Morgunblaðið - 24.08.1961, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 24.08.1961, Qupperneq 6
6 MORGVNBLAÐ1Ð Fimmtudagur 24. ágúst 1961 Vegaþjónusta Félags ísl. bifreiðaeigenda SEM KUNNUGT er, voru við- gerða- oig aðstoðabifreiðar á yeg- um FÍB þrjár mestu umferðahelg arnar á þessu sumri. Meiri þörf reyndis fyrir þessa þjónustu, en gert var ráð fyrir. Vaentum við þess, að flestir séu því sammála,' að árangurinn ihafi verið góður, aðstoðin var ekki eins víðtaek og æskilegt hefði verið og ekki hægt að fram kvæma hana, nema lítinn hluta af mesta umferðatíma ársins, en það stafar af þvi, að félagið er ekki nógu öflugt enn, til þess að geta innt af hendi víðtækari þjón- ustu, en með auknum skilningi á starfi félagsins og vaxandi með- limatölu, væntum við innan fárra ára verði hægt að veita full- komna þjónustu á öllum fjöl- förnustu vegum landsins, slíkt mundi veita vegfarendum ómet- anlegt öryggi og losa þá við margskonar óþægindi og stund- um spara þeim stórfé í viðgerðum og f 1itningskostnaði á biluðum bifreiðum. Aðstoð sú, sem veitt var að þessu sinni, var margvísleg, allt frá því að laga kveikjuþráð og yfir í viðgerðir á meiriháttar bil unum, svo sem brotnum öxlum og drifum og að koma stór- skemmdum bifreiðum á verk- stæði. VEGIRNIR OG UM- FERÐIN UM I>A í sambandi við vegaþjónustuna hafa kömið í Ijós ýmis atriði, sem eru lærdómsrík fyrir bifreiðaeig endur að vita og 'tiltölulega auð- velt er að laga, má þar nefna, að brot á framrúðum voru æði mörg, er stöfuðu af grjótkasti frá öðrum bifreiðum, einnig kom í ijós, að fjöldi bifreiða var með bilaða hjólbarða, gera má ráð fyrir því að það stafi af því, hve óheppilegur ofaníburður er á veg unum. Hættulegastar eru þær bifreið ar, sem hafa tvöföld afturhjól, og svo þær bifreiðar, sem hafa lítil hjól, en aflmiklar vélar og ekið er hratt. Á sumum vegum er áberandi gróf möl, sem er sérstaklega hættuleg umferðinni. Fjölfamir malarvegir verða ætíð meira og minna hættulegir, en það fer mik ið eftir því, hvaða ofaníburður er notaður, hægt er að draga úr þessari hættu, með hentugum of aníburði og hlífum við afturhjól bifreiða, einnig og ekki hvað sízt, með gætilegum akstri. Þeir, sem hafa ekið um fjöl- förnustu vegina síðustu helgar, vita af sárri reynzlu, hvernig veg irnir eru, einkum þar sem ný- lega hefur verið borið ofaní veg ina óhentugur ofaníburður, en slíkt er því miður alltof algengt, þar er um að ræða grófa möl með moldarkenndum salla, þessi möl er að því leyti lakari, en al mennt hefur verið notað, að í henni virðist ekki vera neitt bindiefni, þessi umrædda möl hleðst upp í hryggi á miðjum veg inum og á báðar vegabrúnir, sall inn þjappast að litlu leyti niður, en fýkur aðallega burt, eftir sit ur svo þessi mjög svo óheppilega möl, er kastast fram og til baka undan umferðinni. Malarhryggur inn, verður ávallt hættulegur fyr ir lágar bifreiðar. Þegar bifreiðar mætast á mjóum vegi, sem er með slíkan malarhrygg, er hættan á grjótkasti mikil, einnig eiga menn á hættu að missa stjórn á bifreiðinni, þegar aka verður með öll hjól í lausamöl. Mest er þó hættan á beygjum, en margar þeirra eru þvi miður óheppilegar og sumar stórhættulegar, flestar eru beygjunar láréttar eða því sem næst, aðrar hallast út, ef svo er á slíkum beygjum, möl eins ög fyrr en nefnd, þá verður að aka með sérstakri gætni ef ekki á að verða stórslys. Fjölförnustu vegir landsins þarfnast gagngerðrar lagfæring- ar eins fljótt og auðið er. Því hef ur verið haldið fram, að gáfu- legra sé að byrgja brunninn á'ður en barnið dettur í hann. Því er haldið fram, að fjár- Vegaþjónusta bifreiða á vegum FÍB. magn sé fyrir hendi, til þess, að byrja á því, að steypa fjölförn- ustu vegi landsins. Hvað dvelur? VEITT AÐSTOÐ Hér verða nefndir fáeinir af þeim aðilum, er áttu þátt í þeim árangri, sem náðist, um þrjár mestu umferðahelgar sumarsins. Útvarpið er gaf stöðugar upp lýsingar um staðsetningu við- gerða- og aðstoðarbifreiða hverju sinni. Gufunesstöðin, sem var tengi- liður á milli útvarpsins og við- gerðabifreiðánna og þeirra er þurftu aðstoðar með. Flugbjör.gunarsveitin, er lán- aði talstöð og sjúkratöskur. Hvernig ferðalag getur endað. Radíóverkstæði Landsímans, er lánaði talstöðvar. Sjóvátryggingarfélag íslands er tryggði talstöðvarnar endur- gjaldslaust. Á þrem f jölföxjnustu leiðunum, vöru 3 kranabílar frá Þungavinnu vélum h.f. allar með talstöðvar, höfðu þeir oft erfiðu hjutverki að gegna, en leystu það vel af hendi. Til aðstoðar þessum bifreiðum, voru sjálfboðaliðar á einkabifreið um, bæði með og án talstöðva. Viðgerðaverkstæði og einstakl- ingar voru víðsvegar, svo sem hér segir: Bifreiðaverkstæði Kaupfélags- ins á Selfossi. Bifreiðaverkstæði Kaupfélags- ins á Hvölsvelli. Bifreiðaverkstæði Finnboga Guðlaugssonar, Borgarnesi. Vélsmiðjan Vísir Blönduósi. Hreðavatnsskála Leópóld Jóhann esson, Haraldur Bachmann Sel- fossi, Jóhann Kristinsson, Akur eyri. Samstarf við vegalögregluna og lögregluþjónana á Selfossi, var til fyrirmyndar og verður svo væntanlega í framtíðinni. Það er nauðsynlegt, að gott samstarf sé með vegalögreglunni, FÍB og ferðamönnum almennt. Ofangreindum aðilum og sjálf- boðaliðum sem hafa veitt aðstoð í sambandi við vegaþjónustuna, færir FÍB sínar beztu þakkir. 1034 bifreiðar nutu aðstoðar á vegum FÍB yfir fyrrnefndar helg ar er skiptist þannig: Á leiðinni Rvík—Akureyri var 452 bifreiðum veitt aðstoð. Á leiðinni Rvík—Þingvöllur—- HvOlsvelli—Selfoss—Rvík var 544 bifreiðum veitt aðstoð. Bifreiðar þær er nutu aðstoðar, eru á öllum aldri, frá þeim elztu, til hinna allra nýjustu. Þetta og fleira sýnir okkur nauðsyn þess, að veitt verði enn fullkomnari þjónusta, en til þess að svo verði, þurfa allir bifreiðaeigendur að gerast meðlimir í FÍB til þess að gefa félaginu _enn meiri styrk, til meiri átaka. Ýmiskonar erfiðleik ar geta orðið á vegi ferðamanns ins t.d. kom bifreið að benzínaf greiðslu er selur pylsur og fleira Var þetta laust eftir kl. 23. Eig andi bifreiðarinnar gat ekki feng ið benzín, eftir kl. 23, en hann gat fengið keyptar pylsur. Slysavarnafélag íslands átti sinn þátt í því, að minna menn á það, að aka með gætni og sýna til litsemi. Stöðugar áminningar bera ótvíræðan árangur. VEGIR, UMFERÐA- MÁL OG FLEIRA Það er brýn nauðsyn að fjöl- förnustu vegir landsins verði gerð ir akfærir, og að þær f járupphæð ir, sem eru ætlaðar til vegagerða þ.e. steypa vegi, verði varið til þess árlega, en ekki til þess að byggja ónauðsynlegar brýr, sem ef til vill eru ætlaðar fyrir einn bónda, eða nýjan veg sem yrði ef til vill lagður eftir 20—30 ár. Þá væri einnig nauðsynlegt að Framhald á bls. 23. • Lítið að frétta Það er mikið gert af því að gagnrýna útvarpið og það ekki að ósekju. Velvakandi ætlar þessu sinni ekki að ræða um útvarpið almennt, þó að á- stæða væri til, heldur einn þátt dagskrár þess. Það vill svo einkennilega til, að það sem Velvakandi nöldrar út af, er sennilega ekki sök útvarps- ins, heldur stafar það líklega af því, hve fátt skemmtilegt gerist í heimi hér í seinni tíð. Þegar Velvakandi hefur snætt rúmlega nægju sína á kvöldin, valið sér þægilegan stól, kveikt sér í pípu og hyggst hlýða á fréttirnar og hafa það gott, þá heyrist allt of oft eitthvað á þessa leið: í fréttum er þetta helzt. Erlendar fréttir: Opinberað var í dag bréf K. forseta til A. forsætisráðherra. Verkfall símamanna er nú í Thailandi. í innlendum fréttum er þetta helzt: Tveir vélbátar lögðu afla á land í Grindavík í nótt. Heyskapur gengur vel í Fló- anum. Fréttaaukinn er frá Sameinuðu þjóðimum. Við þessar upplýsingar lækk ar Velvakandi yfirleitt í tæk- inu, leitar sér að bók til þess að lesa eða fer að blaða í bíó- auglýsingunum. • Slegið á þráðinn Margir urðu til þess að slá á þráðinn til Velvakana í gær. Einn vildi koma því á fram- færi, að rétt væri hjá Gyðing- um að láta Eiohmann Iifa. Hann hefði reyndar unnið til annars, en lífgjafar, en hún gæti stuðlað að bróðerni og friði í heiminum. Kona ein kvartaði undan því, að ekki væru notaðar tengur við afgreiðslu á kökum og hafði mikla vantrú á hand- þvotti afgreiðslustúlkna í brauðbúðum. Slíkar tengur eru sjálfsagt mikil þing, en Velvakandi hefur þó ekki jafn miklar efasemdir um hrein- læti blessaðra afgreiðslu- stúlknanna. Og svo var það maður, sem ferðaðist með Hlíðarvagninum og hitti þar fyrir tvo litla stráka, sem voru svo yfirmáta FERDINAND kurteisir, að hann gat ekki orða bundizt. Honum fannst rétt að Velvakandi léti þessa getið, svo að ekki væri allt nei kvætt í dálkum hans. • Dónaskapur í fram- haldssögunni? Velvakanda hafa borizt mörg tilskrif um framhalds- söguna, sém nú er hér í blað- inu og birtist hér sýnisom úr einu bréfanna: „Kæri Velvakandi! Mig langar eða réttara sagt, ©g finn mig knúinn til þess að vekja athygli yðar á atriði, sem snertir hið ágæta blað yð- ar. Framhaldssagan í Morgun- blaðinu verkar þannig á kon- una mína, að hún rífur þá síðu blaðsins úr í einu vet- fangi og hendir því 1 sorp- rennuna til þess að forða börn um okkar frá því að lesa hana. Eg veit að kona mín elskar börnin okkar og vill þeim vel. Eg hef aldrei fyrr vitað uim slíkar aðgerðir, og eitthvað hlýtur að vera athugavert við þessa sögu, þegar konan mín grípur til slíkra aðgerða. Fyr- ir mitt leyti skal ég ekki leggja neinn dóm á bókmennta legt gildi framhaldssögunnar, en ég er algjörlega sammála aðgerðum konunnar í þessu tilfelli. Vinsamlegast G.“ • Að lokum Velvakandi getur huiggað lesendur blaðsins m.eð því, að það versta er yfirstaðið og hann vonar að framhaldssag- an verði jafnvinsæl og ævi- saga Diönu Barrimore var á sínum tíma hér í blaðinu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.