Morgunblaðið - 09.08.1961, Síða 11
I. Miðvikudagur 9. ágúst 1961
MORCVNBLAÐIÐ
11
MAJÓR Ghermann Stephano
vich Titov geimíari er í op-
inberum íregnum írá Moskvu
kallaður „einkennandi fyr-
ir unga, dugmikla sovét-
borgara“. Titov er e.t.v. ekki
eins rússneskur í útliti og
Juri Gagarin, vinur hans og
kollega, — hann er Ijósari
yfirlitum, maður breiðleitur
með hátt enni, liðað hár og
loðnar augabrýr. Af mynd-
lim að sjá virðist hann nokk-
uð fullorðinslegri en Gagarin,
þótt árinu sé hann yngri.
Titov er fæddur í litlu
þorpi, Verkhneye Zhilino, í
einu fjærsta héraði Síberíu
— Altai-héraðinu, sem er
nærri landamærum Kína. —
í>ar hefur faðir hans stund-
að kennslu í rússnesku og
þýzku, en fyrir skömmu lét
hann af störfum og komst á
eftirlaun. Faðirinn heitir
Stepan Pavlovich Titov og er
51 árs að aldri, en móðir
geimfarans, Aleksandra Mik-
hailovna, er fædd árið 1914.
1 Stepan Titov tjáði frétta-
„Ungur dugmikill Sovétborgari"
mönnum um helgina, að
I sonur sinn hefði verið þæg-
i ur og prúður drengur í upp-
I vextinum. Hugur hans hefði
j mjög snemma hneigzt að
I módelsmíði og flugvélum. —
i Ennfremur hafði hann lesið
mikið sem barn og verið fík-
inn í frásagnir af ævintýrum
og mannraunum. Hann lærði
að renna sér á skíðum
' aði mikið um hann í himin-
geimnum. — Hann kvaðst
hafa fengið kveðjuna frá Krú-
sjeff og hefði sér þótt harla
vænt um — það hefði komið
út á sér tárum að heyra hana.
f gær átti Krúsjeff símtal
við Titov Og lofaði honum þá,
að hann skyldi kyssa hann og
I faðma föðurlega er þeir hittust
á flugvellinum í Moskvu á
miðvikudag. — Ég kem á móti
þér með alla þjóðina, sagði
Krúsjeff. Og Titov svaraði —
Ég þakka þér Nikita Sergeye
vich —, ég þakka þér kærlega.
þriggja ára gamall og hefur
fengið þann vitnisburð fé-
laga sinna í skóla að hann
hafi verið fyrirtaks íþrótta-
maður.
Ghermann Titov hafði
brotið þvert gegn vilja föður
síns með því að fara að læra
flug. Hann átti að verða há-
skólamenntaður. — En
drengurinn hafði sitt fram,
sagði faðirinn — og ekki
verður annað sagt, en hann
hafi náð góðum árangri.
Titov lærði flug í liðsfor-
ingjaskóla flughersins í Stal-
ingrad árin 1955—57, og lauk
þaðan prófi með ágætasta
vitnisburði. Þaðan fór hann
til Leningrad til starfa. Hann
hefur eins og Gagarin geng-
izt undir margra ára þjálfun
fyrir geimferðir.
Titov er maður kvæntur
og heitir kona hans Tamara
Vasilyevna, 23 ára að aldri.
Þau hjón eru barnlaus. —
Meðan á geimför Titovs stóð
dvaldist Tamara heima hjá
vinkonu sinni, Valentinu,
konu Gagarins, og vék ekki
frá útvarpinu fyrr en hún
heyrði að maður hennar
hefði lent heilu og höldnu.
Með því fyrsta sem Titov
spurði um, þegar geimfar
hans var lent, var, hvernig
konunni hefði gengið á prófi,
sem hún hafði þá nýlokið —
en Tamara hefur í hyggju að
gerast læknir. Ekki er okkur
kunnugt hvert svarið var,
hvort Tamara náði prófinu.
Til þessa hafa þau hjónin
búið í húsakynnum liðsfor-
ingja flughersins utan við
Moskvu, en nú er þess
vænzt, að þeim verði gert
jafnhátt undir höfði og Val-
entinu og Júri Gagarin —
að þau fái nýja íbúð inni í
borginni sjálfri.
Á Dansað í Kreml
Fréttin um geimferð Titovs
vakti mikla hrifningu í Sovét-
ríkjunum og hafa þegar verið
gefin út frímerki og póstkort
með myndum af Titov eins og
gert var, þegar Gagarin fór
' sína ferð.
j Pravda hafði svo mikið við
að gefa út aukablað með frétt
um um geimferðina.
i Fréttaritarar í Moskvu segja
þó, að fögnuður Moskvubúa
hafi ekki verið eins firna mik-
ill og yfir geimferð Gagarins,
en þó eru undirbúin hátíða-
•höld Titov til heiðurs engu
I jninni en haldin voru Gagarin.
I Foreldrar Titovs hafa verið
sóttir til Síheríu, en þar átti
| móðir hans svefnlausa nótt af
éhyggjum af syninum.
| Búizt er við, að Titov komi
til Moskvu um hádegisbilið —
á flugvellinum taka Nikita
Krúsjeff og Tamara, eiginkona
Titovs á móti honum. Síðan
munu þeir Krúsjeff aka sam-
an um götur Moskvuborgar í
opinni bifreið.
Mikil hátíðahöld verða á
Rauða torginu og að lokum
veizla í Kreml.
Gagarín og Rauði
herinn á Keflavíkur-
flugvelii
KLUKKAN hálftólf á sunnu-
dagskvöld kom Gagarín majór
til Keflavíkurflugvallar úr vest-
urför sinni. Fyrirhugað hafði
verið, að hann gisti þar um
nóttina, en nú þurfti hann að
flýta sér austur til Moskvu, til
þess að taka á móti Titov maj-
ór. Því stanzaði hann ekki
nema tvo tíma. Gagarín kom
inn í flugstöðvarbygginguna og
lék á als oddi. Hann stillti sér
upp fyrir framan myndavél með
islenzkum starfsmönnum, og af-
greiðslustúlku gaf hann fagurt
póstkort. Á því var mynd af
sjálfum honum, þar sem hann
heldur á snjóhvítri dúfu, senni-
lega „friðardúfu" af nýjustu
sovét-gerð.
Guðjóni Bjarnasyni, yfirflug-
umsjónarmanni, færði hann að
gjöf stóra, innrammaða mynd af
sjálfum sér. Gagarín skrifaði á
myndina á rússnesku: „Til Guð-
jóns frá Gagarín". Myndinni
fylgdu tvær flöskur af þrúgu-
víni frá Krímstetga.
Um tvö-leytið á sunnudag
komu tvær skrúfuþotur af gerð-
inni IL-18 austan frá Moskvu
til Keflavíkurflugvallar. Þær
fluttu 168 manna hóp; söng- og
dansfólk úr Rauða hernum, sem
var á leið til Kanada. Fólkið
dvaldist sður frá á sunnudag og
gisti þar um nóttina, en hélt
áleiðis til Ottawa á mánudags-
morgun. Fólkið fagnaði Gagarín
ákaflega á sunnudagskvöldið.
Flugvélin fór ekki á loft
AKRANESI, 8. ágúst — Sigurður
er maður nefndur Arnmundsson,
36 ára gamall, giftur og 5 barna
faðir, búsettur á Háhorni 12 hér
í bæ. Sl. fimm ár hefur hann not
að flestar tómstundir til að smíða
flugvél. Flugvélaverkstæðið hef-
ur Sigurður haft uppi á háalofti
900 farþegar
á einum degi
með Föxunum
FLUTNINGAR með flugvélum
Flugfélags íslands hafa verið
með mesta móti imi verzlunar-
roannahelgina í ár og hafa flug-
ferðir innanlands og utan gengið
mjög vel.
Þjóðhátíð Vestmannaeyja setti
svip sinn á flugið innanlands og
þangað voru fluttir mörg hundr
uð farþegar daglega fyrir hátíð-
ina og aftur til lands að henni
lokinni.
S.l. sunnudag voru farþegar á
innanlandsleiðum um sex hundr
uð og farþegar með millilanda-
flugvélum Flugfélagsins rúmlega
þrjúhundruð, svo samtals fluttu
„Faxarnir" þennan einá dag rúm
lega níu hundruð farþega.
Veður var hagstætt til flugs til
Vestmannaeyja dagana sem þjóð
hátíðin stóð og var flogið stanz
laust að kalla, nama í nokkrar
klst. á mánudagsmorgun, að flug
völlurinn í Eyjum lokaðist.
Guðrún Pálsdóttir
75 ára
GUÐRÚN PÁLSDÓTTIR Michel-
sen verður 75 ára í dag. Hún er
fædd að Kroppi í Eyjafirði af
norðlenzkum bændaættum. Hún
giftist Frank Michelsen, úrsmið
á Sauðárkróki og eignuðust þau
12 börn. Af þeim eru 11 á lífi. í
dag dvelur Guðrún hjé syni sín
um Páli, garðyrkjumanni í Hvera
gerði.
og þar hefur hann beitt flugviti
sínu og handsnilli við að sr.iíða
stykkin í flugvélina. Sigurður
lærði að fljúga á námskeiði hjá
flugskólanum Þyt fyrir 3 árum.
í gær rann upp hinn stóri dag
ur hjá Sigurði. Vörubíll ók flug
vélinni inn á Langasand. Jeppa-
bíll var þar til staðar með strengi
og tól, til að draga flugvélina á
loft. En hún hóf sig ekki upp.
Talið er að vélin sé of afturþung
eða þá að sandurinn sé of gljúp
ur sam flugbraut. Hin grönnu
hjól skáru sig niður í sandinn.
Það er engin hætta á að Sigurð
ur sé af baki dottin, en sem von-
legt er þykir honum súrt í broti
að ná sér ekki á loft og það ein
mitt um sama leyti og Titov vin
ur hans og flokksbróðir í Rússíá
fer 17 hringi kringum jörðina í
einni lotu.
Af austurmiðum til
Akraness með síld
MB. REYNIR AK 98 fékk ágætt
síldarkast á Reyðarfjarðardýpi í
fyrri viku, en þar sem þrær og
geymar sildarverksmiðja Aust-
firðinga rúmuðu ekki meira tóku
Reynismenn þann kostinn að
hraða för til Vestmannaeyja. Er
þangað kom, heilsuðu þeim sæ-
roknir víkingar á sparifötunum
og með blóm í hnappagatinu. —
Þjóðhátíðin var byrjuð með báli
og blossum, flugeldum og fagn-
aði. Engri síld landað í dag!
Og þegar þeim félögum var sagt
frá kínversku hofi uppi í Herjólfs
dal biðu Akurnesingar ekki boð-
anna leystu festar, slógu 1 ag
sigldu mikinn suður fyrir Reykja
nes. Heim, heim, söng.í vélinni.
Hér lönduðu þeir 705 máluim á
sunnudagsmorgun, og fóru aftur
um kvöldið suður urn og austur.
Þó þeir stæðu ekki á tindi
Heklu há, var Suðurlandsundir-
ledið samt við sig. Landsýn var
hrífandi fögur enda glaða sól-
skin og bjartviðri. Þannig bætti
fósturjörðin sumarskrýdd sjó-
mönnum upp langa siglingvi og
löndunartöf. —Oddur.
Talsverður viðbúnaður var
suður á Keflavíkurflugvelli
til þess að taka vel á móti
168 manna hópnum úr
söng- og dansflokkum
Rauða hersins, sem gisti
þar á leiðinni til Kanada
aðfaranótt mánudags. Úti-
bú Flugvallarhátelsins, svo
kallað Annex, var rýmt
heilum sólarhring fyrir
komu listafólksins.
Eftir beiðni sendiráðs
Sovétrikjanna í Reykjavík
var sett voldug hespa og
hengilás að utanverðu á
dyr gistihússins. Að sjálf-
sögðu mun þessi frumlega
ráðstöfun hafa verið gerð
til þess að útiloka allt ó-
þarfa ráp listafólksins um
hina hötuðu NATO-flug-
stöð og hindra samskipti
sovétmanna við innfæddan
almúgann. E.t.v. hafa hesp-
an og hengilásinn líká átt
að tryggja, að enginn færi
að læðast að- næturlagi í
frelsið.
Á sama tíma og majórarn
ir Gagarín og Títov fljúga
um himingeiminn í krafti
friðar og kommúnisma er
sett hespa og hengilás fyr-
ir frelsið hjá listafólki
Rauða hersins.