Morgunblaðið - 02.09.1961, Side 6
6
MORCUNBlAÐ1L
Laugar'dagur 2. sepí. 1961
Fáni A-Þýzkalands
yfir Brandenborgar-
hliðinu
Berlín, 31. ágúst. (Reuter).
1 DAG barst sérlegum sendi-
manni Bandaríkjaforseta í Berl-
ín, Lucius D. Ciay, skeyti frá
Willy Brandt borgarstjóra í V-
Berlín, þar sem hann segir komu
Clays og dvöl hans í borginni
verða mikinn styrk og hvöt mál-
stað frelsisins í Berlín.
í skeytinu segir m.a.: — Við
erum glaðir og þakklátir yfir því
að vita meðal okkar gamlan vin
og fulltrúa Bandaríkjanna þá ör-
lagaríku mánuði er nú fara í
hönd.
Clay var yfirmaður banda-
rískra hermanna í Þýzkalandi ár-
ið 1948—49, þegar samgönguleið-
uim til V-Berlínar var lokað. —
Hann kom til borgarinnar fyrir
tveim vikum með Lyndon John-
son, varaforseta og var þar feikna
vel fagnað. Hann hefur verið út-
nefndur sérlegur sendimaður
Kennedys í Berlín meðan ástand
þar er ótryggt.
í dag ræddi fastaráð Atlants-
hafsbandalagsins Berlínarmálið
og mun halda þeim umræðum
áfram á morgun fyrir luktum
dyrum.
+ 10 þús. mörk til höfuðs
verðinum
Lögreglan í Vestur-Berlín
bauð í dag 10 þúsund mörk þeim,
er veitt gæti upplýsingar um
hver sá austur-þýzki landamæra-
vörður væri er skaut til baná
flóttamann, sem reyndi að synda
yfir skipaskurð til V-Berlínar.
Var maðurinn kominn yfir marka
linuna er hafin var vélbyssuskot-
hríð á hann Og er vitað að sá
Fœreyskur mál-
ari sýnir í Mokka
TÆREYSKUR listmálari sýnir í
Mokka-kaffi um þessar mundir.
Hann heitir Sigmundur Peter-
Sigmundur Petersen
sen og er klæðskeri að iðn.
Sigmundur er 58 ára að aldri,
byrjaði ungur að mála í frí-
stundum, en hann var kominn
af léttasta skeiði, þegar hann
helgaði sig málaralistinni ein-
göngu. Sigmundur er einn fárra
færeyskra málara, sem stundar
jafnframt engin aukastörf. Hann
hefur oftsinnis sýnt í Færeyj-
um og einu sinni í Danmörku
— og hann segir, að helztu við-
skiptavinir sínir séu erlendir
ferðamenn, sem heimsækja Fær
eyjar á sumrin og vilja taka
heim með sér mynd frá eyjun-
um. Sigmundur málar nefni-
lega mest landslagsmyndir og
eru flestar myndanna á sýning-
unni hér þess eðlis. Myndirnar
eru samtals 19, allar til sölu.
Sýningin stendur í tvær vik-
ur, eða þar til listamaðurinn
heldur aftur heim til Færeyja.
Hann mun eiga nokkur verk
á færeysku samsýningunni, sem
hér verður í haust.
er hæfði er félagi í herliði aust-
ur-þýzkrar verksmiðju. Ætlun yf
irvalda í Vestur-Berlín er að
hengja víðs vegar upp í borginni
spjöld með lýsingu á verðinum.
Bandarískur hermaður, sem
handtekinn var af austur-þýzk-
um lögreglumönnum á þriðjudag
hefur verið látinn laus.
+ Fáni A-Þýzkalands yflr
Brandenborgarhliðinu
í dag drógu austur-þýzkir
hermenn fána A-Þýzkalands að
húni yfir Brandenborgarhliðinu.
Nokkrir opinberir embættismenn
a-þýzku stjórnarinnar voru við-
staddir athöfnina. Ennfremur
nokkrir rússneskir liðsforingjar.
Um leið var tilkynnt í A-Berlín
að Titov, rússneski geimfarinn,
kæmi til Austur-Þýzkalands á
morgun og eru honum búnar góð-
ar móttökur. Var móttökudagskrá
in tilkynnt í hátölurum á götum
Austur-Berlínar í dag og fólk
hvatt til að fagna Sovéthetjunni.
Akranesi, 31. ágúst
í DAG er suðvestan stórmur Og
engin fleyta á sjó. Mb. Svanur
er hættur á reknetjum. Netin
hafa verið tekin í land og búið
að afskrá mannskapinn. Svanur
hefur látið reka 1 4—5 nætur og
aldrei fengið meir en 1 tunnu í
lögn. — Oddur.
Sundlaug Vesturbæjar verð-
ur opnuð almenningi í haust.
Mynd þessi var tekin í gær
vestur við laugina við Hofs-
vallagötuna. I baksýn eru
búningsklefar. Sundlaugin og
byggingin verða mjög glæsi-
leg og fullkomin, en síðar
mun byggingin verða stækk-
uð mjög og komið fyrir áhorf
endapöllum og sólbaðsskýl-
um. — Ljósm. Mbl. K. M.
100 Belgíumenn flúöu
á náðir rœðismannsins
ELISABETHVIDLE, 30. ágúst.
Um 100 belgískir foringjar í Kat
anga-her hafa leitað hælis hjá
belgíska ræðismanninum í Elisa-
bethville og neita að ganga á
hönd hersveita SÞ.
Segist ræðismaðurinn ætla að
veita þeim hæli þar til flugvélar
séu tilbúnar að flytja þá til
Belgíu. Vilja foringjarnir ganga
beint út í flugvélina til þess að
losna við gæzluvarðhald hjá SÞ.
Herstjórn SÞ hefur í samráði
við belgísku stjórnina fengið flug
vélar til flutninganna og her-
menn SÞ, standa nú vörð við
hús ræðismannsins.
Frá Leopoldville berast fregn-
ir þess efnis, að Gizenga hafi
vísað bandaríska konsúlmun í
Stanleyville úr borginni og sak-
að hann um að hafa reynt að
skipta sér af innanlandsmálum.
Var það í sambandi við jór-
danska flugvél sem lenti í Stan-
leyville án leyfis.
Tass-fréttastofan sagði í frétt
í kvöld, að Gizenga hafi í dag
neitað að taka við bréfum og
skjölum frá sambandsstjórninni
í Leopoldville þar eð hún væri
undir áhrifavaldi SÞ. Gizenga er
sjálfur varaforsætisráðherra I
sambandsst j órninni.
Láta af störfum
í FRETTUM frá Khöfn segir að
þeir Jörgen Jörgensen fræðslu-
málaráðherra og Bertel Dalgaard
efnahagsmálaráðherra, báðir úr
fiokki Róttækra, muni láta af
starfi á miðvikudaginn kemur og
muni Kampmann forsætisráð-
herra halda þeim kveðjusamsæti
á mánudag.
Það var ákveðið eftir kosning-
arnar haustið 1960, að þessir ráð-
herrar skyldu láta af starfi áður
en Þjóðþingið kæmi saman í okt.
1961.
+ Enn um hrafninn
í Hafravatnshlíð
Sigurður Ólason, hrl. skrif-
ar Velvakanda:
Þótt litlu skipti vil eg leið-
rétta það, sem stóð í Mbl. að
vegna ,,benzínverkfallsins“
hafi eg ekki getað komið fóðri
til hrafnsins upp að Hafra-
vatni, og hafi hann „farið illa
út úr því“. „Svo hvarf hann“
eins og blaðið kemst að orði.
Sannleikurinn var sá, að eg
tók hrafnsungann í bæinn, og
hafði hann heima við, aðal-
lega á altaninu, stundum í
lóðinni bak við húsið, og
höfðu margir gaman af kringi
legheitum hans og tiltektum,
en aðrir virtust hafa á honum
nokkurn ýmugust. Þegar eg
taldi hann vera orðinn sæmi-
lega fleygan flutti eg hann,
ásamt „matföngum" nokkrum.
upp að Hafravatni og sleppti
honum í hlíðina þar fyrir of-
an. Tveim-þrem dögum síðar
fréttist svo til hrafns(ins)
norðan vatnsins, og er nú tal-
ið að hann hafi lagt leið sína
að Úlfarsfelli, sbr. „blaða-
fregnir" undanfarna daga.
Þessa verð eg að láta getið
hér til þess að fyrirbyggja
þann misskilning, að krummi
hafi orðið fyrir einhverjum
hrakningum meðan hann var
í minni umsjá.
FERDINAND
guaM (e@:i
♦ Bókasýning
í Englandi
Og Sn. J. skrifar:
Þess er skemmst að minn-
ast að ég skrifaði Morgunblað
inu (15. — 6 ág.) alllanga
grein um útgerð íslenzkra
bóka, sem við vitum að ekki
er okkur yfirleitt til frægðar,
Þar gat ég um bókasýningar
þær sem ýmsar þjóðir halda
árlega til eflingar fagurri
bókagerð. Nú hefur mér bor-
izt bréf um það, að enska sýn
ingin verði að þessu sinni 6.^-
30. september í 7 Albemarla
Street, London, W. 1. Vildi ég
biðja Mbl. að geta um þetta,
því mjög er sennilegt að ein-
hverjir af prenturum okkar
eða forleggjurum kunni að
verða í London á því tímabili,
og þá væri ekki úr vegi að
nota tækifærið og skoða sýn-
inguna. Það er eins og að
venju National Book League
sem fyrir henni stendur.
• Matarvísa
Og hér er vísa, sem Velvak-
anda barst í tilefni af skrifun-
um um matarræði íslendinga
fyrir skömmu:
ístran blómstrar eins og róa
ef þú etur mikið,
ef þú borðar duft úr dós,
dettur af þér spikið.