Morgunblaðið - 09.08.1961, Blaðsíða 10
10
MORGVNBLAÐIÐ
MiðviEudagur 9. ágúst 1961’
Eg er eins og örninn - örninn
sagöi Titov í geimf arinu Vostok 11
J Hugsaði mikið um Krúsjeff,
sem hann elskar eins
og föður sinn
SNEMMA á sunnudagsmorg-
un sendu Rússar á braut um-
hverfis jörðu mannað geimfar,
sem .vó hálft fimmta tonn
Um borð var 26 ára gamall
majór úr flugher Sovétríkj-
anna, Ghermann Stepanovich
Titov, og fór hann sautján sinn
um umhverfis jörðu á 25 klst.
Tilkynnt hefur verið, að
ferðin hafi gengið að óskum,
geimfarið farið sem næst
alveg á réttri braut alla leið-
ina. Að ferðinni lokinni tóku
læknar við geimfaranum og
rannsökuðu hann gaumgæfi-
lega. Talið er víst, að geim-
farið hafi lent í héraðinu Sara
tov — þar hafj Gagarin lent
á sínum tíma og einnig
geimfarið með hundunum
Strelku Og Belku. Er héraðið
tæpa 700 km frá Möskvu.
Tilgangurinn með þessari til
raun er að sögn Rússa, að
rannsaka áhrif langrar dvalar
uppi í himingeimnum á manns
líkamann, svo og að athuga
hver máttur mannslíkamans
er við svo langvarandi þyngd-
arleysi.
Geimskipið ber nafnið
Vostok II. Því var skotið á
loft frá geimrannsóknarstöð-
inni Bajkonur í Kasakstan,
norðaustan við Aralvatn. Það
er sem fyrr segir fjögur og
háltt tonn að þyngd og var
skotið á loft með 20 millj. hest
afla eldflaug. Mesta fjarlægð
frá jörðu var 257 km, en
minnsta fjarlægð 179 km. Um
ferðartími Vostoks II. var 88.6
mínútur, þ.e.a.s. að ferill geim-
skipsins var aðeins nær jörðu
en ferill Vostoks 1., sem Juri
Gagarin fór með 12. apríl sl.
Umferðartími Gagaríns var
89.6 mín. í opinberri tilkynn-
ingu segir, að þessi ráðstöfun
hafi verið gerð til þess að
verja geimfarann geimgeisl-
um. Hinsvegar verður hættan
á því, að geimskipið eyðist í
gufuhvolfinu meiri eftir því
sem umferðartíminn er minni.
Vostok II. er næstum ná-
kvæm eftirlíking á geimfari
Gagarins. Gerðar voru ein-
hverjar smávegis breytingar í
samræmi við reynsluna af
ferð hans og ennfremur er það
aðeins þyngra.
„Tileinkað 22. flokks-
þinginu"
Þegar á laugardag kvisaðist
það í Moskvu, að Rússar
væru alveg að því komnir að
senda geimfar á loft, en það
var ekki fyrr en það hafði
farið eina umferð, að venju-
legar fréttasendingar Moskvu-
útvarpsins voru rofnar og til-
kynnt um ferð Titovs. Þá var
geimskipið aftur aftur yfir So
vétríkjunum og sendi Titov
ríkisstjórninni, miðstjórn
kommúnistaflokksins og Krú-
sjeff forsætisráðherra kveðjur
sínar. Krúsjeff svaraði boðum
hans um hæl: — „Allar Sovét-
þjóðirnar gleðjast yfir hinni
velheppnuðu ferð þinni og eru
hreyknar af þér. Við föðmum
þig og bíðum þess að þú lend-
ir“.
Síðar varðá Titov nokkrum
tíma til að senda 22. flokks-
þinginu, sem halda á í Októ-
ber í haust, kveðjur sínar. Til-
einkaði hann þinginu ferðina,
og þakkaði hana hinu komm-
úníska skipulagi.
Da-gskrá Moskvuútvarpsins
vert, að vanmeta hæfni Rússa
á sviði geimrannsókna.
Ekki var Ijóst fyrr en um
hádegi á sunnudag, að ferð
Titovs yrði svo löng sem raun
varð. Moskvuútvarpið sagði
ekkert um hvenær geimskipið
ætti að lenda, en þegar til-
kynnt var um tilgang tilraun-
arinnar þótti sýnt að það yrði
ekki fyrr en næsta morgun í
fyrsta lagi.
„Ég er eins og örninn
— örninn“
Meðan á geimferðinni stóð
tilkynnti Titov jafnan að sér
liði vel, að allt gengi að ósk-
um. Með innbyggðum sjón-
varpstækjum var unnt að sjá
frá jörðu hvað hann hafðist að
Yfir íslandi kl. 3 í sjöundu umferð.
fjallaði eftir þetta nær ein-
göngu um Titov, ferð hans og
hann sjálfan. Voru. sýndar í
sjónvarpi myndir frá undir-
búningi ferðarinnar og úr
einkalífi Titovs. Jafnóðum var
sagt frá því, er hann fór yfir
hina ýmsu staði, t. d. London,
Moskvu, Novo Sibrisk, Ástra-
líu, Venezuelá, Washington,
o. s. frv. Geimskipið fór yfir
ísland um kl. -þrjú síðdegis á
sunnudag. Jafnóðum og Titov
fór yfir, sendi hann þjóðum og
þjóðhöfðingjum kveðjur sínar.
Heyrðist mjög greinilega til
hans er hann fór yfir. Til dæm
is heyrðist tvisvar greinilega
til hans yfir Skandinavíu og
starfsmenn Jodrell Bank
st j örnuathugunarstöð varinnar
í Bretlandi heyrðu greinilega
boð geimfarans. Voru þau
jafnóðum tekin niður á segul-
band og þýdd yfir á ensku.
Sir Bernard Lovell, forstöðu
maður á Jodrell Bank hefur
lýst mikilli hrifningu yfir
þessu afreki Rússa. Segir hann
ferðir þeirra Gagarins, Shep-
ards og Grissoms ekki sam-
bærilegar við þessa ferð.
Sir Bernard sagði af þessu
tilefni, að hann væri sjálfur
fjarri því að aðhyllast stjórn-
málahætti og skoðanir Rússa,
en hann áliti mjög varhuga-
og hægt var að mæla andar-
drátt hans og æðaslög. Andar-
drátturinn reyndist alltaf eðli-
legur og hjartaslögin einnig.
Hæst mældust þau 100 á
mínútu í upphafi ferðarinnar
og lægst 58 á mínútu meðan
hann svaf.
Titov nærðist þrisvar meðan
á ferðinni stóð, — fékk nær-
ingu úr túpum. Hann tók sér
hálfrar klukkustundar matar-
hlé í hvert sinn og borðaði þrí
réttað, með kaffi á eftir, —
einnig úr túpu. Eftir fyrstu
máltíðina fékk TitOv sér smá-
lúr en tók síðan sjálfur við
stjórn geimskipsins. Hann til-
kynnti að það léti vel að
stjórn. Ennfremur gerði Titov
leikfimisæfingar af og til sér
til hressingar.
Meðan á fimmtu hringferð-
inni stóð lét hann í fyrsta sinn
í ljósi áhrifin af þyngdarleys-
inu — kvað það ekki há sér
neitt. — Ég er eins örninn —
örninn, sagði hann og var glað
ur — sagði að hitinn væri hæfi
legur (18—22 stig) og sér liði
vel. Þegar hann hafði verið
á lofti í sjö klst. var upplýst,
að hann hefði farið 200.400 km
vegalengd. Þegar hann svo um
hálf þrjú lagði upp í sjöundu
hringferðina — en þá fór hann
meðal annars yfir austur-
strönd Bandaríkjanna, fsland,
Skandinaviu, íran, Rauða haf-
ið, Indlandshaf og Kyrrahaf,
— sagði Titov, að nú væri
hann Orðinn syfjaður. — „Þið
ráðið hvað þið gerið þarna
niðri Moskvubúar, en ég ætla
að fara að sofa“. Ætlunin var,
að hann svæfi í sjö klst. en
hann svaf yfir sig og vaknaði
ekki fyrr en klukkan var orð-
in tíu. Á meðan var ekkert
samband við geimskipið og
Sir Bernard Lovell á Jodrell
Bank brá sér til kvöldmessu
í kirkjunni í Sweetenham, sem
er skammt frá athugunarstöð-
inni, en hann er orgelleikari
safnaðarins þar.
A „Hugsaði mikið um
Krúsjeff“
Eitt veigamesta atriði i til-
raun þessari er að Titov skyldi
sofa svo lengi og vel þyngdar-
laust. Verður það líklegast for
vitnilegasta rannsóknarefni
rússneskra lækna á næstunni.
Þegar Titov lenti í geim-
skipi sínu heilu og höldnu
snemma á mánudagsmorgun
tóku sem fyrr segir við hon-
um læknar, sem fluttu hann
þegar í stað í sjúkrahús til
frekari rannsóknar. í síðari
fréttum segir reyndar, að sam-
yrkjubændur hafi fyrstir séð
Titov lenda og hafi þeir fagn-
að honum að þeirra hætti.
Síðdegis í gær átti Titov
fund með fréttamönnum. Var
þá Gagarin kominn til hans
og var honum til aðstoðar,
enda orðinn vanur fréttavið-
tölum af ferðalögunum síðustu
vikurnar.
Aðeins rússneskir blaða-
menn fengu að ræða við Titov.
Vestrænum var ekki leyft að
koma nærri honum.
Eftir því, sem Tass frétta-
Tímataflan fyrrihluta
Ieiðarninnar:
KI. 6:40 Moskvuútvarpið rýf
ur dagskrána og til-
kynnir að VostokH.
hafi verið sent á
braut kl. 5 árd.
— 7:00 Tækniútbúnaður all
ur í góðu lagi svo
og líðan Titovs.
— 8:54 Vostok II. hefur
lokið annarri hring-
ferð umhverfis
jörðu.
— 9:02 Geimfarið er yfir
Moskvu og Titov
þakkar Krúsjeff
kveðjuna. — Hefur
stöðugt samband við
jörð.
— 9:30 Yfir London.
— 9:50 Hefur nýlokið við
að borða þrírétta
máltíð og kaffi á
eftir.
— 13:00 Lokið hádegisverði.
— 13:54 Yfir Washington.
— 14:30 Orðinn syfjaður og
býður jarðarbúum
góðar nætur.
— 15:00 Steinsofandi yfir
Reykjavík.
300 km
,yosTOk,M
fjærst jörðu
2.00 km
„VOSTOk'
naest jörðu
EvereSt-findur
stofan segir, kvaðst Titov hafa
þjáðst af jarðþrá. — Ég vissi
að til er heimþrá, sagði Titov,
en mér varð ljóst í geimferð-
inni að einnig er til jarðþrá.
Ég veit ekki hvað skal kalla
þá tilfinningu, — en hún er.
Ekkert í veröldinni er fegurra
en fósturjörðin, sem maður gef
ur staðið á, unnið og andað að
sér ilmi akranna.
Pravda hefur eftir samyrkju
bónda einum sem sá er geim-
farið lenti: — Við heyrðum
fyrst eins Og þrumuhljóð og
svo kom geimskipið eins og
„þruma úr heiðskíru lofti“.
Ekkert hefur verið skýrt
opinberlega frá lendingu geim
skipsins, en frásögn bóndans,
ef rétt er, þykir benda til þess
að það hafi svifið í fallhlífum
til jarðar. Titov sagði, að
Vostok II. væri í fullkomnu
lagi Og gæti flogið aftur,
Hann benti til himins Og
sagði: — Það er dýrðlegt
þarna uppi. Himingeimurinn
bíður — bíður eftir skáldum
Og málurum. Pravda segir, að
Titov hafi verið útitekinn eins
og eftir sólbruna er hann kom
til jarðar.
Titov kvaðst sömu skoðunar
og Gagarin um fegurð himin-
hvolfsins. Tunglið hefði hann
séð tvisvar og það væri ekkert
frábrugðið utan úr geimnum
að sjá. Hinsvegar var sólin
svo sterk að vart var unnt að
líta á hana, sagði Titov og
hann sagðist hafa séð sólina
koma úpp og ganga til viðar
sautján sinnum í ferðinnL
Þyngdarleysið kvað hann ekki
hafa haft nein áhrif á sig.
Fréttamenn sögðu, að Titov
hefði hugsað mikið um Krú-
sjeff í ferðinni. Við frétta-
mann Pravda sagði Titov: —
Ég elska þennan mann eins og
hann væri faðir minn, og hugs