Morgunblaðið - 01.10.1961, Síða 8
8
MORGVNBLAÐIÐ
Sunnudagur 1. okt. 1961
Eftir Sigurð Bjarnason
með vörn Suður-Kóreu, þau
hafi hindrað skjóta valdatöku
kommúnista í Kongó og stuðli
yfirleitt að því að styrkja að-
stöðu smáþjóðanna gegn út-
þenslustefnu Sovétríkjanna. /
Nú reyna leiðtogar Rússa og
fylgiríkja þeirra eftir fremsta
megni að hindra skipun manns
í starf framkvæmdástjóra sam-
takanna að Dag Hammar-
skjöld látnum. Krefjast þeir sí-
fellt að þrír eða jafnvel fjór-
ir framkvæmdastjórar verði
skipaðir, hver einstakur með
neitunarvaldi, þannig að tryggt
sé að samtökin verði gersam-
lega ófær um að gegna hlut-
verki sínu, stuðla að friði og
öryggi í veröldinni.
Getgátur eru uppi um það,
að samkomulag kunni þó að
takast um það, að Mongi Slim
verði kjörinn framkvæmda-
stjóri til bráðabirgða. Myndi
hann þá láta af forsetastarfi og
nýr maður kjörinn í það. Einn-
ig hefur heyrst nefnt að ekki
væri útilokað að samkomulag
gæti tekist um Burmamanninn
U Than í stöðu framkvæmda-
stjóra, sömuleiðis til bráða-
birgða.
Á bak við tjöldin er unnið
að því af alefli að ná samkomu
lagi um starfhæfa framkvæmda
stjórn samtakanna. En þar er
við ramman reip að draga.
Raddirnar um að samtökin séu
að klofna og eyðileggjast verða
stöðugt háværari, enda þótt
ekki skorti hollustuyfirlýs-
ingar við þau í ræðum manna
á allsherjarþinginu.
S. Bj.
- SKÁK
Framhald af bls. 6.
ABCDEFGH
ABCDEFGH
Staðan eftir 22. — Rxg3/
Ef 23. hxg3, Dh3f mát. Eða 23.
Rxg3, Dxd6 með greinilegum
stöðuyfirburðum fyrir svart.
23. Rxc8 Rxfl 1
Eftir 23. — Rxe2. 24. Dxe2 (24.
Rb6, Rf4f 25. Khl, Rxd3. 26.
Rxd7, Hf7) 24. —- Haxc8/ 25.
Hael! með hótuninni Rg3.
24. Rb6 Dc7
25. Hxfl Dxb6
26. b4!
„Glígó“ finnur öfluga vörn, sem
skapar honum möguleika á þrá-
skák. Ef 26. — Hac8. 27. bxc5,
Bxc5. 28. Hbl, Dc7. 29. Rxc5. Eða
26. — cxb4? 27. c5!
26. — Dxb4
27. Hbl Da5
28. Rxc5!
Og nú kemur harðvítug vending,
sem þarfnast geysimikillar ná-
kvæmni í útreikningi. Fléttan
leiðir til sjaldgæfrar jafnteflis-
stöðu.
28. — Dxc5
29. Dxg6f Bg7
30. Hxb7 Dd4
31. Bd3
Hvítur á nú hrók minna, en
svartur hefur engin tök á að
færa sér liðsyfirburðina í nyt.
31. ' — Hf4 J
32. De6t Kh8 *
Hér er mjög hættulegt að leika
32. —' Kf8? 33. Bg6, Dd2t,
(33. — Df6. 34. Hf7t, Bxf7. 35.
Bxf7, Hxf7. 36. c5! og vinnur.)
34. Kg3, Be5 og nú getur hvítur
unnið á tvo vegu. 1. 35. Dxe5.
2. 35. De7t, Kg8. 36. Dh7t, Kf8.
37. Dxh6t, Kg8. 38. Bh7t, Kh8.
39. Bf5t og mátar.
33. Dg6
Jafntefli.
IRJóh.
jákvæð og sett Rússa og kom-
múnistaríkin í neikvæða varn-
araðstöðu.
• Stófelld afvopnunar-
áætlun.
Kjarni þessarar ræðu Banda-
ríkjaforseta var sá, að hann
setti fram tillögur stjórnar
sinnar um alhliða afvopnun,
bann við kjarnorkutilraunum,
eyðileggingu kjamorkuvopna
og raunhæft eftirlit með fram
kvæmd afvopnunar í heimin-
um. Hann kvað Bandaríkin
standa við allar skuldbinding-
ar sínar gagnvart Vestur-Ber-
lín og vera reiðubúin til þess
að verja frjálsar samgörigu-
leiðir við borgina með beitingu
allra tiltækra vopna, ef þau
væru neydd til þess. En frið-
samleg lausn á Berlínarvanda-
málin væri möguleg og leiðir til
hennar bæri að kanna.
Forsetinn hafnaði algerlega
tillögum Rússa um þriggja
manna framkvæmdastjórn
Sameinuðu þjóðanna og setti
fram tillögu um stofnun sér-
staks gæzluliðs samtakanna til
100 þjóðir í
en vaxandi ótti við kloiníng þeirra
Jákvæðar tillogur um afvopnun rra avallt tn taks tn
■ verndar heimsfnðnum.
; New York 27. sept.
HINAR Sameinuðu þjóðir
eru orðnar eitt hundrað að
tölu. í dag var samþykkt að
taka Vestur-Afríkuríkið
Sierra Leone í samtökin.
Stofnríki samtakanna árið
1945 voru 51 að tölu. Má því
segja að tala meðlimaríkj-
anna hafi tvöfaldast. ísland
var 53. ríkið, sem gerðist að
ili að þeim. Gekk það í sam
tökin haustið 1946.
Inntaka Sierra Leone fór
fram við hátíðlega athöfn á
allsherjarþinginu síðdegis í dag.
með samhljóða atkvæðum. Síð-
an-var fulltrúum hins nýja rík-
is boðið að ganga í sálinn og
taka sér sæti á þingbekkjum.
Voru þeir tíu talsins, þrjár kon
ur og sjö karlar, allt svertingj-
ar eins og að líkum lætur. Allt
var þetta fólk klætt þjóðbún-
ingum, síðum skikkjum alla
vega litum og báru konurnar
jafnframt skartgripi í stórum
stíl.
Mongi Slim, forseti allsherj-
arþingsins bauð hina nýju þjóð
velkomna með - stuttu ávarpi.
Síðan tók forsætisráðherra
hennar Sir Milton Marghai til
máls og flutti ræðu. Þakkaði
hann þann sóma, sem þjóð
sinni væri sýndur með upp-
töku í alþjóðasamtökin, kvað
hana jafnan mundu styðja hug
sjónir þeirra og standa trúan
vörð um frelsi og mannréttindi.
Hann þakkaði Bretum fyrir víð
sýni og skilning á hagsmunum
þjóðar sinnar og lýsti fögnuði
sínum og annarra Afríkubúa yf
ir því að nýlenduskipulagið
væri nú senn úr sögunni.
Ræðu forsætisráðherrans var
mjög vel tekið. Mælti hann á
enska tungu.
Hófust síðan mikil ræðuhöld
til þess að bjóða hið nýja
ríki velkomið. Talaði utanríkis-
ráðherra Liberíu fyrstur en
síðan Home lávarður utanrík-
isráðherra Breta. Ræddi hann
m. a. þá þróun, sem leitt hefði
til frelsistöku Sierra Leone og
árnaði hinu nýja ríki allra
heilla. Flutti hann því einnig
árnaðaróskir hennar hátignar,
Elísabetar II. Bretadrottningar.
Sierra Leone hefur eins og
kunnugt er ákveðið að vera
áfram innan brezka samveld-
isins. Ibúar þess eru tvær og
hálf milljón.
Á næstunni mun skríða til
skarar um það, hvort tveim-
ur öðrum ríkjum verður veitt
inntaka í Sameinuðu þjóðirn-
ar. í>að er Afríkuríkið Mauri-
tanía og Asíuríkið Ytri-Mongo-
lía. Stendur í þófi um inn-
tökubeiðnir þeirra. Rússar
hindruðu í fyrra inntöku
Mauritaníu og hóta að gera
það einnig nú ef Ytri-Mongo-
lía fái ekki inngöngu. Kínverj-
ar (Sjang Kai Sjek) hóta hins
vegar að beita neitunarvaldi
gagnvart inntöku Ytri-Mongo-
líu, sem þeir segja að sé að-
eins leppríki Rússa. Er ennþá
óráðið, hvernig fer um aðild
þessara tve*ggja ríkja að sam-
tökunum.
Á þessu eða næsta ári er
einnig gert ráð fyrir að Tangan
ikja sæki um upptöku.
• Þrjár ræður.
. Það sem af er þessari viku
hafa þrjár ræður fyrst og
fremst mótað svip allsherjar-
þingsins. Það eru ræður þeirra
Kennedys, Bandaríkjaforseta,
Gromykos, utanríkisráðherra
Rússa og Homes lávarðar, ut-
anríkisráðherra Breta.
Kennedy forseti ávarpaði
þingið á mánudag fyrir troð-
fullum sölum og við mikla
eftirvæntingu. Var þetta í
fyrsta skipti sem hann kom
fram fyrir það eftir að hann
varð forseti. Flutti hann ræðu
sína með glæsibrag og var mjög
fagnað af þingheimi. Varð for
setinn sex sinnum að gera hlé
á máli sínu vegna langvarandi
lófaklapps áheyrenda. Tvö
merkustu blöð New York borg
ar, New York Times og Her-
ald Tribune telja bæði í for-
ystugreinum sínum að forset-
inn hafi hér flutt „stóra ræðu“
og áhrifamikla. Meðal fulltrúa
á allsherjarþinginu er einnig
talið að hún hafi verið mjög jfriðarins.
Hann lagði til að tilraunir
með gereyðingarvopnum yrðu
bannaðar í himingeimnum eða
á öðrum hnöttum.
• Svar Gromykos.
Gromyko utanríkisráðherra
Sovétríkjanna flutti ræðu sína
á þriðjudag. Stóð hún í eina
klst. og fjörutíu mínútur. Var
hún talin í hógværara lagi. En
hann hafnaði þó afvopnunartil-
lögum Kennedys með öllu.
Lagði hann megin áherzlu á þá
ákvörðun Sovétstjórnarinnar að
semja sérfrið við Austur-Þýzka
land en lét liggja að því, að
ekki væri óhugsandi að Rúss-
ar vildu leggja Berlínardeiluna
fyrir Sameinuðu þjóðirnar.
Gromyko víaði tillögum
Kennedys um bann við kjarn-
orkuvopnatilraunum algerlega
á bug. Hann léði heldur ekki
má'ls á néinskonar éftirliti með
að samningum um afvopnun
væri fylgt. Má raunar segja að
fátt nýtt kæmi fram í- ræðu
hans. Hann skammaði lýðræð-
isþjóðirnar heiftarlega og kvað
þær hafa gert Sameinuðu þjóð-
irnar að handbendi sínu. Hélt
hanri fast við tillögu Krúsjeffs
um þrjá framkvæmdastjóra
samtakanna.
• Tvöfeldni Rússa.
1 dag talaði svo Home lá-
varður, utanríkisráðherra Breta.
Fól ræða hans í sér skarpa.
ádeilu á Rússa. Komst hann
m. a. þannig að orði að heim-
urinn stæði frammi fyrir stór-
kostlegri hættu vegna tvöfeldni
Rússa. Greinilegasta dæmið um
hana væri það tiltæki þeirra að
hefja kjarnorkusprengingar á
sama tíma, sem þeir hefðu set-
ið að samningaborði í Genf um
bann við tilraunum með kjarn
orkuvopn.
Viðleitni Rússa til þess að
skipa þrjá framkvæmdastjóra
Sameinuðu þjóðanna hefði ein-
göngu þann tilgang að snið-
Mongi Slim forseti Allsherjarþingsins tekur a moti Kennedy
Bandaríkjaforseta.
Sjöundi áratugur 20. aldar-
innar ætti að vera tímabil þró-
unar og efnahagslegrar upp-
byggingar í veröldinni, sagði
Kennedy forseti.
Forsetinn ræddi einnig hern-
aðaraðgerðir kommúnista í
Laos og Vietnam og hina nýju
nýlendustefnu, sem Sovétrík-
in beittu sér fyrir. Hann skor-
aði á Rússa að láta af yfir-
gangsstefnu sinni og taka hönd-
um saman við Bandaríkja-
menn og aðrar frelsis- og
friðarunnandi þjóðir um af-
vopnun og varðveizlu heims-
ganga vilja meirihluta þeirra
og eyðileggja samtökin.
Sameinuðu þjóðirnár yrðu að
hafa framkvæmdavald til þess
að standa vörð um friðinn og
halda ofbeldisöflum í skefjum,
sagði utanríkisráðherrann.
• Svartsýni víða vart.
Vaxandi svartsýni verður nú
víða vart á framtíð Sameinuðú
þjóðanna. Sú skoðun verður
stöðugt almennari að Rússar
hafi einsett sér að koma sam-
tökunum fyrir kattarnef. Þeir
telja að þau hafi tafið fram-
sókn kommúnismans í Asíu