Morgunblaðið - 13.09.1961, Blaðsíða 14
14
MORCVNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 13. sept. 1961
Hjartans þakkir til þeirra er glöddu mig á 70 ára af-
mælisdegi mínum 3. september s.l. með heimsóknum,
gjöfum, blómum og skeytum. Sérstaklega þakka ég syni
mínum, tengdadóttur og sonarsonum.
Bið ég ykkur allrar guðs blessunar.
Árbjörg Árnadóttir, Langholtsvegi 151
Hjartanlega þakka ég öllum þeim, sem glöddu mig á
áttræðisafmæli mínu 30. ágúst s.L
Sigríður Signrðardóttir,
stofu 20, Elliheimilinu Grund.
öllum þeim sem auðsýndu mér vináttu og hlýhug á
80 ára afmæli mínu, votta ég mínar innilegustu þakkir
og árnaðaróskir.
Þórnnn Sigurðardóttir, Sauðárkróki.
Ég þakka af alhug öllum þeim, sem með skeytum, blóm
um, gjöfum og heimsóknum gerðu mér 90 ára afmælis-
daginn þann 2. sept. s.l. ógleymanlegan.
Guð blessi ykkur.
Sigríðnr Sigurðardóttir, Hlíðargerði 25.
Sveitarstjóra og hreppsnefnd Eskifjarðar svo og bíl-
stjórnum er buðu okkur og keyrðu í mjög ánægjulega
skemmtiferð í Hallormsstað sunnudaginn 3. sept. s.l. send
um við okkar alúðar þakkir fyrir skemmtunina og
ógleymanlegan dag.
Gestirnir.
Systir mín
SIGRlÐUR MADSLUND
lézt í sjúkrahúsi í Kaupmannahöfn 8. þ.m.
Ölöf Signrðardóttir
Útför móður okkar
STEFANI HJALTESTED
Suðurgötu 7,
fer fram frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 14. september
kl. 1,30 e.h.
I>eim, sem vildu minnast hinnar látnu, er vinsamlegast
bent á líknarstofnanir.
Fyrir hönd okkar systkina.
Erlingur Hjaltested.
Þökkum hjartanlega fyrir auðsýnda samúð við andlát
og jarðarför mannsins míns, föður og tengdaföður
STEFÁNS GUÐMUNDSSONAR
Soffía Sigurðardóttir, börn og tengdaböm.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug
við andlát og jarðarför
RÓSBJARGAR Þ. BLÖNDAL
Hvammstanga.
Bjöm P. Blöndal, dætur, tengdasynir, bamabörn,
og barnabarnabörn
Þökkum innilega auðsýnda samúð Við jarðarför
KRISTlNAR JENSDÓTTUR
Elliheimilinu Grund.
Vinir hinnar látnu.
Sigurbjörn Ásbjörns-
son — Minningarorð
ÞANN 4. sept. s. 1. lést í Lands-
spítalanum Sigurbjörn Ásbjörns-
son, Skúlagötu 68, Reykjavík, að
afstöðnum mjög erfiðum veikind
um.
Hann var fæddur 8. ágúst 1903
á Akranesi, sonur hjónanna Sig-
ríðar Helgadóttir og Ásbjöms
Sigurðssonar. Ungur missti hann
föður sinn og eins og fleiri dug-
miklir drengir fór hann snemma
að vinna fyrir daglegu brauði, en
sjómennsku gerði hann að lífs-
starfi sínu og byrjaði sem aðstoð-
armatsveinn. Matreiðslustörf
lærði hann síðar í Kaup-
mannahöfn, og sigldi um ára-
tugi á íslenzkum skipum og
gat sér ágætt orð í því starfi.
Árið 1950 hætti hann sjómennsku
og stundaði síðan fiskverzlun hér
í Reykjavík, af miklum dugnaði
og fyrirhyggju.
Kvæntur var Sigurbjöm Mar-
gréti Guðjónsdóttur, Þorkels-
ar bónda að Haugi í Ámessýslu,
hinni mætustu konu, sem reynd-
ist honum ómetanlegur lífsföru-
nautur í blíðu og stríðu. Eign-
uðust þau hjón 5 mjög efnileg
Bifreiðaeigendur!
Gerist meðlimir í Félagi íslenzkra bifreiðaeigenda.
ínntökubeiðnum veitt móttaka í síma 15659, alla
virka daga kl. 1—4 nema laugardaga.
FÉLAG ISLENZKRA BIFREIÐAEIGENDA
Austurstræti 14, 3. hæð — Sími 15659.
Bifvélavirkjui
Óskum að ráða 2—-3 bifvélavirkja eða menn vana
bifreiðaviðgerðum til vinnu við bremsuviðgerðir.
Uppl. hjá verkstjóra á verkstæði voru.
STILLING HF.
Skipholti 35
Eiginmaður minn og faðir okkar
SIGURJÓN SKÚLASON
andaðist að Landakotsspítala aðfaranótt 12. september.
Jarðarförin ákveðin síðar.
MáJfríður Ásmundsdóttir og synir
Dóttir mín
PETRlNA ÞÓRARINSDÓTTIR
Hólabraut 11, Hafnarfirði
andaðist á Landspítalanum 11. þ.m. — Jarðarförin fer
fram frá Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði, laugardaginn 16.
þ.m. kl. 11 f.h.
Herdís Guðmundsdóttir
Þökkum innilega auðsýnda samúð við fráfall og jarðar
för föður okkar, tengdaföður og afa
STEFÁNS GUÐMUNDSSONAR
trésmíðameistara, Laugavegi 147 A
Dætur, tengdasynir og bamabörn.
Sigurbjörn Ásbjörnssor
börn og eru 4 þeirra á llfi, en
ungan son misstu þau.
Þau fjögur sem eftir lifa hafa
öll hlotið góða menntun, en þau
eru: Guðjón sem bráðlega lýkur
læknanámi, kvæntur Eygló Guð-
mundsdóttur, Hafdís gift Jóni Ó1
afssyni, flugumsjónarmanni, Sig-
ríður bankaritari, sem dvelur f
föðurhúsum og Sjöfn, sem nú er
búsett í Bandarikjunum gift
Sverri Vilhjálmssyni, sem stund-
ar þar nám f matvælaefnafræði,
en þau hjónin komu heim til fs-
lands nú í sumar og dvöldu hér
um tíma, en eru aftur horfin vest-
ur um haf, veit ég að þau senda
nú góðum föður og tengdaföður
sínar hinztu kveðjur, með þakk-
læti fyrir allt.
Sigurbjörn var sérstaklega
góður heimilisfaðir, og sá vel fyr
ir konu og börnum, með mikilli
umhyggju og af sínum alkunna
dugnaði bæði á sjó og landi.
Hann var alhliða góður starfs-
maður, og íþróttaunnandi var
hann mikill, hann eggjaði börn
sín til sundíþróttar, sérstaklega,
enda gladdist hann mjög yfir góð
um árangri þeirra í þeirri grein
sem öðrum. Áhugamaður var
hann einnig um knattspyrnu og
sat sig lítt úr færi að fylgjast með
þeirri íþrótt. Sigurbjörn hafði
fallega söngrödd og var hann
meðlimur í Karlakór Alþýðu um
árabil.
Það er oss öllum hinn mesti
styrkur í lífsbaráttunni að eiga
góðar endurminningar uim vini
vora, sem smám saman eru að
hverfa oss sjónum og vera þess
jafnframt fullviss að þeir lifa
áfram ekki aðeins í þakklátum
hugum vorum, heldur einnig í
öðrum og betri heimi.
Þeir, sem þekktu bezt Sigur-
björn Ásbjörnsson eru allir á
einu máli um það, hversu hjálp-
samur og góðgjarn hann var, og
má með réttu ileinka þeim
hjónum báðum þennan fagra vitn
isburð, því það er vitað að þá
leið þeim bezt þegar þau glöddu
aðra.
Um leið og vér nú að leiðar-
lokum kveðjum þennan dugmikla
mann og dáurnst að kjarki hans
og þreki samfara gleði, sem aldrei
var uppgerð, Vil eg senda eigin-
konu, bömum og öðrum ástvin-
um hans innilegar samúðarkveðj-
ur.
Guð bleissi þig.
Þ. 3.
Þetta ev BERIMIIMA saumavélin
sem að dómi „CONSUMERS REPORT" árbók Neytendasam takanna, er álitin bezta saumavélin á heimsmarkaðnum.
BERNINA — saumavélin er mjög auðveld í meðferð, á hana er hægt að sauma:
• Allan venjulegan léreftasaum.
• Allar tegundir af zig-zag saum.
• Gera hnappagöt, festa á tölur og merkja.
• Stoppa í sokka og sauma á skábönd.
Einnig er hægt að sauma 12 mismunanði skraut-
mynstur, algjörlega sjálfvirkt, og einnig hægt að
auka fjölbreyttnina, aðeins með að skipta um spor-
lengd og breidd.
BERNINA — saumavélin kostar kr. 9.920
og er seld með afborgunarskilmálum.
Fullkomin kennsla fylgir kaupverðinu.
Allar upplýsingar gefnar í
Sápuhúsinu, Lækjargötu 2 og
Heildverzlun Ásbjarnar Ólafsson, Grettisgötu 2A.