Morgunblaðið - 09.09.1961, Qupperneq 1
20 síður
wpn
48. árgangur
203. tbl. — Laugardagur 9. september 1961
Prentsmiðja Morgtlnblaðsina
Ölafur Thors forsætisráðherra tekur sér hvíld
til áramóta
Hjarni Benediktsson dómsmála-
ráðherra gegnir stórfum for-
sætisráðherra á meðan
Jóhann Hafstein fer með störf
dómsmálaráðherra
Á RÍKISRÁÐSFUNDI, sem haldinn var klukhan 12,30 í
gærdag, skýrði Ólafur Thors, forsætisráðherra, frá því, að
hann hefði í hyggju að taka sér frí frá störfum frá 14. þ.m.
til loka þessa árs, að læknisráði. Var Bjarna Benediktssyni,
dómsmálaráðherra, falið að gegna störfum forsætisráðherra
í fjarveru hans. Ennfremur var Jóhann Hafstein, alþingis-
maður, skipaður dómsmálaráðherra og fer hann með önn-
ur mál, er heyrðu undir Bjarna Benediktsson.
Morgunblaðinu barst í gær svohljóðandi fréttatilkynn-
Ing um þetta frá ríkisráðsritara:
TILKYNNING
RÍKISRÁÐSRITARA
„Á fundi rikisráðs í
dag
Skýrði forsætisráðherra Ólafur
Thors frá því, að hann hefði í
hyggju að taka sér hvíld frá
störfum frá 14. þ.m. til ársloka
1961, að læknisráði. Var ráð-
herra Bjarna Benediktssyni fal-
ið að gegna störfum forsætis-
ráðherra í fjarveru Ólafs Thors.
Jafnframt var Jóhann Hafstein,
alþingismaður, skipaður ráð-
herra í ráðuneyti fslands og fer
hann með dóms- og kirkjumál
og önnur ráðherrastörf, er
Bjarni Benediktsson hafði með
höndum,
Á sama fundi skipaði forseti
íslands Hólmfríði Jónsdóttur,
cand. mag., kennara við Mennta
skólann á Akureyri, og Skúla
Þórðarson, magister, og Örnólf
Thorlacius, fil. kand., kennara
við Menntaskólann í Reykjavík
frá 1. þ.m. að telja.
Ríkisráðsritari, 8. sept. 1961.
Birgir Thorlacius.
SAMTAL VIÐ ÓLAF THORS
Morgunblaðið sneri sér af
þessu tilefni til Ólafs Thors, for-
sætisráðherra, og innti hann
nánari upplýsinga um fyrr-
greinda ákvörðun hans. Komst
hann þá að orði á þessa leið:
— Eins og stendur í fréttatil-
kynningunni er það að læknis-
ráði, sem ég hef ákveðið að
taka þessa hvíld. Sannleikurinn
er sá, að í allmörg ár hef ég alls
ekki tekið mér neitt teljandi frí
frá störfum, að því undanskildu,
að ég brá mér einu sinni burtu
í tvær vikur til útlanda.
Mér er auðvitað vel ljóst, eins
Heillaóskir til
Ólafs Thors
Ólafur Thors, formaður Sjálf
stæðisflokksins, Reykjavík:
Sextánda þing Sambands
ungra Sjálfstæðismanna send
ir þér kveðju og þakklæti fyrir
ótrauða forystu í málum lands
og flokks.
Okkur þykir leitt, að þú skul
ir ekki vera í okkar hópr að
þessu sinni og óskum þér góðr
ar heilsu og allra heilla.
.Fulltrúar á 16. þingi SUS á
Akureyri.
og öðrum, að þetta eru ekki
hyggileg vinnubrögð, og ég skal
ekki neita þvi að mér hefur
stundum fundizt ég kenna
þreytu, þó ég sannast sagna
treysti mér ekki til að segja
með vissu, hvort ég sé fremur
hvíldarþurfi nú en oft áður á lífs
leiðinni.
En úr því nú að læknir minn
hefur ráðið mér til þess að
bæta mér upp langan vinnudag
með hvíld til áramóta, og þar
sem bæði samstarfsmenn mínir
í ríkisstjóm og stuðningsmenn
stjórnarinnar á Alþingi hafa
fallizt á þá tillögu, þá hef ég
loks ákveðið að fylgjg þessum
vinsamlegu ráðum.
LEIÐIST IÐJULEYSIB
Auðvitað er ég hálfhræddur
um að mér leiðist iðjuleysið,
hélt Ólafur Thors áfram, ekki
sízt þar sem ég veit, að við
ýmsan vanda verður að etja. En
ætti ég að bíða eftir fríi þar til
ekkert yrði um að vera, yrði biðin
löng.
VARAFORMAÐUR
SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS
Bjarni Benediktsson, sem
gegna mun störfum forsætisráð-
herra á meðan hann er fjarver-
andi, er eins og kunnugt er,
varaformaður Sjálfstæðisflokks-
ins. Hann var fyrst kjörinn á
þing árið 1942 og hefur átt þar
sæti síðan.
Jóhann Hafstein, alþingismað-
ur, var fyrst kjörinn á þing árið
1946 og hefur setið á þingi síð-
an. —.
Ólafur Thors, forsætisráðherra, Bjarni Benediktsson, dómsmála- Jóhann Hafstein, alþingismaður,
— fær hvíld til áramóta. ráðherra, — gegnir störfum for- — fer með störf dómsmálaráð-
sætisráðherra. herra
2,691,270 hafa fluiö
Flóttamenn reyna nýjar leiðir
tii undankomu
BERLÍN, 8. sept. — Á síðustu 12
árum hafa meira en 2,5 milljón
ir A-Þjóðverja flúið til V-Þýzka
lands. V-Þýzka stjórnin greindi
frá þessu í dag og sagði talsmað
urinn, að fáeinir ofstækismenn
ríktu nú yfir 16 millj. A-Þjóð-
verja með ofbeldi og ógnunum.
Nánar tiltekið hafa 2,691,270 A-
Þjóðverjar flúið kommúnismann
á tímabilinu september 1949 —
15. ágúst 1961. í dag bættist a.m.
k. einn flóttamaður í hópinn. Það
var maður, sem ók bifreið á ofsa
hraða á múrinn, sem kommúnist
ar hafa reist á mörkum borgar-
hlutanna. Braut bíllinn skarð í
múrinn og þeyttist yfir mörkin
og dró á eftir sér gaddavírsflækju
úr girðingunni, sem a-þýzka lög-
reglan hefur sett upp hinum meg
in múrsins.
Maðurinn slapp ómeiddur, en
bíllinn var mjög skemmdur. A-
þýzku lögreglumennirnir gátu
ekkert að gert. Maðurinn hafði
komizt vestur yfir.
öðru vísi fór fyrir sex A-Þjóð
verjum, sem reyndu sama bragð
í nótt. Þeir voru svo óheppnir,
að vestan megin múrsins stóð
bifreið — og lentu þeir á henni,
þannig að bíll flóttamannanna
sat fastur á múrnum. A-þýzka
lögreglan brá skjótt við og gat
handsamað mennina um leið og
þeir klöngruðust út úr bílflakinu.
í v-þýzka bílnum voru hjón.
Áreksturinn, sem var mjög harð
ur, varð manninum að bana, en
konan er hættulega slösuð.
Undanfarnar nætur hefur vél-
byssugelt a-þýzku lögreglunnar
oft rofið næturkyrrðina í borg-
inni. Hefur lögreglan þá verið að
sprengjum áfram
skjóta á fólk, sem reynt hefur að
komast undan — og margir synda
yfir síkin, sem eru á mörkum
borgarhlutanna.
í dag drógu A-Þjóðverjar skrið
dreka og brynvarða bíla frá múrn
um á borgarmörkunum. Lögregl
an er nú ein eftir og gætir þess,
að enginn komizt út, en herliðið
bíður til taks skammt undan.
— segir Krusjeff
NEW YORK, 8. september. —
NEW YORK TIMES birtir í dag
viðtal við Krúsjeff þar sem
hann segir ,að Rússar muni
halda áfram með kjarnorkutil-
raunir sínar hvað svo sem Vest-
urveldin segi — og vísar þar
með á bug tillögu Macmillans og
Kennedys um stöðvun tilrauna.
Krúsjeff segist fús til að hitta
Kennedy, hann vill bjóða Kenn-
edy til Moskvú, með því skil-
yrði að heimsoknin verði árang-
ursrík.
Bretar, Frakkar og Italir
berajst aldrei með Bandaríkja-
mönnum um Berlín, segir Krús-
jeff, og Vesturveldin munu að
lokum fallast á okkar tillögu um
lausn Þýzkalandsmálsins. Tvö
þýzk rÍKÍ, tvennir friðarsamn-
ingar, ..jais -_.^iiín, en Austur-
Þjóðverjar eiga að hafa ráð yfir
samgönguleiðum til borgarinn-
ar. — Krúsjeff sagði enpfremur,
að Rússar ættu nú margarkjarn
orkusprengjur, sem hefðu 100
millj. tonna TNT styrkleika, það
væri þýðingarlaust að fara í
stríð við Rússa. Hins vegar
væru kjarnorkusprengjur og
langdræg flugskeyti ekki í Kína
og Austur-Evrópulöndum, nema
þá „kannski“ Austur-Þýzkalandi.
Kennedy
fer ekki
Washington, London, París,
Bonn, 8. sept. —
ÞAÐ er nú ljóst, að Krúsjeff
ætlar ekki að stöðva tilraun-
ir með kjarnorkuvopn þrátt
fyrir eindregin tilmæli Vest-
urveldanna og Belgradráð-
stefnunnar. Hefur þetta vald-
ið almenum vonbrigðum ut- J
an járntjalds og í Washington 1
er talið með öllu óliklegt, að _
Kennedy þekkist heimboð
Krúsjeffs meðan Vesturveld-
unum er ógnað með kjarn-
orkuflugskeytum. — I Lond-
on er nú fullvíst talið, að
Ráðstjórnin ætli að hætta á
að missa vináttu ýmissa Af-
ríku- og Asíuþjóða, en reyna
að þvinga Vesturveldin til
eftirgjafar með hótunum og
ógnunum. — 1 Bonn telja
menn lítið mark takandi á
ummælum Krúsjeffs um að
hann vilji ræða vandamálin
af einlægni við Vesturveldin
og í París eru stjórnmála-
menn yfirleitt þeirrar skoð-
unar, að Krúsjeff ætli nú að
spenna bogann eins mikið og
unnt sé án þess að strengur-
inn bresti. I