Morgunblaðið - 17.08.1961, Qupperneq 20
Þórustaðir Sjá bls. 8 og S. tíaMsfoilfr íþrottir Sjá bls. 18.
183. tbl. — Fimmtudagur 17. ágúst 1961
-
Drengur
fyrir bíl í
Fnjóska-
dal
Akureyri, 16. ágúst.
í GÆRDAG um sexleytið varð
12 ára drengur, Hreiðar Jó-
hannsson frá Akureyri undir
afturhjóli vörubíls og slasað-
ist nokkuð. Þetta skeði við
eyðibýlið Garð í Fnjóskadal
Var verið að sækja þangað
hey, og stóð Hreiðar til hlið-
ar við vörubílinn, er hann ók
hægt framhjá niður brekku.
Hreiðar mun þá hafa runnið
til I votu grasinu, og lenti inn
undir bílinn framan við aft-
urhjólið, en hjólið fór yfir
hann. Sjúkrabíll frá Akureyri
flutti Hreiðar í Fjórðungs-
sjúkrahúsið og við rannsókn
þar kom í ljós að mjaðmar-
grindin er brotin. Líðan hans
mun vera fremur slæm.
— St.E.Sig
Rússneskt tímarit
hrósar Framsókn
Tímiitn tekur enga afstoðu
til ofbeldisverkanna í
Austur - Berlín
ÞÓRARINN Þórarinsson, rit-
stjóri Tímans, er nýkominn
heim frá Austur-Þýzkalandi,
þar sem hann sat ráðstefnur
og boð við hlið böðla þeirra,
sem myrtu saklausa borgara
undir skriðdrekum 17. júní
1953 og nú hafa gert Austur-
Þýzkaland að allsherjarþræla
búðum. Blað hans hefur til
þessa enga afstöðu tekið
gegn ofbeldisöflunum, en
flytur þess í stað daglega
kommúnískan áróður gegn
máli, sem Framsóknarflokk-
urinn þó tók fyrstur ís-
lenzkra stjórnmálaflokka inn
á sína stefnuskrá.
Það er því ekki að furða,
þótt rússneskt tímarit tali í
senn um hina geysimiklu
hernaðarþýðingu íslands og
ágæta frammistöðu Fram-
sóknarflokksins og málgagns
hans, Tímans.
Mikil hernaðarþýðing
íslands
í grein, sem birtist í rússneska
tímaritinu, International Affairs,
er getið um breytingu þá, sem
orðið hefur hjá varnarliðinu á
íslandi og síðan segir orðrétt:
17 ára piltur drukknar af
síld veiðiskipi eystra
„Þetta sýnir hina hemaðarlegu
þýðingu íslands, sem liggur við
mikilvægar
samgönguleiðir á sjó, sérstak-
lega kafbá.taleiðir.“
Rússar gera sér þannig glögga
grein fyrir hinni miklu hernað-
arþýðingu fslands, þó að hér sé
reynt að telja mönnum trú um
Framhald á bls. 19.
Þórarinn Þórarlnsson
Kynnisferðir um
bæinn og nágrenni
Féll I sjóinn er hann var að
stökkva ut í nótabát
SEYÐISFIRÐI 16. ágúst — Um
tíuleytið í gærkvöldi varð það
slys 30—10 mílur út af Seyðis-
firði, að 17 á,ra háseti á skipinu
Freyju GK 110, Magnús Tryggva
son, Hringbraut 116, Reykjavík,
féll í sjóinn er haim var að
stökkva út í nótabát, og drukkn-
aði.
Nánari atvik eru þau aS smur-
dæla hafði bilað í aðalvél Freyju,
og hafði skipið kallað á varð-
skip til þess að það yrði dregið
í höfn. Veður var tekið að versna,
komin bræla og sjór, og skip-
verjar drógu nótabátinn að skips-
hlið til þess að taka síldarnótina
og flytja um borð.
1 Náði ekki bjarghringnum
Er báturinn var kominn að
skipshlið, hugðist Magnús
stö'kkva fyrstur um borð, en
lenti á ,,vitlausu róli“, skall
harkalega með bringspalirnar
á borðstokk nótabátsins og féll í
sjóiran á milli báts og skips.
Annar háseti, Jón Stefánsson,
renndi sér þá þegar niður með
borðstokknuna, og hélt sér í
hann. Mun hann hafa ætlað að
reyna að halda Magnúsi uppi
með fótunum. Magnús náði taki
á Jóni, en sleppti því s'kömmu
síðar. Greip hann þá í „slefið“ á
milli skips og báts, en missti af
því rétt strax. Var þá kastað til
hans bjarghring, en Magnúsi
tókst ekki að ná hringnum, enda
sjór úfinn, og miklir straumar
á þessum slóðum.
Skipverjar blésu þá upp
gúmmíbát í skyndi en tókst ekki
að ná til Magnúsar, sem rak ört
undan straumum og veðri. Var
þá reynt að setja vél skipsing í
gang, þótt biluð væri, en vél-
stjóranum tókst ekki að fá nægi
lega ferð á vélina, en á henni er
sjálfvirkt tæki, sem slekkur á
henni, ef hún bilar.
Sökk Magnús síðan án þess
að við yrði gert.
HERAÐSMOT
Sjálfstæðismanna
í A.- Barðastrandasýslu
SJÁLFSTÆÐISMENN efna til héraðsmóts í Félagsheimil-
inu Króksfjarðarnesi, A-Barðastrandarsýslu, sunnudaginn
20. ágúst kl. 18.
'Wh Á móti bessu munu beir :
Ingólíur Jónsson, landbúnað-
WÍW'' 2* arráðherra, og Sigurður
H %, Bjarnason, ritstjóri, flytja F-
Iky' ræður. kb '■í Jf
Flutt verður óperan La
1 Serva Padrona eftir Pergo- H ,j~
1 lesi. — Með hlutverk fara
m óperusöngvararnir Sigurveig
Ingólfur Hjaltested, Kristinn Hallsson Sigurður
og Þorgils Axelsson, leikari.
Við hljóðfærið Ásgeir Beinteinsson, píanóleikari. — Um
kvöldið verður dansleikur.
Magnús Tryggvason
Neyðarflugeldum skotið
Skipverjar skutu einnig neyð-
arflugeldum, og komu skip þeg-
ar til hjálpar, þ. á. m. varðskipið
Óðinn, en skipin komu of seint
til að nokkuð yrði að gert. Dró
Óðinn síðan Freyju til Seyðis-
íjarðar, og lauk sjóprófum í máli
þessu á Seyðisfirði kl. hálf níu
I gærkvöldi.
Magnús Tryggvason var aðeins
17 ára gamall, sonur hjónanna
Dorotheu Halldórsdóttur og
Tryggva Magnússonar, póstfull-
trúa. Sl. vetur stundaði Magnús
nám í fjórða bekk stærðfræði-
deildar Menntaskólans í Reykja-
vík. — Sveinn.
Saltskip
til Akraness
AKRANESÝ, 16. ágúst. — Skip er
að korna beint úr hafi núna
klukkan fimm m»ð saltarm frá
Spáni. Þ-egar tollskoðun hefur
farið fram mun það leggjast að
hafnargarðinum. Um 4—500
tonnum verður skipað hér á
land. Tvær trillur eru á sjó héð-
an í dag, og reru ekki fyxr en
á hádegi. Reknetjabáturinin
Svanur lét reka aðra nótt til, og
enn fékk hann eina tunnu. Síld-
in var blandin að gæðum. — O.
EINS og skýrt hefur verið frá í
fréttum, verffa skipulagffar ferff-
ir um bæin.i og næsta nágrenni
hans ' sambandi viff Reykjavík-
urkynninguna 1961. Farnar
verffa kynnisferðir um gamla
bæinn, nýju hverfin og í stuttar
ferffir upp að Korpúlfsstöffum,
Gufunesi, Reykjum, Ileiðmörk
og Vatnsendahæff. Þá verffa og
farnar lengri ferffir þá tvo
sunnudaga, sem Reykjavíkur-
kynningin stendur yfir upp aff
Sogsfossum.
Blaðamönnum var í geer boð-
ið í kynnisför um gamla bæinn,
sem tók um það bil 1% klu'kku-
stund. Var keyrt um atlar helztu
götur elzta bæjairhlutans, stórar
og smáar, og skýrðu leiðsögu-
mennirnir frá því markverðasta
á leiðinni: örnefnum og staðar-
heituim í fortíð og nútáð, vöktu
athygli farþega á hinum mis-
munamdi byggingarstíl húsanna
og krydduðu frásögn sína með
skemmtiLegum sögum af mönn-
um, sem sett hafa svip á bæinn.
Var ferðin öll hin fróðlegasta og
ánægjulegasta. Er ekki að efa
að mangir Reykvíkingar munu
hafa gaman af að bregða sér í
hringferð um bæinn einhvern
þeirra 10 daga, sem Reykjavíkr
Veiðif er ð
Heimdallar
HEIMDALLUR FUS efnir til
annarrar veiffiferffar á Amar-
vatnsheiði um næstu helgi, en
eins og kunnugt er stóff félag-
iff fyrir slíkri för fyrir nokkr-
um vikum síffan og tókst hún
mjög vel. Fariff verffur frá
Valhöll á föstudagskvöld og
komiff til Reykjavíkur á sunnu
dagskvöld. Auk þess, sem
veiffimennska verður iðkuff
viff Fiskivatn og Kleppavatn
munu þátttakendur skoða
Surtshelli og Bamafoss. Þeir
félagsmenn, sem áhuga hafa á
ferffinni eru beffnir aff hringja
í síma 18192 og verffa þar
gefnar allar nánari upplýs-
ingar.
urkynningin stendur yflr, til ad
kynnast bænum sínum betur.
Leiðsögumennirnir í kynnis-
erðum verða þeir Björn Þor«
steinsson, og Gísli Guðmunds-
son, en auk þess verða þeim til
aðstoðar Vigdís Finmbogadóttir
og Rósa Björnsdóttir. Fargj öld-
unum verður stillt mjög í hóf.
Sumarferð Hvatar
í Landmannal. v
SJÁLFSTÆÐISKVENNAFÉL.
Hvöt fer hina árlegu sumarferð
sína miðvikudaginn 23. ágúst,
Stendur hún í þrjá daiga. Verður
að þessu sinni farið í Land-
mannalaugax og einnig gengið 1
Eldgjá.
Lagt verður af stað í ferðima
kl. 9.30 f. h. nik. miðvikudag frá
Sjálfstæðishúsinu. Mega konuir
taka með sér gesti. •
Þátttakendur í förinni verðá
að hafa með sér útileguútbúnað .
og nesti. /
AUar upplýsingar varðandi för
ina gefa María Maack, Þing-
holtsstræti 25 og Gróa Péturs-
dóttix Öldugötu 24. *'
Sumarferðir Hvatar hafa ver-
ið mjög vinsælar og þátttaka
mjög mikil. Má búast við að svo
verði einnig að þessu sinni
Benzíi;
og olíur hækkaj
VERÐLAGSSTJÓRI gaf í'
fyrradag út tilkynningu um
nýtt verff á benzíni og olíum,
og kostar benzínlíterinn nú kr.
4,20 í staff kr 4 áður. Gasolía
hækkar úr 1,37 í kor. 1,50, en
mun kosta 1,55, þegar ekiff er
með olíuna tii húsa. Svartolía
kostaði áður kr. 840 tonnið en
kostar nú 940 kr. tonnið selt
úr leiðslu.
Hækkanir þessar stafa eln-
vörffungu af hækkun á cif
verffi, sem orffiff hefur vegna
gengisbreytingarinnar.
-G>’
HÉRAÐSMOT
Sjálfstæðismanna
í Borgarfjarðarsýslu
HÉRAÐSMÓT Sjálfstæðismanna verður í Ölver, Ba
fjarðarsýslu sunnudaginn 20. ágúst kl. 16.
Nánar auglýst í blaðinu á morguu.