Morgunblaðið - 11.10.1961, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 11. okt. 1961
*
RÍKISRÁÐ. — Fundur var haldinn í ríkisráði i gær og féllst forseti Islands þar á tillögur
ráðherranna um ýmis frumvörp, sem ríkisstjómin hefur undirbúið og hyggst leggja fyrir Ai-
þingi nú í þingbyrjun; þ. á. m. frumvarp til fjárlaga fyrir árið 1962. — Myndin var tekin á
fundinum.
- Alþíngi
Framh. af bls. 1
sæti á Alþingi í fyrsta skipti
Sveinn S. Einarsson, verkfræð-
ingur í Kópavogi, varaþingmað-
ur Sjálfstæðisflokksins í Reykja
neskjördæmi. Aðrir varamenn
sem taka munu þátt í þingstörf-
um nú framan af, eru Hjörtur
Hjálmarsson, skólastjóri, í stað
Birgis Finnssonar, sem er í sendi
nefnd íslands á Allsherjarþingi
Sameinuðu þjóðanna, og þeir
Jón Pálmason og Einar Sigurðs-
son, er koma í'stað séra Gunn-
ars Gislasonar og Jónasar Pét-
urssonar, sem báðir eru forfall-
aðir vegna mikilla anna heima
fyrir.
Forseti setur þi»g.
Eftir að þingmenn voru komn-
ir á sinn stað gekk forseti ís-
lands í salinn og til ræðustóls.
Las hann þar fyrst bréf hand-
hafa forsetavalds frá 13. sept.
3.1. um að reglulegt Alþingi
skyldi koma saman til starfa
þriðjudaginn 10. október 1961,
en lýsti þvínæst yfir því. að Al-
þingi væri sett. Þá mælti forseti:
„Ég áma Alþingi allra heilla í
störfum, að það megi verða landi
og þjóð til trausts og halds, til
gæfu og gengis". Að lokum bað
forseti alþingismenn að minnast
ættjarðarinnar með því að rísa
úr sætum. Þingmenn stóðu á
fætur og forsætisráðherra,
Bjarni Benediktsson, mælti,
„Heill forseta vorum og fóstur-
jör'5! fsland lifi‘“. Var þá hróp-
að ferfallt húrra.
Alþingi til sóma og þjóðinni
til heilla
Eins og þingsköp mæla fyrir,
tók aldursforseti, sem í þetta
sinn var Gísli Jónsson, 1. þm.
Vestfirðinga, nú við fundar-
stjórn. Lýsti hann í örstuttu á-
Spilakvöld Stefnis
HAFNARFIRÐI — Stefnir,
fél. ungra Sjálfstæðismanna,
er nú að hefja vetrarstarfið
og verður reynt að hafa það
fjölbreytt í vetur eins og
endranær. Annað kvöld kl.
8,30 verður spilað bingó og
ýmis góð verðlaun veitt. Á
eftir er kvikmyndasýning.
Starfsemin verður í Sjálf-
stæðishúsinn og er öllum
heimil þátttaka meðan hús-
rúm leyfir.
Sýningu Vilhjálms
lýkur í kvöld
MÁLVERKASÝNING Vilhjálms
Bergssonar í Ásmundarsal við
Freyjugötu 41 hefur verið opin
í ellefu daga og lýkur í kvöld.
Sex myndir hafa selzt, og aðsókn
hefur verið góð.
varpi yfir ánægju þingsins vegna
nærveru forsetans og flutti for-
setahj ónunum þakkir fyrir þann
sóma, er þau hefðu áxmnið þjóð-
inni í nýafstaðinni för sinni um
Kanada. Einnig bauð hann þá
ráðherrana Bjarna Benediktsson
og Jóhann Hafstein velkomna til
sinna nýju trúnaðarstarfa og ósk
aði þess um leið, að Ólafur Thors
mætti öðlast góðan bata í þeirri
hvíld, sem hann hefði nú tekið
sér frá ráðherrastörfum. Aldurs-
forseti kvaðst vona, að störf
þingsins framundan mættu verða
Alþingi til sóma og landi og
þjóð til heilla.
Látinna alþingismanna minnzt
Að svo búnu minntist Gísli
Jónsson, aldursforseti þingsins,
4 fyrrverandi alþingismanna, er
látizt hafa, síðan þingi var slitið
sl. vor. Það voru þeir Jóhann
Þ. Jósefsson sem lézt í Hamborg
15. maí, Gunnar Ólafsson, er lézt
í Vestmannaeyjum 26. júní,
Angantýr Guðjónsson, sem einn-
ig lézt í Vestmannaeyjum 6. á-
gúst og Ásgeir Sigurðsson, er and
aðist í Stavanger 22. sept. sl. —
Er nánar greint frá minningar-
orðum forseta á bls. 23 í blaðinu
í dag, en í lok þeirra risu al-
þingismenn úr sætum í virðing-
arskyni við hina látnu.
Fjallað um kjörhréf
Þegar hér var komið yfirgaf
forseti íslands þingsalinn. Voru
síðan lesin upp bréf þau er bor-
izt höfðu með óskum um fjarvist-
arleyfi og að áðurnefndir vara-
menn tækju sæti. Þá voru settir
þingskrifarar til bráðabirgða
þeir Matthías Á. Mathiesen og
Skúli Guðmundsson. Þar eð einn
varamanna hafði eigi setið á
þingi áður, var þingmönnum
skipt í kjördeildir til að fjalla
um kjörbréf hans en fundi síð-
an frestað í tæpan stundarfjórð-
ung, meðan athugunin fór fram.
Aldursforsetavandamál
Það bar svo til tíðinda, þegar
fundur kom saman að nýju, að
settur þingskrifari, Skúli Guð-
mundsson, kvaddi sér hljóðs ut-
an dagskrár og benti á, að með
tilkomu Jóns Pálmasonar . sem
varamanns hefði nýr aldursfor-
seti tekið sæti á þingi. Vildi hann
því skjóta fram til íhugunar,
hvort ekki bæri samkvsem.t fyr-
irmælum þingskapa um að ald-
ursforseti skuli gegna störfum
þingforseta, þar til kjör hefur far-
ið fram — að fela Jóni að taka
við forsetastörfum. Gísli Jónsson
svaraði því til, að þetta atriði
mundi hafa verið hugleitt nokkuð
fyrirfram af skrifstofu Álþingis,
og ekki verið talin ástæða til
skipta. Urðu ekki frekari umræð-
ur um málið, en þingmenn brostu
góðlátlega að atviki þessu öllu,
meðan það stóð yfir.
Nýr þingmaður undirritar eiðstaf
Alfreð Gíslason bæjarstjóri var
framsögumaður kjördeildar þeirr
ar, er fengið hafði kjörbréf Sveins
S. Einarssonar til meðferðar.
Hann benti á smávægilegan galla
við útgáfu bréfsins, er athugun-
in hafði leitt í ljós, en burtséð
frá homum var einróma lagt til
að varamaðurinn tæki sæti á
þingi. Það var síðan samþykkt
samhljóða af þingheimi og undir-
ritaði Sveinn S. Einarsson að svo
búnu eiðstaf þingmanna. — Fundi
var þvínæst frestað.
Þingforsetar kjörnir í dag
Þingstörfum verður haldið á-
fram í dag kl. 13:30 og verða þá
m.a. kjörnir forsetar Sameinaðs
þings og þingdeilda.
Síldin dreifð
AKRANESI, 10. okt. — Vélbát
urinn Haraldur var úti 1 fyrri-
nótt með hringnót og fékk ekk-
ert. Hann varð þó var við síld,
en hún var dreifð og stóð djúpt.
Haraldur var sömuleiðis úti sl.
nótt, en fékk enga síld. Nú er
Haraldur staddur einhvers stað-
ar úti af Jökli og reynix enn
fyrir sér næstu nótt.
Átta línubátar landa hér í dag.
Aflinn er frá 3,5 til 5 tonn á bát.
Togarasölur
Á MÁNUDAG Og þriðjudag seldi
Sléttbakur í Grimsby alls 99
lestir fyrir 7,581 pund. Á mánu-
dag seldi Þormóður goði í Brem-
erhaven um 100 lestir fyrir 68.500
mörk. 4 aðrir togarar munu selja
í Bretlandi og Þýzkalandi í þess-
ari viku, Fylkir, Jón Þorláksson,
Norðlendingur og Haukur.
Washington, 10. okt.
(AP-NTB).
UTANRÍKISRÁÐUNEYTI
Bandaríkjanna tilkynnti í
dag að stjórnin hafi viður-
kennt hina nýju ríkisstjórn
Sýrlands. Segir í tilkynn-
ingu ráðuneytisins að með
sérstöku tilliti til yfirlýs-
ingar Sýrlandsstjórnar um
að hún muni virða allar
skyldur sínar á alþjóðavett-
vangi, hafi Bandaríkjastjórn
ákveðið í dag að veita stjórn
inni viðurkenningu.
Áður hafa nokkur Araba- og
kommúnistaríki viðurkennt Sýr-
landsstjórn, þeirra á meðal Sovét
ríkin, en ekkert Vesturveldanna.
Talsmaður utanríkisráðuneytis-
ins bandaríska segir að ríkis-
i
[Sambýli minks
og roitu
Á HÁALEITISVEGI 25 hefur
'verið stórt dúfnabú með
0—80 dúfum. Svo brá við á
laugardaginn, að 95 dúfur
’fundust þar bitnar til dauða.
Meindýraeyðir bæjarins, Leo
Schmidt, kom á vettvang og
,gerði ráð fyrir, að hér væri
um rottu að ræða og eitraði
fyrir hana. Gerðist nú ekkert,
fyrr en kl. 6 í gærkvöldi, að
15 dúfur fundust dauðar til
viðbótar. Grunaði meindýra-
eyði þá, að e. t. v. gæti verið
um mink að ræða, þótt stað-
urinn væri næstum í miðri
byggð. Eitraði hann o*g setti
upp gildrur. Á ellefta tíman-
um var húsið opnað. Kom
þá fyrst rotta í Ijós niðri
við jörð, sem var þegar
skotin, en síðan heyrðist
minkur hvæsa fyrir inn-
an. Hlaut hann sömu ör-]
lög og rottan. Benda öll verl
ummerki til þess, að rotta og
inkur hafi átt þarna sam-
býli og skipt þannig reitun-j
um, að minkurinn hafði efri
æðirnar, en rottan kjallar-
ann. Sagði meindýravörður
þetta vera algert einsdæmi,
enda hefði hingað til veriði
álitið, að minkurinn eyddi,
trottu og mús, þar sem hann
ifengi því við komið.
stjórnin hafi ráðfært sig við
stjórnir ýmissa annarra landa á.ð-
ur en ákvörðun var tekin um að
viðurkenna Sýrlandsstjórn. En
hann neitaði að svara því hvort
Arabiska sambandslýðveldið hafi
verið með í ráðum. Snemma í
síðustu viku skoraði Arabiska
sambandslýðveldið á Bandaríkja-
stjórn að fresta viðurkenningu 4
Sýr landsst j órn.
★
Þessi lönd hafa nú viOurkenht
Sýrlandsstjórn: Jórdanía, Tyric-
land, Formósa, Gautemala, íran,
Sovétríkin, Búlgaría, Austur-
Þýzkaland Kína, Pólland, írak,
Rúmenía, Túnis, Bandaríkin og
Spánn.
Hæstu vinningar í
Happdrætti
Háskólans
ÞRIÐJUDAGINN 10. október var
dregið í 10. flokki Happdrættis
Háskóla íslands. Dregnir voru
1,250 vinningar að fjárhæð
2.410.000 krónur.
Hæsti vinningurinn, 200.000 kr.
kom á heilmiða 41,211. Var hann
se'dur í umboði Arndísar Þor-
vaidsdóttur, Vesturgötu 10.
100.000 króna vinningurinn
kom á hálfmiða númer 6.223. Var
það númer einnig selt í umboði
Arndísar Þorvaldsdóttur.
10.000 krónur:
2854 8962 9212 12404 13164 13544
14205 14698 14881 16924 18462
21309 22766 23992 26413 30377
30429 30926 31225 31683 32197
32539 33336 34575 36395 39020
39988 41210 41212 43189 46108
49911 51989 52230 55363 55532
57045 57055.
(Birt án ábyrgðar)
KeOovík
Sjálfstæðiskvennafélagið Sókn í
Keflavík heldur aðalfund sinn í
Sjálfstæðishúsinu fimmtudaginn
12. okt. kl. 9 síðdegis. Auk venju
legra aðalfundarstarfa verða
kjörnir fulltrúar á landsfund
Sjálfstæðisflokksins. Að fundi
loknum verður sameiginleg kaffi-
drykkja Og spiluð félagsvist. Þess
er fastlega vænzt að sjálfstæðis-
konur fjölmenni á fundinn.
Mb
Hinn 7. október s.l. voru Ulbricht leiðtogi austur-
mikil hátíðahöld í Austur- þýzkra kommúnista og Ana-
Berlín í tilefni þess að þann stas Mikoyan varaforsætis-
dag voru liðin 12 ár frá valda ráðherra Sovétríkjanna í heið
töku kommúnista. Útifundur urssætum.
var haldinn á Marx-Enigels
torgi, en þar voru þeir Walter Austur-þýzka
ADN seglr ao á fundinuml
hafi verið um 250 þú&undl
manns, sem hafi ákaft hylltj
leiðtogana tvo, en sjónar-|
vottar í Vestur-Berlín áætlaf
að þama hafi aðeins mætt um ]
20 þúsund manns.
fréttastofan
Bandaríkin viður-
kenna Sýrlandsstjórn