Morgunblaðið - 30.08.1961, Síða 5
Miðvikudagur 30. ágúst 1961
MORCinvnr 4Ð1Ð
5
MENN 06
= MAŒFNI=
ÞAÐ olli hvarvetna undrun,
þegar fregnin barst um, að
Janio Quadros, forseti Brazi-
liu hefði sagt af sér. Quadros
var kjörinn forseti í október
1960, en tók við völdum for-
seta í janúar 1961. í forseta-
kosningunum hlaut hann
meira fylgi en áöur hefur
þekkzt í sögu Brazilíu og var
hann sá fyrsti sem heppnaðist
að sigra frambjóðanda stjóm
arinnar. Kosningarnar voru
mikill persónulegur sigur fyr-
ir Quadros, því að hann til-
heyrði engum stjórnmála-
flokki. Áður var hann lands-
stjóri í Sao Paulo og mjög
vinsæll í því embætti.
Þegar Quadros lýsti því yfir
að hann hefði sagt af sér, sagð
ist hann hafa orðið að lúta í
lægra haldið fyrir afturhald
inu og ef hann gegndi áfram
embætti forseta myndi ekki
haldast friður í landinu.
Þegar hann var kjörinn for
seti, ætlaði hann að hreinsa
til og koma betra skipulagi
á stjórnarfarið í landinu,
stemma stigu við spillingunni,
hefja þjóðfélagslegar endur-
bætur og gera utanríkisstefnu
Brazilíu óháðari, þ. e. a. s.
Bandaríkjunum.
Quadros hefur komið af
stað endurbótum og aldrei hef
ur verið hreinsað eins ræki-
lega til hjá yfirvöldunum.
Hann hefur látið birta opin-
berlega skýrslur rannsóknar-
nefndanna um hina örgustu
spillingu og silagang ráðu-
neytanna, sem virtist slá öll
fyrri met.
Hann hóf einnig jarðabæt-
ur, en augijóst var, að hvað
þær snerti mætti hann mót-
spyrnu t. d. frá afturhalds-
öflum innan stjórnarinnar og
utan.
Qadros vildi koma á stjóm-
málasambandi milli Brazilíu
og Sovétrikjanna. Einnig
hafði hann nokkru fyrir af-
sögn sína tilkynnt Krúsjeff,
að hann myndi heimsækja
Sovétríkin í boði hans. Eftir
efnahagsráðstefnuna í Uru-
guy, þar sem gengið var frá
áætlun Bandaríkjanna um að-
stoð við Suður-Ameríkuríkin
tók Quadros á móti Guevara,
fjármálaráðherra Kúbu, sem
harðlega hafði gagnrýnt
Bandaríkin á ráðstefnunni og
veitti honum æðsta heiðurs-
merki Brazilíu.
Þegar Quadros sagði af sér,
sagði hann, að hann vildi
Brazilíu fyrir Brazilíumenn,
en hann sætti þvingunum af
hálfu drottnunargjarnra
flokka og einstaklinga, sumra
erlendis frá.
— Eg var ekki fæddur for-
seti lýðveldisins, sagði hann,
en ég var fæddur með sam-
vizku og hana ber mér að
virða. Hún segir mér nú, að
það bezta, sem ég get gert fyr-
Janio Quadros
ir Iand mitt og þjóð sé að
segja af mér.
Þá sjö mánuði, sem ég hef
setið að völdum hef ég gert
skyldu mína. Eg hef unnið
nærri dag og nótt, en tilraunir
mínar til að færa þjóðina nær
stjórnmálalegu og fjármála-
legu frelsi, sem er eini vegur-
inn til að auka raunhæfar
framkvæmdir og réttlæti í
þjóðfélagsmálum, voru stöðv-
aðar.
Quadros er nú á Ieið til
Evrópu með skipi, þar sem
hann ætlar að eyða leyfi sínu.
Síðan segist hann muni taka
upp sín fyrri störf, sem pró-
fessor og lögfræðingur.
Skýrt er frá ástandinu I
Brazilíu á 23. síðu blaðsins í
dag.
★
Kona keyrði í fyrsta sinn eftir
mjög vondium vegi og spurði
langf erð abílstjórann:
— Deyr fólk oft á þessari leið?
— Nei, ekki nema einu sinni,
var svarið.
♦
— Hr. forstjóri, gjaldkerinn er
er horfinn.
— Hafið þér athugað peninga-
skápinn?
— Já, en hann er ekki þar.
•
Leikflokkurinn hafði ekki átt
vinsældum að fagna í leikferð
sinni, og þegar aðalleikkonan og
aðalleikarinn sátu saman og hann
hvíslaði: — Ástin mín, erum
I við ein? heyrðist neðan úr saln-
i um.
1 — Já, næstum því alveg.
Gröf þar margir feigir fá.
Farartæki ýmsurn hjá.
Víkur hungri víða frá.
Verður til, ef reiðir slá.
Dufgus.
Ráðning á síðu 19.
Það birtir í austri.
Sólskin í vestri
V í S A
Kveðin að morgni dags nokkru áður
en fregnin barst af ófriði Frakka og
Túnismanna í Bizerta.
Um himinsins djjjp fer dulið ský,
það dimmir á blómguðum völlum.
Segið það Krúséff og Kennidí,
konungum heimsins öllum.
Goðarnir búa í glæstum höllum.
Guðirnir standa á íslands fjöllum.
Multilith
Offset-fjölritari til sölu og
sýnis á Nýlendugötu 14,
prentsmiðj unnL
Atvinnurekendur
Athugið, reglusamur ung-
ur maður vanur akstri
óskar eftir atvinnu nú
þegar. Uppl. í síma 32454.
Stúlka óskast
til að passa 3 börn kl. 8.30
til 6 á meðan móðirin vinn
ur úti. Vesturbær. Sími
35265 eftir kl. 6.
íbúð
íbúð óskast til leigu 1. okt.
eða nú þegar upp. í síma
24910 eftir kl. 19.00.
Dugleg og ábyggileg
stúlka óskast til inn-
heimtu- og verksmiðju-
starfa í sælgætisverk-
smið' . Tilb. sendist fyrir
3. sept., mðrkt: „Atvinna
— 5954“.
Húsráðendur!
Fjórar skólastúlkur óska
eftir rólegri 2ja—3ja herb.
íbúð. Einhver fyrirfram-
greiðsla. Uppl, í síma
12770.
Ný uppgerður Buick
árg. ’48, til sölu. Uppl. í
síma 50341 eftir kl. 7 á
kvöldin.
Ford Anglia ’60
ekinn 5000 km til sölu. —
Uppl. í síma 34362.
Til leigu 1. okt.
2 herb., eldihús og bað (í
kjallara), sérinng. og sér
þvottahús. Einnig 1-2 herb.
á hæð (innb. skápar) Tilb.
merkt. „Vesturbær 5993“,
sendist Mbl. fyrir 5. sept.
Hafnarfjörður — Rvík
Einhleyp regiusöm kona
óskar eftir 1—2 herb. íbúð.
Uppl. í síma 16883, eftir kl.
4 í dag.
Óska eftir
2ja—3ja herbergja íbúð.
Fyrirframgreiðsla. Upplí í
símc 12153.
Múrara
með konu og bam vantar
2ja—3ja nerb. íbúð. Vinna
getur komið til greina. —
Uppl. í síma 33499.
Húsnæði
í Miðstræti 3 til leigu. —
Hentugt til alls konar
kennslu og félagsstarfsemi.
Til sýnis 1 kvöld. og annað
kvöld kl. 8—10.
17 ára piltur
óskar eftir að komast að
sem nemi í hárgreiðslu. —
Uppl. Lsíma 12944.
Tvær stúlkur
óska eftir atvinnu um
mánaðamótin september og
október. Báðar vanar afgr.
Tilboð sendist Mbl. fyrir
5. september nk., merkt:
„5955“.
Keflavík
Einhleypan kennara vantar
1—2 herbergi og eldhús J..
sept. Tilb. sé skilað til af-
greiðslu blaðsins fyrir 1.
sept., merkt: „5956“.
Afgreiðslustúlka
vön, óskast í Tjamarbar á
5 tíma vakt, ekki kvöld-
vakt. Uppl. í síma 12783.
„Passap“ prjónavél
til sölu á Laugarnesvegi
85. — Sími 33221.
Selfoss
4ra herb. íbúð eða einbýlis
hús óskast til leigu fyrir
reglusama fjölskyldu. Tilb.
sendist afgr. Mbl. merkt:
„5953“ eða hringið í síma
19442.
3ja herbergja íbúð
óskast til leigu 15. sept.
eða 1. okt. Tvennt fullorð-
ið í heimili. Uppl. í síma
37932.
Flugfélag fslands h.f.: Millllandaflug:
Hrímfaxi fer til Glasgov og Khafnar
ikl. 08:00 í dag. Kemur til Rvíkur kl.
22:30 í kvöld. Fer til Glasgov og Khafn
ar kl. 08:00 í fyrramálið. Skýfaxi fer
til Oslóar, Khafnar og Hamborgar kl.
08:30 í dag. Væntanleg aftur til Hvík
ur kl. 01:00 í nótt.
Innanlandflug; I dag er áætlað að
fljúga til Akureyrar (2 ferðir), Egils
etaða, Hellu, Hornafjarðar, Húsavíkur,
ísafjarðar og Vestmannaeyja (2 ferðir).
A morgun til Akureyrar (3 ferðir),
Egilsstaða, ísafjarðar, Kópaskers, Vest
mannaeyja (2 ferðir), og Þórshafnar.
Uoftleiðir h.f.: 30. ágúst er Leifur
Eiríksson væntanlegur frá NY kl. 06:30
Fer til Stafangurs og Osló kl. 08:00.
J>orfinnur karlsefni er væntanlegur frá
NY kl. 11:00 Fer til Glasgov og Amster
dam kl. 12.30 Kemur til baka kl. 24:00
Fer þá til NY kl. 01:30.
Eiríkur rauði er væntanlegur frá
Hamborg, Khöfn og Osló kl. 22:00 Fer
til NY kl. 23:30.
Eimskipafélag fslands h.f: Brúarfoss
er á leið til Dublin. Dettifoss er í Rvík
Fjallfoss er á leið til Vestm.eyja frá
Rvík. Goðafoss er á leið til Hull. Gull
íoss er á leið til Rvíkur. Lagarfoss
er á leið til Rvíkur. Reykjafoss er á
leið til Rvíkur. Selfoss er á leið til
Rvíkur. Tröllafoss er í Rvík. Tungufoss
er á Akureyri.
Eimskipafélag Reykjavíkur h.f.: —
Katla er í Archangel Askja er 1 Len
ingrad.
H.f. Jöklar: Langjökull er á leið til
Gautaborgar. Vatnajökull er á leið
til Grimsby.
Skipaútgerð ríkisins: Hekla er á leið
til Khafnar. Esja er á Austfjörðum.
Herjólfur fer frá Rvík kl. 21:00 í kvöld
til Vestm.eyja. Þyrill er á Austfjörð
um. Skjaldbreið er á Vestfjörðum á
suðurleið. Herðubreið fór frá Rvík 1
gær vestur um land í hringferð.
Skipadeild SÍS: Hvassafell er í Rvík
Arnafell er í Archangelsk. Jökulfell
lestar á Norðurlandshöfnum. Dísarfell
er á Raufarhöfn. Litlafell fór í gær frá
Rvík til Húnaflóahafna. Helgafell er
á leið til Riga. Hamrafell er á leið til
Batumi.
80 ára er í dag Ingunn Ólafs-
dóttir, Ölduslóð 36, Hafnarfirði.
Nýlega voru gefin saman í
hjónaband ungfrú Sigrún Kjart
ansdóttir, Stóra-Hólmi, Leiru, og
Viðar Hjaltason vélsmiður, Nýja-
Bæ, Garði.
Laugardaginn 26. ágúst opin-
beruðu trúlofun sína ungfrú Sig-
ríður Jóna Clausen, Dunhaga 23
og Þórður Ólafsson, Hlíðarenda,
ölfusi.
Nýlega hafa opinberað trúlof-
un sína ungfrú Sigríður Gústafs-
dóttir, Mávahlíð 47 og Hilmar
Jónsson, Réttarholtsvegi 61.
Þessa vísu afhenti Sigfús Elías
son fréttamönnum til birtingar,
er þeir sátu fund með honum í
gær. Þá voru liðin 22 ár frá því
að Sigfús hélt fyrsta fyrirlestur
sinn um dulspeki. Fyrirlesturinn
hélt hann í Varðarhúsinu á höf-
uðdaginn, 29. ág. 1939. Sigfús
Elíasson hefur starfað mikið að
rannsóknum á dulrænum efnum,
Dulminjasafn stofnaði hann 1956
og 1958 stofnaði hann Dulspeki-
skólann í Reykjavík, þar sem
hann kennir fræðin: Hin kristna
dulspeki, auk alls er áður var
hafið að kenna.
Sigfús Elíasson hefur, eins og
kunnugt er skráð margar bækur
og rit og nú er hann ábyrgðar-
maður blaðsins Sendiboðinn,
sem gefið er út af Dulspekiskól-
anum í Reykjavík.
Sigfús skýrði fréttamönnum frá
því að í ráði væri að stofna nýja
hreyfingu „Unaðsstundir eldra
fólks“ og Unaðsstundir yngra
fólksins", á samkomustundum
hreyfingarinnar verður lesinn
meiri helgidómur en til er á rit-
uðu máli, sagði Sigfús. Einnig
sagði hann að nokkrir skilnings-
ríkir myndu fá að heyra af segul
bandi rödd konu, er hann nefnir
„Undrabarnið“, en hún er gædd
dulheyrn og, sagði Sigfús að í
gegnum hana bærist boðskapur
frá æðri verum.
Atvinna
Óska eftir léttu skrifstofu-
starfi eða annarri hrein-
legri atvinnu. Próf úr
verzlunardeild Hagaskól-
ans. Uppl. í síma 16597.
Til sölu
klæðaskápur með skúffum
og hillum. Verð kr. 1000,-.
Eldhúsborð og 4 kollar. —
Verð kr. 200,-. Uppl. í
síma 12759.
A T H U G I Ð
að borið saman '3 útbreiðslu
er langtum ódýrara að auglýsa
í Morgunblaðin u, en öðrum
blöðum. —
Akurnesingar
4ra herb. íbúð til sölu. —
Lágt verð. Lítil útborgun.
Góðir greiðsluskiimálar. —
Uppl. í Rakarastofunni
Kirkjubraut 4.
Lítil v-þýzk
þvottavél sem þvær, sýður
Og þurrvindur til sölu á
kr. 3500. Til sýnis að
Nökkvavogi 44 kj. næstu
kvöld frá 8—10 á laugar-
dag 2—6.
Kona óskast
til hú-. arka einu sinni í
viku að Laugarásveg 45.
Sími 36289.
Vélritun
Stórt verzlunarfyrirtæki í Reykjavík óskar eftir að
ráða vélritunarstúlku á skrifstofu sína nú þegar eða
1. október n.k. Kunnátta í enskri hraðritun æskileg.
Gott kaup og góð starfsskilyrði. Umsóknir sendist
afgreiðslu blaðsins fyrir 1 sept. nk. merktar: „Vél-
ritun — 5949".