sendist ásamit mynd, merkt: „Portrait — 5149“ á afgreiðslu Mbl.
ibúð 2 herb. og eldhús '~kast sem allra fyrst fyrir ung hjón með 2 böm, mætti vera í kjallara. Uppl. í síma 2-47-58.
Eldavél — Blikkhnífur til sölu. Rafha eldavél eldri gerð og fótstiginn blikkhnífur. "'ppl. í síma 14407.
Myndavél í tösku og blá telpuúlpa töpuðust í áætlunarbíl — Reykjavík — Melgraseyri 18. júlí. Finnandi vinsaml. hringi í sima 12419. — Fundarlaun.
Vil kaupa 4—6 herb. nýlega íbúð. Tilb. merkt: „Forstofu- herbergi“ sendist blaðinu fyrir 13. ágúst.
Þórsmerkurfarar Um Verzlunarmannabelg- ina tapaðist í Þórsmörk- inni Certína gullúr. Skil- vís finnandi vinsamegast komi því á Lögreglustöð- ina. Til sölu Vegna brottflutnings er til sölu: P Snvél, Sýningar- vél (8 mm), Segulbands- tæki (Telefunken). Uppl. í síma 32507 frá kl. 5—7 e. h.
íbúð óskast 3—4 herb. íbúð óskast. — Þrennt fullorðið í heimili. Fyrirframgreiðsla e f t i r samkomulagi. Uppl. í síma 10730 eftir kl. 5. 16 feta árabátur til sölu U-ppl. í síma 23087.
íbúð óskast Ungur maður í millilanda siglingum óskar eftir íbúð fyrir 1. okt. Sími 15675 eftir kl. 7 næsta kvöld. Ný-uppgerður bílmótor í iörd ’55 með öllu tilheyr andi. Bilaverkstæð: Vilhjálms Sveinssonar Sími 50673.
Ráðskona óskast á heimili í Reykjavík 1. september. Tilboð ásamt uppl. sendist blaðinu fyrir föstudagskvöld merkt: — „Framtíö 5148“.
A T H U G I Ð að borið saman ð útbreiðslu er langtum ódýrara að auglýsa i Morgunblaðinu, en öðruna blöðum. —
IJTSALAIM
Herraskyrtur kr. 107.—
Ullarúlpur barna st. 3—7 kr. 195.—
Kvenblússur frá kr. 50.—
Drengjablússur st. 12—16 kr. 245.—
Kvensloppar frá kr. 100.—
Kvenkápur kr. 695.—
Herrafrakkar kr. 490.—
Ýmiss konar nærfatnaður, undirfatnaður,
herrasokkar, sportsokkar o. m. fl.
Allt með 50% afslætti.
VÖRUHIJSIÐ
Snorrabraut 38.
T resmiðir T resmiðir
Viljum ráða góðan trésmið.
Timburverzlunin
VÖLLIMEHJR H.F.
Klapparstíg 1 — Sími 18430.
Gjaldkerasfarf
Óskum eftir gjaldkera sem fyrst. Upplýsingar veittar
á skrifstofu vorri Vesturgötu 10 kl. 4—5 í dag
og á morgun.