Morgunblaðið - 10.09.1961, Blaðsíða 1
24 slður og Lesbók
wc&mMðfoib
48. argangur
204. tbl. — Sunnudagur 10. september 1961
Prentsmiðja MorgunblatMM
Er „friöur" tak-
mark Rússa?
— spyr Dean Rusk efablandinn
í athyglisverbri ræðu
OFT er Austurvðllur fallegur
á sumrin. En nú er sá tími sem
blómskrúðið er hvað mest,
eins og blómin leggi fram alla
krafta sína til aff ilma sem
mest og sýna sitt fallegasta,
áður en haustið kemur og fell
Ir þau. Garffyrkjustjóri bæj-
arins hefur líka látið koma
fyrir rafmagnslömpum, svo að
þau sjnist sem bezt og lengst,
jafnvel þó farið sé að dimma
á kvöldin. Þessa mynd tók
ljósmyndari blaðsins KM í
gær.
De Gaulle sýnt
banatilræði
Forsetann sakadi ekki,
en hann er v/ð öllu búinn
PARÍS, 9. september. — De
Gaulle, Frakklandsforseta, var
Býnt banatilræði seint í gær-
kvöldi, en hann sakaði ekki.
Hinn sjötugi forseti var á leið
í bíl frá París til sveitaseturs
síiis, Colombey-Les-Deux-Eglis-
es, um 150 mílur frá borginai, er
tilræðið var gert.
SPRAKK EKKI
Eldfimt efni og sprengja höfðu
verið sett á veginn nær miðja
Framhald á bls. 23.
Washington, 9. sept.
VD3 BÚUMST við að hef ja við-
ræður við Rússa um Berlín jafn-
skjótt og Ijóst verður, að vilji
er fyrir hendi til þess að ræða
málið af alvöru. Spurningin er
bara, hvort friður sé sameigin-
)egt takmark okkar. Menn geta
ekki gert að því þó þeir efist um
að friður sé takmark Ráðstjórn-
arinnar eftir það, sem undan er
gengið, sagði Dean Rusk í ræðu
i gærkvöldi.
— • —
Allar aðgerðir Rússa að undan-
förnu hafa miðað að aukinni
spennu og einhliða aðgerðir gegn
stærstu hagsmunum hins frjálsa
heims í Berlín geta aðeins leitt
til ógæfu Og undanfarnar vikur
hefur slíkum aðgerðum verið hót
að, það hafa verið ógnanir, sem
leiða munu til óhugnanlegrar ó-
gæfu, ef þær verða Iramkvæmd-
ar.
— • —
Árásaröflin í heiminum eru að
reyna að villa okkur sýn, alveg
á sama hátt Og árásaröflin gerðu
íyrr á tímum. „Það eina, sem við
viljum, er friðarsamningur",
segja þau, friðarsamningur, sem
ognar heimsfriðnum. „Allt, sem
við viljum, er frjáls Berlín," segja
árásaröflin. Það frelsi, sem þau
tala um, er sams konar frelsi og
\ið sjáum handan múrveggsins
í Berlín.
Hvert dæmið á fætur öðrum
hefur sýnt okkur og sannað, að
Ráðstjórnarríkin munu ekki þola
sjálfsákvörðunarrétt neinnar
þjóðar, sem þau hafa þegar náð
völdum yfir. Sagan hefur sýnt
Okkur og kennt, að kommúnistar
vilja ekki byggja upp heim, sem
lýtur lögum og réttlæti. — Þeir
i'inna að því með öllum ráðum að
leggja undir sig heiminn — Og
tala um að „hugsjónir þeirra séu
að vinna heiminn '*, En hvaða
þjóð hefur að fúsum vilja gengizt
undir kommúnisma? Hvenær hef
ur þjóð kosið yfir sig komm-
úniska stjórn í frjálsum kosning-
uin? Aldrei.
— • —
Rusk ítrekaði það að Vestur-
veldin mundu ekki láta undán
síga í Berlín. Ráðstjórnin ætlaði
að prófa hinn frjájsa heim í Berl-
ín og það væri algerlega á valdi
hennar, hvort ófriðareldur mundi
'blossa upp. Vesturveldin mundu
standa óhagganleg á rétti sínum
og við Sikuldbindingar sínar.
Hvað
sagði
Krúsjeff
b
a
Washington, 9. september.'
RÚSSAR verða aldrei fyrstir
til þess að hefja kjarnorkutil-
raunir á ný, sagði Krúsjeff í'
fyrra. Talsmaður bandaríska
utanríkisráðuneytisins rifjaði
upp þessi ummæli Krúsjeffs,
er hann ræddi við fréttamenn.
í gær. Þann 14. janúar 1960
sagði Krúsjeff í ræðu:
„Eg vil endurtaka það og
Framh. á bis. 23
Reyndu að blinda
flugmenn í lendingu
Ný brögb kommúnista bera vott um
hreina litilsviroingu á mannslitum
BERLÍN, 9. september. — A-Þjóð
verjar reyndu í nótt nýja aðferð
til þess að auka viðsjárnar og
munnði litlu, að stórslys yrði. A-
þýzkir lögreglumenn beindu
sterkum ljóskösturum að tveim-
ur farþegaflugvélum, sem lentu
á Tempelhof-flugvellinum í V-
Berlín — og blinduðu flugmenn-
ina. Báðar flugvélarnar urðu að
gera aðra lendingartilraun — og
lentu heilu og höldnu með að-
stoð starfsmanna flugvallarins
(ground control approach). Eng-
an sakaði í flugvélumun.
Notaðir til að drepa flóttamenn.
Ljóskösturum þessum var ný-
lega komið fyrir á austurbakka
síkis eins, sem skilur á milli A-
og V-Berlínar. Hefur „alþýðu-
lögreglan" notað Ijóskastarana að
undanförnu til þess að lýsa upp
síkisbakkann og auðvelda þann-
ig tilraunir lögreglunnar til að
hefta flóttamannastrauminn til
V-Berlínar. Alloft hafa flótta-
menn iagt til sunds yfir síkin og
hefur þeim þá verið fylgt eftir
með kösturum til þess að vélbyss
ur kommúnista ættu auðveldara
með að hæfa markið.
Við svipuð veðurskilyrði og
voru í gær verða flugvélar, sem
lenda á Tempelhof að fljúga yf-
ir þar sem ljóskastararnir eru,
þegar þær lenda á flugvellinum
í tveggja mílna fjarlægð.
Tilraunir kommúnista til að
blinda flugmennina heppnaðist
vel og í annað skiptið mátti litlu
muna, að ekki yrði stórslys. En
flugmanninum tókst að „ná"
flugvélinni aftur upp á síðustu
stundu.
Yfirvöld V-Berlínar hafa mót-
mælt þessu fruntalega ofbeldi og
lítilsvirðingu fyrir mannslífum
harðlega.