Morgunblaðið - 07.09.1961, Side 13
Fimmtudagur 7. sept. 1961
MORGU'NBLAÐIÐ
13
75 ára i dag:
Ingibjörg dlafsson
INGIBJÖRG Ólafsson verður
75 ára í dag. Góðkunn var hún
fyrir hálfri öld hér í Reykjavík,
fyrir störf sín, — og 15 árum
síðar var hún orðin kunnasta
kona íslenzk — önnur en Ólafía
Jóhannsdóttir — um öll Norður-
lönd, fyrir félagsstörf í KFUK.
Vafalaust verða þeir margir —
og margar, — sem senda henni
hlýjar hugsanir þessa daga, er
hún dvelur nú heilsulaus í
Rottingdean í Englandi.
Eg kynntist henni fyrst stuttu
eftir aldamótin á heimili frú
Ragnhildar Briem, ekkju séra
Eggerts V. Briem, fyrrum prests
á Höskuldsstöðum. Frú Ragn-
hildur Briem var óvenjulega
þroskuð trúkona, virtist mér, og
mér er nær að halda, að Ingi-
björg hafi haft mikla trúarlega
blessun af dvölinni hjá henni.
'Hitt veit ég ekki, hvort frú Briem
hefir styrkt hana fjárhagslega
til áframhaldandi náms utan-
lands og innan ein 4 eða 5 ár.
Mér fannst ótrúlegt hvernig hún
igat brotist áfram, félaus úr föð-
urgarði, og hafði eignazt traust
og vináttu ýmsra trúmálaleið-
toga í Danmörku, er hún kom
aftur til Reykjavíkur árið 1909.
Kom þá brátt í ljós að dugnað-
ur hennar var miklu meiri en í
meðallagi. Hún varð aldarvinur
okkar hjónanna og kom því til
vegar m. a. að konan mín gaf
kost á sér við bæjarstjórnarkosn
ingar árið 1912. Ingibjörg var
framkvæmdafulltrúi Kristilegs
félags ungra kvenna í Reykjavík
1910—12, og vildi þá m. a. stofna
stórt kvennaheimili fyrir félag-
ið. Þegar það iánaðist ekki, varð
'hún við áskorun danskra vina
sinna og varð leiðtogi KFUK í
Vejle í Danmörku. Upp frá því
voru henni falin sívaxandi trún-
aðarstörf hjá KFUK Dana og um
öll Norðurlönd, en til íslands
kom hún ekki nema tvisvar eft'
ir það. Mér þótti sérstaklega
eftirtektarvert að hún skyldi
vera aðalleiðtogi hins fjölmenna
KIUM í Kaupmannahöfn einmitt
um það leyti (1920), sem öldur
r>su hátt meðal Dana út af ,,skiln
aðarmáli íslands". Dapir áttu
sannarlega margar duglegar trú-
konur til trúnaðarstarfa, en Ingi
’björg gat samt — öfundarlaust
— valið úr trúnaðarstöðum
KFUK, — „enda þótt hún væri
íslendingur", og héldi fast í
þeirra taum, er landar hennar
áttu hlut að máli.
Árið 1947 sagði einn af fremstu
kennimönnum Finna við mig:
„Eruð þér fslendingar svo ríkir
að framúrskarandi starfskröft-
um á túmálasviði að þér hafið
efni á að láta aðrar eins starfs-
konur og Ólafíu Jóhannesdóttur
og Ingibjörgu Ólafsson starfa er-
lendis ævilangt? „Segið mér“,
bætti hann við og hvessti augun
á mig. „Hvers vegna fór Ingi-
'björg frá íslandi?" Svar mitt er
ekkert blaðamál.
Eg bið blaðið fyrir að birta hér
á eftir æviágrip hennar, sem hún
ritaði sjálf í bókina „Hver er
maðurinn". Ókunnugir geta af
því séð að það er ekkert undar-
legt þótt vinir hennar hrósi
henni. Mætti þó bæta ýmsu við.
T. d. er hún heiðurfulltrúi ís-
Jenzka biblíufélagsins fyrir störf
•ín þess vegna á Englandi.
Guð blessi Ingibjörgu um ár
og eilífð.
Sigurbjörn Á. Gíslason.
Æviágripið er á þessa leið:
Ingibjörg Ósk Jónsdóttir Ólafs-
•on, f. 7. 9. 1886 á Másstöðum í
Vatnsdal. For. J. b. þar Ólafsson,
•iðar á Mýrarlóni i Kræklinga-
hlíð, og k. h. Guðrún Ólafsdótt-
ir b í Eiríkstaðakoti í Svartárdal
Pálssonar. Ólst upp "I Galtarnesi
í Víðidal frá 4.—14. árs. Nám í
Kvennaskólanum í Rvík oe í
Gagnfr.skólanum á Ak., Askov-
og Vallekilde-lýðháskólunum,
Kennaraskólanum í Kh. og í
Kingsmead College í Englandi.
Frkvstj. KFUK 1910—30, í Rvík
1910—12, í Vejle á Jótl. 1912—16,
ferðaftr. í Danm. 1916—19. Aðal-
frkvstj. KFUK í Kh. 1919—22, á
öllum Norðurlöndum 1922—30. f
stjórn Dansk-Isl. Samfund 1918
—26, Dansk-Isl. Kirkesag 1919—
38. Kosin í stjóm The Viking
Society for Northern Research
1934. Ftr. Danmerkur í The
Internat. Bureau for the
SuppressionandTraffic in Women
and Children síðan 1934. Búsett
í Rottingdean, Sussex, Englandi
Send af Dönum til Þýzkalands
1919 til þess að rannsaka hung-
ursneyðina, sem þá ríkti þar.
Ameríkuför 1924 til þess að heim
sækja þar danska söfnuði. Rit:
Um siðferðisástandið á íslandi,
1912. At ældes smukt. 1929.
Thorkil paa Bakki, smásögur,
1934. Tanker undervejs, ritgerð-
ir, 1936. Do not worry, 1937.
What is Conversion? 1937. Auk
þessa fjöldi ritgerða í ýmsum
(mest útl.) blöðum og tímarit-
um. R. F. 1935. Óg.
De Gaulle sagði í gœr;
Vestrœn ríki
mega ei hvika
Sovétveldið vill dylja innri vandamál sín
PARÍS, 5. sept. (NTB/Reuter)-uppi því lögregluríki, sem tilvist
Kveðjusöngur
Fóstbrœðra
De Gaulle, forseti, lýsti því yfir
í dag, að það sem mestu máli
skipti, væri að vestræn ríki
hvikuðu hvergi fyrir hinum ein-
hliða aðgerðum Sovétveldisins.
Þá aðvaraði hann sovétstjórnina
með þeim ummælum, að Vestur-
veldin væru nægilega öflug til
að þurrka kommúnismann út —
ef Sovétveldið neyddi þau út í
heimsstyrjöld.
Blaðamannafundur i París
Þessar yfirlýsingar gaf de
Gaulle á fyrsta blaðamannafundi
sínum í 8 vikur, en hann var
haldinn í Elysee-höllinni, embætt
isbústað forsetans, þar sem komn
ir voru saman yfir 700 franskir
og erlendir blaðamenn. Sat de
Gaulle forseti, þar á upphækkuðu
sviði, en fyrir neðan hann var
Michel Debre, forsætisráðherra,
og aðrir meðlimir frönsku ríkis-
stjórnarinnar.
Hvika hvergi
De Gaulle sagði, að Sovét-
stjórnin vonaðist til, að Vest-
urveldunum þrem Banda-
rikjunum, Bretlandi og Frakk'-
landi féllist hugur í Berlín-
ar-málinu og mundu láta und-
an ógnunum Sovétveldisins.
„Þar skjátlast þeim“, sagði
forsetinn.
Vissulega væri hætta á styrjöld
vegna Berlínardeilunnar, en ekk-
ert ynnist við það að láta undan
kröfum Sovétveldisins. Ef til
kjarnorkustyrjaldar kæmi, mundi
notkun slíkra vopna hafa í för
með sér, að ófært yrði að halda
kommúnismans byggðist á.
Samkomur
Fíladelfía
Almenn samkoma kl. 8.30. —
Mr. Hunt talar o. fl. Allir vel-
komnir.
Vindáshlið K.F.U.K.
Hlíðarfundur fyrir telpur verð
ur í kvöld kl. 8 í húsi K.F.U.M.
og K. — Komdu ef þú getur,
mundu skálasjóð.
Stjórnin.
Hjálpræðisherinn
Fimmtudag kl. 8.30. Almenn
samkoma. Allir velkomnir.
Innri vandamál Sovétveldisins
De Gaulle sagði, að atferli So-
vétveldisins upp á síðkastið virt-
ist bera vott um innri vandamál,
sem stjórnedur þess ættu við að
etja og yllu þeim áhyggjum.
Vildu þeir með aðgerðum sínum
reyna að draga yfir þau fjöður.
„Fylgiríkin, sem haldið er
niðri af Moskvu-valdinu finna
í þjóðarsál sinn æ meir til/
þeirra hörmunga og niður-1
læginga, sem þær hafa orðið
að þola“, sagði hann.
ENN ÉR karlakórinn Fóstbræður
að hleypa heimdraganum, og er
förinni að þessu sinni heitið til
Finnlands og Sovétríkjanna. Ger-
ist nú skamjnt stórra högga á
milli hjá þessum ágæta kór, því
að á síðasta ári fór hann einstak
lega vel heppnaða söngför til
Norðurlanda og uppskar þar ó-
venju samróma lof fyrir frábæra
frammistöðu á söngpallinum. Er
þess að vænta, að svo verði einn
ig í þessari för.
Kórinn hefir haldið kveðjusam
söngva fyrir styrktarfélaga sína
og aðra vini í Austurbæjarbíói í
gærkvöldi og fyrrakvöld. Sá, sem
þessar línur ritar, hlýddi á sam
sönginn í gærkvöldi, og var hús
ið þá fullskipað, og m.un svo einn
ig hafa verið fyrra kvöldið. Kór
inn söng, undir stjórn Ragnars
Björnssonar, meginhluta þeirrar
söngskrár, sem ráðgert er að
syngja á samsöngvunum í Finn-
'landi. Einsöngvararnir Erlingur
Vigfússon og Kristinn Hallsson,
sungu dúetta, en í utanförinni
munu þeir syngja íslenzk ein
söngslög milli atriða á söngskrá
kórsins. Sönskráin virtist í
lengsta lagi, og um lagaval og
niðurröðun má lengi deila. En
söngurinn var mjög vel samæfð
ur og samstilltur, áferðargóður
og blæfagur, og í flestum lögun
um stílhreinn og sannur. Ein-
söngvararnir luku sínum hlut-
verkum með mikilli prýði, og er
sérstök ástæða til að fagna þeim
framförum, sem Erlingur Vigfús
son virðist taka með hverju nýju
verkefni, sem honum er fengið.
Carl Billich annaðist undirleik
og var kórnum hin bezta stoð,
sem og jafnan áður.
Þeir einir, sem reýnt hafa,
munu gera sér fulla grein fyrir
því, hvílíkt átak undirbúningur
og framkvæmd langrar söngfárar
til útlanda er fyrir alla þá, sem
hlut eiga að máli, og það eins
fyrir því, þótt þeir njóti fyrir-
greiðslu stjórnarvaldanna. Þá
fyrirgreiðslu ber að sjálfsögðu að
þakka, en sú mikla og ólaunaða
sjálfboðaliðsvinna, sem stjórnend
ur og þátttakendur leysa af hendi
er ekki síður þakkar verð. Slíkar
ferðir, ef vel takast, eru hin á-
kjósanlegasta landkynning, og
það mun óhætt að undirstrika
orð forseta íslands, herra Ásgeirs
Ásgeirssonar, í kveðju hans til
Fóstbræðra: „Móttökur kórsins
allstaðar sanna, að hann hefir
alltaf verið landi sínu og þjóð til
sóma“.
Sem gamall ferðafélagi Fóst-
'bræðra óska ég þeim allra farar
heilla, þegar þeir nú leggja á slóð
ir, sem enginn íslenzkur kór hef
ir áður troðið. Eg vona, að þeim
máttarvöldum, sem stýrðu ferð-
um Gagaríns, megi takast að
forða þeim frá útbrotum og maga
veiki, meðan þeir dveljast þar
eystra, en öðrum — Og æðri —
máttarvöldum treysti ég til að
leiða þá heila heim að lokinni
frækilegri för. JÞ
Valdbeiting — ef nauðsyn krefur,
Ef Sovétveldið reynir með.
valdi að rýra réttindi Vesturveld
anna í Berlín eða gerir tilraunir
til að hindra flugsamgöngur
þeirra við borgina, verða vest-
ræn ríki að koma í veg fyrir
slíkt með valdbeitingu, ef nauð-
syn krefur. Það getur leitt af sér
styrjöld. En fari svo, þá er það
af því, að Sovétstjórnin æskir
slíks.
öll undanlátssemi af vest-
rænni hálfu mundi aðeins
gera illt verra og gæti
engu afstýrt. Það mundi að-
eins örva sovézka heimsvelda-
stefnu. Sérhver veikleiki vest
rænna ríkja mundi einnig
auka yfirgang Sovétveldisins.
Bizerta-herstöðin mikilvæg
Um Bizerta-málið sagði de
Gaulle, m. a., að Frakkland gæti
ekki og vildi ekki lúta því, að
flotastöðin þar kæmist í hendur
óvinaafla. Á hinn bóginn stæðu
Frakkar enn við það tilboð sitt
til Túnisstjórnar, að ganga til
Fólkaungarnii
lí heimleið
HÚSAVÍK, 5. sept. Um fyrri
helgi, þegar bóndinn á Fjöll-
um í Kelduhverfi, Héðinn Ól-
afsson, leit út snemma morg-
uns, sá hann tvo fálkaunga sitj
andi þar á fjárhúsþaki. Hon-
um þótti undarleg hegðun
þeirra. Fór Héðinn út og kall-
aði til þeirra. Annar þeirra
kom rétt til hans og telur
Héðinn, að hefði hann haft
æti í höndum, hefði hann get-
að náð þeim.
Næsta dag komu þeir að
næsta bæ, Lóni. Líklegt er,
að hér sé um hina rændu
Brettingsstaðafálka að ræða,
og að þeir séu á leið til heirn-
kynnanna í Hljóðaklettum.
Virðast þeir fara stytztu leið,
því að Lón er næsti bær við
Fjöll í beinni línu að Hljóða-
klettum. — Fréttaritari.
samninga um fyrirkomulag á af-
notum af herstöðinni, sem mark-
ast mundu af ástandinu í heim-
inum. De Gaulle vísaði á bug
þeirri hugmynd, að Atlantshafs-
bandalagið tæki við rekstri her-
stöðvarinnar. En hann lagði
áherzlu á mikilvægi hennar — ef
til styrjaldar kæmi.
Einbýlishús til sölu
Einbýlishús á bezta stað í bænum til sölu. Skipti
á góðri 5 herb. hæð kemur til greina.
Nánari upplýsingar gefur
Málflutningsskrifstofa
Einars B. Guðmundssonar, Guðlaugs Þorlákssonar
og Guðmundar Péturssonar
Aðalstræti 6. Símar: 1-2002, 1-3202, 1-3602
— Kvikmyndir
Framhald af bls. 11
fékk á sínum tíma allmisjafna
dóma. Leikararnir hlutu þó
flestir mikla viðurkenningu fyr-
ir leik sinn, einkum þó Sir
Laurence Olivier, sem lék leik-
arann Archie Rice, en það er
aðalhlutverk leiksins. En flest-
um þótti ekki nóg vel á efninu
haldið, og leikritið því ekki ná
verulegum tökum á áhorfend-
um. —
Hið sama má einnig segja um
kvikmyndina. Leikur Sir Oli-
viers, er fer einnig með hlut-
verk Archies í myndinni, er
vissulega frábær og aðrir leik-
endur, svo sem Brenda De
Banzie, sem leikur eiginkonu
Archies, Roger Livesey, sem
leikur föður hans, og Joan
Plowright (núverandi eiginkona
Sir Oliviers), er leikur dóttur
hans, fara öll ágætlega með
hlutverk sín. Engu að síður er
myndin þannig úr garði gerð,
að áhorfandinn hrífst ekki með.
fwut
PILTAR
ef þið pIqIS unnijsturv
pá a éq hrinqana /
VINNA
Ágætt tækifæri
fyrir stúlku vana heimilis-
störfum á nýtízku heimili, með
miðstöðvarhitun, í London. —
Óbrotin matreiðsla og létt heim-
ilisverk. Einnig sumarbústaður
í fallegri sveit klukkutíma ferð
frá London. Viðkomandi verður
að hafa ánægju af börnum og
hafa létt lundarfar. Skrifið
S. Crawford, 13 Adamson Road,
London, S. W. 3. England.
F élagslíf
Aðalfundur
íþróttakennarafélags (slands
verður haldinn í kvikmyndasal
Austurbæjarbarnaskólans föstu-
daginn 8. september kl. 4.30 að
loknu íþróttakennaranámskeið-
inu.
Stjómin.
Róðrarmót tslands 1961
verður haldið í Reykjavíl
laugardag og sunnudag 16. og 17
sept. nk. Keppt verður á 4-ær
ingum með stýrimanni. Þátttak:
tilkynnist skrifstofu ÍBR fyrii
13. sept. nk
XBR.