Morgunblaðið - 01.10.1961, Blaðsíða 1
24 slður og Lesbök
wiðAtiibib
48. árgangur
222. tbl. — Sunnudagur 1. október 1961
Frentsmiðja Morgnnblaðsina
um
Samning-
ar fram-
lengdir
en þóknun og
greiðslur til lækna
hækka um 137»
_f HANDHAFAR forseta-
valds gáfu út í gær bráða-
birgðalög um framleng-
ingu á samningum milli
læknafélaga og sjúkra-
samlaga. Samkvæmt þeim
skulu núg^ildandi samn-
ingar þessara aðila gilda
enn um sinn þar til nýir
samningar hafa verið
gerðir, þó eigi lengur en
til 31. desember n.k. Þá er
sú breyting gerð á, að
þóknun til læknanna svo
og allar greiðslur vegna
kostnaðar við starf þeirra,
sem sjúkrasamlögunum
ber að greiða, skv. gild-
andi samningum, skulu
frá 1. júlí 1961 hækka um
13%. Tilkynning félags-
málaráðuneytisins um
setningu bráðabirgðalag-
anna fer hér á eftir:
Handhafar forsetavalds
hafa í dag, samkv. 28. gr.
stjórnarskrárinnar, sett svo-
hljóðandi bráðabirgðalög um
framlengingu á samningum á
niilli læknafélaga og sjúkra-
samlaga:
Félagsmálaráðherra hefur
tjáð oss, að allir samningar
niilli læknafélaga og sjúkra-
samlaga falli úr gildi frá og
með 1. okt. n.k. Afleiðing
þess verði sú, að sjúklingar
verði að greiða að fullu þá
þjónustu, sem læknar veita
utan sjúkrahúsa. Hér við
bætist og það, að jafnframt
Frh. á bls. 2
NÚ ERU sfcólarnir að byrja
ojt veldur það miklum breyt-
ingum á útburðarstarfsliði
blaðsins. Má búast við að þetta
valdi talsverðum erfiðleikum
við að fcoma blaðinu til kaup-
enda, a.m.k. fyrstu daga októ
ber, en að sjálfsögðu verður
allt gert, sem hægt er til þess
að það gangi sem greiðlegast.
ýrland
Frjáísar kosmngar eftir 4 mánuði
ÍMÚGUR OG margmenni fagnjf.
aði Nasser, þegar hann kom
út úr útvarpsstöðinni i K.iiro
eftir útvarpsræðuna, sem hann
flutti til þjóðarinnar um á-
standa í Sýrlandi. Sagði
hann, að uppreisnin væri alvar
Elegt áfall fyrir hinn arabisk.-v
heim — og að ástandiS væri al
varlegra en það var í Súez
STstríðinu. — Nú virðist Sýr
Iand honiim tapað.
Ðamaskus og Kairo, 30. sept.
SÝRLENZKI fáminn var dreginn
að húni á öllum stjórnarbygg-
ingum í Damaskus í morgun og
byltingarstjórnin virðist nú hafa
óíl völd í sínum höndum. Hvergi
hefur komið til átaka, þvi lands-
lýður virðist þvert á móti hafa
fagnað nýju stjórninni innilega.
Nasser hefur látið af öllum ráða-
gerðum um að endurheimta völd-
in í Sýrlandi og samkvæmt til-
kynningu frá nýju stjórninni í
morgun er öllum Egyptum,
bæði hermönaium og óbreyttum,
sem dveljast í Sýrlandi, skylt að
gefa sig fram við stjórnarvöldin
svo að hægt verði að senda þá
til sins heimalands hið bráð-
asta.
Nýi forsætisráðherrann,. dr.
Mamoun Kuzbari, gaf í dag út
yfirlýsingu þar sem hann sagði,
að byltingin hefði verið gerð
vegna þess, að leiðtogar Arabíska
sambandslýðveldisins hefðu ver-
ið farnir að hneygjast um of í
austurátt.
Hét forsætisráðherrann því, að
hið nýja lýðveldi mundi hljóta
öll stjórnarfarsleg réttindi innan
fjögurra mánaða. Þá mundu fara
fram frjálsar kosningar, fullu
prent- mál- og fundafrelsi yrði
komið á, en undir sameiginlegri
stjórn Sýrlands og Egyptalands
hefði persónufrelsi einstaklinga í
Sýrlandi ekki verið orðið nema
nafnið tómt.
Þá sagði dr. Kuzbari, að sýr-
lenzka stjórhin mundi reyna að
treysta vinaböndin við aðrar
Arabaþjóðir. Stjórnin stæði ein-
huga með Aröbum í Palestínu
og styddi uppreisnarmenn í Alsír.
Hún mundi í einu og öllu fylgja
sáttmála Sameinuðu þjóðanna og
réttindi verkamanna og bænda
yrðu tryggð.
Ástandið í Sýrlandi komst í eðli
legt horf í morgun, en samt er
töluverður spenningur í fólki.
Samgöngur innan landsins eru
með eðlilegum hætti, en landa-
mærunum er enn lokað. Búizt
var við að þau yrðu opnuð síðar
í dag. Fjarskiptasamband hófst
aftur í morgun við Jórdaníu.
Ekki hefur komið til blóðsút-
hellinga svo vitað sé, og í áskor-
í
un fré stjórninni, sem lesin var
upp í þremur helztu útvarpsstöðv
um landsins var almenningur beð
inn að efna ekki til neinna úti-
funda, jafnvel ekki til þess að
fagna nýju stjórninni. Voru menn
beðnir að gæta stillingar Og láta
Egypta og aðra útlendinga
óareitta.
Fréttamönnum meinað að
sitja ráðstefnu A.S.I.
99
Innaniííkismál" segir Hannibal
Valdimarsson
í GÆR hófst ráðstefna Alþýðu-
sambands íslands um kjaramál
launþega. Morgunblaðið hafði
samband við skrifstofu Alþýðu-
sambandsins vegna þessa fundar
í gærmorgun og fór þess á leit,
að fréttamaður blaðsins fengi að
sitja ráðstefnuna. Hannibal Valdi
marsson, forseti Alþýðusambands
ins, varð fyrir svörum og skýrði
blaðinu frá þvi, að sambands-
stjórnin hefði á fundi á föstudag
ákveðið, að blaðamenn sætu ekki
þessa ráðstefnu. Við vorum á
báðum áttum um hvort við ætt-
um að leyfa blaðamönnum að
sitja ráðstefnuna, sagði Hanni-
bal, svo fundur var kallaður sam
an í sambandsstjórninni til þess
að ræða málið. Þar voru allir á
einu máli um, að bezt væri að
blað'amenn sætu ekki ráðstefn-
una til þess, að hún gæti verið
í sem frjálsustu formi, en ræðu-
menn þyrftu ekki að hafa á til-
finningunni að þeir stæðu and-
spænis mikrafóni eða blaðamönn
um, sagði forseti ASÍ. Þetta er
einungis gert til þess að funda-
menn geti talað sem frjálsast á
rá&stefnunni, bætti hann við.
Ámælisvert
Þegar Morgunblaðið gagnrýndi
harðlega við forseta Alþýðusam-
bandsins þessa ráðstöfun sam-
bandsstjórnar, sagði hann að
ekki væri unnt að breyta henni
og lagði áherzlu á, að hér væri
um innanríkismál Alþýðusam-
bandsins að ræða eins og hann
komst að orði. Aldrei væru blaða
menn á sambandsstjórnarfund-
um_ eða formannaráðstefnum
ASÍ. Við höldum sambandsstjórn
arfundi tvisvar á kjörtímabilinu,
annan að afloknu sambandsþingi
og hinn á því árí, sem sambands.
þing er ekki haldið. Þessi ráð-
stefna nú er eins konar útvíkk-
aður sambandsstjórnarfundur.
— En hefur Morgunblaðið þá
leyfi til að senda ljósmyndara og
taka myndir af fundarmönnum?
— Nei, svaraði forseti Alþýðu-
sambandsins, ekki samkvæmt
ákvörðun stjórnarinnar. En frétta
tilkynning verður gefin út af
ráðstefnunni lokinni, og þið fáið
hana væntanlega senda.
Morgunblaðið vill benda á, að
hér er auðvitað um hin furðuleg-
ustu vinnubrögð að ræða, sem
ekki væru viðhöfð þar sem lýð-
ræðisleg hugsun og frjáls blaða-
mennska sætu í fyrirrúmu.