Morgunblaðið - 09.08.1961, Síða 16
16
MORGUNBLAÐÍÐ
Miðvikudagur 9. ágúst 1961
Ingólfur Árnason
forstjóri — Minning
HIN N 2. ágúst sl. andaðist í
Landspítalanum Ingólfur Árna-
son, forstjóri, Skeiðarvogi 20.
Hann verður jarðsunginn frá
Fossvogskirkju miðvikudaginn
9. ágúst klukkan 1,30.
Ingólfur Árnasön var fæddur
22. september árið 1900. Hann
var sonur hjónanna Árna Guð-
mundssonar, bónda í Stórú-
Skógum, og konu hans, Ragn-
heiðar Pétursdóttur.
Móður sína missti Ingólfur
laust eftir fermingu og varð
hann að bjargast á eigin spýt-
ur eftir það, en hann kom sér
allsstaðar vel, þar sem hann
vann, og menn fundu fljótt
hvern mann hann hafði að
geyma. Hartn var góður verk-
maður, trúr og reglusamur og
maður, sem óhætt var að treysta
í hvívetna.
Árið 1946 kvæntist hann eft-
irlifandi konu sinni, Jónínu K.
Narfadóttur, og um sama leyti
keypti hann þvottahúsið Laug
hálft og litlu síðar allt, og rak
hann það til dauðadags.
Fyrir tæpum tveimur árum
■
Vélar tíl sölu
Undirritaður hefur til sölu 2 Generalmotor-diesel
vélar nr. 8-268 A með gír og tilheyrandi, Þyngd
6 tonn, snúningshraði 1250. Vélarnar eru lítið notaðar.
Verð mjög hagstætt. Get útvegað niðursetningu
í Noregi og sennilega komið í verð gömlum vélum
úr bátum.
IMjáll Gunnlaugsson
Vesturgötu 52, Reykjavík — Sími 18888.
3ja herbergja íbúð
Til sölu er skemmtileg 3ja herbergja íbúðarhæð við
Ásgarð tilbúin undir tréverk. Hitaveita. Aðeins 2
íbúðir nota sömu forstofu og þvottahús. Stutt í allar
verzlanir. Bískúrsréttur. Hagstætt verð og skilmálar,
ef samið er strax.
ÁRNI STEFANSSON, hrl.
MálHutningur — Fasteignasala
Suðurgötu 4 — Sími: 14314.
veiktist hann og fór þá á Heilsu
verndarstöðina og lá þar mjög
þungt haldinn, en hann kvart-
aði aldrei, þrátt fyrir, að kval-
irnar væru stundum svo mikl-
ar, að hann mætti vart mæla.
Síðar komst hann í Landspít-
alann, þar sem hann fékk
nokkra bót, komst á fætur og
heim til sín. Við vinir hans
bjuggumst nú við, að það versta
væri yfirstigið, en framförin
var lítil, og 28. júlí fór hann
aftur í Landspítalann til frek-
ari rannsóknar, en kraftarnir
voru þrotnir og hann andaðist
í svefni 2. ágúst.
Með Ingólfi Arnasyni er geng-
inn góður drengur og væri
mikils virði að við ættum
marga slíka.
Ég kynntist Ingólfi um 1940,
og tókst með okkur góð vin-
átta, sem hélzt ætíð síðan. —
Ingólfur var heilbrigður og heil
steyptur, tryggur í lund og
fljótur að rétta hjálparhönd, ef
á þurfti að halda. Það sagði
einu sinni maður við mig eitt-
hvað á þessa leið: Það eru tveir
menn, sem ég tek fram yfir
alla aðra af þeim, sem ég hef
kynnzt á lífsleiðinni, og hef ég
þó kynnzt mörgum. Annar þess
ara manna er Ingólfur Arna-
son. —
Gestrisinn var Ingólfur með
afbrigðum, og var mjög gaman
að koma. á heimili þeirra hjóna.
Ræðinn var hann og skemmti-
legur, orðheppinn og fundvís á
hina skemmtilegu hlið hvers
máls, en allt var það græsku-
laust og þess gætt, að það særði
engan. Hann las mikið og var
víða heima, sagði vel frá og
var minnugur. Það er sárt að
sjá á bak góðum vini, en hugg-
un er það harmi gegn að eiga
góðar og ljúfar minningar um
bjartar og glaðar samveru-
stundir. Ég mun ætíð minnast
hans sem eins bezta vinar, sem
hægt er að eignast. Vertu sæll,
kæri vinur, og hafðu þökk fyrir
alla tryggð þína við mig og
heimili mitt. Við söknum þín
öll, en minnumst jafnframt hins
göfuga og góða, er þú sáðir
umhverfis þig. Konu þinni og
syni sendum við okkar innileg-
ustu samúðarkveðjur og biðjum
Glæsileg hæð til sölu
í tvíbýlishúsi við Stóragerði. Á hæðinni eru 6 her-
bergi, eldhús með borðkrók, bað, skáli o. fl. í kjallara
1 gott íbúðarherbergi auk geymslu o. fl. Sér þvotta-
hús á hæðinni. Bílskúrsréttur. Er seld uppsteypt með
járni á þaki eða lengra komin. Verðið er óvenjulega
hagstætt, er samið er strax.
Arni stefAnsson, hrl.
Málflutningur — Fasteignasala
Suðurgötu 4 — Sími: 14314.
ÍTALÍA
í septembersól
1,—21. sept. kr. 17.800,—
Glæsilegasta Ítalíuferð-
in fyrr og síðar.
— Dvalið á mörgum
fegurstu stöðum Ítalíu.
— Siglt með nýjasta
hafskipi ítaia Leonardo
Di Vinci 33 þús. smál.
— Dvalið í Monte
Carlo og Nizza áður en
flogið heim.
— Engar langar þreyt
andi rútubílaferðir.
— Dvalið lengi á
mörgum stöðum.
Guð að hugga þau í sorg sinni
og vera þeim stoð og styrkur
í framtíðinni.
Jóhannes S. Sigurðsson.
I. O. G. T.
Kaffiveitingar verða á kvöldin
og um helgar. Stúkur sem ætla
að fara að fara að Jaðri eru beðn
ar að hringja og láta vita meS
nægum fyrirvara. Jaðar.
Samkomu
Kristniboðssambandið
Samkoma í kvöld kl. 8.30 I
Betaníu að Laufásvegi 13. —
Konso fréttir. — Jóhannes Sig-
urðsson talar. Allir velkomnir.
Félagslíi
Innanfélagsmót
fer fram að Hörðuvöllum í
Hafnarfirði í kvöld kl. 7. Keppt
verður í spjótkasti, stangar-
stökki, kringlukasti og 60 m
hlaupi.
Mótanefnd.
W * úr UvjklruA
ísIjUu Omunir'
Slriíuöv’uf'
r"jióf Jór\SSor\ Jk c.o
lf.
r1
n
unnuferjir
Með íslenzkum
fararstjórum
París — Rínarlönd
— Sviss
18. ágúst — 17. sept. kr. 14.800,—
Þið sjáið margt það fegursta í
Evrópu. Fegurð og glæsileik
Parísar/óorgar.
— Dvalið í fegurstu héruðum
Alpafj allalandsins.
— Baðstrendur við vötnin.
— Dýrðlegir dagar á uppskeru
hátíð í Rínarlöndum.
Ferðaskrifstofan
)QQDDöOéJ
Skotlandsferð
á Edinborgarhátíð
26. ágúst — 2. sept. kx. 5.600,—
Flogið til Glasgow. Ekið um Skot
landsbyggðir til Edinborgar. Dval
ið á Edinborgarhátíð í hinni
fögru og sögufrægu höfuðborg
Skotlands.
Ferðast um skozku hálöndin.
— Ódýrasta utanlandsferð árs-
MALLORCA
8—22. sept. kr. 14.450,—
Flogið báðar leiðir með viðkömu
í London. Búið á hóteli í Palma.
Ferðalög um hina fögru „Para-
dísareyju" Miðjarðarhafsins. Með
sama sniði og hinar vinsælu
Páskaferðir SUNNU.
Vel skipulögð. SUNNU-
FERÐ veitir yður meira
og fleira fyrir ferðapen-
ingana. Vinnið gengis-
tapið aftur með því að
notfæra ykkur hagnað-
inn af því að ferðast
með SUNNU.
Farið að dæmi þeirra,
sem reynt hafa og fara
ár eftir ár í SUNNU-
FERÐIR til útlanda.
Hverfisgötu 4 — Símí 16400.
Bifreiðasalan
Sími 11025.
Volkswagen ’60 lítið ekinn.
Volkswagen ’59.
Opel Kapitan ’58, lítið ekinn.
Skipti koma til greina á
eldri bifreiðum.
Ford ’56 í góðu standi.
Chevrolet vörubifreið ’55 B.
í góðu standi og fæst á
góðu verði s.s. 85—90 þús.
G.M.C. vörubifreið ’53 í góðu
standi. Verð ’55—’60 þús.
Jeppar í miklu
úrvali
Vörubifreiðir í
miklu úrvali
Ath. höfum úrval
af öllum tegund-
um bifreiða
Bifreiðar til sýnis
alla daga
Bifreiðasalan.
Sími 11025.
A
Happdrætti Háskóla Islands
Á morgun verður dregið í 8. flokki. 1,150 vinningar að fjarhæð 2>060,000 kronur.
í dag eru seinustu forvöð að endurnýja.
HAPPDRÆTTI HÁSKÓLA ÍSLANDS.
8. fl.
1 á 200.000 kr.
1 - 100.000 —
26 - 10.000 —
90 - 5.000 —
1.030 - 1.000 —
Aukavinningar:
2 á 10.000 kr.
1.150
2000.00 kr.
100.000 —
260.000 —
450.000 —
1.030.000 —
. 20.000 kr.
2.060.000 kr.