Morgunblaðið - 18.08.1961, Síða 3
Föstudagur Í8. agust 1961
MORGVTSBL ÁÐIÐ
3
Það er
ÞAÐ er ekki aðeins á mann-
virkjum og framkvæmdum,
sem merkja má framvindu
sögu Reykjavíkur. Klukkan
tíu í gærkvöld var rúmt 101
ár milli fæðingardaga elzta
og yngsta Reykvíkingsins.
Elzti borgari Reykjavíkur
er nú fru Þórunn Bjarna-
dóttir Granaskjólj 17. Þórunn
er fædd 2. nóvember 1800 á
Núpi í Berunesbreppi. Hún
er því rúmlega 101 og hálfs
árs gömul.
Þórunn er ekkja Jóns
Bjarnasonar sjómanns, sem
lézt fyrir fáum árum. Þau
hjónin bjuggu fyrst á Fá-
skrúðsfirði, en fluttust til
Reykjavíkur rétt eftir alda-
mót. Þórunn er nú orðin blind
og heyrnarlaus.
Yngsti borgari Reykjaví'kur
klukkan tíu í gærkvöldi var
hraust og myndarlegt svein-
barn, sem fæddist á Fæðing-
ardeild Landspítalans um
hálf fjögur í gær. Sveinninn
var 4660 grömm eða á 10.
2 ja ára
barn fyrir
bíl
SEINNI hluta dags sl. sunnudag
vildi það óhapp til á Blönduósi,
að bifreið úr Reykjavik ók aftur
á bak upp á gangstétt þar sem
börn voru að leik og á fót tveggja
ára telpubarns, sem sat þar. Hin
stóðu og gátu því stokkið burtu.
Telpan fótbrotnaði rétt fyrir neð
an hné Og var flutt á sjúkrahús,
en er nú komin heim Og líður vel
eftir atvikum. — Telpan heitir
Soffía, dóttir hjónanna Kristínar
Jóhannsdóttur og Þorsteins Hún-
fjörð bakara.
Yngsti Reykvíkingurinn í gærkvöldi, 19 marka sveinn.
— Ljósm.: K. M.
milli elzta og yngsta Reykvíkingsins
mörk. Hann var 56 om á
lengd.
Móðir barnsins er frú
Hulda Jenný Marteinsdóttir,
24 ára gömul, eiginkona Við-
ars Guðmundssonar verka-
manns en hann er ári eldri.
Þau hjónin búa á Grandavegi
37 b og hafa verið gift í
fjögur ár.
1860, árið sem Þórunn fædd
ist, segir Annáll Nítjándu Ald
ar, að skæð barnaveiki og
taugaveiki hafi gengið fyrir
austan og deytt flest börn,
þar sem hún stakk sér niður.
Uppi á fæðingardeild, þar sem
litla barnið fæddist í gær,
ganga hvítklæddir læknar
um ganga, búandi yfir hinum
fullkomnustu tækjum og
lyfjum.
1860 var gefin út konung-
leg tilskipun um stofnun
fyrsta barnaskólans í Reykja-
vík. Litla barnið mun senni-
lega stunda nám í einhverj-
um hinna 11 barnaskóla, sem
nú eru í Reykjavík. Eða þá
einhverjum nýjum.
Árið sem Þórunn fæddist
var Trampe greifa veitt lausn
frá embætti og þeir Grímur
Thomsen og Jón Sigurðsson
voru heiðraðir af konungi. Þá
útskrifuðust úr háskólanum í
. Kaupmannahöfn þeir Magnús
Stephensen landshöfðingi og
Benedikt Sveinsson, faðir
Einars Benediktssonar.
1860 voru íslendingar rúm-
lega 07 þúsund og hafði þeim
fækkað um 866 frá árinu áð-
ur. Nú eru landsmenn rúm-
lega 177 þúsund og gert ráð
fyrir að þeim fjölgi reglulega
um tvo af hundraði á ári.
— Rússar ábyrgir
Framh. af bls. 1.
Ennfremur var birt í dag í
London yfirlýsing frá flugmála-
ráðuneytinu brezka þar sem seg
ir, að orrustuflugsveitir Breta í
Þýzkalandi verði styrktar. Einnig
er haft eftir áreiðanlegum heim-
ildum að þrjár orrustuflugsveit-
ir, sem Bretar höfðu ákveðið að
kalla heim frá Þýzkalandi verði
hvergi hreyfðar. Þá herma fregn-
ir frá Washington að flotamála-
ráðuneytið hafi sagt, að tala not-
hæfra orrustuskipa verði aukin
um 43 skip.
• Æskan hvött til vopna
Málgagn ungkommúnista í A.-
Þýzkalandi — Junge Welt —
hvatti í dag ungt fólk til þess að
láta innrita sig í herinn og skýrði
blaðið frá því, að yfirlýsing þar
að lútandi yrði lesin á öllum
vinnustöðum, skólum og háskól-
um á mórgun. Félagsskapur ung
kommúnista telur tvær milljónir
félaga — þar af er nær helming-
ur ungir drengir. Er talið að þeim
verði veitt einhver „skemmri
skírn“ í hernaðarfræðslu.
• Hert á hömlunum
Austur-þýzka lögreglan herti
enn í dag á umferðarhömlum í
Austur-Berlín, þar á meðal mjög
á eftirliti með erlendum ferða-
mönnum, sem til þessa hafa feng-
ið að fara milli borgarhlutapna,
með því einu að sýna vegábréf.
Alimargir hafa gert djarflegar
tilraunir til flótta síðasta sólar-
hringinn, klifið yfir háa múr-
veggi og ekið með ofsahraða gegn
um lögregluvörð á mörkum borg-
arhlutanna.
Fimm austur-þýzkir lögreglu-
menn komu yfir landamærin I
nótt í fullum einkennisklæðum.
Afhentu þeir brezkum hermönn-
um vopn sín og báðust hælis.
Síðar í morgun horfðu austur-
þýzkir lögreglumenn á þegar
brezkir hermenn girtu af sovézka
styrjaldarminnismerkið í Vestur-
Berlín, en þar hafa oft verið
haldnir mótmælafundir gegn
kommúnistum, m. a. í. Ungverja-
landsuppreisninni. Þótti rétt að
tryggja að þar yrðu nú engin
spjöll unnin.
Elztí Reykvíkingurinn, frú Þórunn Bjarnadóttir, 101 árs
Tveir brezkir
togarar á Norðf.
NORÐFIRÐI, 17. ág. — Brezki
togarinn Northern Duke frá
Grimsby kom hingað í gær með
mann, sem þjáðist af botnlanga-
bólgu. Hann verður skorinn upp
hér, og bíður togarinn eftir hon-
um.
Annar tógari, Dinas frá Fleet-
wood, kom hingað i dag með
slasaðan mann. Hafði steinn
hrotið úr vörpupokanum í fót
mannsins og hann meiðzt eitt-
hvað; stóra tá farið úr liði o. fl.
Gert var að meiðslum mannsins,
og helt togarinn síðan aftur út.
—- S.L.
Tvívegis siglt á
Þorkel Mána
FJÓRIR togarar Bæjarútgerðar
Reykjavíkur hafa undanfarnar
vikur landað saltfiski í Esbjerg.
Það eru þeir Pétur Halldórsson,
Þorkell máni, Þorsteinn Ingólfs-
son og Þormóður goði. Samtals
hafa þeir selt þar um 1200 tonn
af saltfiski, sem veiddur er við
Vestur-Grænland.
Hér í höfninni eru nú fjórir
togarar frá BÚR. Þorkell máni
hefur verið hér til viðgerðar, en
henni er að ljúka. Siglt var á
skipið tvisvar í síðustu veiðiferð,
fvrst við Grænland 13. júní, þeg-
ar þýzki togarinn Mellum sigldi
á hvalbakinn, bakborðsmegin,
eins og áður hefir verið skýrt
frá hér í blaðinu. í síðara skipt-
ið rakst færeyski togarinn Gull-
berg á Þorkel mána, þar sem
hann var bundinn við bryggju i
Esbjerg, og laskaði hann á stjórn
borðskinnung. Klössun á Jóni
Þorlákssyni er að ljúka, en húa
hefur staðið síðan fyrir jól.
Aðrir togarar eru á veiðum.