Morgunblaðið - 09.08.1961, Side 22
2
morgvnbláðið
MiðviEudagur 9. ágúst 1961
Isl. knattspyrnumenn í
Evrdpukeppni landsliða
Keppnin hefst á næsta ári og er
reiknaö meb þátttöku frá 25 löndum
Á NÆSTA ári fer fram hin
svo nefnda Evrópukeppni fyr
ir landslið. Keppni þessi fer
nú fram í annað sinn. Fyrst
þegar keppnin var ákveðin,
voru margir, sem áiitu, að lít
il þátttaka yrði. Reyndin varð
þó önnur, því 18 lönd tóku
þátt í keppninni, sem endaði
með sigri Rússlands. Vakti
keppnin mikla athygli og
varð af henni mikill árangur,
m.a. sökum þess, að lönd, sem
aldrei áður höfðu mætzt,
léku nú saman. Varð því frá
upphafi augljóst, að keppnin
yrði fastur liður hjá Knatt-
spyrnusambandi Evrópu.
Næsta keppni fer fram,
eins og áður segir, á næsta ári,
og er reiknað með, að 25 lönd
sendi lið. Þegar hefir frétzt
um 23 lönd, sem sent hafa
bráðabirgða þátttökutilkynn-
ingu og er ísland eitt þeirra.
Löndin eru þessi:
Rússland, Austurríki, Tékkó-
slóvakía, Danmörk, Búlgaría,
Tyrkland, Grikkland, Ungverja-
land, Júgóslavía, ísland, A-Þýzka
land, Luxemburg, ftalía, Noregur,
Pólland, Rúmenía, Frakkland,
Holland, Belía, S-frland, Spánn,
Sviss og Pörtúgal.
Keppnin er útsláttarkeppni
og leika liðin heima og heiman
í hverri umferð og síðan er
markatala látin ráða ef stigin
verða jöfn. Dregið verður um
næstu áramót hvaða lið leika sam
an í fyrstu umferð og verður
Valbjörn
meiddur
enn
VALBJÖRN Þorláksson hefur
enn ekki náð sér að fullu eftir
tognun þá í baki er hann hlaut í
tugþrautarkeppni Norðurlanda-
mótsins á Bislet á dögunum.
Sagði þjálfari ÍR, Guðmundur
Þórarinsson, síðunni svo frá að
hann teldi mjög óvarlegt að ætla
Valbirni að keppa í landskeppn-
inni um næstu helgi. Gæti hann
með því átt á hættu mun lengri
fjarveru frá íþróttum.
Valbirni er ætlað stórt hlut-
verk í landskeppninni. Fyrst og
fremst er það stangarstökkið, en
auk þess koma spretthlaupin. Það
er því sannarlega Skarð fyrir
skildi ef hann verður ekki með
— en hins er og að gæta að dýr-
mætara er að hann nái sér fljótt
en skemmi fyrir sig með þátt-
töku í landskeppni þar sem engar
sigurvönir eru fyrir íslendinga.
spennandi að fylgjast með, hvaða
landi ísland á að mæta.
Vitað er, að England og V-
Þýzkaland verða ekki með, en
þessi 2 lönd eru þau einu, sem
Tottenham-menn hylltir eftir
sigurinn í bikarkeppninni í
vor.
vitað er ákveðið um, að verði
ekki með.
Áriægjulegt er til þess að
vita, að ísl. knattspyrnumenn
taka nú í fyrsta sinn þátt í einni
af hinum mörgu keppnum, sem
fram fara í Evrópu. En eins og
kunnugt er, eru einnig keppnir
milli meistaraliða Evrópulanda,
bæði þeirra liða, sem sigtra í deild
arkeppnum og bikarkeppnum.
Þórólfur ekki
með gegn
Akranesi
ÞÓRÓLFUR Beck er nú á góð
um batavegi eftir meiðsli þau
er hann hlaut I leiknum gegn
Val á dögunum. Það er fullvíst
að hann tekur þátt í fyrirhug-
áðri ferð Fram til Rússlands
en hann er einn af styrktar-
mönnum Fram-liðsins.
Óli B. Jónsson þjálfari KR
sagði í gær að meiðslin væru
ekki eins slæm og upphaflega
var óttazt. Batinn er ör núna
en þrátt fyrir það verður Þór-
ólfur ekki með í leiknum gegn
Akranesi á fimmtudagskvöld.
Meiðslin eru á hægra fæti
og er öklinn mikið bólginn, en I
hvorki er vatn né blóð í liðn-
um eins og upphaflega var ótt-
azt. Læknar gera nú að sárum
Þórólfs daglega og batinn er
ör.
Sumarknattspyrna í
Englandi
KNATTSPYRNUTIMABILIÐ I
Englandi er frá því um 20. ágúst
til apríl-loka. Má því segja að
knattspyrna sjáist varla í Eng-
landi á tímabilinu 1. maí. til 20.
ágúst eða í um það bil 3Ms mánuð.
Raddi reru nú farnar að heyrast
um, að nauðsynlegt sé að koma
á sumar-knattspyrnu og sé það
fyrir báða jafnt, áhorfendur og
leikmenn. Telja margir að þetta
geti lyft enskri knattspyrnu til
þess sætis, er hún áður hafði.
Framkvæmdarstjóri Arsenal,
George Swindin, er einn af þeim,
er ákafast berjast fyrir þessu.
Hefur • Swindin bent á nokkrar
staðreyndir máli sínu til stuðn-
ings. Sumarið 1949 fór Arsenal í
keppnisferð til Brasilíu og á
næsta keppnistímabili sigraði
félagið í bikarkeppninni. Árið ’51
fór Arsenal enn til Brasilíu og á
keppnistímabilinu á eftir kornst
félagið í úrslit í bikarkeppninni
og var í efstu sætum í deildar-
keppninni. Með þessu vill Swind
in sýna, að nauðsynlegt sé, að
leikmenn séu alltaf í æfingu og
keppni og bendi þessar ferðir
Arsenals til þess, því þau sumur,
er þeir ferðuðust til Brasilíu, hafi
ekkert hlé verið á æfingum. Hef-
ur einnig verið bent á góðan
árang.ur Burnley og Kilmarnock
á síðasta keppnistímabili, en bæði
þessi lið tóku þátt í knattspyrn.u
keppninni í New York í fyrra-
surnar og var þannig ekkert hlé
á æfingum hjá þeim.
Hvað svo sem úr þessu verður,
þá er eitt víst, að því skipulagi,
sem nú er á öllu í enskri knatt-
spyrnu verður ekki breytt, beld
ur mun ef til vill koma ný sumar
keppni jafnvel með þátttöku ým-
issa Evrópuliða.
Mantíhester United keypti ný-
lega miðherja Arsenal, David
Herd, fyrir 35 þús. pund. Herd
hafði áður hafnað þeim kjörum
er Arsenal hafði boðið. Aston
Villa hefur keypt Derek Dougan
frá Blacbburn fyrir 12 þús. pund
ítalska félagið Milan hefur mik-
inn áhuga að kaupa miðherja
enska áhugamannaliðsins, Bobby
Brown. Ákveðið hefur þó verið,
að Brown leiki með Fulham, sem
áhugamaður, næsta keppnistíma-
bil og að því loknu mun Mílan
gera honum ákveðið tilboð. Mörg
ensk félög hafa sýnt ábuga að fá
Brown, en mega ekki „kaupa“
hann, aðeins ráða hann til sín,
án þess að hann fái nokkra
greiðslu fyrir utan fastalaun.
Milan getur aftur á móti greitt
honum álitlega f járhæð, sem renn
ur í vasa Browns, ef hann er á-
hugamaður þegar salam fer fram.
Hér er bíllinn, sem ók á handriðin á Sogsbrúnni við Þrasta-
Iund á sunnudagskvöld. Enginn slasaðist, þótt merkilegt megt
heita, en bíllinn er illa farinn. Kranabíll frá Þungavinnuvél-
um hf. á vegum Félags íslenzkra bifreiðaeigenda fjarlægði
bílinn á skömmum tima, svo að litlar umferðarstafir urðu.
(Ljósm.: Kristján Magnússon)
Ók ó brúna hjó Þrastorlundi
Á SUNNUDAGSKVÖLD
rakst Chevrolet bifreið á
brúna yfir Sogið hjá Þrastar-
lundi. Fimm piltar voru í bíln
um, en þá sakaði ekki. Aftur
á móti skemmdust bæði bíll-
inn og brúin og þykir lán að
ekki varð alvarlegt slys þarna.
Þetta gerðist á seinni hálf-
tímanum til 11 á sunnudags-
kvöld. Var bifreiðin að koma
frá Inglófsfjalli á leið austur
yfir. Fór hún fyrst utan í hand
riðið öðru megin og síðan ská-
hallt yfir brúna á handriðið
hinum megin Og var komin
langleiðina austur yfir bmina,
er hún stöðvaðist, en þá var
hjólið undan.
Við áreksturinn sópuðust
stöplamir í handriðinu á
brúnni af, og var því mesta
heppni að bíllinn skyldi ekki
fara ofan í óna. Hann er mik-
ið skemmdur.
H
/ ff
Skrifar um KVIKMYNDIR
Kópavogsbíó:
Stolin hamingja.
MYND ÞESSI, sem er þýzk og
tekin í litum, gerjst að mestu á
smáeyju í Miðjarðarhafi þ.e.
hinni fögru spænsku eyju Mal-
orca og þar er myndin tekin.
Efni myndarinnar er í stuttu
máli þetta:
Prófessor Bohlen, þekktur
læknir í Þýzkalandi er kvæntur
ungri konu Ninu að nafni, sem
hann veit að er haldin ólækn-
andi sjúkdómi. Hann hefur leynt
konu sína sannleikanum um sjúk
dóminn, en af fyrirlestri, sem
hann heldur í háskólanum og
hún blustar á án vitundar hans,
verður henni ljóst hvens eðlis
sjúkdómur hennar er. Maður
hennar viðurkennir nú að hún
muni ekki eiga langt eftir ólifað,
og segir henni jafnframt hversu
sjúkdómurinn muni lýsa sér er
frá líður, — sjón hennar og
hreyfiskynjun muni raskast. —
í vonleysi sínu yfirgefur Nína
heimili sitt og eiginmann og ferð
ast land úr landi. Hún kemur
dag einn með stóru farþegaskipi
til lítillar eyju við Spán. Hún
kynnist þar, af sérstökum ástæð-
um, ungum og gjörvulegum fiski
manni og heillast af hispursleysi
'hans og glaðværð. Og hann verð
ur hrifinn af þessari glæsilegu
framandi konu. Fundum þeirra
ber eftir þetta oft saman enda
fer svo að með þeim takast brenn
heitar ástir. Nína nýtur hamingju
ríkra daga í faðmi hins unga
manns og í sól og fegurð eyjar-
innar. Allt þetta vekur henni aft
ur trúna á lífið og henni finnst
hún aldrei hafa verið heilbrigð-
ari en nú, enda sannfærist hún
um að eiginmanni sínum hafi
skjátlazt við sjúkdómsgreining-
una. — En dag einn kemur mað
ur hennar til eyjarinnar og bið-
ur hana að hverfa aftur heim.
Hún fellst á það, en segir honum
frá ástum sínum og fiskimanns-
ins. Hún kveðst aðeins koma með
honum heim til rannsóknar, en
að því búnu muni hún hverfa aft
ui til elskhuga síns, enda sé hún
nú alheilbrigð. Hún fer til gisti
húss síns eftir föggum sínum og
skrifar fiskimanninum kveðju-
orð, — en þá verður hún skyndi
lega vör við hin hræðilegu sjúk
dómseinkenni. Hún fer þá beim
í kofa vinar síns til að kveðja
hann, — segir honum að hún sé
sjúk, en að hún muni koma fljót
lega til hans aftur. Hann trúir
henni ekki, en heldur að hún
hafí aðeins haft sig sem dægra-
styttingu. Og þannig skilja þau.
En þegar hann sér að hún er
studd um borð í skipið veit hann
að hún hefur sagt satt — og
hann horfir á eftir henni með
sárum trega.
Mynd þessi, sem tekin er i
fögru umhverfi er yfirleitt mjög
góð og all efnismikil og yfir
henni geðþekkur blær. Hin
þekkta leikkona Lilli Palmer er
leikur Ninu, fer ágætlega með
hlutverk sitt — og Carlos Thomp
son er gjörvulegur í hlutverki
fiskimannsins og leikur hans
prýðilegur. Willi Birgel, er leik-
ur prófessor Bohlen gerir einnig
því hlutverki góð skil.
Tjarnarbíó:
Léttlyndi söngvarinn.
ENSKAR gamanmyndir eru yfir
leitt fremur skemmtilegar og
sumar afbragð, enda er enskur
„húmor“ að jafnaði mjög nota-
legur. Norman Wisdom, sem leik
ur aðalhlutverkið í þessari mynd
léttlynda söngvaranum, er einn
allravinsælasti gamanleikari
Breta og hefur leikið í fjölda á-
gætra mynda, sem hér bafa ver
ið sýndar. — í þetta sinn beitir
'hann Norman Truscott og vinn-
ur við fatahreinsun og dreymir
um að verða landsfrægur söngv-
ari. En sá er hængur á, að hann
getur ekki komið upp nokkrui
hljóði nema hin unga og fallega
vinkona hans, Judi, sem er bund
in við hjólastól sinn, sé viðstödd
honum til trausts og uppörvunar.
Söngvari, Carew að nafni, sem
er að missa „töfra sína, hár sitt
vinsældir og fé“ eins og segir f
efnisskránni, heyrir Norman
syngja og ákveður að stela rödd
hans með því að taka söng hans
á segulbandstæki og nota hana á
sínum eigin söngþáttum, en
bæra sjálfur aðeins varirnar. —
Þetta tekst um sinn, en fyrir að-
stoð röggsamra vina Normans
tekst þö að lokum að afhjúpa
svik Carews, en Norman fær
verðsk'Uldaða viðurkenningu. En
áður en þetta gerist hefur margt
sögulegt borið við, sem ekki er
Framhald á bls. 23.