Morgunblaðið - 13.09.1961, Page 10
10
MORGVNBLAÐIÐ
Miðvik'udagur 13. sept. 1961
■
Glóðarsteiktar
buffkökur
er tími, sem önnum kafnar
húsmæður og þær sem vinna
úti, kunna að meta.
Kjötið, sem notað er í buff-
RAFMAGNS-glóðarofnarnir
hafa á ótrúlega skömmum
tíma rutt sér braut inn á heim-
ilin. Og húsmæðurncir hafa
komizt að raun um að fleira
er hægt að steikja í glóðarofni
en fugla og stórsteik.
Hér er t. d. upskrift af góð-
um hádegisverði, sem tekur
12 mnútur að búa til, og það
Hnýtt belti
Hnýtt belti, með kögri í
endunum, hefur verið mikið í
tízku þetta sumar og haust.
Það er annaðhvort hnýtt laust
í mittið — eða um mjaðmirn
ar. Hvorki spennur, göt, fóð-
ur eða annað þess háttar eru
á beltunum, og því aBðvelt að
sauma þau sjálf. Hæstmóðins
um þessar mundir eru belti úr
rnjúku hanzkaskinni eða rú-
skinni í fallegum litum.
Mjög auðvelt er að sauma
beltið úr tveimur eða þremur
skinnbútum. Aukningin verð-
ur ekki til lýta, ef hún er t. d.
gerð við hliðarsaumana, og
endarnir saumaðir í odda og
stungnir á réttunni án innan-
brots, eins og sýnt er á með- við að auka i, er þar til gert
fylgjandi mynd. lím borið á rendurnar og hver
Lengd beltisins er mjaðma- rönd brotin ca % cm. Við eftd-
kökurnar verður að vera
fyrsta flokks, rétturinn miss-
ir sitt bragð, ef notað er eitt-
hvert úrgangskjöt. Og þá kem-
ur uppskriftin:
250 g nautakjöt, hakkað í
kjötbúðinni, 3 tæplega full-
þroskaðir bananar, 3 tómatar
og örlítið smjör.
Kjötið er mótað í þrjár buff
kökur og á rist grillpönnunn-
ar, ásamt afhýddum banön-
um og niðursneiddum tómöt-
imum. Penslað yfir með
bræddu smjöri. Ristin er sett
efst í ofninn. Brúnað í 6 mín-
útur. Banönum og kjöti er
snúið við, penslað og brúnað
aftur í 6 mínútur. Tómatsósu
er hellt yfir buffið mínútu áð-
ur en það er tekið út úr ofn-
ínum.
Örlítið af smjöri og kjöt-
krafti rennur niður á pönn-
una, sem er undir ristinni,
en auðvelt er að ná því burtu ;
með volgu vatni, og síðan er
soðinu hellt yfir buffið.
Pranskar kartöflur eru góðar
með þessum rétti. j
víddin, að viðbættum ca. 50
cm. Breiddin er mismunandi.
Á meðfylgjandi mynd er belt-
ana er klippt 8 cm langt kög- '
ur. Til að fá það jafnt. er bezt
að strika fyrir því með blý-
ið 8 cm breitt, að viðbætjum anti á röngunni, áður er byrj-
1% cm sem fer í innábrot. að er að klippa.
Gott er að teikna beltið upp Vilji beltið losna er ágætt
á röngunni með blýant. og að setja stóra smellu á röngu
reglustiku, og þegar lokið er ytri endans.
# KVIKMYNDIR * KVIKMYNDIR * KVIKMYNDIR * KVIKMYNDIR #
kvikmyndir * skrifar um kvikmyndir * kvikmyndir
Gamla bíó:
Karamassofbræðurnir
EIN af frægustu og áhrifa-
ríkustu skáldsögum sem samdar
hafa verið, er sagan „Karamass-
ofbræðurnir“, eftir hinn stór-
brotna rússneska rithöfund Fjo-
dor Dostojevsky (d. 1881). Hef-
ur Metro Goldwyn Meyer nú
látið gera kvikmynd eftir sög-
unni og er myndin sýnd í
Gamla bíói um þessar mundir.
Sagan gerist í Rússlandi á öld-
inni sem leið og segir þar frá
Fjodor Karamassof og sonum
hans. Fjodor gamli er hið mesta
ómenni, ágjam fram úr hófi,
illkvittinn og gjörspilltur af
drykkjusvalli og gerir sonum
sínum allt til bölvunar, sem
hann má. Synirnir eru fjórir,
Dimitri, sem er liðsforingi í
hernum, Ivan, sem settur hefur
verið til mennta, Aleksei, sem
hefur gengið í klaustur og svo
launsonurinn Smerdjakof, sem
Umboðsmenn:
Þórður Sveinsson & Co h.f.
Reykjavík.
Búið vel
um matSiin
SM
málmpappír
fæst í flestum mat-
vöruverzlunum.
—O—
Heldur matnum fersk
um í kæliskápnum.
—O—
Beztu umbúðir sem
hægt er að fá um
mat í ferðalög.
Biðjið um
SM
Málmpappír
( FOLIE)
er flogaveikur en undirförull og
slóttugur náungi. Hefur faðir
hans gert hann að þjóni sínum
og hefur sérstaka ánægju af
því að kvelja hann og niður-
lægja. Hinir bræðurnir eru
næsta ólíkar manngerðir. Di-
mitri er ofsafenginn, gefinn fyr-
ir fjárhættuspil — og fagrar
konur, en þó manndómsmaður
þegar á reynir. Ivan er kald-
hæðinn trúleysingi, en Aleksei
hæglátt góðmenni. Dimitri er
aðalsöguhetjan. Hann er ást-
fanginn af ungri stúlku, Kötju
Ivanóvu. Hún er honum frá-
hverf í fyrstu, en þegar hann
eitt sinn kemur fram við hana
af óvæntum drengskap vaknar
ást hennar til hans og hún verð-
ur heitmey hans. Nokkru síðar
kemst Dimitri í kynni við unga
og heillandi veitingakonu, Grú-
sjenku, og hrífst þegar af lífs-
gleði hennar og yndisþokka. —
Verða þessi kynni Dimitri ör-
lagarík, því að þau leiða til þess
að hann er sakaður um að hafa
myrt föður sinn og dæmdur í
þunga refsingu. Katja, sem nú
hataði Dimitri, vitnaði gegn hon
um og réði það miklu um úr-
slit málsins. En þar með er
sagan ekki öll, en ekki verður
hún rakin hér frekar.
Svo sem vænta mátti hefur
með mynd þessari ekki tekizt
að gera þessari viðamiklu og
fjölþættu skáldsögu veruleg skil,
svo sem þeir munu gleggst sjá,
er lesið hafa söguna. Margt er
þó gott um myndina, en ýmis-
legt miður tekist. Og víst er um
það að myndin er yfirleitt af-
bragðsvel leikin. Einkum er
snilldarlegur . leikur Lee J.
Cobbs í hlutverki Fjdors
gamla. Yul Brynner er þrótt-
mikill og karlmannlegur í hlut-
verki Dimitris, en oft hef ég
séð hann leika af sterkari inn-
lifun. Maria Schell er mjög
heillandi í hlutverki Grúsjenku
og leikur hennar yfirleitt sann-
færandi þrátt fyrir brosin, sem
hún lætur í té af meiri rausn
en efni standa til. Þá er og
mjög athyglisverður leikur Al-
berts Salmis í hlutverki Smerd-
jakófs.
Austurbæjarbíó:
Elskendurnir
ÞESSI franska mynd segir frá
ungri og dáfríðri konu, Jeanne
Tournier, sem býr með manni
sínum, auðugum blaðaútgefanda
og dóttur barnungri skammt
frá París. Frúin er óhamingju-
söm í hjónabandinu, einkum,
að því er virðist, vegna þess að
eiginmaður hennar, sem á mjög
annríkt, gefur sér ekki nægan
tíma til þess að skemmta henni
og dásama yndisleik hennar. —
Hún verður því tíður gestur
hjá vinkonu sinni í París og
bætir sér þannig ríkulega upp
einmanaleikann heimafyrir og
vel það. Hún kynnist þarna
pólóleikara, einum heljarmiklum
„sjarmör“, og gefur honum fljót
lega ást sína. En nokkru síðar
hittir hún af tilviljun annan
mann, ungan og fríðan, sem ek-
ur henni heim til hennar og
gistir heimili hennar um nótt-
ina. Skiptir nú errgum togum að
þau verða óskaplega hrifin
hvort af öðru og eyða miklum
tíma næturinnar í heitum ást-
aratlotum úti í garðinum og
halda þaðan beint í bólið í her-
bergi frúarinnar. Snemma um
morguninn stíga þau upp í bif-
reið unga mannsins og þannig
kveður frúin heimili sitt, eigin-
mann og unga dóttur fyrir fullt
og allt og lætur sér ekki bregða.
Sagt er að mynd þessi hafi
hlotið verðlaun á kvikmynda-
hátíðinni í Feneyjum. Ekki skal
það vefengt, en mér finnst mynd-
in næsta léleg — og hinu veika
kyni lítt til vegsemdar. Efnið
er lítilfjörlegt, mörg atriðin
full af tilfinningasemi og
væmni, samtölin lágkúruleg,
ástaratlot strípaðra elskenda
orðið hversdagslegt fyrirbæri I
kvikmyndum og ógn leiðinlegt
og leikurinn rétt í meðallagi. t
19 ára stúlka
með nokkra enskukunnáttu
óskar eftir vinnu, helzt á
tannlæknastofu. Er vön og
hefur meðmæi. Annars kem-
Ur fleira til greina nema vakta
vinna. Tilb. merkt „Miðbær
— 1567“ sendist fyrir fóstu-
dag.
Félagslíf
JUDO
JUJUTSU
Fimmtudaginn 14. sept. hefst
námskeið í judo, einnig verður
kennd sjálfsvörn jujutsu. Æfing
ar fara fram í íþróttahúsi Jóns
Þorsteinssonar Lindargötu 7, á
mánudögum og fimmeudögum
kl. 8—9,30 e.h. Kennari verður
Sigurður H. Jóhannsson, 1. Kyu
frá the Budokwai í London.
Judodeild Ármanns
Róðramóti Islands 1961
er frestað. Verður mótið haldið
í Reykjavík 7. og 8. október n.k,
Tilkynningar um þátttöku send-
ist ÍBR, Hólateygi 2, fyrir 24.
sept n.k.
ÍBR.