Morgunblaðið - 01.10.1961, Qupperneq 17
Jl£ám
MORCVNBLAÐIÐ
Sunnudagur 1. okt. 1961
17
A.’
Það sem
hefur kennt mér
/
Eftir Pablo Picasso
LANDSLAGSMYNDIR mínar
eru nákvæmlega eins og nekt
armyndir mínar og kyrralífs-
myndir; en fólk sér, að nefið
á andlitunum er „vitlaust", en
aftur á móti er ekkert við
brýrnar, sem kemur því úr
jafnvægi. En ég gerði þetta
„vitlausa nef“ af ásettu ráði.
Eg gerði það, sem nauðsynlegt
er til að neyða fólk til að sjá
nef.
Seinna sá það — eða mun
sjá — að nefið er alls ekki
„vitlaust". Eg var að koma í
veg fyrir, að það sæi aðeins
„dásaimlegt samræmi" eða „frá
bæra liti“.
f>að er ekki til nein ab-
starktlist. Það verður alltaf
að byrja á einhverju. Seinna
er hægt að f jarlægja öll merki
um raunveruleikann: Þá er
hvort eð er enginn hætta,
vegna þess að hugmynd fyrir
myndarinnar hefur skilið eft
ir óafmáanleg merki.
Hún er það, sem kom lista-
manninum af stað, eggjaði hug
myndalíf hans og vakti tilfinn
ingar hans. Hugmyndir og til-
finningar verða að lokum f ang
ar í verki hans; hvað sem þær
gera, geta þær ekki flúið mynd
ina; þær eru óskiptur hluti af
henni, jafnvel þegar nærvera
þeirra er ekki lengur greinan
leg.
Það er ekki hægt að fram-
kvæma neitt án einveru. Eg
hef skapað mér einskonar ein
veru, sem enginn verður var
við. Það er mjög erfitt að
vera einn nú á tímum, vegna
þess að við eigum úr. Hafið
þið nobkurn tíma séð dýrling
bera úr á sér? ' !
Allir reyna að skilja list.
Hvers vegna reynir enginn að
skilja fuglasöng? Hvers vegna
elskum við nóttina, biómin og
alla fegurðina umhverfis okk
ur, án þess að hafa löngun til
að skilgreina leyndardóma
þeirra?
En þegar um listaverk er að
ræða, heimtar fólk að skilja
það. Hvers vegna?
Ef fólk vildi aðeins skilja,
að listamaður skapar, vegna
þess að hann verður að skapa,
vegna þess að hann er gagn-
tekinn af list sinni. Listamað
urinn er aðeins mjög lítill
hluti af alheiminum og ætti
ekki að vekja meiri athygli en
hvað annað á jörðinni, sem
veitir akkur fegurð, gleði og
fullnægju.
Eg mundi aldrei ætlast til
þess, hvernig sem litið er á
myndir mínar, að nokkur gæti
orðið fyrir sömu tilfinnmga-
reynslu og ég varð fyrir.
Mynd nálgast mig úr mikilli
fjarlægð og mörgum uppsprett
um. Hvernig gæti nokkur
höndlað drauma mína, eðlis-
hvatir mínar og hugtmyndir,
sem skaut upp úr hafsjó tíma
og urðu að þróast, þar til þær
öðluðust sýnilega tjáningu.
Og hvernig getur þá nokkur
lesið það, sem ég ætlaði að
segja og varð ef til vill að tjá
gegn vilja mínum?
Að undanteknum mjög fá
um listamönnum, sem hafa
rutt listinni nýja farvegi, virð-
ast flestir ungir nútíma málar
ar ekki vita í hvaða átt þair
vilja halda. í stað þess að hag
nýta sér okkar eigin túlkun
og leita síðan að eigin leiðum,
trúa svo margir þeirra á end-
urvakningu og endurlífgun
þess liðna, þó að allur heim
urinn standi þeim opinn og
bíði eftir áhrifum og nýjum
hugmyndum.
Hér er ekki aðeins um það
að ræða að halda dauðahaldi
í fortíðina, heldur eiknig að
halda við gömlum listformum,
sem hafa lokið erindi sínu.
Nú á tímum eru til kíló-
metrar af myndum í „þessum
og þessum stíl“, en að rekast
á ungan listamann, sem mál-
ar í eigin stíl er sannarlega
sjaldgæft.
Eg er ekki svartsýnismaður.
Eg er ekki á móti neinu list-
formi, vegna þess að ég gæti
ekki lifað án listar, og án þess
að helga henni aílar stundir
mínar.
Eg elska list, því hún er
eina ástæðan fyrir tilveru
minni. Allt, sem ég hef gert
í sambandi við hana, hefur
veitt mér afskaplega mikla
gleði og fullnægju.
En einmitt þess vegna get ég
ekki séð neina ástæðu til þess,
hvers vegna svona margt fólk
í heiminum krefst þess að skil
greina list, s saman ná-
kvæmar fræðikenningar og
túlkun og lætur eigin fáfræði
um list afvegaleiða sig.
T annlœknasfofa
mín verður lokuð um tíma vegna flutnings.
Jón Sifftryggsson.
Til leigu
Falleg og þægileg 5 herbergja íbúð til leigu. —
Góð umgengni og fyrirframgreiðsla áskilin. — Upp-
lýsingar í síma 35280 í kvöld og næstu daga.
Fiðlukennsla
byrjar í október. Væntanlegir nemendur hringi í
síma 35731.
Rut Hermanns.
Keflavík — Atvinna
Bifvélavirki, helzt með réttindi, óskast nú þegar.
Sérleyfisbifreiðir Keflavíkur
VARAHLUTIR
ÖBYGGI - ENDING
Notio úðeins
Ford varahluti
FORD-umboðið
U. KHISTJÁIVSSOM H.F.
Suðurlandsbraut 2 — Simi; 35-300
Suðubeygjur
nýkomnar í stærðum %” til 6”.
VATNSVIRKINN H. F.
Skipholti 1 — Sími 19562.
Minkoskinn
Nokkur góð minkaskinn -til
sölu á kápur og dragtir á
Nýlendugötu 29. Sími 12036.
Fiölukennsla
Pfanókennsla
KATRÍN DALHOFF
Fjölnisvegi 1. — Sími 17524.
Til leigu
Falleg og þægileg 5 herbergja íbúð til leigu. Góð
umgengni og fyrirframgreiðsla áskilin. Upplýsingcir
í síma 35280, í kvöld, og næstu daga.
Sumorbústaður
eða land undir sumarbústað á fögrum stað óskast,
helzt við Þingvallavatn eða Álftavatn. — Tilboð
merkt: „Sumarbústaður — 5387“, sendist afgr. Mbl.
fyrir 10. okt.
Til kaups eða leigu
óskast, eitt til tvö herbergi með eldhúsi og baði í
Hlíðum, Holtum eða Túnum. Mikil fyrirframgreiðsla
eða góð útborgun, ef um kaup er að ræða.
Rannveig Þorsteinsdóttir, hrl.
Laufásvegi 2 — Sími 19960
Sniðkennsla
Sniðteikningar, máltaka, mátingar. — Næsta nám-
skeið hefst mánudaginn 2. okt. Innritun í síma
34730. Saumanámskeiðin hefjast 5. okt. ,
Dag og l^völdtímar.
Sníðaskóli Bergljótar Ólafsdóttur.
ATVIMMA
Stúlka, vön afgreiðslustörfum óskast nú þegar, ekki
yngri en 25 ára. — Upplýsingar á staðnuin milli kl.
1 og 2 mánudag og þriðjudag.
TEPPI HF.
Austurstræti 22
<=V<ERSHARP
SUPER <E
Hvílík þægindi, sparnaður og ánægja
að skrifa með góðum penna, sem
fæst á hóflegu verði EVERHSARP
SUPER E er nýjung í pennasmíði,
sem sparar yður tíma og óþægindi.
Hann er ávallt reiðubúinn til skrifta
mjúklega og örugglega.
•
EVERSHARP SUPER E sameinar
alla kosti lindarpennans. og kúlu-
pennans. Munið að kynna yður kosti
EVERSHARP SUPER E pennans,
þegar þér ákveðið kaupin á skóla-
pennanum. EVERSHARP SUPER E
fæst í helztu ritfanga- og bókaverzl-
unum.
Góður penni, hóflegt verð .. það er EVERSHARP