Morgunblaðið - 09.08.1961, Qupperneq 20
20
MORGVNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 9. ágúst 1961
Skyndibrúðkaup
Renée Shann:
46
— >ér er óhætt að gera það.
Þetta er ég sjálfur. Ég losnaði
ekki til þess að hitta þig fyrr
en í kvöld. Ég fór heim til þín
og ætlaði að koma á óvart, en
þar var enginn heima nema
Sandra. En sem betur fór, gat
hún sagt mér, hvar ég gæti fund
ið þig. Mér skildist á henni, að
þú ætlaðir að verða héma um
helgina hjá einhverju kunningja
íól'ki.
— Það er ekki nema alveg rétt,
Robin.
— En eí þetta er vinafólk
þitt.... Hann þagnaði snögig-
lega. — Hvað hefur komið fyrir?
Það setti að henni hroll. — Æ
ég var fyrst að taka eftir því
núna, að það var komin rigning.
Við getum ekki talað saman
hérna. Og ég sem hef svo margt
að segja þér. Gætum við ekki
farið eitthvert, þar sem ég get
sagt þér alla söguna?
— Ég þarf líka að segja þér
mina sögu. Sjóðu til, bíllinn
minn er hérna rétt hjá, og ég
hef fengið herbergi í Rembrant-
hótelinu. Bíllinn er hraðskreið-
ur og engin umferð á vegunum.
Ættum við ekki bara að fara
beint þangað? Ég sagði við
Sön ''ru, að ég vonaði að koma
með þig til baka. Mér dettur í
hug, að þetta kunningjafólk fyr
irgefi mér að hafa numið þig á
brott, þegar það veit hvemig á
stendur.
Hún svaraði skjálfandi og
hafði þá Betty og George í huga,
að kunningjafólkið mundi ekk-
ert hafa við þetta að athuga.
Það finnst mér við ættum að
gera. Við skulum ekki segja
hvort öðru neitt fyrr en við
erum komin til borgarinnar.
Það var dásamlegt að sitja nú
við hlið hans og þjóta gegn um
myrkrið áleiðis til London. Hún
fór að hugsa um, hvað hún ætti
að segja við hann, þegar að því
kæmi, að hún færi að segja
ferðasöguna sína. Það eitt vissi
hún, að hún yrði að segja honum
allan sannleikann. Hverjar sem
afleiðingarnar yrðu, ætlaði hún
ekki að leyna hann neinu.
Og svo komu þau loksins að
gistihúsinu og dyravörðurinn
var að taka út ferðatöskuna
hennar og setja hana við hliðina
á Robin... tösku. Hugurinn hvarfl
aði ósjólfrátt til dagsins, sem
þau voru siðast alein í gistihúss-
herbergi saman — á sjálfan brúð
kaupsdaginn þeirra — þegar
Nan Wentworth hafði verið svo
nærgætin að lofa þeim að vera
einum, þessai fáu dýrmætu mín-
útur.
Hvað henni fannst það langt
um liðið! Hversu margt hafði
gerzt síðan Lionel kom við sögu
hjá henni — og fór aftur. Robin
hafði líka farið og horfið úr sög-
unni, en fyrir kraftaverk var
hann kominn aftur.
' Hún fór úr kápunni, sem var
ennþá vot og renndi fingrunum
gegn um hárið á sér, og horfði
svo með hálfgerðum söknuði á
sjálfa sig í speglinum. Síðan
sneri hún sér að Robin.
— Elskan mín, ég vildi óska,
að ég gæti litið sæmilega út, þeg
ar ég hitti þig. Svo oft er ég bú-
in að hugsa mér þá stund. En
svo er ég eins og ræfill, hárið
í óreiðu og andlitið í ólagi.
Robin dró hana að sér. — í
mínum augum ertu dásamleg!
— Og í mínum augum ert þú
.... ótrúlegur. Hún hló hálf-
gerðum skjálftahlátri. Ég er enn
ekki farin að trúa, að þetta sé þú
sjálfur.
Robin hafði pantað brauð og
flösku af kampavíni upp í her-
bergið til þeirra. — Við hefðum
getað farið niður og fengið okk-
ur eitthvað, ef þú hefðir viljað,
en mér datt í hug, að við viljum
víst bæði heldur vera ein út af
fyrir okkur.
— Já, það veit hamingjan. Við
höfum svo margt að segja hvort
öðru.
Þegar maturinn var kominn
og þau tekin til við hann, sagði
Robin: — Jæja, hvort okkar á
nú að byrja söguna?
Hún dró snöggt að sér andann.
Það er bezt að ég byrji. Ég vil
koma því frá sem allra fyrst.
Robin hnyklaði ofurlítið brýnn
ar. — Þú segir þetta eitthvað svo
óviðkunnanlega.
Hún svaraði og orðin komu
ótt og títt: — Þú skalt ekki vera
hræddur. Ég ætla ekki að segja
þér nein slæm tíðindi.
— Þú ert ekki búin að finna
neinn annan?
— Nei, Robin, það er ég ekki.
Það glaðnaði yfir honum, er
hann svaraði: — Þá er allt í lagi.
— En ég var hrædd um, að
þú hefðir kannske fundið ein-
hverja aðra.
Hann hristi höfuðið. — Nei,
það var nú aldrei nein hætta á
því, og verður aldrei. Síðan
bætti hann við blíðlega: — En
hvers vegna varstu að þjóta út
úr kofanum þeim arna þarna í
kvöld rétt eins og þú værir að
flýja. Og áður en hún fengi
svarað, bætti hann við: — Þú
þarft ekki að segja mér það ef
þú vilt það síður.
— Jú, ég vil einmitt segja þér
það, Robin. Þú manst eftir hon-
um Lionel? Manninum, sem ég
hitti á skipinu á heimleiðinni.
Ég skrifaði þér víst um hann.
Robin kinkaði kolli. Júlía
fylltist kvíða. Hafði svipurinn á
honum breytzt við þessi orð?
Ætti þetta kannske eftir að
verða þeim misklíðarefni? Það
væri ekki sanngjarnt, ef Robin
yfirgæfi hana fyrir þetta, sem
gerðist í kofanum um kvöldið.
Snöggvast datt henni í hug,
hvort hún ætti að fegra söguna
eitthvað, og spurði sjólfa sig,
hvort það mundi nú vera þörf á
að vera fullkomlega hreinskilin
við hann og segja hönum hana
alla út í æsar. En samstundis
fann hún, að hún varð að vera
hreinskilin. Hún ætlaði ekki að
hefja hjónaband sitt með nein-
um leyndarmálum.
Hún reyndi að láta ekki rödd-
ina skjálfa og ekki sjá -á sér
neina hræðslu: — Lionel varð
ástfanginn af mér.
— Mér datt í hug, að svo
hefði verið. En þú sjálf?
— Ég hef alltaf elskað þig
einan, og á því hefur engin breyt
ing orðið. En allt um það var ég
dálítið hrifin af Lionel.
— Ég skil.
— Hatarðu mig fyrir að segja
þetta?
Hann þagði eitt andartak, en
sagði síðan: — Nei, vitanlega
ekki. Elsku Júlía, ég gæti ekki
hugsað mér neitt, sem fengi mig
til að hata þig. Mér þykir þetta
auðvitað verra, en ég skil hins
vegar, að þetta gat auðveldlega
orðið. Ég var hvergi nærri og
þú vissir ekkert hvað af Inér
væri orðið.
— Já, og ég var einmana og
mér leiddist.
Hann laut fram og greip hönd
hennar.
— Haltu áfram, elskan.
— Ég hef hitt Lionel talsvert
oft. Það hefur varla liðið svo
dagur, að við höfum ekki hitzt.
Hann fór með mig út á skemmt-
anir. Og ég fór með honum með-
fram af því, að þú sagðir mér
sjálfur, að ég mætti ekki alltaf
sitja heima og láta mér leiðast.
Og auk þess þótti mér gaman að
vera með honum. Og þó að ég
yrði þess vör, að ég var að verða
honum æ meira háð, hafði ég
ekki kjark í mér til þess að láta
því vera lokið... .og kannske
heldur ekki viljann. Hún þagn-
aði. — Svo var það í gær, að
hann sagði mér, að Dainton-
hjónin — þessi sem eiga kofann
— hefðu 'boðið okkur báðum til
sín yfir helgina, og við fórum
þangað seinripartinn. Um það
leyti, sem við vorum að drekka
te, var hringt og það reyndist
vera heiman frá móður Betty
Dainton, sem var orðin veik og
varð að fara í sjúkrahús og
ganga undir uppskurð í skyndi.
Svo fóru þau hjónin þangað
bæði, og ætluðu að koma aftur
um kvöldið. en um klukkan ell-
efu hringdu þau og sögðust ekki
komast heim.
Þegar hún þagnaði hér í frá-
sögninni, sagði Robin: — Mér
dettur í hug, að ég geti líklega
sagt mér það sem eftir er sög-
unnar sjálfur.
— Eg skal nú segja þér sögu-
lokin samt. Þegar þessi síma-
h. inging köm, sagðist ég ætla
að flytja mig í gistihúsið þarna
á staðnum. Ég benti Lionel á, að
við gætum ekki verið þarna tvö
ein. Svo ætlaði ég að fara að
hringja og panta herbergi.
— Og það vildi hann ekki?
— Neá, hann þvertók fyrir
það. Hann sagði, að þetta tæki-
færi værj^ eins og af himnum
— Hvað heldur þú að hafi kom
ið fyrir dýrin okkar Davíð? Sirrí
sagði mér frá hvarfi dáqjýranna
og geitanna!
— Eg veit ekki neitt Markús . .
Þau voru öll innilokuð í girðingu
og hliðin læst og við höfum eng
in byssuskot heyrt! Eg hef skrif
að hjá mér hvenær dýr hafa horf
ið . . . Eg vona að þú komist að
því hvað um er að vera.
sent. Hann ....
Robin flýtti sér að segja:
— Þetta er ailt í lagi, þú þarft
ekki að segja mér meira. Aðal-
atriðið er, að þér datt aldrei í
hug að gista þarna.
— Nei, þú getur nærri.
ailltvarpiö
Miðvikudagur 9. ágúst
8:00 Morgunútvarp. (Bæn. — 8:05 Tón
leikar. — 8:30 Fréttir. — 8:35 Tón
leikar — 10:10 Veðurfregnir.
12:00 Hádegisútvarp (Tónl.. — 12:25
Fréttir og tilkynningar).
12:55 ,,Við vinnuna" tónleikar.
15:00 Miðdegisútvarp. (Fréttir. —-
15:05 Tónleikar. — 16:00 Fréttir
og tilk. «— 16:05 Tónleikar. —
16:30 Veðurfregnir).
18:30 Tónleikar: Öperettulög.
18:55 Tilkynningar — 19:20 Veðurfr.
19:30 Fréttir.
20:00 ,,Heyri ég 1 hamrinum": Dagskró
um skáldkonuna Huldu, Unni
Benediktsdóttur Bjarklind.
a) Sveinn Skorri Höskuldsson
magister flytur erindi.
b) Finnborg Örnólfsdóttir og
Andrés Björnsson lesa úr
Ijóðum skáldkonunnar.
c) Arni Jónsson o. fl. syngja lög
við ljóð eftir Huldu.
20:50 Frá tónlistarhátíðinni í Schwet
zingen í júní sl.: Gloria Davy
syngur lög eftir Schubert, De-
bussy og Hichard Strauss. Við
píanóið: Jean Jalbert.
21:20 Tækni og vísindi; V. þáttur:
Plastefnin (Páll Theódórsson
eðlisfræðingur).
21:40 islenzk tónlist: „Veizlan á Sól-
haugum**, leikhúsmúsík eftir Pál
ísólfsson (Hljómsveit Ríkisút-
varpsins leikur; Hans Antolitch
stjórnar).
22:00 Fréttir og veðurfregnir.
22:10 Kvöldsagan: „Ösýnilegi maður-
inn“ éftir H. G. Wells; XIII.
(Indriði G. Þorsteinsson rith.)f
22:30 „Stefnumót í Stokkhólmi". Nor-
rænir skemmtikraftar flytja göm
ul og ný lög.
23:00 Dagskrárlok.
Fimmtudagur 10. ágúst
8:00 Morgunútvarp. (Bæn. — 8:05 Tón
leikar. — 8:30 Fréttir. — 8:35 Ton
leikar — 10:10 Veðurfregnir.
12:00 Hádegisútvarp (Tónl.. — 12:25
Fréttir og tilkynningar).
12:55 „A frívaktinni", sjómannaþátt-
ur (Kristín Anna Þórarinsdóttir)
15:00 Miðdegisútvarp (Fréttir. — 15:05
Tónleikar. — 16:00 Fréttir og til-
kynningar. — 16:05 Tónleikar —
16:30 Veðurfregnir).
18:30 Tónleikar: Lög úr óperum.
18:55 Tilkynningar — 19:20 Veðurfr.
19:30 Fréttir.
20:00 Kórsöngur: Karlakór Dalvíkur
syngur. Söngstjóri: Gestur Hjör-
leifsson. Einsöngvarar: Helgi
Indriðason og Jóhann Daníelsson.
Píanóleikari; Guðmundur Jó-
hannsson.
20:25 Erindi: Fallið á prófi (Arnór Sig-
urjónsson rithöfundur).
20:55 Tónleikar: Kvintett í Es-dúr fyr
ir píanó og blásarakvartett
(K452) eftir Mozart (Robert
Veyron-Lacroix leikur á píanó,
Pierre Pierlot á óbó, Jacques
Lancelot á klarínettu, Gilbert
Coursier á horn og Paul Hongne
á fagott).
21:15 Erlend rödd: Höll 1 Sviþjóö,
verksmiðja í Ráðstjórnarríkjun-
um — grein eftir Francoise Gi-
roud (Halldór Þorsteinsson bóka
vörður).
21:40 Samleikur á fiðlu og pianó:
Jacques Ghestem og Raoul Gola
leika vinsæl lög.
22:00 Fréttir og veðurfregnir.
22:10 Kvöldsagan: „Ösýnilegi maður^
inn'* eftir H. G. Wells; XIV,
(Indriði G. Þorsteinsson rith.).
22:30 Sinfónískir tónleikar: Frá tvenn
um útvarpstónleikum I Evrópu,
a) Frá útvarpinu í Berlín: mm
Konsert fyrir þrjú píanó og
hljómsveit eftir Baoh (Eber,
hard Rebling, Gunther Kootz
og Werner Richter leika með
sinfóníuhljómsveit útvarpsina
í Berlín; Rolf Kleinert stj.),
b) Frá ungverska útvarpinu: —
Sinfónía nr. 95 1 c-moll eftir
Haydn (Sinfóníuhljómsveit
ungverska útvarpsins leikur;
András Koródi stjórnar).
23:10 Dagskrárlok.