Morgunblaðið - 07.09.1961, Qupperneq 19
Fimmtudagur 7. sept. 1961
MORGZJ'NBLAÐIÐ
19
Þessar telpur voru að taka
upp kartöflur í Skólagörðum
Reykjavikur nálægt Alaska-
stöð'inni íyrir neðan Mikla-
torg, þegar ljósmyndarann bar
að. Sú, sem reiðir gaffalinn
um öxl og hefur kartöflu-
pokann á bakinu, heitir Svein-
björg Eyvindsdóttir, en sú,
sem er að setja kartöflur í
fötu, heitir Helga Einarsdóttir.
Þær segja, að fyrir hver fimm
pund, sem þær setji niður, fái
þær sextíu í uppskeru að með-
altali. — Ejósm. Mbl. K. M.
•P'sH*?
Hefur skotið ytir
þúsund hvali
á 70 árum
Afrek Kristjáns Þorlákssonar skip-
stjóra á Hval IV
KRISTJÁN Þorláksson, skipstjóri
á Hval 1 hefur unnið það afrek
að hafa skotið yfir eitt þúsund
Kristján Þorláksson
hvali á 10 árum, sem. hann hefur
verið skytta á hvalveiðiskipum
Hvals h.f. Hann skaut þúsund-
asta hvalinn fyrir síðustu helgi.
Var það búrhvalur. Kam hann
Góður heyfengur
í Barðaströnd
BARÐASTRÖND, 1. sept. Hey-
skap er að mestu lokið hér, og er
heyfengur með mesta móti hér yf
irleitt, grasspretta var mjög góð.
Þuríkar hafa verið litlir hér,
segja má að bændur hafi heyjað
tún sín að mestu á þrem vikum.
Byggingaframkvæmdir eru talS'
verðar hér í vor og sumar, einn
ig hefur verið sett upp súgþurrk
un hér á þrem bæjum og eru það
fyrstu bæirnir, sem súgþurrkun
kemur á.
í sambandi við fréttir af vígslu
f qlagsheimil isins hérna vil ég
leiðrétta misprentun á heimilis
fangi smiðsins við húsið, hann
heitir Jóhann Pétursson frá Akra
nesi, ekki Akureyri. Ennfremur
má geta þess að stofnaður var
hljóðfærakaupasjóður félagsheim
ilis á vígsludaginn. Ef einhver
hefði hug á að gefa í sjþðinn, þá
veitir Kristján Þórðarson Breiða
læk gjöfum móttöku. SJÞ
inn með 2 hvali til stöðvarinnar í
Hvalfirði s.l. sunnudag. Síðan hef
ur hann skotið tvo hvali til viðbót
ar svo að samtals hefur hann
skotið 1004 hvali.
Loftur Bjarnason framkvæmd
arstjóri skýrði Mbl. frá þessu í
gær. Hvað hann engan fslending
hafa skotið svo marga hvali í
Norðurhöfum.
Kristján Þorláksson varð
skytta hjá Hval h.f. árið 1951 en
síðan árið 1956 hefur hann jafn
framt verið skipstjóri á einu af
hvalveiðiskipum fyrirtækisins.
Hann er ættaður úr Álftafirði við
ísafjarðardjúp, sonur Þorláks
Guðmundssonar, sem var fræg
hrefnuskytta.
Stundaði hann I mörg ár hrefnu
veiðar með föður sínum .
Helgarferð
á Hlöðufell
ÞÓ MESTI ferðatíminn sé liShm
er Guðmundur Jónasson, ekki
enn hættur fjallaferðum sínum.
Nú um helgina efnir hann til ferð
ar að Hlöðufelli. Verður farið kl.
2 á laugardag, ekið að Hlöðufelli,
gengið á fjallið ef veður leyfir á
sunnudag og komið heim um
kvöldið.
Málverkasýning
Kristjáns
framlengd
MÁLVERKASÝNING Kristjáns
Davíðssonar í Bogasal Þjóðminja
safnsins, sem átti að ljúka um
síðustu helgi hefur verið fram-
lengd fram á næstu helgi. Sýning
in hefur staðið í 10 daga, ekki
verið mikið sótt af sýningargest-
um, en sala á myndunum sem þar
eru gengið vel.
Fjögnrra ára
ur á Tröllaf.
dreng
AKRANESI, 6. sept. — í dag er
hér Tröllafoss frá Eimskip, 4
þús. tonna, áhöfn 30 manns. Skip
stjóri Óskar Sigurjónsson. Tekur
hann hér 50 tonn af fiskimjöli á
Norðurlandamarkað.
Fjögurra ára gamall laglegur
dregnur hafði fengið að fara með
pabba sínum hingað og mamma
var í fylgd með honum svo að
hann væri alveg ugglaus.
Þakkir til Hreyf ils
VISTMENN að Reykjalundi
hafa skrifað blaðinu og beðið
það að færa forstjóra og bif-
reiðastjórum á Hreyfli innilegar
'kveðjur og kærar þakkir fyrir
ánægjulegt ferðalag inn Borgar-
fjörð 23. ágúst sl.
Flugþjónusfan á Keflavíkurflugvelli
hafði á 3. millj. brúttó tekjur i ágúst
Útsvarsskrá MSðnes-
hrepps lögð fram
Miðnes h.f. ber hœsta útsvarið
iBRÚTTÓTEKJUR flugþjónust-
unnar á Keflavíkurflugvelli voru
S ágústmánuði samtals 2 millj.
Og 327 þúsund kr. í mánuðinum
ttentu lö8 flugvélar og voru
tekjur af þeim samtals 1.962.000
kr., en það eru greiðslur á lend-
ingargjöldum, afgreiðslugjöldum
»g benzinskatti. 365 þúsund
krónur eru greiðsla frá varnar-
ttiðinu fyrir ýmsa þjónustu sem
iflugmálastjórnin lætur í té, L d.
Irekstur flugturnsins.
Flugumfeirð um Keflavíkur-
flugvöll er aftur að aukast. í
ágúst 1959 greiddu 114 vélar af-
greiðslugjöld. Á sama tíma í
fyrra voru þær 145, en 158 í ár.
iÞeas ber einnig að geta að nú
eru fiugvélarnar mun stærri en
fyrr, og greiða því meira í benz-
inskatt.
Hér fylgir mynd af DC-8
farþegaþotu hins konunglega
ttiollenzka flugfélagig KLM, en
flugvél þessi hafði nýlega við-
ikomu á Keflavíkurflugvelli á
leið sinni frá Amsterdam til
Tókíó. Frá Keflavík flaug
flugvélin, sem heitir Ric-
hard E. Byrd, í einum áfanga
'til Anchorage í Alaska. Með
flugvélinni voru 114 farþegar.
Þetta var fyrsta flug KLM með
farþegaþotu á þessari flugleið.
Nýlega hafa tvö flugfélög, Great
Lakes Airlines og Riddle Air-
lines, hafið leiguflug fyrir flug-
her Bandaríkjanna og koma
vélarnar reglulega við í Keflavík.
— BÞ. ,
SANDGERÐI 6. sept. — Útsvars-
skrá Miðnesshrepps var lögð
fram í morgun. Niðurstöðutölur
á fjárhagsáætlun voru 3,456,100
krónur, Jafnað var niður
2,456,100 krónum. Jafnað var nið
ur eftir útsvarsstiga kaupstað-
anna, og síðan dregin frá 41%.
Á 251 einstakling var jafnað nið-
ur 1,670,900 krónum, og á 12 fyr-
irtæki 785,200 kr. Þessi fyrirtæki
eru með 19,000 króna útsvar og
meira: Miðnes h.f. 349,600 kr.,
Guðmundur Jónsson 223,200 kr.,
Nonni og Bubbi verzlun 39,700
kr., Kaupfélagið Ingólfur 35,400
kr., Skeljungur h.f. 33,300 kr.,
Arnar h.f. 29,100 kr., Olíuverzlun
íslands 27,000 kr., og h.f. Hrönn
19,800 krónur.
Tíu hæstu einstaklingarnir eru
Pétur Björnsson vélstjóri 30,300
krónur, Guðni Jónsson skipstjóri
20,700 kr., Víðir Sveinsson stýrl-
maður 20,200 kr., Guðjón Magnús
son vélstjóri 17,700 kr., Aðal-
steinn Gíslason rafvirkjameistari
15,000, Kristinn Magnússon skip-
stjóri 15,000, Stefán Vilhjálmsson
skrifstofumaður 14,600, Óli S.
Jónsson skipstjóri 14,400, Sigurð-
ur Bjarnason skipstjóri 14,100 og
Guðmundur L. Guðmundsson
skipstjóri 14,000 krónur. — Páll.
— Fundur K & K
Framhald af bls. 1.
lendu- og heimsvaldastefnu i
sérhverri mynd.
Styrjöld og „kalt stríð“ eru
engan veginn óumflýjanleg.
Grundvallarreglan um frið-
samlega sambúð er hið eina,
sem fyrirbyggt getur „kalt
stríð“ og styrjöld.
Nauðsynlegt er að koma £
alþjóða, almennri afvopnun
undir tryggu eftirliti. Him-
ingeiminn má aðeins nota í
friðsamlegum tilgangi.
Sjálfsákvörðunarrétturinn
verður að vera undirstaðan i
öllum alþjóðasamskiptum.
Til sölu
er íbúð við Rauðalæk. Félags
menn hafa forgangsrétt lög-
um samkvæmt.
Byggingasaiuvinnufélag
Reykjavíkur.
DC-8 þota KLM.
Ráðning á gátu dagsins: Skegg.